Dagur - 15.11.1972, Blaðsíða 1
Fleslir vegir eru þungfærir
VEGAGERÐIN veitti blaðinu
þessar upplýsingar í gær:
Ófært var til Húsavíkur og
þungfært til Dalvíkur í gær.
Bílar voru aðstoðaðir og mun
vera fært til Dalvíkur ennþá en
illfært til Húsavíkur.
Múlavegur og Vaðlaheiðar-
vegur eru ófærir með öllu.
Oxnadalsheiði var orðin ófær,
Daguk
kemur næst út á miðvikudag-
inn, 22. nóvember.
svo og Öxnadalur, en bílar eru
aðstoðaðið í dag til að komast
leiðar sinnar mestur yfir heið-
ina.
Framvegis verður reynt að
halda veginum vestur yfir
Öxnadalsheiði á þriðjudögum
og föstudögum, veginum til Dal
víkur á mánudögum og fimmtu-
dögum og á mánudögum til
Húsavíkur, um Dalsmynni.
Heita má, að allir vegir í hér-
aði séu ýmist ófærir eða ill-
færir og hefur Vegagerðin ver-
ið beðin um mokstur í öllum
sveitum. Snjór er jafnfallinn.
LV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 15. nóv. 1972 — 53. tölublað
FILMUhúsið akureyri
Ástsæll prestur lél af embælti
Nesi, Fnjóskadal 13. nóv. Hér
um slóðir er nú aðeins fært
jeppum. Ýta varð í gær að
hreinsa veginn í Hálsklaufinni
og fóru þar á eftir milli tíu og
tuttugu bílar.
Allt fé er í húsi. Sex ær hurfu
úr girðingu sunnan við Bakka-
selsland og veit enginn hvað af
þeim hefur orðið. Gizka menn
á, að þær hafi lent í snjóflóði,
því að leit' miðað við að ærnar
hafi sloppið úr girðirigunni, hef-
ur engan árangur borið. Ær
þessar á Kristján Einarsson á
Þórðarstöðum.
Séra Friðrik A. Friðriksson,
ástsæll prestur, sem þjónað hef-
ur Hálsprestakalli undanfarin
ár, er nú fluttur til Húsavíkur.
Héldu sóknarnefndirnar honum
skilnaðarhóf i Stórutjarnar-
skóla 4. nóvember.
í Stórutjarnarskóla eru í vet-
ur á annað hundrað nemendur,
og allir í heimavist. Nemendur
dvelja þó heima hjá sér um
helgar. Skólastjóri er Viktor A.
Guðlaugsson. Stöðugt er unnið
við skólabygginguna, nú við að
fullgera kennslustofur, sém
verða teknar í notkun jafnóðum
og þær verða tilbúnar, nú í
vetur. Fjórir hreppar standa að
Stórut j arnarskóla.
V. K.
Frá vinstri: Hallsteinn Friðþjófsson, bæjarfulltrúi, Seyðisfirði, Ingimundur Magnússon, framkvæmda
stjóri, Egilsstöðum, Bjami Einarsson, bæjarstjóri, Akureyri, Áskell Einarsson, framkvæmdastjóri, og
Haraldur Gíslason, sveitarstjóri, Vopnafirði. (Ljósmyndastofa Páls)
Fiilltrúafundur landshluta
FUNDUR fulltrúa landshluta-
samtaka sveitarfélaga á Vest-
fjörðum, Norðurlándi og Aust-
urlandi var haldinn á Akureyri
9. og 10. nóvember 1972. Fund-
inn sátu frá Fjórðungssam-
bandi Norðlendinga Bjarni Ein-
arsson, bæjarstjóri á Akureyri,
og framkvæmdastjóri þes, Ás-
kell Einarsson, og frá Sambandi
sveitarfélaga í Austurlandskjör
dæmi Haraldur Gíslason, sveit-
arstjóri á Vopnafirði, Hall-
KONUR 00 KARLAR í KÍSILGÚRVINNUNNI
Ófeigsstöðum 13. nóv. Nú er
allt fé komið á gjöf og er ekki
knappt gefið á garða, í fullu
trausti þess að hey endist fram
á vordagana. En ekki var búið
að gefa fé, öðru en lömbum,
áður en illviðrið gekk yfir nú
fyrir nokkrum dögum. En
hræddur er ég um, að nú sé
orðið jarðlaust vegna snjóa og
þó einkum vegna storku. Hér
suður í dölum, svo sem í Bárðar
dal, mun hafa verið jarðlaust
um nokkurt skeið, líklega í
hálfan mánuð. Þangað er að
nafninu til bílfært.
