Dagur - 31.01.1973, Blaðsíða 5

Dagur - 31.01.1973, Blaðsíða 5
Skrifstofur, Hafnarstrætí 90, Akureyri Símar 1-11-68 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. I TiMA TALAÐ ÞJÓÐÓLFUR á Selfossi birti 13. janúar atliyglisvert viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson liáskólakennara, en liann er formaður í nefnd, sem ríkisstjórnin skipaði til að gera til- lögur um það, hvernig dreifa mætti ríkisstofnunum um landið, meira en nú er gert. í nefndinni eru auk Ólafs: Bjarni Einarsson, Magnús Gíslason, Jón B. Hannibalsson, Magnús E. Guðjónsson, Helgi Seljan og Sigfinnur Sigurðsson. í lok viðtalsins við Þjóðólf lætur nefndarformaðurinn, Ólafur R. Grímsson, hafa eftir sér ummæli, sem margir Norðlendingar munu vilja taka undir af heilum huga. Honum farast orð á þessa leið: „Mér er engin launung á því, að ég tel að spumingin um byggðarösk- un á íslandi, sé erfiðasta þjóðfélags- vandamál, sem við emm að glíma við og eigum eftir að glíma við á Is- landi. Sá straumur, sem ber uppi áframhaldandi flutning fólksins til höfuðborgarsvæðisins, er svo þung- ur, að það þarf gífurlega stórt þjóð- félagslegt átak til að snúa honum við. Og því miður lief ég ekki ennþá séð þær framkvæmdir eða áform um framkvæmdir, sem em það umfangs- miklar, að það sé nokkur von til þess, að þær megni að snúa þessum straumi við. Ég held, því miður, að menn hafi ekki enn sem komið er áttað sig á því, hvað þeir þurfa að vera stórtækir í ráðstöfunum gegn þessum fólksflótta og ráðstafanimar er ekki nægilegt að takmarka við eitt hvert ákveðið svið, eins og t. d. stofn- anaflutning, heldur verða þær að vera tengdar inn í atvinnusviðið, menningarsviðið, félagsstarfsemina, heilbrigðisþjónustuna, samgöngur og ótal margt annað. Ef bókstaflega allar aðgerðir ríkisvaldsins eru ekki tengdar þessum ráðstöðunum, þá óttast ég það mjög, að þessi skugga- lega þróun muni halda áfram út þessa öld.“ Ólafur segir ennfremur: „Ég ber í brjósti þá von, að þeir sem stjóma landinu núna og þeir sem munu gera það í næstu framtíð, hafi pólitískan styrk og þor til að grípa til þeirra ráða, sem megni að snúa þessari þróun við. Það má ekki bíða lengi enn, að finna þau ráð, sem duga. En það sem gert hefur verið hingað til og vissulega ber að þakka, em ekki nema litlar stíflur, sem ekki hafa megnað að spyma svo teljandi sé, við því mikla flóði, sem byggða- röskunin á íslandi er.“ □ Ymislegt um bæjarmálefni AKUREYRINGAR eru nú orðn ir á tólfta þúsund að tölu og byggð bæjarins hefur teygzt í allar áttir. Síðasta ár höfðu menn mikla atvinnu og góðar tekjur, fleiri voru aðfluttir en brottfluttir, heimafjölgun eðli- leg og bærinn því í örum vexti. Á mörgum sviðum atvinnulífs- ins hefur vantað starfsfólk, bæði konur og karla, við arð- bæra atvinnu. Akureyri er fyrst og fremst iðnaðar- og verzlunar- bær, í fögru umhverfi byggður ög veðurfar löngum stillt við innanverðan Eyjafjörð. Akur- eyri hefur verið talinn í senn menningarbær og skólabær, bær gróðursins og mikilla and- ans manna. íþróttaaðstaða er mikil, menningarleg söfn efld, samgöngur betri en víðast ger- ist og næstu sveitir einar hinar mestu