Dagur - 21.02.1973, Síða 8

Dagur - 21.02.1973, Síða 8
8 Dagur Akureyri, miðvikudaginn 21. febrúar 1973 TRÚ- LOFUNAR- HRING- ARNIR afgr. samdægurs SMÁTT & STÓRT SÍÐUSIU SÝNINGAR Á KARDEMOMMUBÆNUM Á MYNDINNI er rakarinn, sem Aðalsteinn Bergdal leikur, að hefjast handa um snyrtingu á ræningjunum þremur í fangels- inu. Ræningjarnir eru frá vinstri: Jónatan, Gestur Einar Jónasson, Kasper, Þráinn Karls son og Jesper, sem Viðar Egg- ertsson leikur. Kar'demommubærinn hefur Mikiabæjarkirkja brann til ösku Sauðárkróki 20. febrúar. Á föstu daginn bilaði Hegranesið, er það var statt 34 sjómílur austur af Horni. Höfðu losnað fjórir bolt- ar tilheyrandi svinghjóli. Dagný frá Siglufirði kom skipinu til aðstoðar og dró það til Sauðár- króks, þar sem viðgerð fer fram. Talið er, að skemmdir hafi orðið litlar, en ekki varð komist hjá nokkrum töfum frá veiðum. Miklabæjarkirkjan gamla brann til ösku á laugardaginn, bæði hús og kirkjumunir allir, og voru sumir taldir mjög verð- mætir. Veður var hvasst. Kirkj- an var þennan dag hituð með olíuofni vegna þess að prestur- inn, séra Sigfús Árnason, ætlaði að spyrja börn. Ný kirkja cr í smíðum á sama stað, örskammt frá þeirri gömlu. Verður eflaust lagt kapp á, að hún verði sem fyrst tilbúin til notkunar. G. Ó. nú verið sýndur fimmtán sinn- um við góðar undirtektir og mikla aðsókn. Nú hefur verið ákveðið að síð ustu sýningarnar verði í vik- unni, á fimmtudagskvöld kl. 8 og á laugardag kl. 5 og sunnu- dag kl. 2 og kl. 5. Miðasalan er opin frá kl. 3 til 5 frá og með miðvikudeginum og ennfremur í klukkustund fyrir sýningu hverju sinni. Á miðvikudag verður farið að taka á móti pöntunum á síðustu sýningarnar um helgina. □ GAMALL ER GRÁNI Sumum finnst að sú saga sé heldur ótrúleg, að hann Gráni gamli í Kothúsum í Garði sé orðinn 45 ára, svo sem frá er sagt í fréttum, enda aldurinn orðinn lýgilega hár, miðað við venjulegan aldur hesta. Láta sumir sér um munn fara, að Gránarnir hljóti að hafa verið tveir, hver fram af öðrum. En met eru sett á okkar dögum og þau stór, og ekki er ástæða til að rengja fréttina af þeim sök- um einum að hestar verði sjald- an eldri en þrítugir. LÆTUR EKKI AÐ SÉR HÆÐA Náttúran lætur ekki að sér hæða. Eldgos og veðurofsi hafa enn einu sinni fært mönnum „lexíu að Jæra“. Tækni manns- ins má sín ekki mikils þegar hamfarir náttúrunnar geysa, og hafa síðustu tímar fært mönn- um heim sanninn um það, svo að ekki vcrður um villst. Bil- anir á raflínum syðra og hér nyrðra ltrefjast endurmats á forscndum hönnunar. En svo háð er fólk orðið raforkúnni, að þetta endurmat er knýjandi nauðsyn. LJÓS OG SKUGGAR Segja má, að Ijós og skuggar hafi skipzt á þegar ofvirðrið geysaði um og eftir fyrri lielgi. Rafmagnsskömmtunin var nauð syn er vatn þvarr í Laxá og enn fremur er raflína slitnaði á Vaðlaheiði. Þessu reyna menn að taka með jafnaðargeði, enda gagnslaust að deila við dómar- ann í því efni. Hins vegar reynd ist flestum það ofvaxið, að skilja tilkynningar rafveitunnar. FALSKUR TÓNN Laxá eyðir sínum krapastíflum og vaskir