Dagur - 09.12.1972, Blaðsíða 8
8
SBKeKBKBH3<B>ÞiB>ÞÞÖBt&ÖÍBKBKBS<B2m>-Ö*:>£BKfíBH>ÍB3ÞÞ^HBKBKBKBKBKBKBKBKBKBHBKB5
SMÁTT & STÓRT
■
m
Ileslar eru oft á cíagskrá, eftir að víða varð haglaust, en [íeir eru einnig á dagskrá sem vaxandi
útfiutningsvara. (Ljósm.: E. D.)
ÍHKHKeKBKBKBKHKBKHKHHHHBKHKHKHKHKBKB>KBKHH»KHKBKBKHKBKBKBKBKBKHKBKBKHKKílí
Fimm vélsleðar eru komnir í sveilina
Grenivík 7. des. Lengst af hefur
verið hœgt að skrönglast á jepp
um um sveitina. Og trukkarnir
hafa komizt með mjólkina, ann-
an hvern dag, áfallalaust þótt
stundum hafi hægt gengið.
í gær var verið að skipa út
því síðasta af frosnum fiskflök-
um, sem fara eiga ó Bandaríkja
markað, um 100 tonnum. Gekk
það í ofurlitlum brösum, því að
skipið var á Akureyri, búið að
flytja nokkuð af fiskinum áður
til Akureyrar. En afganginn
þurfti að flytja á bílum til skips
og þurftu tvær jarðýtur að
hjálpa bílunum. En þetta gekk
á endanum, og allt er gott þegar
endirinn er góður.
Ekki hefur verið farið á sjó
í rúma viku. Hætt var við snur-
voðina um mánaðamótin og
tóku þá tveir bátar línuna og
rej'ttu ofurlítið, þrjú og á fjórða
Haganesvík, 8. des. Ekki er
hægt áð kvarta um snjóleysið
því að nú er hvarvetna miklil
snjór og auk þess stórfenni.
Haglaust er með öllu og sam-
göngulaust einnig, enda hefur
Vegagerðin gefizt upp á því að
halda opnum vegum. Nær dag-
lega er blindhríð. Mjólkurflutn-
ingar hafa fallið niður, en í dag
á að reyna að brjótast með
mjólkina en óvíst hvernig það
gengur.
Athygli vakti kúahvarfið í
nágrenni Akureyrar, sem Dag-
ur sagði nýlega frá og með ólík
indum er það. En líklega höf-
um við vinninginn hérna í
Fljótum, á þessu sviði, því að í
fyrrahaust hvarf rétt óborin
kvíga úr kúahópi á Reykjarhóli
í Austur-Fljótum og hefur ekki
komið í leitirnar. Hennar var
strax mikið leitað, og virtist
JÓLASVIPUR
JÓLATRÉ hafa verið sett upp
úti, svo sem við kirkjuna, svo
og ljósaskraut. Minnir þetta á
jólin, sem nú nálgast óðum.
Jólakauptíðin er hafin og verzl-
un vaxandi. , '
þetta með ólíkindum, enda ekk-
ert qnn komið fram, sem skýrt
getur þetta kúahvarf. En svo
bar það -aftur við á sama bæ í
haust, að önnur kvíga hvarf,
nokkru yngri og hvarf hún spor
laust, sem hin fyrri, og er þetta
allt með dularblæ. E. Á.
tonn í róðri, a. m. k. hjá Sjöfn,
en minni bátur, Víðir, fiskaði
eitthvað líka og ekki er neinn
efi á því, að bátarnir hefðu
fengið dálítið af fiski ef friður
hefði verið á sjónum og meiri
gæftir en raun bar vitni.
Hér í sveitina eru nú komnir
fimm vélsleðar og þeytast menn
á þeim fram og aftur. Þeir kosta
74—90 þúsund krónur hver.
Þetta eru hin ágætustu tæki í
miklum snjóum.
Fyrir nokkru fóru tveir menn
í eftirleit út í Fjörðu og auð-
vitað voru farartækin snjósleð-
ar. Ferðin gekk ágætlega. Leit-
armennirnir lögðu land undir
fót þegar norður kom og gengu
vestur í Keflavík. Enga fundu
þeir kindina og þykir því ólík-
legt, að þar sé fé að finna.
Hinn 18. nóvember varð hér-
aðslæknir okkar, Árni Björn
Árnason, sjötugur. Sveitungar
hans báðu um að mega hafa
hann ófram og féllst hann á það.
Hann hefur verið hér starfandi
læknir í 35 ár. P. A.
ALDREI HREINNA VATN
Heilbrigðisnefnd Akureyrar hef
ur gefið út yfirlýsingu um nið-
urstöður rannsókna á vatni í
sundlauginni, sem gruggaðist
fyrir nokkru. Vatnið er ómeng-
að. Var óttast, að gruggið í
sundlaugarvatninu væri frá
sorphaugunum ættað, en svo
hefur ekki verið. En fólk trúir
því ekki nægilega vel, að öruggt
sé að mengun berist ekki þarna
á milli. Það vill svo til, að ösku-
haugarnir eru nálægt hinum
volgu uppsprettum, sem siðan
renna í sundlaugina og er þetta
nágrenni hið óæskilegasta sem
verða má.