framleiðslusveitir lands- ins, þar sem bændur hafa lyft 'Grettistökum með samvinnu og atorku, Akureyri talinn ein- stæður samvinnubær. En svo ágæt sem Akureyri er, þarf hún að verða betri. I sameiginlegum málefnum er yfirstjórnin í hönd um kosinna bæjarfulltrúa stjórn málaflokkanna, sem kallaðir eru Akureyrarflokkurinn milli kosn inga, en munu þó vilja halda vöku sinni. Vandamálin eru auð vitað óteljandi, en forsjónin hef- ur um sinn gert þau lítil og jafn vel ómerkileg, og er þá átt við jarðeldana í Vestmannaeyjum og þau vandamál, sem við þau hafa skapazt. Getum við um þessar mundir sagt, að við Akur eyringar höfum viðfangsefni að leysa, svo sem eðlilegt er, en hin raunverulegu og alvarlegu vandamál krefjist úrlausnar á öðrum stöðum. Dagur leggur nú nokkrar spurningar fyrir Sigurð Óla Brynjólfsson bæjarfulltrúa, því að bæjarmálum Akureyrar þarf að sinna að venju. Stærstu viðfangsefni liðins árs? Á sviði verklegra fram- kvæmda er það gatnagerð, skólabygging og skipulagsmál, ennfremur vatnsveita frá Hörg- áreyrum. Gatnagerðin? Götur bæjarins eru taldar um 45 km, en þar af eru malbikaðar götur nær 15 km. Á síðasta ári miðaði gerð varanlegra gatna nokkuð og álíka framkvæmdir eru áætlaðar í ár. En þessar gatnagerðarframkvæmdir eru engan veginn nægilegar til að fullnægja óskum og þörfum þar um. Malbikunarstöðin, sem hef- ur meiri framleiðslugetu en bær inn hefur fjármagn til að nýta, hefur annazt malbiksfram- leiðslu fyrir Sauðárkrókskaup- stað, Ólafsfjörð, Dalvík og flug- málastjóm. Áætlaður kostnaður við að malbika þær götur, sem eftir eru, er nær 200 milljónir króna, svo að þar er mikið verk efni fyrir höndum, sem auðvitað verður að leysa eins skjótt og kostur er á. Auk þess bætast árlega við nýjar götur í nýjum íbúðahverfum. Eftir er að taka endanlega ákvörðun um, hvaða götur verða malbikaðar nú í sumar. Sýnt er, að mikið fjár- magn þarf í nýjar götur og hol- ræsi, bæði í íbúðahverfunum ofantil í bænum og í fyrirhug- uðu iðnaðarhverfi norðan Gler- árhverfis, austan Hörárbrautar. Skólabyggingarnar? í haust var tekinn í notkun fyrri hluti fyrsta áfanga í Gler- árskóla, sem ætlunin er að ljúka á þessu ári. Ríkið greiðir helming kostnaðar, sem er áætl- Sigurður Óli Brynjólfsson bæjarfulltrúi svarar nokkrum spurningum blaðsins1 um bæjarmálin aður að verði 50 milljónir kr., fyrsti áfangi. Glerárskólinn er barna- og unglingaskóli og er stærð hússins miðuð við 600 nemendur, en þessi fyrsti áfangi er miðaður við 350 nemendur á barna- og unglingastiginu. í ár er áætlað að hefja bygg- ingu álíka skóla í Lunds- og Gerðahverfi, en ekki er þó enn búið að ganga frá samningum þar um við menntamálaráðu- neytið. En á fjárlögum ríkisins fyrir þetta ár, eru aðeins áætl- aðar 3.5 millj. kr. til þessa skóla. En svo mikið er enn óleyst í málefnum skólahúsnæðis hér í bænum, ekki sízt með tilliti til íþróttaaðstöðu, að ekki má verða nokkurt lát á framkvæmd um næstu árin. í því efni legg ég áherzlu á, að íþróttahús er hluti af almennu kennslurými skólanna. Iðnskólahúsið hefur verið not að síðustu árin, en lokafram- kvæmdum hefur miðað heldur hægt. Vonir standa til, að hægt verði að