Dagur - 17.11.1973, Page 4

Dagur - 17.11.1973, Page 4
T UM AMTSBÖKASAFNID Á AKUREYRI Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Súnar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. DALVÍK DALVÍKINGAR eru að sækja um kaupstaðarréttindi fyrir sveitarfélag sitt og liggur það fyrir Alþingi. Gef- ur þetta tilefni til að rifja upp nokkr ar staðreyndir um Dalvík og sveitar- félagið Dalvíkurhrepp. Dalvíkurhreppur telur á tólfta hundrað íbúa og eru íbúðabygging- ar áberandi miklar þar í sumar. Tekjur fólks munu vera allgóðar, sérstaklega sjómanna. Nokkrar bú- jarðir eru innan marka hreppsins, svo sem Háls, Hrísar, Ufsir, Hóll, Sauðanes og Sauðaneskot, Hrapps- staðir, Hrappsstaðakot og Böggvis- staðir, og á hreppurinn sumar þess- ara jarða. Kauptúnið er hitað upp með laugarvatni og hefur hitunarkostn- aður verið mun minni en olíukynd- ing. Neyzluvatn er gott. Dalvíkingar eiga nýlegt og mjög gott íþróttahús og sundlaug var nýlega sett þar upp. Barna- og gagnfræðaskóli er á Dal- vík og er þar verið að byggja heima- vistir. Félagsheimilið Víkurröst þjónar sínu hlutverki um fundahöld og veitingarekstur, en gamla ung- mennafélagshúsið er enn leikhús og kvikmyndahús staðarins. Kirkja er á Dalvík og héraðsprófasturinn býr þar. Þar er og læknir og lyfjafræð- ingar. Dalvíkingar búa við góða verzlun, þar sem er Útibú KEA og nokkrar aðrar verzlanir. Byrjað er að setja varanlegt slitlag á götur. Tvö stór bifreiðaverkstæði eru á Dalvík og nokkur trésmíðaverkstæði, gluggaverksmiðja er að hefja starf og lagmetisiðja er í smíðum. En undir- staða framfara og góðrar afkomu er útvegurinn. Lengi öfluðu Björgvin og Björgúlfur fyrir frysti- húsið. Nú eru þessi togskip bæði seld, svo af stórum fiskiskipum er nú aðeins eftir Loftur Baldvinsson, sem er með metafla í Norðursjó og hefur óefað mikla hátekjumenn um borð. Eftir áramótin bætist við flotann skuttogari af minni gerðinni, smíð- aður í Noregi, og síðar á árinu pólsk- ur af stærri gerðinni. Tíu þilfars- bátar frá 8—45 tonn á stærð stunda sjóinn. Ennfremur verulegur hluti þeirra 42 opinna vélbáta, sem til eru á staðnum. Höfnin er orðin allgóð og var í sumar enn varið til hennar um 5 millj. kr. Umhverfi Dalvíkur er hið feg- ursta, svo og nágrannasveitir sem eru þéttbýlar og standa á ýmsan hátt framarlega í búnaðarháttum. Hvort sem Dalvíkingar fá sín þráðu kaupstaðarréttindi eða ekki, má á það líta, að þetta sveitarfélag er líklegt til vaxtar. □ EINS og mönnum mun vera Kunnugt, var á dögunum aug- lýst staða bókavarðar við Amts- bókasafnið á Akureyri. Þrjár umsóknir bárust um stöðuna, og voru tvær þeirra frá háskóla- menntuðum bókasafnsfræðing- um. Hin þriðja var frá starfs- manni við safnið, sem er bók- bindari að mennt, og hefir starf að við safnið um alllangt skeið. Fyrir skemmstu var sagt frá því í blöðum, að starfið hefði verið veitt síðastnefnda um- sækjandanum. Nú er það ekki ný bóla hér á landi, að starfsreynsla og starfs- aldur sé sett jafnhátt eða skör ofar bókviti sem menn hljóta í skólum. Slíkt hefir jafnan átt marga formælendur og enda nokkurn rétt — á stundum. Aukin sérhæfni í störfum og auknar kröfur um sérmenntun hljóta þó að útrýma þessu sjón- armiði að verulegu leyti. Það er mín skoðun, að þegar nú var ráðinn bókavörður að Amts- bókasafninu, hafi þetta gamla sjónarmið ófyrirsynju ráðið val- inu. Ég vil taka það skýrt fram, að með þessum orðum vil ég alls ekki gera lítið úr hæfileik- um