ÓTTINN ER FLESTU VERRI
Sennilegt er, að heilbrigðisyfir-
völd bæjarins, skipuð glöggum
mönnum, skjátlist ekki í því, að
leyfa öskuhuaga í nágrenni
laugarvatnsins. En jafn senni-
legt er, að ótti fólks við mengun
hverfi ekki. Óttinn er flestu
verri og sennilega enn verri en
sjálf mengunin. Hverfi hann
ekki, verður að velja öskuhaug-
unum annan stað.
TÍLLAGA UM VÍNLAUSAR
VEIZLUR
Fram er komin á Alþingi til-
laga, sem menn úr öllum stjórn
málaflokkum flytja, um að ríkið
veiti ekki vín í veizlum sínum.
Vilhjáhnur Hjálmarsson fylgdi
tillögunni úr lilaði, og er mælt,
að þá hafi ýmsir þingmcnn orð-
ið undirleitir. í umræðum um
málið lét einn þingmaðurinn,
Oddur Ólafsson læknir, það álit
sitt I Ijósi, að áfengisheyzlan
væri mesta félagslega vanda-
málið, sem þjóðin ætti við að
stríða, og mun það sannmæli.
Er þess að vænta, að tillaga
fimnnnenninganna verði ekki
svæfð.
Á ALÞÝÐUSAMBANDS-
ÞINGI
Fram kom á Alþýðusambands-
þingi tillaga um áskorun til Al-
þingis um að samþykkja fram-
anskráða tillögu. Því miður var
það svo á því þingi, að víns var
neytt í óhófi, samkvæmt blaða-
fregnum, enda hafður þar opinn
bar, leyfilegur eða óleyfilegur.
Hér hefur eflaust verið um
undantekningar að ræða, en
bara of margar. En þökk sé
þessu fjölmenna þingi fyrir, að
samþykkja tillöguna nær mót-
atkvæðalaust. Nú væri ekki úr
vegi að hugsa sér, að verkalýðs-
félög úti um land tækju þessi
mál til meðferðar livert hjá sér.
VÍN BÆJARSTJÓRNAR
í framhaldi af þessum hugleið-
ingum, vill blaðið geta þess, að
öðru hverju hringir fólk úr
bænum og spyr, hvers vegna
bæjarstjórn veiti vín í sínum
veizlum. Þessu getur blaðið
ekki svarað á annan veg en
þann, að drykkjutízkan virðist
hafa þar einhverja fótfestu og
er það illa farið. Hér í þessu
blaði hefur oft verið skorað á
bæjarstjórn að hætta slíkum
ósið, en hingað til fyrir daufum
eyrum. En rétt þykir að minna
bæjarstjórnina á þær kröfur,
sem fram liafa verið bornar í
þessum viðtölum.
(Framhald á blaðsíðu 4)
GömuS kirkja
Á MORGUN, sunnudaginn 10.
desember, verður gamla kirkj-
an í Innbænum vígð og síðan
tekin í notkun af söfnuði kirkj-
unnar hér í bæ.
Kirkjan var flutt frá Sval-
barði á Svalbarðsströnd og end
urbyggð og er hún í raun og
veru hluti Minjasafnsins og hef
ur safnvörður, Þórður Frið-
bjarnarson, annazt flutning og
endurbyggingu.
Séra Pétur Sigurgeirsson
vígslubiskup mun framkvæma
vígsluna. En talið er, að margt
presta úr nágrenni muni koma
til þessarar athafnar, og eflaust
fleira fólk úr bæ og nágrenni,
en þessi htla kirkja rúmar. □
Aðalfundur F. 1). F. var
og áhugi mikill
MJÓG fjölmennur aðalfundur
F.U.F. á Akureyri var nýlega
haldinn. Fundinn setti Ingvar
Baldursson formaður F.U.F. og
skipaði hann sem fundarstjóra
Kolbein Sigurbjörnsson.
f upphafi fundar flutti for-
maður skýrslu og las upp reikn
inga vegna fjarveru gjaldkera.
Að umræðum loknum um þau
mál, var kosið í stjórn og full-
trúaráð. Að því búnu hófust
fjörugar umræður, og voru
eftirfarandi ályktanir sam-
þykktar:
I. LANDHELGIN OG VIÐ.
Það er skoðun aðalfundar
F.U.F. á Akureyri, að nú megi
manns a
Dalvík, 7. des. Flestum líður
vel, sem inni starfa, en verra er
úti, sífelldar hríðar og stundum
vont veður. Ekki fiskast vegna
mikilla ógæfta og til marks um
það má nefna, að Björgvin fór
í morgun á veiðar en sneri við
hér úti í fjarðarmynninu, svo
mikið óveður er úti fyrir.
Allt atvinnulíf er lamað
vegna ógæftanna á sjónum, en
menn búa sig undir jólin eins
og gengur og gerist.