ganga frá þeim hluta hússins að fullu á þessu ári, sem þegar hefur verið byggður, og mikill áhugi er fyrir því, að reist verði í tengslum við iðn- skólann vélkennsluhús, þar sem sýnt er, að á næstu árum færist verkleg kennsla mjög inn í iðn- skólana. Nú er verið að útbúa verkstæði fyrir rafvirkjanema í iðnskólahúsinu og má rifja upp, að Rafveita Akureyrar gaf til þess hálfa milljón króna á síð- asta ári í tilefni 50 ára afmælis síns. Á síðustu árum hefur bærinn kostað miklu til viðgerða á þeim skólahúsum, sem fyrir voru í bænum og þurftu lagfæringar Frumvarp um fjárhagsáætlun hæjarsjóðs Ak. HÉR fer á eftir fjárhagsáætlun sú, fyrir 1973, sem er til meðferðar hjá bæjarstjórn Akureyrar. Til samanburðar er fjárhagsáætlunin 1972 og einnig hækkun eða lækkun í prósentun milli ára. TEKJU R Fjárhags- Hækkun áætlun Frumvarp milli ára 1972 1973 prósent 1. Útsvör 154.700 20.5 2. Aðstöðugjöld 30.800 , 25.7 3. Jöfnunarsjóður .. 32.100 37.000 15.3 4. Skattar af fasteignum .... .. 54.500 59.000 8.3 5. Tekjur af fasteignum .. 10.000 7.500 h-25.0 6. Gatnagerðargjöld 6.000 6.800 13.3 7. Hagnaður af vinnuvélum . 3.500 3.500 0.0 8. Vegasjóður 5.000 6.900 13.8 9. Vextir 500 700 40.0 10. Ýmsar tekjur 300 283 -f- 5.7 Samtals .. 264.800' 307.183 16.0 G J Ö L D Fjárhags- Hækkun áætlun Frumvarp milli ára 1972 1973 prósent 1. Stjórn og skrifstofur 9.370 11.650 24.3 2. Eldvarnir 7.730 9.400 21.6 3. Félagsmál .. 40.560 46.400 14.4 4. Menntamál 43.909 17.7 5. íþróttamál .. 10.328 11.444 10.8 6. Fegrun og skrúðgarðar ... 6.300 25.4 7. Heilbirgðismál 6.960 -f- 8.1 8. Hreinlætismál 21.650 22.7 9. Gatnagerð, skipulag o. fl. . .. 65.130 80.500 23.6 10. Fasteignir 6.650 7.150 7.5 11. Styrkir til félaga 2.595 3.375 30.1 12. Framkvæmdasjóður .. 16.000 15.000 H- 6.3 13. Vextir 4.390 4.790 9.1 14. Ýmis útgjöld 5.800 5.430 •f- 6.4 Rekstrargjöld samtals .... 273.958 16.0 Eignabreytingar .. 28.685 33.225 15.8 Samtals .. 264.800 307.183 16.0 Skipulagsmálin? Eins og komið hefur fram oft áður, er unnið að heildar skipu- lagi Akureyrarkaupstaðar til tuttugu ára. Til þess að vera aðal ráðgjafi í skipulagsstarfinu var Gestur Olafsson skipulags- fræðingur ráðinn og hefur hann og hans fyrirtæki unnið mikið og kostnaðarsamt starf undan- Sigurður Óli Brynjólfsson. farin misseri. Ýmsir erfiðleikar hafa komið í ljós við þetta mikla skipulagsstarf, einkum í sam- bandi við tengingu Brekkunnar við Miðbæinn og er ekki enn séð, hver niðurstaða verður í því efni. Hins vegar veltur mikið á að framtíðarmyndin verði dregin, svo að unnt sé að vinna skipulega að einstök- um úrlausnarverkefnum. Þetta starf er unnið í samráði við skipulagsyfirvöld ríkisins, en bæjarstjórn Akureyrar hefur á undanförnum árum lagt á það áherzlu, að komið yrði á fót sjálfstæðri skipulagsdeild á Ak- ureyri fyrir Norðlendingafjórð- ung allan. Verið er að setja á fót samstarfsnefnd um skipu- lagsmál Akureyrar og næstu sveitarfélaga. Allt skipulags- starfið kostar feikna mikla fjár- muni, sem bæjarsjóður og ríkið eiga að greiða áð jöfnu. Vatnsveitan? Dagur hefur áður sagt frá því máli, m. a. í viðtali við vatns- veitustjórann, Sigurð Svan- bergsson. En