Dagur - 01.08.1973, Page 8

Dagur - 01.08.1973, Page 8
EYFIRZK FR/EÐi Ml GERIZT ÁSKRIFENDUR SÖGUFÉLAG EYFIRÐINGA PÓSTHÖLF 267 • AKUREYRI Akureyri, miðvikudaginn 1. ágúst 1973 Demants- hringar. MikiS úrval. Verð frá kr. 2.000. Oft eru á annað hundrað tjöld á tjaldstæði Akureyrar. (Ljósm.: E.D.) Á fjórða hundrað manna á SMATT & STORT LÍKLEGA hafa aldrei verið eins mörg ferðamannatjöld víðs vegar á Norðurlandi, en góð- viðristímann í júlímánuði. Á tjaldstæðum Akureyrarkaup- staðar hafa oft verið á annað hundrað tjöld samtímis og á er nú nýlega BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefir veitt stjórn Elliheimilis Akureyrar heimild til að hefja byggingu lokaáfanga húss Elli- heimilis Akureyrar (álmu norð- ur úr síðustu viðbyggingu), og er þegar tekið að grafa fyrir byggingunni. Byggingameistar- ar eru Konráð Árnason og Bjarni Rósantsson. Byggingaleyfið er veitt með því fororði, að stjórn EHA afli sjálf þess fjár, sem notað verði í ár, og hefir hún þegar tryggt sér 3ja millj. kr. framkvæmda- fé, en betur má, ef duga skal, því að stefnt er að því að gera bygginguna fokhelda fyrir haustið, svo að hægt verði að vinna að innréttingum í vetur. Lokaáfanginn er ætlaður fyrir 25 vistmenn. Ef einhverjir einstaklingar — eða félög — vildu stuðla að framgangi byggingamáls þessa með gjöfum eða lánum, þætti stjórn EHA það ákaflega mikils vert og minnir á, að allar gjafir til Elliheimilis Akureyrar — sem og Dvalarheimilisins í Skjaldarvík — eru skattfrjálsar, enda gefi stjórnin kvittanir fyr- ir gjöfunum, og þær kvittanir fylgi skattframtali. Þeir, sem vildu styðja Elli- FJÖLMENNT HÉRAÐSMÓT Kópaskeri 31. júlí. Fjölmennt héraðsmót Ungmennasambands Norður-Þingeyinga var haldið í Ásbyrgi um helgina og tókst vel, enda veður ágætt. Heyskapur gengur vel og gras mun enn í sprettu í þeirri einmuna tíð, sem verið hefur. Nokkru fleira ferðafólk hefur fara hér um en oftast áður. Þeir sem sjóinn stunda, afla fremur lítið. K. Á. fjórða hundrað manns, nótt eftir nótt. Flestir koma í einka- bifreiðum, en einnig koma hóp- ar fólks í stærri bifreiðum. Tjaldborgin á túninu við sund- laug bæjarins er mikið augna- yndi og sjá má miklar breyt- hafinn heimilisbygginguna, eru vin- samlega beðnir að hafa sam- band við einhvern úr stjórn Elliheimilis Ak. Hana skipa: Bragi Sigurjónsson, formað- ur, Bjarkastíg 7, Björn Guð- mundsson, varaformaður, Holta götu 4, Ingibjörg Halldórsdóttir, frú, ritari, Strandgötu 17, Auð- ur Þórhallsdóttir, frú, Hamra- gerði 10, Freyja Jónsdóttir, frú, Eyrarvegi 37, Ragnheiður Árna- dóttir, frú, Byggðavegi 97. □ Sauðárkróki 31. júlí. Hér er veðurblíða og búinn að vera þurrkur í þrjár vikur. en aðeins rigndi í fyrrinótt. Bændur eru því langt komnir með sinn hey- skap og æðimargir búnir. Heyin eru mikil og sérstaklega góð, grasið slegið í vexti og ekki úr sér sprottið. Mikið mót hestamanna verð- ur á Vindheimamelum um næstu helgi og stendur í tvo daga. Hefst það kl. 5 á laugar- dag með firmakeppni Stíganda. Áhorfendur kjósa sjálfir bezta hestinn, einnig fara þá fram undanrásir kappreiða í hinum ýmsu hlaupum. Góð vörðlaun verða veitt. Á sunnudaginn er mótinu fram haldið klukkan 2 með hóp reið félaga úr Léttfeta og Stíg- anda í félagsbúningum. Þá verð ur góðhestakeppni og hrossin dæmd eftir spjaldadómaaðferð, en þá geta óhorfendur fylgzt með dómum dómnefndarmanna