Dagur - 01.08.1973, Page 1

Dagur - 01.08.1973, Page 1
Hvalveiðiskip strandar Dagur keniur næst út miðvikudaginn 9. ágúst. Skóla- og samkomuhúsið á Árskógsströnd. Mynd in tekin áður en samkoman hófst. (Ljósm.: L.D.) Skagaströnd 31. júlí. Sunnudags kvöldið 29. ágúst strandaði norskt hvalveiðiskip á Ásbúðar- skeri fyrir norðan Ásbúðir á Skaga. Báturinn heitir Miloy, frá Kristjánssundi, 89 tonn, smíðaður úr eik. Eftir að kunn- ugt varð um strandið fóru bræð ur frá Víkum á strandstað. Norðmennirnir voru þá byrjað- ir að létta skipið. Tveir norskir hvalveiðibátar voru þá á leið- inni til aðstoðar og töldu strand mennirnir ekki þörf á aðstoð úr landi. En skemmst er frá því að segja, að hjálparskipin náðu Miloy ekki af skerinu. Var þá leitað aðstoðar á Siglufirði og Dagný fengin til að draga skipið af strandstaðnum og tókst það klukkan 11 á mánudagskvöld, á háflæði, og var þá rúmur sólarhringur liðinn síðan skipið strandaði. Bæði skipin héldu til Siglufjarðar og á að taka það norska í slipp. Ekki var það talið mikið skemmt, en þó hafði stýrið laskazt eitthvað. Sex menn voru á Miloy, en þrír þeirra fóru um borð í ann- að norska skipið, er til hjálpar kom. Björgunarsveit frá Sauðár- króki fór til aðstoðar, og dvaldi við strandstaðinn þar til skipið var dregið út. Hér á Skaga- strönd voru menn tilbúnir að veita aðstoð, um leið og þess væri talin þörf. Sagt er, að þessi norsku skip væru á leiðinni til Grænlands til hrefnuveiða. X. BÆNDADAGUR Eyfirðinga var haldinn á Árskógsströnd á sunnudaginn og fóru hátíða- höldin að mestu fram undir berum himni á snyrtilegri gras- flöt við skóla og samkomuhús sveitarinnar, Árskóg. Veður var hið fegursta, sól og hiti._ En á þessum stað var fyrsti Bænda dagurinn haldinn, 1957, og þá flutti Davíð Stefánsson frá Fagraskógi ræðu, sem hreif alla viðstadda og Steingrímur Stein þórsson, fyrrum forsætisráð- herra, flutti þar einnig ágæta ræðu. Að þessu sinni setti formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar, Sveinn Jónsson, hátíðina, en búnaðarsambandið og samband ungmennafélaga hafa jafnan séð um þessi hátíðahöld. Jónas Jónsson, aðstoðar land- Grasið grær en enginn slær það FRÁ LÖGREGLUNNI Á AKUREYRI Svcinn Jónsson afhcnti vcrðlaun og viðurkcnning ar fyrir snyrtilega umgengni á sveitabæjum og sést það fólk liér á myndinni, sem veitti viðurkenningunum móttöku. (Ljósm.: E.D.) MIKIL ölvun var um helgina og gistu 19 manns í fangahús- inu. Er það með meira móti. Tveir voru og teknir ölvaðir við akstur. Harður bifreiðaárekstur varð á hæð einni ofan við Bakkasel í Öxnadal síðdegis á laugardag- inn milli tveggja Reykjavíkur- bíla. Mun annar nær ónýtur og hinn skemmdist mikið. Öku- menn og farþegar sluppu við stórmeiðsli. Þá lenti bíll einn út í mó, nálægt Björk í Öngulsstaða- hreppi, en fór ekki af hjólum. Skemmdist hann, en ökumaður slapp ómeiddur. □ Ilrísey 31. júlí. Hér grær grasið vel á gömlu túnunum, en eng- inn slær, nema rétt aðeins í görðunum heima við húsin. Búskapur er hér niður lagður og bændur úr landi virðast