fjárhagserfiðleikar Vatnsveitunnar eru meiri en gert var ráð fyrir og fram- kvæmdageta Vatnsveitunnar innanbæjar er svo lítil, að hún getur ekki sinnt þeim verkefn- um, sem brýn eru vegna gatna- gerðar. En vatnið, sem innan tíðar verður leitt inn í vatns- veitukerfi bæjarins, er talið mjög gott, sótt um ellefu km langan veg og tekið á Hörgár- eyrum í landi Vagla á Þela- mörk. Aðal vatnsleiðslan eru plaströr frá Reykjalundi. Vatn- inu er dælt upp á Moldhauga- háls en rennur sjálft þaðan til bæjarins. í framhaldi af um- ræðum um vatnsveitu, sá ég í Degi fyrirspurnir um hitaveitu og þær boranir, sem gerðar hafa verið til að afla heits vatns. Væntanlega verður þessum fyr- irspurnum svarað af starfs- mönnum bæjarins og við fyrsta tækifæri, enda eiga bæjarbúar fullan rétt á þeim upplýsingum. Sérfræðingar telja, að 200 lítrar á sek. af 80 gráðu heitu vatni þurfi til að hita bæinn. En á Laugalandi á Þelamörk hafa fengizt um 15 lítrar á sek. með dælingu. Lítilleg athugun hefur verið gerð á því, að nota þetta heita vatn með því að leiða það til Akureyrar og nota þar til að hita upp bæjarhluta eins og Glerárhverfi. Niðurstaðan varð sú, að kostnaðarlega stæði það mjög í járnum, en óvissu þættir eru margir. Hefur verið gerð könnun á íbúðaþörfinni í bænum? Könnun hefur farið fram á íbúðaþörfinni í bænum. Hún hefur leitt það í ljós, að 130 nýjar íbúðir á ári væri eðli- leg tala, en þyrfti þó að vera meiri nú, vegna þess, að það er húsnæðisskortur í bænum. Á síðasta ári voru 116 íbúðir full- gerðar og er það hærri tala en áður, en fullnægir þó engan veg inn íbúðaþörfinni. En um síð- ustu áramót voru 99 íbúðir fok- heldar og 58 íbúðir skemmra á veg komnar. Bærinn stendur að byggingu verkamannabústaða og er ein blokk með 27 íbúðum nú í smíðum í Skarðshlíð. Og nú hefði sannarlega verið ánægjulegt að standa betur að vígi í þessum efnum til að geta boðið Vestmannaeyingum bæði húsnæði og atvinnu. Hægt er að bæta allmörgu fólki á vinnu- markaðinn, en húsnæði virðist því miður vera af of skornum skammti. Hins vegar er hér sem annars staðar áreiðanlega nokk- ur hluti íbúðarhúsnæðis illa nýttur. Nú fer fram könnun á húsnæði og aukinni nýtingu þess. Það fer ekki milli mála, að allir bæjarfulltrúar og starfs- menn bæjarins vilja bænum og íbúum hans vel. Um markmið- in eru menn tæplega mjög ósam mála, t. d. eins og í því að efla atvinnu, bæta aðstöðu til mennt unar og menningar, heilbrigðis- þjónustu og að allir eigi þess kost að búa í góðum húsum í snyrtilegu umhverfi og við at- vinnuöryggi. Hins vegar eru menn ekki alltaf sammála um, 5 hvar sé brýnust þörf úrbóta. Það sem mér finnst sérkenna störf okkar Framsóknarmanna í bæjarstjórn, er að gæta jafn- vægis milli hinna ýmsu þátt, sem við höfum afskipti af. Við tökum ógjarnan einn þáttinn úr samhengi við heildina, í fyrir- greiðslu og framkvæmdum, en mér virðist þess gæta hjá mönn- um, að þeir mikli mikilvægi ein- stakra mála, fram yfir önnur og án samhengis við þau. Sem dæmi má nefna það, að við höf- um orðið að hafa forystu um að innheimta skatta og álögur, sem mörgum þykja miklar, en eru að sjálfsögðu forsenda fyrir