jafnóðum. Urslit kappreiðanna fara og fram þennan dag. Góð aðstaða er á Vindheimamelum tjaldsfæðinu ingar á tjaldtízkunni frá ári til árs, sem á fleiri sviðum. Það er þó enn meira fagnaðarefni, hve margir eiga þess nú kost að ferðast um landið og kynnast því, bæði ungir og gamlir, og gera það. Á tjaldstæðum bæjarins eru eftirlitsmenn, sem annast hvers konar fyrirgreiðslu við ferða- fólkið, en lögreglumenn eru þar einnig tíðir gestir, því að mis- jafn sauður er í mörgu sé. Jó- hann tjaldvörður sagði blaðinu á mánudaginn, að þá um nótt- ina hefðu verið 110 tjöld á tjald svæðinu, en hefðu stundum verið nokkru fleiri, og væri óhætt að áætla, að á fjórða hundrað manns hefðu verið í þessum tjöldum samtímis. Hann bar ferðafólkinu vel söguna, og taldi undantekningarnar fáar. Lögreglan lét þess getið, í sam- bandi við tjaldstæðin, að fylli- raftar úr bænum væru hinir verstu gestir á þessu svæði, og að allmiltill hluti þeirra, sem gistu steininn um helgina hefðu einmit verið úr þeim hópi. □ til að taka á móti gestum. Gert er ráð fyrir fjölmenni og þátt- töku frægra hlaupagarpa á móti þessu. Skagfirðingar eru alltaf að selja hesta og gæðingar eru nú orðnir mjög dýrir, bæði í innan- landssölu og til útflutnings. Verð á gæðingum, sem bera nafn með rentu, er nú orðið 80—100 þúsund krónur. Feldmann hinn þýzki er hér í Skagafirði að kaupa hesta til útflutnings. Hann hefur nú m. a. keypt brúnan .gæðing á Hólum fyrir 150 þúsund krónur. Seljandi er Magnús Jóhanns- son. Veiði í Svartá er sæmileg og veiði er einnig í Hofsá í Vestur- dal, og hefur sú á nú verið leigð en þar er einnig laxveiði. Dá- lítið hefur veiðzt í Húseyjar- kvísl, en í Svartá hefur laxinn víst ekki gengið ennþá upp fyrir nýja laxastigann, sem þar var byggður. Ég veit, að einu sinni fengu tv'eir menn 12 laxa í Gullhyl í sumar. Laxá í Ytri- Laxárdal og Fossá eru líka veiði SKIPULAG Verið er að skipuleggja Akur- eyrarkaupstað og á því verki að Ijúka í haust. Þetta verk er vandasamt og dýrt og skipulag mannabyggðar orkar í mörgum atriðum tvímælis, þótt skipu- lagsleysi hafi enn fleiri ókosti. Það hefur vakið einn mesta atliygli í skipulagsmálum nú, að ný mjólkurvinnslustöð KEA, sem byrjað var að byggja fyrir nokkrum árum og hefja átti á ný framkvæmdir við í sumar, fellur ekki inn í hið nýja skipu- lag. Gata á nú að koma þar sem áður var ákveðinn liluti samlagsbyggingarinnar. Er sýnt, að hér hafa orðið alvarleg mis- tök í skipulagsvinnunni, eða ekki nægilega fylgzt með henni af bsejaryfirvöldum. BJÖRGVIN ÞORSTEINSSON VARÐ ÍSLANDSMEISTARI Björgvin Þorsteinsson frá Akur eyri varð Islandsmeistari í golfi nú nýlega á golfmeistaramóti íslands í Reykjavík, eftir harða og tvísýna keppni. Jakobína Guðlaugsdóttir frá Vestmannaeyjum varð íslands- meistari kvenna í þessari keppn isgrein, og var talin í sérflokki vegna yfirburða sinna. Ásgcir Sigurvinsson, Vest- mannaeyjum, er nú ráðinn atvinnu-knattspyrnumaður í Belgíu og er fjórði íslendingur- inn, sem gerist atvinnumaður í knattspyrnu. HREINDÝRIN Menntamálaráðuneytið, sem ákveður hverju sinni hvort hreindýraveiðar séu leyfðar eða ekki, gaf í sumar út tilkynn- ingu, þar sem leyft var að vciða hálft annað þúsund hreindýr á þessu ári. Þessu hefur nú verið breytt með nýrri tilkynningu, þar sem tala veiðidýra hefur verið lækkuð um þriðjung. En samkvæmt talningu úr flugvél, sem er talin