Dagur - 10.10.1973, Síða 8
ÐAGUR . DAGUR DAGUR
Vér viljum vekja athyrfi
á aug'ýsíngasínsa okkar,
sem er 1-11-67
DAGUR . DAGUR . DAGUR
Eyrna-
hringirnir i . GULLSMIÐIR
komnir I f Jr \ SIGTRYGGUR
aftur. 1 & PÉTUR
f AKUREYRI
SMÁTT & STÓRT
Ilér eru Bárótiælingar að sundreka té yfir Mjcadalsá. En þessi á var í sumar mestur þröskuldur
greiðra bilfcrða um Sprengisand til byggða í Bárðardal. (Ljósm.: Fr. Fr.)
FerSiirsálaráðsfefnen á Egilsstöðum
Egilsstöðum, 8. október. Leyft
var að skjóta rúm þúsund hrein
dýr, en ekki munu hafa verið
drepin nema 6—700 dýr og er
veiði lokið.
Annríki er og hefur verið
geysilega mikið, svo að menn
eru að kafna í verkefnum og
yfirspennu, jafnt til sjávar og
sveita. En auk þess er þetta
annasamur tími landþúnaðar-
ins. En það hefur ekkert hlé
verið hjá neinum verkfærum
mönnum í allt sumar. Hvað sem
segja má um þjóðlífið og þótt
einhverjir kunni að finna sér
umkvörtunarefni, er það ekki
atvinnuleysið, sem þjakar menn
eins og í tíð fyrri ríkisstjórnar.
Lagarfossvirkjun mun ganga
eitthvað seinna en ætlað var,
m. a. vegna manneklu, en góða
tíðin hefur aftur á móti létt
undir með virkjunarmönnum.
Búið er að stífla Lagarfljót og
er ekki búist við að það valdi
vatnsborðshækkun hér inn um
Egilsstaði, en hins vegar hækk-
ar vatn á nærliggjandi flóum.
Mikil ferðamannaráðstefna
var haldin hér um næstsíðustu
helgi að tilhlutan Ferðamála-
ráðs og munu allt að fimmtíu
manns úr öllum landshlutum
hafa sótt ráðstefnuna. Mest var
rætt um ferðamál almennt og
svo um lagafrumvarp, sem dag-
aði uppi á síðasta þingi. En sér-
stahlega var rætt um skýrslu
þá, sem gerð var með styrk frá
Sameinuðu þjóðunum og sagt
hefur verið frá. Fjögur atriði
eru sérstaklega nefnd til þess
að örva ferðamannastrauminn.
Það - þyrfti að efla ráðstefnu-
hald, koma upp heilsulindum,
aðstöðu til skíðaiðkana og sil-
ungsveiða(
Flestir útlendingar, sem hing
að til lands koma, koma hingað
þó af öðrum ástæðum. Skýrslan
felur í sér frumáætlanir um
miklar framkvæmdir til þess að
geta tekið á móti fleiri ferða-
mönnum og er rauði þráðurinn
sá, að fjárfesting þessi fari öll
fram í Reykjavík og nágrenni.
Höfðu dreifbýlismenn ýmislegt
við það að athuga, En fjárfest-
ingarupphæðin á næstu þrem
árum var áætluð á þriðja
milljarð króna. Út á landsbyggð
ina átti að fara litlir fjármunir,
nánast aðeins til að bæta þar
náðhúsaðstöðuna. Ráðgerð fjár-
festing að heitið getur, miðast
við sjónmál úr Hallgrímskirkju-
turni. V. S.
KVARTAÐ YFIR SJUKRA-
ÞJÓNUSTU
Heiðar Ástvaldsson danskenn-
ari bað blaðið að koma eftirfar-
andi gagnrýni á framfæri: Hann
kom með ineiddan dreng í
sjúkrahúsið að morgni 6. októ-
ber, um kl. 10.15. Hitti hann
alúðlega hjúkrunarkonu, sem
sagði honum, að ekki væri unnt
að nú í lækni, því að þeir væru
allir á fundi. Beið Heiðar svo
með drenginn í tæpar 45 mínút-
ur, og komu þá þrír læknar.
Telur danskennarinn, að hjúkr-
un sjúkra eigi að sitja fyrir
íundahöldum á sjúkrahúsinu.