framkvæmdum og félagslegri aðstoð. En atburðirnir í Vest- mannaeyjum gefa okkur tilefni til að hugsa um, hve vel okkur líður í þessum bæ og hvað á sig er hægt að leggja, til að leysa þau vandamál, sem brýnust eru, segir Sigurður Óli Brynjólfsson að lokum og þakkar blaðið við- talið. E. D. Frá Skákfélagi Akureyrar BÚIÐ er að draga úr réttum lausnum er bárust á skákþraut í Skákfélagsblaðinu. Sá sem verðlaunin hlaut heitir Ármann Hauksson, Boðaslóð 7, Vest- mannaeyjum. Fyrsti leikurinn og lykilleikurinn í skákþraut- inni var Dg5xHg8 og leiðir það óhjákvæmilega til máts. Sl. mánudag tefldi Guðmund- ur Búason fjöltefli við 17 manns og urðu úrslit þau, að hann vann 13 skákir, tapaði 3 og gerði 1 jafntefli. Þeir sem unnu voru: Bjarki Bragason, Hólm- grímur Heiðreksson og Gylfi Þórhallsson, en jafntefli gerði Jóhann Sigurðsson. N. k. sunnudag hefst Skák- þing Akureyrar að Hótel KEA kl. 2 e. h. Ollum er heimil þátt- taka. Skjalasafnið á Akureyri ÞAÐ lætur ekki mikið yfir sér, og ég býst við, að talsverður hluti bæjar- og héraðsbúa viti ekki einu sinni, að það er til, hvað þá hvaða hlutverki því er ætlað að gegna. — Ritstjóri Dags bað því Árna Kristjáns- son, sem veitir skjalasafninu forstöðu, að svara nokkrum spurningum því viðvíkjandi, og vékst hann vel undir það. Safnið heitir fullu nafni Hér- aðsskjalasafn Akureyrarkaup- staðar og Eyjafjarðarsýslu, en um slík héraðsskjalasöfn gilda sérstök lög. Héraðsskjalasafn er eins konar útibú frá Þjóðskjala- safni og telst ekki lögformlega stofnað nema það hafi hlotið viðurkenningu Þjóðskjalavarð- ar, og honum gefur forstöðu- maður héraðsskjalasafns skýrslu um starfsemi safnsins ár hvert. Til þessara safna er ætlazt að renni til varðveizlu skjöl og bækur frá stofnunum og embættum, svo og félögum, sem njóta styrks af opinberu fé en starfa eingöngu innan þess svæðis, sem héraðsskjalasafnið tekur til. Má nefna sem dæmi skjalagögn hreppstjóra, hrepps- nefnda, bæjarstjórna, sýslu- nefnda, bæjar-, sýslu- og hrepps fyrirtækja, skattanefnda, fast- eignanefnda, sóknarnefnda, sóttanefnda, skólanefnda, bún- aðarsambanda, ræktunarsam- banda, búfjárræktar- og skóg- ræktarfélaga, ungmenna- og íþróttafélaga, lestrarfélaga og annarra menningarfélaga o. fl. Skjalagögn frá þessum aðilum eru öll afhendingarskyld til hér- aðsskjalasafns. En hvað um einkaskjöl, t. d. bréfasöfn, dagbækur, fróðleiks- syrpur, ættfræðihandrit og þess liáttar? Hvorki héraðsskjalasafn né Rætt við Árna Kristjánsson safnvörð nokkurt annað safn á heimtingu á því að fá slíkt afhent. Hins vegar vil ég gjarnan nota þetta tækifæri til að benda þeim á, sem hafa slíkt efni undir hönd- um, að Skjalasafnið tekur vissu- lega á móti öllu slíku með þökk um, hvort sem menn vilja af- henda það til eignar eða aðeins til varðveizlu, og slík söfn eru einmitt sjálfsögðustu varðveizlu staðir fyrir allt þess háttar efni. — Sumir eru svo lítillátir, að þeim finnst það, sem þeir hafa undir höndum, ekki svo merki- legt, að það geri neitt til, þó að það misfarist. En þegar margt smátt kemur saman, gefur það oft hvað öðru gildi. Hér er til- tölulega örugg geymsla, og hér hafa menn aðgang að