viðgerðarmenn geta gert við slitnar línur. Annað veldur meiri áhyggjum, og það er liinn alvarlegi og vaxandi raf orkuskrotur í þessu kjördæmi og á Norðurlandi öllu, jafnvel þótt orkuver skili fullum afköst um. Laxárdeilan er óleyst og þótt hún leysist og 6.5 mega- vatta raforkuviðbót fáist, lirekk ur það skammt. Það hljómar eins og falskur tónn, að tala um eflingu hinna ýmsu byggðar- laga og landshluta, án raforku. Við erum í raforkuhungri og úr raforkuþörfinni verður að bæta. Hér eru næg vatnsföll til virkj- unar, önnur en Laxá, möguleiki er á samtengingu orkuvera, sunnan fjalla og norðan og álit- legastur er þó e. t. v. jarðhit- inn til virkjunar. Raforku verð- um við að fá. Hún er frumskil- yrði fyrir framförum og góðum lífskjörum á Norðurlandi. GÓÐ VIÐURKENNING Margir Altureyringar tclja, að við úthlutun listamannalauna hafi Akureyringar Iengi verið setíir lijá. Hvað sem um það er, hefur nú hækkað liagur Strympu, því að við útlilutun í ár komust tveir góðir Akureyr- ingar í efri flokk hjá úthlutunar nefndinni, þeir Heiðrekur Guð- (Framhald á blaðsíðu 5) Búnaðarþing stendur víir Dalvík 17. febrúar. Um hálf tíu á þriðjudagsmorgun 13. febrúar féllu mörg snjóflóð í Upsafjalli. Eitt var miklu mest og átti það upptök sín í fjallsegginni og féll þar sem heitir Mjói geiri, allt niður á jafnsléttu. En talið er, að hin snjóflóðin hafi fallið vegna titrings frá þessu stóra flóði. Skafti Þorsteinsson heitir bóndinn í íifstakoti. Flóðið lenti á verkfæraskýli frá Efstakoti, sem í voru einar tíu heyvinnu- vélar og dráttarvél. Þetta er allt ónýtt. Dráttarvélin hefur fund- izt í þrennu lagi. Snjóflóðin lentu lítilsháttar á fjárhúsum á Svæði. Hjónin þar, Unnur Sig- urðardóttir og Guðjón Sigurðs- son, voru bæði í fjárhúsi við gegningar, er flóðið féll. Engan sakaði, hvorki fólk né fénað, og skemmdir á húsinu urðu litlar. J. H. BUNAÐARÞING, hið 55. í röð- inni, var sett í Bændahöllinni 12. febrúar kl. 10 árdegis. For- maður B. í., Ásgeir Bjarnason, setti Búnaðarþing'ið með ræðu. Landbúnaðarráðherra, Halldór E. Sigurðsson, flutti ávarp. Vegna samgönguerfiðleika voru 6 þingfulltrúar fjarstaddir við setningu þingsins, af 25 og mætti sá síðasti hinn 19. febrú- ar, er vika var liðin af þing- tímanum. Lögð hafa verið 28 mál fyrir þingið og eru þau nú á ýmsum stigum afgreiðslu. Er þar um að ræða frumvörp frá Alþingi, send Búnaðarþingi til umsagn- ar, svo sem frumvarp til laga um grunnskóla og skólakerfi, frumvarp til námulaga, enn- fremur sent frá landbúnaðar- ráðuneytinu frumvarp til ábúð- arlaga og frumvarp til jarðar- laga, sem ekki hafa verið lögð fyrir Alþingi og verða það ekki fyrr en Búnaðarþing hefur gef- ið sína umsögn. Þá eru að venju mörg erindi frá búnaðarsamböndunum, svo og frá einstaklingum innan Búnaðarþings og utan. Nú hafa verið afgreidd fjögur mál af nefndum 28. Þau eru: Erindi Búnaðarsambands Suðurlands um bætta umgengni og fegrun byggðra býla, erindi Búnaðar- sambands Snæfellinga um breytta skipan á starfsemi bygg ingafulltrúa í sveitum, erindi Búnaðarsambands S.