Dagur


Dagur - 14.04.1973, Qupperneq 1

Dagur - 14.04.1973, Qupperneq 1
Eldsvoði varð á Grund í Eyjafirði Á EIMMTUDAGSNÓTTINA varð eldur laus á Grund í Eyja- 'firði og urðu menn þess fyrst varir á nágrannabæjunum og greðu aðvart. Slökkvilið var þá þegar kallað á vettvang frá Akureyri. Reyndist eldurinn vera í stórri heyhlöðu Snæ- bjarnar Sigurðssonar bónda. Hlaða þessi, sem að nokkru er úr steini en að nokkru boga- PÁSKAEGG NÚ FER í hönd tími páska- eggjanna vinsælu. Þessi siður er ævagamall og hefur lengi fylgt páskum hér á landi, en eggin munu í upphafi hugsuð sem tákn nýs lífs og upprisu. Svo sem verið hefur nokkur undanfarin ár munu félagar úr Kiwanisklúbbnum K a 1 d b a k skemma, eyðilagðist í eldinum. Þá eyðilagðist fjárhús, sem í voru um 100 kindur, og enn- fremur skemmdist 14 metra votheysturn. Fjósið slapp nokk urn veginn og enga skepnu sakaði, nema e. t. v. nokkur hænsn. Snæbjörn sagði blaðinu í gær, að enn logaði í heyinu, en í hlöðunni myndu hafa verið 2500—-3000 hestburðir heys, allt vélbundið, ennfremur fóður- kökur, og væri þetta allt ónýtt, eða því sem næst. Hey og hús var vátryggt. Snemmrúið fé Snæbjarnar, um 100 talsins, er nú húsnæðislaust. Sigurbjöm Pálsson á kýr þær, er í fjósi voru, en hann keypti þeim hey- fóður af Snæbirni. Mikil hey voru á öðrum stað, er ekki sakaði. Q Bjarnarey VE 501 í reynsluför. (Ljósm.: M. Ó. G.) knýja á dyr bæjarbúa, er líða tekur að páskum, og bjóða til kaups girnileg og gómsæt páska egg. í þetta sinn fara þeir á stjá í dag, laugardaginn 14. apríl, og vonast til að þeim verði vel tekið eins og alltaf áður. Verð eggjanna er kr. 150,00 og renn- ur allur hagnaður af sölunni til styrktarmálefna. □ Enn eitt skip frá Slippstððinni í DAG, 11. apríl, afhenti Slipp- stöðin h.f. 150 lesta stálfiskiskip til Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík h.f. — Einar Sigurðs r r SONGLIFIREYKJADAL SÖNGLÍF hefur löngum staðið með blóma í Reykjadal og um árabil kvað þar mest að Karla- kór Reykdæla. í vetur liefur starfsemi hans legið niðri, en Kirkjukór Einarsstaðasóknar á hinn bókinn starfað af meiri þrótti en oft áður. Kórinn er efldur að nýjum söngkröftum og er söngfólk alls um 30 manns og æft tvisvar í viku. Um þjálf- un kórsins sjá Friðrik Jónsson, Halldórsstöðum, organisti í Ein arsstaðakirkju, og Páll H. Jóns- son, fyrrum söngstjóri og söng- kennari á Laugum. Kórinn hyggur á þátttöku í söngmóti kirkjukóra í Suður- Þingeyjarsýslu, sem haldið verður í Húsavík annan páska- dag. Einnig hyggst kórinn halda samsöng að Breiðumýri 3. maí. Þar verður m. a. frumflutt nýtt lag eftir Friðrik Jónsson í út- setningu Páls H. Jónssonar, og Hvar á Glerá að renna? GESTUR Ólafsson skipulags- ffæðingur lagði fram uppdrætti að legu Glerár á Oddeyrinni. Skipulagsnefnd samþykkti fyrir sitt leyti, að árfarveginum yrði lítið breytt, eða Glerá yrði færð verulega úr stað frá því sem nú er. Bæjarstjórn hafði áður látið grafa Glerá nýjan farveg litlu no.rðar en áin rennur nú. Á síð- asta bæjarstjórnarfundi sam- þykkti bæjarstjórn þann vilja sinn, að Glerá érði færð í nyrðri farveginn, einkum vegna lóða sunnan ár, sem við það voru miðaðar að áin yrði færð norðar. Q Anna Áslaug Ragnarsdóttir, tónlistarkennari á Akureyri, leikur einleik á píanó. Er það eitt út af fyrir sig nokkur tónlistarviðburður svo gott orð, sem hún hefur getið sér fyrir píanóleik sinn að und- anförnu. G. G. Tónleikar Ashkenazy VLADIMIR ASHKENAZY leik ur í Borgarbíói klukkan 5 í dag, laugardag. AHur ágóðinn renn- ur til Vestmannaeyjasöfnunar og ættu bæjarbúar að fjöl- menna af því tilefni, um leið og þeir njóta snillingsins. Q son. Skipið var sjósett 17. marz sl. og hlaut þá nafnið „m/b Bjarnarey