þeim plöggum, sem safnið varðveitir, hvern dag á afgreiðslutíma Amtsbókasafnsins og geta feng- ið þau léð niður á lestrarsal, en ekki út úr húsinu. Ég sé, að þú hefur hér þegar heilmikið af bókum og skjala- bögglum. Hvað er þctta aðal- lega? Það sem blasir hér mest við augum eru verzlunarbækur frá Gudmannsverzlun, og Höepfn- ersverzlun, mjög heillegt og vel varðveitt safn. Elzta bókin er frá 1814. Ég býst við, að úr þeim bókum mætti vinna margan fróðleik um verzlunar- og fram- leiðsluhætti í héraðinu á 19. öld. — Þá er hér líka mikið safn af verzlunarbókum og verzlunar- skjölum Gránufélagsins, eink- um frá Akureyrarverzluninni, en hér voru höfuðstöðvar þess félags, eins og kunnugt er. Hér hafa líka varðveitzt fundabæk- ur félagsfunda, fundabækur HVERT STEFNIR? Þeir, sem nú standa fyrir verkfalli og stöðva þar með tog- ara okkar hvem af öðrum, virð- ast helzt ekki tilheyra hinni stríðandi, íslenzku þjóð! Þeir hefðu átt að „standa í eldinum“ við heimili sín við Helgafell, svo að þeim skildist, að ástæða er til að allir slái af kröfum sín- um nú, til styrktar þeim, sem þar voru og verða verst leiknir, og til styrktar þjóðarbúinu, sem af völdum þessara náttúruham- fara, hlýtur að verða fyrir mjög miklum áföllum og erfiðleikum. Vélstjórar við frystihús í Rvík og nágrenni virtust þó slaka til, svo að úr þeirri deilu rættist í bráð a. m. k. Og úr öllum átt- um, frá einstaklingum, félags- hópum og þjóðum nær og fjær, berast stöðugt boð um margvís- lega hjálp og aðstoð við Vest- mannaeyinga og íslenzku þjóð- ina. En svo berst okkur þessi einstæða, hjáróma rödd um óframhaldandi verkfall undir- SMÁTT & STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8) LANDNEMAR Hinir 5300 Vestmannaeyingar vita ekki fremur en aðrir, hver örlög bíða byggðarinnar í Heimaey, hvort þar hefst at- liafnasamt mannlíf á ný eða allt verði grafið í ösku og gjalli áður en eldsumbrotum lýkur. Ennþá er allt þctta fólk að nokkru vega laust, þótt brýnustu þörfum þess sé fullnægt frá degi til dags og óteljandi hendur á loftí til aðstoðar. Svo getur farið, að allir eyjabúar verði að gerast raunverulegir landnemar, með aðstoð þjóðfélagsins, þar sem lienta þykir. En flytjanleg at- vinnutæki, það er að segja allur bátaflotinn, er tilbúinn til veiða og er það mikils virði, bæði fyrir eigendur og þjóðfélagið í heild. SVARTSYNI ER GAGNS- LAUS Eldgos eru tíð á Islandi, en við erum laus við styrjaldir og her- kostnað. En náttúruhamfarir og styrjaldir eiga það sameigin- legt, að kalla alla til starfa á hættunnar stund. Eldgosið í Vestmannaeyjum sýnir mörg- um það, ef að líkum lætur, að lífskjör eru nú svo góð í land- inu, að þau er unnt að skerða þegar stórra átaka er þörf, án þess að nokkur þurfi að sitja við fátæklegt borð. Svartsýni er gagnslaus, enda hefur liennar ekki orðið vart. Forystumcnn þjóðfélagsins hafa lýst því yfir, að þjóðfélagið verði að taka á sig byrðar vegna atburðanna í Eyjum. Stjórnarandstæðingar taka í sama streng og allur al- menningur ætlast til þess, að athöfn fylgi orðum. stjórnarinnar og allmikið bréfa- safn. Næst má nefna skjalasafn bæjarstjórnar og bæjarskrif- stofu, og