nokkurn vegin ár og mun hafa veiðzt í þeim lax, sem undanfarin sumur. Togararnir afla ágætlega og hér vantar fólk til starfa. Drang ey var að koma inn í morgun með 130 tonn fiskjar. Það er munur eða hjá gömlu stjórn- inni. Þá var atvinnuleysi og landflótti, en nú vantar alls staðar fólk til að vinna við fram leiðslustörfin. G. O. NORRÆN bindindissamtök undir þessu nafni hafa fundi sína annað hvort ár til skiptis á N o r ð u r löndunum. Fram- kvæmdastjóri þeirra er Karl Wennberg í Stokkhólmi en stjórnarformaður Olav Burman, stórtemplar Svía. Að þessu sinni var þetta nám skeið haldið hér á landi og var aðalviðfangsefni þess „Börnin og við“. Þátttakendur voru 160 —170, þar af 130 erlendir gestir. Þeir komu flestir með þotu Flugfélagsins beint hingað til Akureyrar frá Osló þann 26. örugg, telur íslenzki hreindýra- stofninn nú um 2500 fullorðin dýr og 800 kálfar. Hreindýra- kjöt er í háu verði. VILJA 200 MÍLUR Fimmtíu íslendingar afhentu í síðustu viku Einari Ágústssyni utanríkisráðherra áskorun, sem hljóðar svo: „Undirritaðir skora á Alþingi fslendinga og ríkisstjórn að lýsa nú þegar yfir, að íslendingar muni krefjast 200 mílna fisk- veiðilögsögu á væntanlegri haf- réttarráðstefnu Sameinuðu þjóð anna, og skipi sér þar með á bekk með þeim þjóðum, sem hafa þegar lýst yfir 200 mílum.“ ANDRÉS KRISTJÁNSSON Einn kunnasti íslendingur í blaðamannastétt, Andrés Krist- jánsson, sem verið hefur einn af ritstjórum Tímans, blaðamaður og ritstjóri í rúman aldarfjórð- ung, hefur látið af því starfi. Hann hefur verið ráðinn fræðslustjóri í Kópavogi. AÐ GJALDA LÍKU LÍKT Frá því segir í norsku blaði, að hjá bónda einum tjaldaði ferða- fólk, er ekki gekk vel um. Er það hvarf á braut, varð mikið eftir í tjaldstæðinu og ekki allt sem þrifalegast. Þó var þar einnig bréfadót, sem fjölskyldu- faðirinn var að Iosa sig við og sagði það til um nafn og heimil- isfang tjaldbúanna. Bóndi tók sig nú til, safnaði öllu ruslinu í poka, ók með það til heimilis fyrrverandi tjaldbúa, gerði sig þar heimakominn, gekk til stofu og hvolfdi þar úr pokanum á gólfið. (Framhald á blaðsíðu 4) MARGIR BÚNIR AÐ IIIRÐA AF TÚNUM Dalvík 31. júlí. Margir bændur eru búnir að hirða tún sín í Svarfaðardal. Einn bóndinn, sem hirti á laugardag, fór með ajla sína fjölskyldu í skemmti- ferð á sunnudaginn. Það slys varð hér á Dalvík á fimmtudagskvöldið, að fjögurra ára drengur varð fyrir bíl og handleggsbrotnaði og meiddist eitthvað meira. Hann liggur enn í sjúkrahúsi. Bíllinn var frá Hafnarfirði og mun ekki hafa aðhæft sig rólegum akstri, Sesselja Eldjárn dvaldi á Tjörn á áttræðisafmæli sínu fyrir helgina. Þar var einnig forseti íslands í sumarleyfi. Þangað kom margt fólk og bár- ust afmælisbarninu margar gjaf ir og skeyti. J. H. þ. m. og stóð fyrri hluti nám- skeiðsins hér á Akureyri dag- ana 26.—29. þ. m., en síðari hluti þess verður í Reykjavík 30. júlí — 5. ágúst. Er það í fyrsta skipti, sem þessir norrænu templarar hefja námskeið sitt hér á Akureyri. En það þurfti talsverðan undirbúning að taka hér á móti 130 gestum og út- vega þeim gistingu og fæði á mesta íerðamannatíma sumars- ins. Sama daginn og gestirnir komu var námskeiðið sett í (Framhald á blaðsíðu 5) Bygging 3. áfanga EHA Seldur á 150 þúsund MARGT FÓLK VANTAR HÉR TIL STARFA Norrænt góðtemp I a ra ná mskeið

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.