Lárusar Zophoníassonar — ég þekki hann að góðu starfi við Amtsbókasafnið um árabil. Eins og komið hefir fram, hefir hann hvað eftir annað gegnt störfum bókavarðar í forföllum, og leyst þau með ágætum. En það er sitthvað að gegna starfi í forföllum annarra og að takast það á hendur til langframa. Það er líka sitthvað að starfa undir annarra stjórn og að stjórna. Bókavarðar Amtsbókasafns- ins bíða ýmis brýn og mikilvæg verkefni, sem eru þess eðlis, að búast má við að lausn þeirra ráði miklu um skipulag og starf safnsins um langa framtíð. Amtsbókasafnið hefir það nú umfram flest svipuð söfn í land inu, að húsrými þess er gott og mikið. En starfssvið þess á líka að vera nokkru víðara en al- gengast er. Þegar við Norðlend- ingar viljum gera Akureyri að höfuðstað fjórðungsins með hvers kyns mennta- og vísinda- stofnunum o. s. frv., megum við ekki gleyma því sem við á að éta, ef ég mætti orða það svo. Við þurfum að hafa hér rann- sóknabókasafn, þ. e. bókasafn, sem er stoð og stytta vísinda- legra starfa hvers konar. Eðli slíks bókasafns er með nokkuð öðrum hætti en venjulegra almenningsbókasafna. Fyrir- komulag og rekstrarform bóka- safns fer oftastnær nokkuð eftir því hlutverki, sem safnið á að gegna. Til rannsóknabókasafns þarf m. a. að velja önnur rit en þau sem almenningur les sér til yndisauka. Má þar nefna til dæmis vísindaleg tímarit, fræði Frá Tónlísfarfélagi Akureyrar NÆSTKOMANDI sunnudag, 18. nóvember, leikur Blásara- kvintett Sinfóníuhljómsveitar íslands og Rögnvaldur Sigur- jónsson píanóleikari í Borgar- bíói á Akureyri, og hefjast tón- leikarnir kl. 17.15. Tónlistarfélag Akureyrar gengst fyrir þessum tónleikum, sem eru aðrir í röð fimm fasta- tónleika, sem félagið býður upp á starfsárið 1973—74. Fastir áskrifendur félagsins hafa þeg- ar fengið aðgöngumiða að tón- leikunum, en allmargir miðar verða seldir í lausasölu í bóka- búðinni Huld og við innganginn í Borgarbíói. Á tónleikunum verða hljóð- færi kvintettsins kynnt sérstak- lega, og er það gert með tilliti til hinna ólíku tónbrigða, sem hvert hljóðfæri býr yfir, og einnig vegna þess hve áheyr- endum gefst sjaldan kostur á að hlýða á hugþekka og fjölbreytta hljóðfæraskipan blásarakvint- etts. Blásarakvintett S. í. er skipaður mönnum, sem leiðandi eru á sín hljóðfæri innan Sin- fóníuhljómsveitarinnar, en þeir eru: Jón H. Sigurbjörnsson flautuleikari, Kristján Þ. Step- hensen óbóleikari, Gunnar Egils son klarinettleikari, Hans P. Franzson fagottleikari og Stef- án Þ. Stephensen hornleikari. Auk þeirra leikur hinn kunni píanóleikari Rögnvaldur Sigur- jónsson með þeim félögum. Kvintettinn hefur nú starfað um árabil og var hann upphaf- lega kenndur við Tónlistarskól- ann í Reykjavík, því hljóðfæra- leikararnir störfuðu þá allir, sem kennarar við þann skóla, en nýlega hefur kvintettinn fengið það nafn, sem að framan er getið. Kvintettinn hefur haldið tón- leika í Reykjavík og víðar, m. a. lék hann á vegum Tónlistar- félags Akureyrar 1968. f sama skipti fór kvintettinn í skóla bæjarins, og var mjög góður rómur gerður að þeirri kynn- ingu. Ekki reyndist unnt að halda sérstaka skólakynningu að þessu sinni, en skólafólki er bent á 50% afslátt af aðgöngu- miðaverði sem veittur er á þessa tónleika. Á efnisskrá eru verk eftir Rejcha, Beethoven, Matyas A. Seiber og Francis Poulenc. □ bækur og uppsláttarrit marg- vísleg á ýmsum tungum. Við- skipti einstaklinga eru einnig með nokkuð ólíkum