hefði þó líklega átt að nefna það fyrst,- því að þáð er langmest að vöxtum. Það er hér auk heldur ekki allt. Það yngsta er enn í ráðhúsi bæjarins, en humt af því fyrirferðarmesta, sem sjaldnast þarf til að taka, manna á ísl. togurum, og þar af leiðandi stöðvun þessara mikils- verðustu björgunartækja þjóð- arinnar á næsta óhagstæðum tíma! Hvað hugsa þessir menn? Eru kjör þeirra slík, að ekki sé hægt að una við um sinn? Það væri fróðlegt að fá nokkra kynningu á þeim, og þá líka, hvers kraf- ist er. En vonandi sjá þeir skjótt augljósa, siðferðilega skyldu sína, að (a. m. k.) fresta verk- fallinu og stuðla af beztu getu að öflugri og árangursríkri tog- araútgerð. Að öðrum kosti verð ur þing og stjórn að taka í taum ana, — eða hvað? Væri það ekki þjóðarskömm, sem víða myndi vitnast og lengi munað eftir, ef verkfall stöðvar togara- flota okkar á þessum neyðar- tíma? Og gæfum við þá ekki góðan höggstað þeim, sem varð- skip okkar tefla við innan 50 mílna markanna? Gætu þeir ekki með nokkrum rétti spurt: Hvað hafa íslendingar að gera með stækkaða fiskveiðilögsögu? Þeir verða að sitja í landi til að þrefa um nokkrar verðlitlar krónur! Hætti togarar þeirra að veiða, hverfa varðskipin líka. Gott fyrir okkur, við stöndum saman, deilum ekki og veiðum vel! En í hörmungum síðustu viku var oft sagt: „Allir Islendingar saman“! Látum það ekki bregð- ast! „Brekknakoti“ 29. jan. ’73. Jónas Jónsson. Árni Kristjánsson. er í geymslu úti í bæ. Hér eru t. d. gjörðabækur bæjarstjórnar og ýmissa nefnda hennar, inn- komin og send bréf, höfuðbæk- ur, dagbækur, reikningar og fylgiskjöl; skjöl Rafveitu, Vatns veitu, Laxárvirkjunar, Tunnu- gerðar, Vélasjóðs o. fl.:, kjör- skrár, útsvarsskrár, ýmis skjala gögn viðkomandi lóðum og fast- eignum, og fleira mætti nefna. í þriðja lagi eru hér ýmsar bækur og skjöl, er varða sveita- byggðir og bújarðir. Þegar safn- ið var sett á laggirnar (1969), afhenti Þjóðskjalasafn heilmik- ið af hreppaskjölum og skjölum sýslunefndar, sem þangað var komið, einnig nokkuð varðandi sögu Akureyrar á gamalli tíð. Segja má, að mikið hafi borizt að af hreppaskjölum síðan, en því miður vantar samt inn í röðina hjá æðimörgum hrepp- anna, og er hætt við, að ein- hverjar hreppsbækur séu týnd- ar. Er það mikill skaði, því að ekki er auðhlaupið annars stað- ar að þierri vitneskju, sem þær veita. Er hér með skorað á hvern þann, sem veit af slíkum bókum einhvers staðar eða hef- ur þær undir höndum, að láta vita um það eða koma þeim til safnsins. Gildir það jafnt um gjörðabækur hreppstjóra og hreppsnefnda (oddvitabækur). Má sú áskorun reyndar gilda um hvers konar ritaðar heimild- ir og ekki aðeins um bækur, heldur einnig um lausaskjöl, bréf og þ. h. Lögð hefur verið jiokkur stund á að afla afritá (ljósrita) af hvers konar heimildaskjölum um jarðir (kaupbréfa lögfesta, landamerkjalýsinga, jai’ðabóka og þ. h.). Er þar eingöhgu um að ræða gögn í Þjóðskjalasafni, sem Þjóðskjalavörður hefur góð fúslega lánað okkur til að ljós- rita hér. Þá hefur komið til orða, að Þjóðskjalasafn mundi vel til viðræðu um að lána hing að skjalagögn um takmarkaðan tíma, ef það væri til hagræðis