-Þingey- inga um eflingu félagsheimila- sjóðs og í fjórða lagi breytingu á lögum um framleiðsluráð landbúnaðarins. Á Búnaðarþingi sitja 25 full- trúar, kosnir af búnaðarsam- böndunum, einn eða fleiri frá hverju, eftir fjölda bænda. Fyr- ir Búnaðarsamband Eyjafjarðar eru fulltrúar þeir Iijörtur E. Þórarinsson og Stefán Halldórs- son. Teitur Björnsson á Brún er fulltrúi S.-Þingeyinga og Þórar- inn Kristjánsson, Holti fyrir N.- Þingeyinga. Skagfirðingar senda tvo fulltrúa, þá Gísla Magnús- son í Eyhildarholti (en fyrir hann mætir nú, vegna veikinda- forfalla, Gunnar Oddsson í Flatartungu) og Egill Bjarnason á Sauðárkróki. Frá A.-Húna- vatnssýslu mætir Guðmundur Jónasson, Ási í Vatnsdal og fyr- ir V.-Húnvetninga mætir Sigurð ur Líndal á Lækjarmóti. Búnaðarþingi lýkur í næstu viku. (Samkvæmt viðtali við Hjört E. Þórarinsson í gær). □ FYRIR skömmu samþykkti Lionsklúbburinn Þengill í Grýtubakkahreppi ályktun um, að fella beri niður þjóðhátíð 1974, en að tímamótanna verði minnzt á látlausan og virðuleg- Allar bræðslur eru fullar á Auslurlandi Egilsstöðum 19- febrúar. Mann- líf hér um slóðir er nokkurn veginn í sóma, líklega víðast með mikium sóma. Kominn er í byggð dálítill snjór en fært er þó úm Hérað og einnig um Fagradal til Reyðarfjarðar. Ruddaveðrattu undanfarið fylgdi mikill stormur og reif víða af vegum en dró svo í skafla á öðrum stöðum. Við sjávarsíðuna er mikið unnið síðan loðnan fór að berast að landi á Austfjarðahöfnum. Allar síldarþrær eru fullar og þó brætt dag og nótt og án nokkurra bilana eða stöðvana. Bræðslurnar eru margar og ef byrjað er að sunnan, er fyrst að nefna Höfn í Hornafirði, þá Djúpavog og Stöðvarfjörð. Bræðsla er á Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, ríkisbræðsla, stór og mikil bræðsla á' Eskifirði. Á Norðfirði er ein bræðsla en önn ur var rifin á síldarleysisárun- um, og einnig var rifin bræðsla á Seyðisfirði, en þar starfa nú tvær og er önnur eign ríkisins. Verið er að búa síldarverk- smiðjuna í Vopnafirði til loðnu- móttöku og mun hún í þann veginn tilbúin. Mikill skortur er á starfsfólki við allar þessar verksmiðjur. En þeir sem vinna, eru að bjarga fjármálum þessarar hallfleyttu þjóðarskútu okkar, sem fyrr. Hingað komu aðeins örfáir Vestmannaeyingar og hefðu þeir mátt vera fleiri, eins og manneklan er hér. V. S. an hátt. Fjármunum, ætluðum til þjóðhátíðar, væri betur varið til styrktar Vestmannaeyingum. Hvetja Lionsmenn í Grýtu- bakkahreppi hin ýmsu félög til að segja álit sitt á þessu máli. Klúbburinn hefur afhent slysavarnadeildinni í Grenivík ágætlega vandaða talstöð. □ - ,--------—.—,— ; ' i — Bændaklúbbsfundur verður á Hótel KEA mánudag- inn 26. febrúar kl. 21.00. Frum- mælandi verður Stefán Valgeirs son alþingismaður og ræðir hann um lánamál landbúnaðar- ins og framkvæmdaþörf í land- búnaði. □ Dagur kenmr næst út á miðvikudag- inn 28. febrúar. EYRRZK FRÆÐI S-ll GERIZT ÁSKRIFENDUR SOGUFELAG EYFIRÐINGA PÓSTHÓLF 267 • AKUREYRI SÍMI 96-123-31

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.