ekki hafa áhuga á heyskap hér nú, eins og var á meðan kal- skemmdir herjuðu. Fiskiríið hefur verið heldur gott og nota menn handfærið. Þó virðist lítill fiskur innfjarð- ar. Trillurnar sækja á Flateyjar mið en stærri bátarnir halda austur á bóginn. Vinna er næg. En nú er búið að loka hér frysti húsinu, eins og öðrum slíkum, þannig að ekki er tekið á móti fiski lengur þessa vikuna, miðað við að ekki liggi fiskur á frysti- húsuin yfir verzlunarmanna- helgina. Þetta þykir ýmsum miður gott. Rjúpur með unga sína hef ég ekki ennþá séð. Hins vegar var Finnur fuglafræðingur á leið- inni hingað út, en meiddist á Litla-Árskógssandi, er hann var að fara um borð í ferjuna og liggur á sjúkrahúsi. Mun hann á batavegi og þá kemur hann væntanlega til að heilsa upp á rjúpnahjörðina, sem svo mjög hefur verið rannsökuð í ej'nni hin síðustu ár. Báturinn Þorsteinn Vald mun verða í skemmtiferð um næstu helgi með Skagfirðinga, sem fara ætla í Flateyjardal, Fjörðu og víðar. S. F. Sveinn Jónsson, forinaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar. búnaðarráðherra, flutti ræðu dagsins og er hennar getið á öðrum stað. Þá sungu þeir Viktor Guðlaugsson skólastjóri á Stórutjörnum og Bragi Vagns son fimleikakennari við sama skóla. Frú Sigríður Schiöth söng gamanvísur og Ingva Rafns-börn frá Akureyri skemmtu með söng og gítarleik. Ármann Dalmannsson, fyrrv. formaður búnaðarsambandsins, var heiðraður með góðri gjöf frá samtökunum og þakkaði hann með snjöllu kvæði. Þá veitti búnaðarsambandið verðlaun fyrir snyrtilega um- gengni. Lampann, farandgrip, hlutu hjónin Jón Kristjánsson og Guðrún Kristjánsdóttir, Fellshlíð. Viðurkenningar hlutu Þorgils Gunnlaugsson og Olga Steingrímsdóttir, Sökku, Jón Kristinsson og Sonja Emma Kristinsson, Ytrafclli, Birgir Þórðarson, Öngulsstöðum II og Eggert Davíðsson og Ásrún Þór hallsdóttir, Möðruvöllum II, ásamt verðlaunum frá Skóg- ræktarfélagi Eyjafjarðar. Á íþróttavellinum, skammt frá skólanum, kepptu heima- menn við ungmennafélagið Dagsbrún í Glæsibæjarhreppi í knattspyrnu og ýmsar aðrar íþróttir fóru fram, en að síðustu var dansleikur haldinn í Víkur- röst á Dalvík og fór hann vel fram. Hin ýmsu skemmtiatriði úti, nutu sín einkar vel, meðal ann- ars vegna hins hagstæða veð- urs, og fólki leið vel í hinum notalega sumarhita, sem ein- kennt hefur júlímánuð hér á Norðurlandi. Bændadagurinn er ekki bar- áttudagur í venjulegum skiln- ingi, heldur á hann að vera gleði- og sameiningardagur stétt arinnar, og þannig hefur hann verið. Vera má, að hann sé þegar kominn í of fastar skorð- ur, þótt ætíð sé reynt að vanda til undirbúnings svo sem kost- ur er. í þetta sinn ríkir mikil bjart- sýni í bændastéttinni, vegna hinnar óvenju hagstæðu veðr- áttu undanfarið. Naumast er hægt að segja, að dropi hafi komið úr lofti síðan byrjað var að heyja og eru flestir bændur langt komnir með heyskap sinn og nokkrir búnir. Heyfengur er víðast mikill og hey óvenjulega vel verkuð. □ BJENDADAGUR EYFIRDINGA

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.