VEGIRNIR
Eyfii-zkir vegir eru lélegir. Því
veldur m. a. það, að þeir voru
snemma lagðir og þú með liand-
verkfærum og miðaðir við aðr-
ar þarfir en nú eru. Um árabil
hafa verið litlar framkvæmdir
hér í vegamálum, þótt farar-
tækin hafi stækkað, þeim fjölg-
að og flutningaþörfin margfald-
ast. Nú eru Eyfirðingar mun
verr staddir í veganiálum en
nágrannar okkar í austri og
vestri og þeir vcrða að notast
við ónotliæfa vegi. • Vegafénu
mun vera skipt eftir umferðar-
talningu og Iengd vega, en ekki
eftir aldri þeirra eða veðráttu.
Rokkennt efni er borið í vegina
og í þurrviðrasömum héruðum
eyðist það fljótt og grjótið eitt
verður eftir, en þetta er einmitt
einkenni veganna.
VIÐHALDSFÉ
Fyrir Eyjafjörð og Suður-Þing-
eyjarsýslu er viðhaldsféð 12.25
millj. kr. á þessu ári og er það
Fáein orð um vegamál
í SÍÐASTA DEGI var greinar-
korn um vegamálin, og þar eitt
og annað haft eftir trúnaðar-
mönnum Vegagerðarinnar. Yms
ir bændur hafa eflaust lesið það
með athygli og sýnzt rétt eftir
atvikum, að þeirra sjónarmið
komi einnig fram í því máli,
einkum um nýbyggingu vega í
ræktuðu og óræktuðu landi,
malartöku og fleira. Einn þess-
ara bænda, Þórður Þórðarson í
Hvammi í Arnarneshreppi, leit
inn á skrifstofur Dags og hafði
m. a. þetta að segja:
Nýr vegur hefur verið lagður
VERÐUR 100 ARA
Á SUNNUDAGINN
EIN af merkustu konum þjóðar-
innar, Halldóra Bjarnadóttir, nú
á dvalarheimili aldraðra á
Blönduósi, verður hundrað ára
á sunnudaginn, 14. október.
Hún er Húnvetningur, var á sín
um tíma skólastjóri Barnaskóla:
Akureyrar og Tóvinnuskólans á
Svalbarði, var ritstjóri Hlínar í
hálfa öld og er af flestum talin
einn helzti málsvari og kennari
íslenzks heimilisiðnaðar á þess-
ari öld.
Afmælisins verður minnzt í
Kvennaskólanum á Blönduósi á
sunnudaginn.
Dagur sendir hinni öldnu
heiðurskonu sínar beztu árnað-
aróskir. . Q
Halldóra Bjarnadóttir.
allt frá hreppamörkum að norð-
an og suður að Hofi, nær allur
á öðrum stað en gamli vegurinn
lá. Hinn nýi vegur liggur að
mestum hluta í gegn um ræktað
land níu býla. Þessi vegur veld-
ur að sjálfsögðu landspjöllum,
ekki aðeins sjálft vegarstæðið
og land það, sem efni í vegina
er tekið, heldur einnig á þann
hátt, að við veginn myndast á
sumum stöðum skikar, er lítt
eru nytjanlegir nema með mikl-
um kostnaði. Bændur á þessu
svæði hafa ekki mótmælt vega-
lagningunni eða landtöku undir
hinn nýja veg, en telja Vega-
gerðina bótaskylda vegna
skemmda á landinu.
Vegagerðin virðist ekki hafa
áhuga á því, að semja við bænd-
ur fyrirfram, eða áður en verk
er hafið. Skapar þetta vand-
ræðaástand vegna þess hve
Vegagerðin er treg til að greiða
réttmætar bretur. Munu fimm
bændur enn ekki hafa fengið
neinar greiðslur, og munu þó
um það bil þrjú ár liðin frá því
þessi vegagerð hófst.
Við höfum farið fram á samn-
ingaviðræður við Vegagerðina,
án árangurs. Síðan hefur það
gerzt, að matsnefnd eignarnáms
bóta hefúr komið á vettvang og
bíðum við nú eftir úrskurð
hennar. En okkur þykir hart,
að Vegagerðin skuli ekki fara
samningaleiðina við okkur, og
það strax í upphafi. Við vitum
að landeigendur á Suðurlandi
hafa fengið 30—50 þús. kr. fyrir
hvern hektara lands, landverð.