Hér um slóðir er eiginlega
allt í kafi að heita má og feikna
mikill snjór hér frammi í sveit-
Unum. Hins vegar er vegurinn
til Akureyrar ekki mjög erfið-
ur, eftir að komið er innfyrir
Hámundarstaðahálsinn. Jarð-
laust er fyrir allar skepnur, en
næg hey eru til.
í gærkveldi var einn maður
á ferð um Múlaveg, Ólafsfirð-
ingur á heimleið héðan frá Dal-
vík. Veður var þá hið versta og
var farið að óttast um manninn
og því sendar hjálparsveitir
bæði frá Dalvík og Ólafsfirði.
Ólafsfirðingar fundu hann svo,
all þjakaðann en annars heilan
á húfi og var hann þá köminn
langleiðina heim til Ólafs-
fjarðar. J. H.
ekki láta deigan síga, í fisk-
veiðideilunni við Breta og Vest-
ur-Þjóðverja. íslendingar, við
eigum og skulum sigra göndu
nýlendukúgarana.
II. HERINN OG NATO.
Hraða ber endurskoðun varn-
arsáttmálans, með það fyrir
augum að lierinn hverfi úr land
inu fyrir lok kjörtímabilsins. —
Ennfremur verði endurskoðuð
staða fslands í hernaðarbanda-
lagi við hlið þjóða, sem hóta að
beita okkur vopnuðu ofbeldi.
III. ÍSLAND OG ÞRIÐJI
HEIMURINN.
Ljóst er orðið, að cinn traust-
asti baklijarl íslendinga í milli-
ríkjasamskiptum eru þjóðir
hins svonefnda þriðja heims,
eins og glögglega kom í ljós við
afgreiðslu tillögu fslands og
fleiri þjóða um réttindi strand-
ríkja á þingi S. Þ. Fundurinn
ályktar að enn nánari samskipti
beri að hafa við þessar þjóðir í
framtíðinni, ekki sízt á hinni
væntanlegu Hafréttarráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna.
IV. EFNAHAGSMÁLIN.
Fundurinn treystir núver-
andi ríkisstjórn til að fara ekki
hina gömlu íhaldstroðninga
gengisfellinga og úrræðaleysis,
heldur höggvi á þann Gordíons-
hnút, sem gamla viðreisnar-
stjórnin hnýtti í efnahagsmál-
um. Funduriun treystir því, að
náin samvinna verði liöfð við
launþegasamtökin í landinu
með það fyrir augum að lífskjör
liins almenna launþega verði
fyrir sem minnstri skerðingu.
V. ÞEIR SEM LANDIÐ ERFA.
Fundurinn vekur athygli á,
live áhrifalitlir ungir menn hafa
verið og eru í íslenzku })jóðlífi
frá því að sú kynslóð, sem nú
skreytir sali Alþingis tók við
völdum. Krefst fundurinn þess,
að kynslóðabilið, sem að miklu
leyti er til orðið vegna ein-
strengislegrar afstöðu eldri kyn
slóðarinnar til hinnar yngri,
verði brúað með því að veita
yngri mönnum tækifæri til að
sýna vilja sinn og gctu á vett-
vangi þjóðmála.
Stjórn F.U.F. á Akureyri
skipa nú: Formaður Ingvar
Baldursson, varaformaður Há-
kon Hákonarson, ritari Kol-
beinn Sigurbjörnsson, gjaldkeri
Jóhann K. Sigurðsson, spjald-
skrárritari Gunnlaugur Guð-
mundsson, og meðstjórnendur
Karl Steingrímsson og Gunnar
Hjálmarsson. J. K. S.
;aii i Olafsfirði
Ólafsfirði 7. des. Hér í Ólafs- Unnið er enn við borun eftir
firði er ekkert róið og engin heitu vatni, sem áður var frá
atvinna eins og er. Snjórinn er sagt. Borinn er kominn á 240
alveg að kæfa okkur. Engin metra dýpi. Vatn er ekki neitt
mjólk komst til bæjarins í gær ennþá, en hiti í botni borhol-
svo að senda varð jarðýtu fram unnar er 52 stig. Búist var við,
í sveitina til að sækja hana. að bora þyrfti 300 metra.
Skólabörnin sitja heima hjá Við fengum lækni, sem tók
sér því að ekki er unnt að halda til starfa um mánaðamótin síð-
uppi neinum ferðum og hefur ustu og var það Guðjón Guðna-
svo verið um hálfs mánaðar son, en áður höfðum við verið
skeið eða lengur. Og allt frá læknislausir um nokkra hríð og
veturnóttum hófa verið óvenju- var það óviðunandi ástand. B.S.
legir erfiðleikar á því að flytja
börnin á milli. Oft hefur verið
mokað, en sjaldnast hefur það jl "|T T TI3
dugað nema einn eða tvo daga xa. Á-A
í senn vegna hríða og hvass- kemur næst út á þriðjudaginn
viðris. 13. desember.