að vinna við þau hér frekar en í Reykjavík. Þó mundi það fara eftir því, um hvers konar skjöl væri að ræða og hversu mikið eftirspurð. í fjórða lagi má nefna ýmis- legt bókmenntalegt efni, s. s. kvæða- og sagnasyrpur, rímna- handrit, bæjavísur (sveitavís- ur) og sveitablöð. Hefði vissu- lega verið gaman, ef hægt hefði verið að na í sem mest af slíku. Þótt sumt af því efni, sem hér um ræðir, sé e. t. v. fangalétt, gefur það þó góða hugmynd um, hvað menn dunduðu við sér til dægrastyttingar og skemmtun- ar, áður en kvikmyndir, útvarp og sjónvarp hóf að drepa í mönnum hæfileikann til að skemmta sér sjálfir. — í fimmta lagi mætti nefna skjalagögn félaga, sem starfa og starfað hafa í bænum og hérað- inu. Heimildasöfn þeirra eru mjög mismunandi mikil að vöxt um eftir því hvert félagið er, allt frá Gránufélaginu, sem áður gat og á hér varðveitt hundruð binda. Hitt er miklu algengara, að hvert félag eigi ekki nema eina gjörðabók varð veitta, stundum kannske ekki einu sinni hálfskrifaða. Alls munu í safninu heimildir (gjörðabækur) um milli 30—40 félög. Er mikill fengur að öllu slíku. Ég nefni sveitarblöðin þó sérstaklega. Þau voru flest gef- in út af ungmennafélögum. Þau spegla hug ungu kynslóðarinn- ar þá. Það væri e. t. v. fróðlegt að bera þau saman við hugar- heim ungu kynslóðarinnar núna. Hafið þið svo ekki filmusafn? í nánum tengslum við skjala- safnið er svo filmudeild Amts- bókasafnsins. — Eins og allir sjálfsagt vita, létu frændur vor- ir, Mormónar í Utah-ríki í Bandaríkjunum taka allar ís- lenzkar kirkjubækur á filmu, og ekki nóg með það, heldur einnig skiptabækur (skýrslu- bækur um opinber skipti dánar- búa), Ævisögur lærðra manna eftir Hannes Þórsteinsson, Prestaævir Sighvats Borgfirð- ings, ættartölur þeirra Jóns Espólíns, Steingríms Jónssonar biskups og Ólafs Snóksdalíns, ennfremur manntöl fram til árs * ins 1901. Þessari ljósmyndun er haldið áfram, eftir því sem kirkjubækur fallast til, og eru allar þessar filmur í eigu Amts- bókasafns og lánaðar hverjum sem er til nokunar á lestrarsal safnsins ásamt tækjum til að lesa þær í. — Þá má einnig geta þess, að bókaverðir safnsins láta mönnum í té lögleg fæðingar- og skírnarvottorð eftir þessum filmum, og voru 85 slík vottorð afgreidd á síðastliðnu ári, auk margs konar ættfræðilegra upp- lýsinga. Ymsir áhugamenn um ættfræði nota filmusafnið mik- ið. Dagur þakkar þessar upplýs- ingar Árna Kristjánssonar. □ Bingokvöld til hjálpar Vestmannaeyingum KIWANISKLÚBBURINN Kald bakur á Akureyri ætlar að halda bingókvöld í Sjálfstæðis- húsinu hinn 4. febrúar og hefst það kl. 8.30. Heildarverðmæti vinning- anna er 90—100 þúsund krónur, ferðir utanlands og innan. Allur ágóði af þessu skemmtikvöldi rennur óskiptur í Vestmanna- eyjasöfnunina. Ingimar Eydal stjórnar bingóinu og hljómsveit hans leikur fyrir dansi. Hús- næðisaðstaða og hljómsveitar- kostnaður er ókeypis. Klúbbfélagar vænta þess, að bæjarbúar og nærsveitamenn fjölmenni í Sjálfstæðishúsið á sunnudaginn, og styrkja á þann veg gott málefni. F ormaður Kiwanisklúbbsins Kaldbaks er Gísli Bragi Hjartar son. Q

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.