Dagur - 10.10.1973, Qupperneq 1
Tankbílar eru byrjaðir aS
llytja mjólk frá bændum
BYRJAÐ var á laugardaginn
að flytja mjólk til Mjólkursam-
lags Kaupfélags Eyfirðinga á
tankbílum. Sótti nýr tankbíll,
er tekur 7.8 tonn, mjólk til
bændanna á Svalbarðsströnd í
fyrsta sinn og gekk það vel.
Síðar í þessari viku hefjast
svo mjólkurflutningar með
sama hætti úr Ongulsstaða-
hreppi. Eiga tveir bílar að anna
þessum flutningum og sér
Mjólkursamlagið um rekstur
þeirra, en Halldór Karlsson á
Bifröst verður flutningastjóri.
Fjórtán bændur á Svalbarðs-
strönd hafa sett um mjólkur-
tanka heima hjá sér, en fjórir
nota enn gamla lagið. í Önguls-
staðahreppi hafa flestir búið sig
undir þessa flutninga.
Tankflutningar eru taldir
hafa marga kosti, og er þegar
fengin góð reynsla af þeim á
Suður- og Suðvesturlandi, en
stofnkostnaður er mikill á
bændabýlunum, bæði í fjósum
og auk þess við gerð heimreiða.
Bílstjórar þessara tveggja
nýju mjólkúrflutningabíla verða
Stefán Stefánsson, Ásgrímur
Karlsson og Ari Árnason. □
Fjögur skip drógu Selfoss
SELFOSS strandaði á Vestdals-
eyri í Seyðisfirði á fimmtudags-
kvöldið í síðustu viku. Var þá
veður gott og flestum óskiljan-
legt hvers vegpa skipið strand-
aði. En stundum koma hin
FRÁ LÖGREGLUNNI
Á AKUREYRI
í SÍÐUSTU VIKU var Akur-
eyrarbíll á heimleið, að sunnan.
Er hann kom norður fyrir
Bakkasel í Öxnadal, sá öku-
maður brotið ræsi framundan.
Þar sem hann gat ekki numið
staðar í tæka tíð, jók hann hrað
ann og komst yfir. Bíllinn
skemmdist mikið og varð óöku-
fær, en bæði ökumaður og far-
þegar sluppu án teljandi
meiðsla og er það þakkað því,
að öryggisbeltin voru notuð í
framsætinu.
Um síðustu helgi var mikil
ölvun í bænum og gistu níu
fangahúsið á laugardagsnóttina.
Það slys varð, að ökumaður
missti vald á bifreið sinni á
Eyrarlandsfit. Bíllinn er talinn
ónýtur, en ökumaður, sem var
einn, slapp án mikilla meiðsla.
Hann var fluttur í sjúkrahús,
en litlu síðar heim til sín. □
undarlegustu atvik fyrir á sjón-
um hér við land, og í því sam-
bandi minnast menn skips, sem
lagði frá Akureyri í björtu og
góðu og hélt norður fjörðinn.
Af óskiljanlegum ástæðum
breytti skipið um stefnu og
kaus sér landleiðina, með stefnu
í Öxnadalinn, en steytti fljót-
lega kjöl á óbilgjörnu fjöru-
skeri.
Reykjafoss, Skógafoss, Þór og
Óðinn drógu Selfoss loks
af eyrinni á sunnudagskvöldið,
við mikinn fögnuð fjölmargra
áhorfenda. Selfoss er talinn lítt
eða ekki skemmdur. □
Píanóleikur
SÍÐASTLIÐINN laugardag fór
fram tónlistarkynning • í sal
Tónlistarskólans á Akureyri.
Sovézki fiðluleikarinn Andrei
Korsakof lék við píanóundirleik
eiginkonu sinnar ágætrar,
verk eftir Beethoven, Schubert,
Prokofief, Sv. Sveinbjörnsson
og Sarasate.
Korsakof hefur hlotið marg-
háttaða viðurkenningu á alþjóð
legum vettvangi, sem afburða
fiðluleikari og er verðlaunahafi
í stóðréttum eru mörg gæðingseínin og margt að sjá lyrir þá, sem auga hafa fyrir hross á öllum aldri,
nýkomin úr frelsinu. (Ljósm.: Fr. Fr.)
ækkandi verð íslenzkra hesfa erlendis
SAMBANDIÐ er stærsti út-
flytjandi hrossa og áætlar að
flytja út um eitt þúsund nú á
þessu ári. Samkvæmt upplýs-
ingum Magnúsar Ingvarssonar í
SÍS eru kaupendur flestir í
Þýzkalandi, þá Danmörku,
Noregi og Hollandi, en langflest
fara hrossin til Þýzkalands.