En þótt jarðlaust sé, er ekki
algerlega ástlaust. Til marks
um það er trúlofun Hildar Bald
vinsdóttur á Rangá, myndar-
stúllcu og mér skyldri, og sá
PERUSALA
Félagar úr Lionsklúbbnum Hug
inn ætla að heimsækja ykkur
laugardaginn 18. nóvember og
bjóða ykkur ljósaperur fyrir
jólin. Einnig munu þeir bjóða
hin vinsælu jóladagatöl með
konfektmola á bak við hvern
dag.
Að venju fer allur ágóði til
líknarmála, og nú til Sólborgar.
hamingjusami er Garðar Jónas
son, Árholti, Húsavík, einnig
myndarmaður.
Hér er ekki mjög mikið rætt
um afla og ekki hætt við fiski-
leysi, í sveitinni. En Þormóður
segir þér um aflann á Skjálf-
anda, sem sagður er hafa verið
heldur dræmur upp á síðkastið.
Ekki veit maður, hvort
áhyggjur beri að hafa af efna-
hagsmálunum, því að ekki er
vel að marka hvað í blöðum
stendur. Þessum elskulegu
stjórnmálaflokkum, sem full-
trúa eiga á Alþingi, virðist sum-
um annað betur gefið en að
segja satt og rétt frá, einkum
hinum ábyrgðarminni, svo sem
stjórnarandstæðingum. Það er
ekki ósanngjörn tilgáta, að þeir
ljúgi fremur, sem óábyrgari
eru.
Rjúpnaveiði var ekki mikið
stunduð, því að menn höfðu
ekki tíma til þess að neinu ráði.
Menn vilja t. d. heldur vinna
fyrir tímakaupi, ef það er að fá.
Núna fyrir hretið sást dálítið af
rjúpum, en þær voru styggar
og veiddist því lítið.
Nú í dag, eftir hádegið, hefst
útskipunarvinna á Húsavík og
á að koma framleiðslu Kísil-
iðjunnar eða einhverju af henni
um borð í skip, sem hér kom
fyrir nokkrum dögum en varð
frá að hverfa og lá á Gríms-
eyjarsundi þangað til í dag.
Húsvíkingar hafa víst næga át-
vinnu og sinna ekki útskipun
kísilgúrs. Hins vegar fara kon-
ur og karlar úr sveitunum
stundum í þessa vinnu og er
tímakaupið yfir 200 krónur.
Ekki er þetta víst mjög erfitt,
því að konur jafnt sem karlar
gefa sig að þessari vinnu, allt
upp í fimm barna mæður og
verður ekki meint af. B. B.
steinn Friðþjófsson, bæjarfull-
trúi á Seyðisfirði og ennfremur
framkvæmdastjóri þess, Ingi-
mundur Magnússon. Fulltrúar
Vestfirðinga gátu ekki sótt fund
inn vegna samgönguerfiðleika.