VE 501“. Þetta skip er það fjórða, sem Slippstöðin h.f. afhendir Einari Sigurðssyni á rúmlega einu ári og áætlað er að afhenda honum fimmta skip- ið, „m/b Álsey VE 502“, í lok maí. „M/b Bjarnarey“ er útbúin til línu-, neta-, tog- og nótaveiða og togbúnaðurinn er gerður fyrir skuttog, sem er nýjung. Skipið er búið öllum nýjustu siglinga- og fiskleitartækjum óg má þar nefna tvær ratsjár af gerðinni KELVIN HUGHES og DECCA, ATLAS fisksjá, og asdic af gerðinni SIMRAD. Aðalvél er af gerðinni MANN- HEIM, 765 hestöfl og reyndist ganghraði 12V2 míla í reynslu- ferð. Auk þess eru tvær hjálpar vélar af gerðinni BUKH, 84 hestöfl hvor, sem geta framleitt 72 kgw samtals. í skipinu er innbyggður hraðamælir af gerð inni SAL-LOG 64. Senditæki eru af gerðinni SAILOR T 122, 16 rása og viðtæki 23 rása. Lengd skipsins er 31 meter og breidd 6.7 metrar. Allar íbúðir, sem eru fyrir 12 manns, eru í afturskipi. Skipstjóri á „m/b Bjarnarey“ er Jón Rögnvaldsson og vél- stjóri verður Þorgrímur Þórðar son. Skipið heldur strax á neta- veiðar. (Fréttatilkynning) Flugfélögin undir sönui stjórn FLUGFÉLAG íslands og Loft- leiðir hafa fallizt á þær tillögur trúnaðarmanns ríkisstjórnarinn ar, Brynjólfs Ingólfsspnar ráðu- neytisstjóra, að yfirstjórn flug- félaganna verði sameinuð og stefnt að fullri sameiningu félag anna, af hagkvæmnisástæðum. Á sameiginleg yfirstjórn að vera komin á 1. ágúst í sumar. í fréttatilkynningu samgöngu málaráðuneytisins segir: „Undanfarna mánuði hafa staðið yfir viðræður milli Flug- félags íslands h.f. og Loftleiða h.f. fyrir atbeina ríkisstjórnar- innar og með aðstoð trúnaðar- manna hennar um ráðstafanir til að draga úr samkeppni félag anna, auka samvinnu þeirra eða sameina bæði félögin undir eina stjórn, í dag hafa félögin fallizt á samkomulagsgrundvöll, sem trúnaðarmenn ríkisstjórnarinn- ar lögðu fram 14. f. m. um að- ferðir til að ákveða eignarhlut- föll í sameinuðu félagi, en eftir er að semja um mörg önnur atriði og er stefnt að því að ljúka samningum um þau fyrir lok maímánaðar. Miðað við að endanlegt sam- komulag takist milli félaganna er gert ráð fyrir, að yfirstjórn þeirra verði sameinuð 1. ágúst Samkomulagið í heild er að sjálfsögðu háð samþykki hlut- hafafunda í félögunum síðar.“ HESTAMENN FARA HINA LEIÐINA HÓPREIÐ hestamanna fer að venju fram sumardaginn fyrsta. En blaðið hefur verið beðið að geta þess, að önnur leið verður valin en fyrr. Lagt verður af stað við Aðalstræti 23, þaðan að Ferðanesti, þá norður nýja veginn, upp Lækjargötu, norð- ur Þórunnarstræti, upp að Elli heimilinu og þar norður Byggða veg og allt norður í Glerár- hverfi. Breyting þessi er gerð vegna þess, að malbikið í miðbænum skapar fjölmennari hópreið hættu. Q Frá Skagaströndiimi Stefán Reykjalín, Einar Sigurðsson og Gunnar Ragnars viö afhend- ingu Bjarnareyjar 11. apríl. (Ljósni.: M. O. G.) Skagaströnd 13. apríl. Nýjum 28 tonna bát hjá Skipasmíða- stöð Guðmundar Lárussonar var í gær gefið nafnið Jörfi. Eigendur hins nýja báts eru Hinrik Þórarinsson og Þórarinn Höskuldsson frá Húsavík. Bár- urinn verður sjósettur á morg- un. í síðustu viku gerði mikinn snjó og vegurinn hér norður á Skagann varð algerlega ófær öllum bílum. Hann var ekki ruddur og þar var síðan aðeins dráttarvélafæri. Snjó tekur nú óðum upp og vegurinn batnar. Bátarnir eru hættir rækju- veiðum, því að þeir eru búnir að veiða þær 1700 lestir, sem leyfilegt var að veiða til 1. maí. Rækjuaflinn var mikill og at- sinna því góð. Nú er Hafþór væntanlegur eða þegar kominn til að leita nýrra rækjumiða norðar í Húnaflóa. Binda sjó- menn vonir við að geta bráð- lega farið að veiða úthafsrækj- una. X.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.