Dagur - 14.04.1973, Qupperneq 7
Ung barnlaus hjón óska
eftir 2—3 herbergja
íbúð á leigu, erum hús-
næðislaus.
Sími 1-18-82.
4ra herbergja íbúð til
sölu, skipti á bújörð
kæmi til greina.
Uppl. í síma 1-22-67.
4—5 herb. íbúð óskast á
leigu frá 15. sept., lielzt
nálægt sjúkraliúsinu.
Fyrirframgreiðsla allt
að kr. 100.000,00.
Tilboð leggist inn á
afgreiðslu Dags.
Vantar 2ja lierb. íbúð
sem fyrst.
Helzt til leigu, kaup
koma til greina.
Sími 1-23-31.
ORÐ DAGSINS
SÍMI - 2 18 40
AUCLYSIÐ I DEGI
STJÓRNIN.
Notaður súgþurrkun-
arblásari óskast til
kaups.
Uppl. í símum 2-13-38
og 2-12-04.
Til sölu 8 tonna vöru-
bifreið árg. 1967.
Bifreiðin er með'stórum
st. Páls sturtum og 18
feta stálpalli.
Uppl. í síma 96-4-15-39.
Til sölu Ford Cortína
árg. 1971 ekin 7 þúsund
kílómetra.
Uppl. í síma 1-15-19
eftir kl. 19.
ÓLAFLR JONSSON:
Minningaþættir.
Seinna bindi.
Prentsmiðjan Leiftur h.f.,
Reykjavík 1972.
ANNAÐ bindi æviþátta Ólafs
Jónssonar er komið út, og er
ekki skorið við nögl, rúmar
fjögur hundruð blaðsíður. Þetta
er ekki ævisaga í eiginlegum
skilningi, fremur en fyrra bind-
ið, og raunar í enn minna mæli
en það, heldur eru hér raktir
ýmsir atburðir, sem orðið hafa
höfundinum minnisstæðir, af
ýmsum ástæðum. Ferðalög
skipa enn sem fyrr mikið rúm
í ritinu, og enn er Ólafur tíðum
gangandi á sínum tveimur jafn-
fljótum, þótt ýmis farartæki séu
líka notuð, allt frá reiðhjóli til
flugvélar.
Bókin. hefst á dagbókarbroti
frá sumrinu 1923, þegar höfund-
ur dvaldist um tíma á bæ einum
á Jótlandi. Kaflinn ber yfir-
skriftina Iðjuleysi og sveita-
sæla, og er eins konar Idyll eða
fjörugt Intermesso í ævikviðu
Ólafs, sem annars má helzt
kalla Andante con spirito. Slíkt
millispil er nauðsynlegur þáttur
Á iveimur jafnfljóium
í þroskaferli manna, þótt fánýtt
virðist í fyrstu, enda fara þeir
mikils á mis, sem aldrei reyna
slíkt. Þá er greint nokkuð frá
Hafnarlífinu á þessum tíma, en
þar er Ólafur fremur athugandi
en þátttakandi. Hann hefur þá
gáfu, að sjá þetta líf úr fjarlægð,
þótt hann sé mitt í hringiðu
þess, jafnvel í hringekjunni í
Tívolí, og því sleppur hann
einnig með óskemmda lá og lit
frá henni.
Næsti kafli lýsir aðkomunni
til höfuðstaðar Norðlendinga,
og heimilisástæðum Ræktunar-
félags Norðurlands, sem Ólafur
gerðist nú strafsmaður hjá. Nú
kom sér vel að hann var ýmsu
vanur, og hafði ekki baðað í
rósum alla ævina. „Ég hafði að
vísu ekki búizt við miklu, en þó
tæplega átt von á svona bágum
ástæðum", segir Ólafur. Það
virðist jafnvel hafa hvarflað að
honum að hætta við starfið, en
meðfædd skyldurækni og hæfi-
leg þrjóska, komu þó í veg fyrir
það. Og því settist Ólafur nú að
í „turninum“ í Gróðrarstöðinni,
þessu einkennilega húsi, sem er
eins og talandi minnismerki um
hugsjón Ræktunarfélagsins,
Eklri dansa klúbburinn
lieldur dansleik í Al-
þýðuhúsinu, miðviiku-
daginn 18. apríl, síðasta
vetrardag, kl. 21,00.
Miðasala við inngang-
inn, ekki svarað í síma.
TREFJAPLAST H. F. A BLÖNDUOSI
vanlar duglegan verkstjóra
strax.
Miklir möguleikar og glæsileg framtíð fyrir góð-
an mann.
TALIÐ VIÐ JÓN ÍSBERG.
SÍMI 95-41-58.
í SJÁLFSTÆÐISHÚSINU, sunnudaginn 15.
apríl kl. 20,30.
1. Ferðakynning: Ingólfur Guðbrandsson.
2. Kvikmyndasýning frá Útsýnarferðum.
3. Ferðabingó, 2 utanlandsferðir.
4. Dansað til kl. 1. Hljómsveit Ingimars Eydal.
FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN.
Umboð á Akureyri:
BÓKVAL, - SÍMI 1-27-34.
Garðlönd bæjarins
Vinsamlegast endurnýjið greiðslukvittunina fyr-
ir 15. maí n. k. Annars verða garðarnir leigðir
öðrum.