ÁLYKTANIR
I. Áframhaldandi samstarf.
Samstarfsfundur landshluta-
samtaka sveitarfélaga á Vest-
fjörðum, Norðurlandi og Aust-
urlandi haldinn á Akureyri 9.—
10. nóvember 1972, telur nauð-
synlegt að tekið verði upp á ný
reglulegt samstarf landshlut-
anna, sem eðlilegt framhald af
samtökum kaupstaðanna í þess-
um landshlutum. Leggur fund-
urinn til að komið verði á fót
fastri samstarfsnefnd sem haldi
tvo til þrjá fundi árlega til skipt
is í landshlutunum. Samstarfs-
nefnd stuðli að auknu samstarfi
landshlutanna um byggðaþró-
unarmál. Beinir fundurinn því
til landhlutasamtakanna á Vest-
fjörðum, Norðurlandi og Aust-
urlandi að komið verði á sam-
starfi alþingismanna úr þessum
landshlutum um sameiginlega
hagsmuni og gagnkvæman
stuðning í baráttumálum lands-
hlutanna, og bendir m. a. á eftir
farandi:
ÚR lífi smalans
FYRSTA bókin á þessu hausti,
út gefin á Akureyri og blaðinu
send til umsagnar, heitir Úr
HAPPDRÆTTIÐ
ÞAÐ eru vinsamleg tilmæli til þeirra, sem fengið hafa lieim-
senda happdrættismiða Framsóknarflokksins frá Framsókn-
arskrifstofunni á Akureyri, að gera skil hið fyrsta þar, en
einnig er tekið á móti greiðslum á afgreiðslu Dags. □
Óskar Stefánsson.
lífi smalans og er eftir Óskar
Stefánsson frá Kaldbak.
Höfundurinn er áttræður
bóndi, sem nú dvelur í Skjaldar
vík, en á sér þar fjárhús og
fjárhóp, hirðir sjálfur fé sitt af
mikilli kostgæfni, og notar
einnig tímann til ritstarfa • og
lætur það vel. Hann er ritfær
maður, á frásagnagleði í ríkum
mæli og er mikill dýravinur.
Bókin hans, sem hann skrif-
aði í tilefni áttræðisafmælis
síns, skiptist í þrjá hluta: dýra-
sögur, æviþætti og drauma, og
eru þeir allir skemmtilegir, en
þó bera dýrasögurnar af.
Úr lífi smalans er 150 blað-
síður og í henni eru nokkrar
myndir. Hún vekur hjá manni
þægileg geðhrif. Bókaútgáfan
Skjaldborg á Akureyri gefur
bókina út og prentun annaðist
Prentsmiája Björns Jónssonar.
II. Raunhæf byggðastefna.
Fundurinn telur, að á næstu
árum stefni að stórfelldri rösk-
un byggðar í landinu verði ekki
gripið til áhrifameiri aðgerða til
tryggingar jákvæðri byggða-
þróun en beitt hefur verið til
þessa hér á landi. Það, sem fyrst
og fremst gefur til kynna hvert
stefnir er:
1) Vegna óvenjulegrar aldurs
skiptingar þjóðarinnar mun
miklu fleira ungt fólk koma til
starfa og velja sér búsetu í þjóð
félaginu á þessum áratug en
nokkru sinni fyrr, og að líkind-
um hlutfallslega fleira en verða
mun síðar. Meðalmenntun
(Framhald á blaðsíðu 5)
ÞUNGFÆRT ER Á
VEGUNUM
Reynihlíð 13. nóv. Þótt snjó-
koma og leiðinda veður hafi
verið í nokkra daga, hefur
alltaf verið bílfært til Húsavík-
ur um Kísilveginn. En ófært
mun austur um Námaskarð. Nú
er logn og bezta veður, síðan í
gærkveldi. En norður við sjó-
inn er stormur, samkvæmt
veðurfregnum.
Mývatn er nú komið undir ís,
en ekki mun hann vera traustur
yfirferðar ennþá.
Samkomur og gleðskapur
liggur niðri þessa dagana. En
fólk bætir sér það upp síðar, og
engin hætta á öðru. P. J.
ÞEIR SITJA FYRIR
SVÖRUM
FRAMSÓKNARFÉLAG Akur-
eyrar hefur, í samráði við full-
trúa sína í bæjarstjórn, ákveð-
ið að koma á viðtalstíma, þar
sem borgarar geta rætt við
bæjarfulltrúana um hin ýmsu
málefni bæjarins.
Fyrsti viðtalstíminn verður í
dag, miðvikudag, og þá munu
þeir Sigurður Óli Brynjólfsson
og Stefán Reykjalín sitja
• fyrir svörum í félagsheimili
Framsóknarmanna, Hafnar-
stræti 90, klukkan 5—7 síðdegis.
(Sími 21180).
Fólk er hvatt til að nota við-
talstímana. □