Hross til útflutnings eru
keypt í öllum landsfjórðungum,
fá frá Vestfjörðum og fremur
fá en góð á Austurlandi.
við fiðlukeppni í Moskvu, Mon-
treal, París, Sviss og Brussel.
Kona hans er einnig þekktur
píanóleikari og hefur haldið fjöl
marga tónleika utan Sovétríkj-
anna og innan.
FYRSTA
FERÐABINGÓ
VETRARINS
KNATTSPYRNUFÉLAG Akur
eyrar gengst fyrir ferðabingói í
Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn
14. okt. n. k. Þar verður m. a.
á boðstólum ferðir milli landa
og margar ferðir með Flugfélagi
íslands fram og til baka Akur-
eyri—Reykjavík. — Nánar er
þetta á þriðju siðu blaðsins.
Knattspyrnufélag Akureyrar.
Akureyrartogararnir
KALDBAKUR landaði síðast 4.
október, 94 tonnum fiskjar í
heimahöin.
Svalbakur landaði 24. septem-
ber, fór síðan í viðgérð en er nú
aflur kominn á miðin.
Harðbakur landaði 1. október,
121 tonni.
Sólbakur landaði 8. október,
152 tonnum.
í gær höfðu enn ekki borizt
fregnir af heimferð nýkeyptu
togaranna frá Færeyjum. □
Sú breyting hefur orðið frá
fyrri árum, að nú er þessi út-
flutningur að langmestu leyti
tamin hross, allt að níu vetra
aldri. í vor varð um 30% verð-
hækkun á útfluttu hrossunum.
Meðalverð á tömdum hrossum
tii bænda er sennilega um 60
þúsund krónur, en um 35 þús-
und krónur fyrir ótamin hross.
En þessi verðmunur er ekki of
mikill, því að mikill kostnaður
liggur í tamningu og um leið
Tónleikarnir voru sæmilega
sóttir og listafólkinu vel fagnað.
Að lokum léku þau aukalag
við mikinn fögnuð.
Þessi tónleikaferð til íslands
var af því tilefni, að um þessar
mundir er minnzt 30 ára afmæl-
is stjórnmálasambands milli ís-
lands og Ráðstjórnarríkjanna.
STEFÁN REYKJALÍN bygg-
ingameistari og bæjarfulltrúi,
borinn og barnfæddur Akur-
eyringur, varð sextugur í gær,
9. október. Hann varð stúdent
frá M.A. 1938 og varð húsa-
smíðameistari 1943. í bæjar-
stjórn Akureyrarkaupstaðar hef
ur hann setið síðan 1956, er for-
maður liafnarstjórnar, löngum í
bygginganefnd og bæjarráði,
formaður bygginganefndar
Fjórðungssjúkrahússins og
stj órnarformaður Slippstöðvar-
innar h.f.
Fyrir fimmtán árum hóf hann
smíði raðhúsa til sölu fyrstur
manna hér á Akureyri. Hann
stóð fyrir byggingu Heimavistar
húss M. A., Amaróhússins, úti-
búum Útvegsbankans, Lands-
bankans og Búnaðarbankans,
svo eitthvað sé nefnt.
Steíán Reykjalín hefur í senn
verið framkvæmdamaður og
fyrirgreiðsiumaður, hreinskipt-
inn, harðduglegur að hverju
dýru fóðri. Og við tamningu
gengur það frá, sem ekkert er í
varið.
Bændur hafa fengið upp í
130—140 þús. kr. fyrir gæðinga,
en fyrir úrvals graðhesta á
þriðja hundrað þús. kr. Ýmsir
þeir stóðeigendur, sem hingað
til hafa treyst á verulega sölu
ótaminna hrossa beint úr stóð-
inu, og á sölu hrossakjöts, eru
nú að skipta um skoðun og
munu nú kappkosta að ala upp
reiðhesta til útflutnings vegna
hins hagstæða verðs. Undir-
staða þessara breytinga eru kyn
bætur með annað markmið fyr-
ir augum en áður og tamning.
Fram að þessu hefur vantað
verulega á, að unnt væri að
temja hrossin sómasamlega, en
á því er að verða breyting á
allra síðustu tímum, og miðast
tamningin þá fyrst og fremst
við hinar erlendu kröfur. Má
víst segja um þessar mundir, að
útlit sé fyrir greiða sölu tam-
inna hrossa og sæmilegt verð.
sem hann gengur og nýtur
mikils trausts og vinsælda.
Dagur sendir honum og heim-
ili hans hinar beztu árnaðar-
óskir í tilefni af sextugsafmæl-
inu. □
Stefán Reykjalín.
í Tónlisiarskólanum
Sfefán Reykjalín sexfugur