Viðtalstími á þriðjudögum og föstudögum kl.
10—12 f. h. að Hafnarstræti 69, sími 2-12-81.
GARÐYRKJUSTJÓRI.
$
r r
IBUÐ óskast til leigu
Uppl. gefur ARNGRlMUR BJARNASON,
K.E.A.
eins konar loftkastali í þess
orðs réttu merkingu, enda fór
svo, að Ólafur varð kenndur við
Gróðrarstöðina, og er svo jafn-
vel enn, þótt hann sé löngu flutt
ur þaðan.
Þá segir frá ferðalögum um
Norðurland á næstu vetrum, í
sambandi við svonefnd bænda-
námskeið, sem haldin voru á
vegum Búnaðarfélags íslands,
svo og frá námskeiðunum sjálf-
um. Ferðir þessar voru oft eng-
inn leikur, þótt góðæri ætti að
heita, og aðstæður til námskeiðs
haldsins voru oft neðan við all-
ar hellur. En hér fór sem oftar,
að erfiðleikarnir gleymdust, en
eftir stóð ánægjan. Lýsingar
Ólafs á námskeiðum þessum og
ferðum eru oft kostuglegar og
hreinasti skemmtilestur.
Næsti kafli fjallar um Bún-
aðarþing, sögu þess og starfs-
hætti og ferðalög höfundar í
sambandi við þau, en hann átti
þar sæti í 25 ár samfleytt. Er
kaflinn fróðlegur, og inn í hann
fléttað skemmtilegri frásögn af
sóttkví á Akureyri, sem í dag
hljómar eins og lygasaga. Þá er
kafli með allmörgum ferðaþátt-
um frá óbyggðum öræfanna, en
Ólafur hefur áður sýnt rithöf-
undarhæfileika sína á slíku
efni, og eru þessir þó ekki síðri.
Að lokum eru Eftirþankar, sem
eru eins konar stutt æviágrip,
þar sem er minnzt samstarfs-
manna, sagt frá skólaheimsókíi-
um, opinberum störfum, rit-
störfum o. s. frv.
^ Ég gat þess í upphafi, að bók
Ólafs væri ekki æVisaga hans,
nema að nokkru leyti. Um dag-
leg störf hans í Gróðrarstöðinni
vitum við harla lítið, ekki held-
ur um rannsóknir hans eða
rannsóknaferðir, og enn síður
um heimilishætti hans eða
atburði úr einkalífi, sem mörg-
um ævisöguritara verður skraf-
drjúgt um. Hér hygg ég að með
fædd hlédrægni Ólafs og lítil-
læti valdi mestu um. Það er að
vísu rétt, sem hann segir í for-
mála fyrra bindisins, að um
þessa hluti má fræðast á öðrum
stöðum, m. a í Ársriti Ræktun-
arfélagsins og í fyrri bókum höf
undarins. Margur hefur þó sjálf
sagt búizt við, að um þessi efni
yrði fjallað í æviþáttunum, og
orðið fyrir vonbrigðum í því
efni. j,
Sjálfum finnst mér einhvern
veginn, eins og það vanti þriðja
bindi þessarar bókar, sem
mætti kalla Vísindasögu Ólafs,
sem hófst litlu fyrr en megin-
efni annars bindisins lýkur, eða
með undirbúningi ritverksins
Ódáðahraun, en því lýsir Ólafur
svo í æviþáttum sínum: „í riti
þessu beinist hugur minn inn á
alveg nýjar brautir, heillandi
vettvang fyrir löngun mína til
ritstarfa. Það sameinaði í eitt
löngun mína til rannsókna,
hneigð mína til náttúrufræði-
legra viðfangsefna, umfangs-
mikla heimildakönnun og alþýð
lega frásögn.“ ;|
í lok bókar sinnar getur Ólaf-
ur þess, að hann vonist til að
mæta bókum sínum handan lífs
landamæranna. „í nýrri og full-
komnari útgáfu." í samræmi
við það vona ég að hann komi
því í verk að rita vísindasögu
sína, ef ekki hérna megin, þá
hinum megin tjaldsins.
1 H. Hg. |
Margrét
Jónsdóttír
F. 3G. marz 1885.
D. 1. febrúar 1973.
Kveðja írá börnum, tengdabörnum og barnabörnum.
Hvert jarðneskt líf er hrörnun háð,
og hold er lagt í grafar-skjól.
En andinn frjáls sér framtíð býr
í fegri heima sól.
Þar ævilaunin uppskerð þú,
sem áttir hina björtu trú,
og þekktir milda gæzku Guðs,
er græðir allt, sem kól.
I
Þitt líf var fórn og stöðugt starf
til stuðnings þeim er skorti mátt,
að veita huggun hver jum þeim
og hjálp, er áttu bágt.
Þú gleymdir eigin þreytu þar,
sem þörf á skjótri aðstoð var.
Og lífs þíns veg þú gekkst með gát
í gleði, frið og sátt.
i i
f klökkri þökk við kveðjum þig.
Þú koniin ert á vinafund.
Og Guð þig man, því gæzku hans
þú gleymdir enga stund.
Þú gekkst þá braut, er bauð hann þér.
— Svo bjart um þína minning er
að Ijós það okkur lýsa mun,
er lokast taka sund.
(K. f. D.)