En Vegagerðin hefur boðið 8
þúsund krónur og allt niður í
1.200 króna landverð hér fyrir
norðan. En þar fyrir utan hefur
Vegargerðin boðið 54 þús. krón-
ur fyrir hektara ræktaðs lands,
sem mun hafa samsvarað rækt-
unarkostnaði á nýjum stað, en
sá kostnaður hefur stórhækk-
að. Er vandséð hvers vegna
bændum við Eyjafjörð eru boðn
ar svo miklu minni bætur, en
stéttarbræðrum þeirra sunnan
fjalla. Vegagerðinni er skylt að
girða meðfram nýjum vegum í
ræktuðu landi. Það hefur hún
ekki gert í Hvammi og Reistará
og veldur það okkur, ábúend-
um, ótrulegum skaða og fyrir-
höfn. Q
10.7% af því fé, sem veitt er til
að bera ofan í vegina. Þessu fé
er svo skipt á margvíslegan
hátt. Til heflunar á þetta sama
svæði eru ætlaðar 4.96 millj. kr.
Fé til snjómoksturs er óskipt,
en á fyrri liluta þessa árs var
50 millj. kr. varið til hans.
Áætlað er, að við þann kostnað
bætist 25 millj. kr. til næstu ára
móta, og dregst þetta frá þeim
375 milljónuin króna, sem varið
er til vegaviðhaldsins.
ENDURSKOÐUN
Framundan er endurskoðun
vegaáætlunarinnar, sem fram
fer á tveggja ára fresti. Við
næstu endurskoðun hlýtur það
að vera sanngjörn krafa, að fjár
magn til eyfirzku veganna verði
stóraukið, svo aö vegakerfið í
Eyjafirði verði ekki til lang-
frama undir því lágmarki, sem
það er nú, samanborið við önn-
ur héruð.
TIMBURVERÐ NÆR
ÞREFALDAÐ
Verð á timbri hefur farið mjög
hækkandi á heimsmarkaðinum
undanfarið. Sambandið er nú
að gcra timburkaup fyrir næsta
vor, og í ljós liefur komið, að
verðlagið er nú tæplega 200%
hærra en var í nóvembey á
síðasta ári. Verðið er annars
búið að vera stöðugt um all-
mörg ár, eða þar til í fyrra, að
það hækkaði lltilsháttar, en í ár
hafa orðið á' því gífurlegar
hækkanir.
FLUG TIL NORÐUR- OG
NORÐAUSTURLANDS
Til Sauðárkróks verða í viku
hverri þrjár ferðir frá Reykja-
vík, á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum. Til Akur
eyrar verða þrjár ferðir alla
daga. Til Húsavíkur verða ferð-
ir á mánudögum, miðvikudög-
um og föstudögum. Til Raufar-
hafnar og Þórshafnar verða
ferðir á þriðjudögum, fimmtu-
dögum og iaugardögum. I ferð-
um til Raufarhafnar og Þórs-
liafnar verður komið við á Akur
eyri í báðum leiðum. í sam-
bandi við flug til Sauðárkróks
verða áætlunarbílferðir til Hofs
óss, Skagastrandar og Siglu-
fjarðar.
VAR ÞETTA HEPPILEG
KYNNING?
Marga furðaði á kynningu ís-
lenzks fatnaðar í sjónvarpinu á
dögunum, og þótti þátturinn,
eða vissir þátttakendur hans af
veika kyninu, niðurlægja ís-
lenzku vörurnar, sem jafnframt
voru sýndar. Eru slík mistök
leið og skaðleg í senn og hefði
þátturinn verið betur ófluttur.
(Framhald á blaðsíðu 5)
Héraðsfundurinn í Hrísey
HÉRAÐSFUNDUR Eyjafjarðar
prófastsdæmis var haldinn í
Iirísey 9. september. Margar
ályktanir voru gerðar á fund-
inum, meðal annarra þessar, í
styttu máli:
Fundurinn beinir þeirri ósk
til sóknarnefnda, að þær greiði
á næsta ári a. m. k. 5% af hundr
aðsgjöldum kirkjunnar í sam-
eiginlegan sjóð, er yrði í vörzlu
prófasts. Tilgangur sjóðsins yrði
sá, að kaupa vinnu til endur-
nýjunar girðinga kring um
kirkjugarða, lagfæringar á
minnismerkjum o. fl.
Fundurinn þakkar þá ákvörð-
un iðnaðarmálaráðherra, að sjá
um að kirkjur fengu á sl. ári
keypta raforku á hagstæðara
verói en áður. Beinir fundurinn
þeirri ósk til ráðherra, að sölu-
verð raforku til lýsinga og hit-
unar kirkna verði áfram í hóf
stillt.
(Framhald á blaðsíðu 4)