hætti við rannsóknabókasafn en venju- legt útlánasafn. Hin sérhæfðustu rit eru ein- att í eigu þeirrar stofnunar, sem þarf þeirra við, 'en allar vísinda- stofnanir, skólar eða hvað sem það nú er, þurfa að eiga að- gang að fjölþættari og viða- meiri bóka- og tímaritakosti en svo, að ætlast megi til að hver eigi sitt af því. Það væri auk heldur varla hagkvæmt. Þess í stað kemur til kasta höfuðstöðv- anna, þ. e. rannsóknabókasafns- ins, sem veitir þá þjónustu, sem til þarf. Þetta er í sem allra stystu máli það, sem ég tel að eigi að vera annar þáttur starfsemi Amtsbókasafnsins. Hinn þáttur- inn er almenn útlán bóka og aðstaða fyrir almenning á lestr- arsal svo sem nú er. Hinn eini vísir, sem er að rannsóknabókasafni á Akur- eyri, er í M. A. og hann er mjór. Auk heldur er þar hvorki fé né húsrými, sem til þarf.. Húsrými Amtsbókasafnsins þarf að skipu leggja með hliðsjón af því tví- þætta hlutverki, sem ég hefi drepið á. Fjárstyrk þarf að knýja fram í krafti fastmótaðrar stefnu að nauðsynlegu marki. Þessa stefnu á Amtsbókasafns- nefnd að marka og móta í sam- ráði við bókavörð. Þess vegna álít ég, að bóka- safnsnefndin hafi gert sig seka um mistök, þegar hún hafnaði sérmenntuðum starfskröftum, sem henni buðust til forystu þessara mála. Hitt munu þeir vita, sem réðu, að eftirleiðis munu sér- menntaðir bókaverðir tæplega sækjast eftir störfum við Amts- bókasafnið á Akureyri. Það er illa farið. 11. nóvember 1973. Valdimar Gunnarsson. Sambyggt útvarp og segulband PHILIPS LB HB 220 volt og battery 14.940,00 NONTON LB MB FM 220 volt og battery 15.450,00 HITACHI LB MB FM 220 volt og battery Autonratic stop 18.165,00 Öragg viðhalds og viðgerðar- þjónusta. Greiðsluskilmálar. Póstsendum. -JVí. wLmmvim. Sími (96)116 26 \—'Glerárgötu 32 Akureyri HUGSAOU BÆKURNAR eru sem óðast að koma á markað, sem nefndur hefur ve-rið jólamarkaður, því að þá gerast menn kaupglaðir á bækur og flest bókaútgáfufyrir tæki miða við þennan mikla markað. Degi hafa þegar borizt margar góðar bækur, en ekki haft tækifæri til að geta þeirra vegna þrengsla í blaðinu. Verð- ur nú reynt að bæta úr þessu, ekki með svokölluðum bóka- dómum eða bókmenntagagn- rýni, heldur.sem fréttir um ný- útkomnar bækur, sem blaðinu berast. Ragnheiður Brynjólfsdóttir Ekki þarf að kynna þessa nýju bók hér sérstaklega, svo mikið fjaðrafok hefur orðið út af henni að undanförnu, aðeins bent á, að hún er komin í bóka- verzlanir og sögð seljast ört, sem vænta mátti. Ragnheiður. Brynjólfsdóttir, bókin um biskupsdótturina í Skálholti, sem uppi var fyrir þrem öldum, er sögð fram af vörum frú Guðrúnar Sigurðar- dóttur miðils, er hún var í dá- svefni. Frásögnin var tekin á segulbönd á alllöngu tímabili, þau skráð af Stefáni Eiríkssyni kaupmanni og bókin síðan búin undir prentun af Sverri Páls- syni skólastjóra, og er allt þetta fólk búsett á Akureyri og mun vart um græsku grunað í heima byggð sinni. Skuggsjá gefur út. Hljðritanirnar eru allar vel geymdar og auðveldar til saman burðar, og þær eru allar teknar í votta viðurvist. Þessi óvenju- lega tilurð bókar hefur verið rækilegt umræðuefni. En nú er bókin sjálf hið forvitnilegasta. Sá er þetta ritar mun fýrstur fréttamanna hafa skýrt frá út- komu þessarar bókar og hvern- ig hún var gerð. Vísast að öðru leyti til þeirrar frásagnar. Bók þessi er 344 blaðsíður og kemur síðara bindið út snemma á næsta ári. Eiríkur Hansson Bókaútgáfan Edda á Akur- eyri hefur sent frá sér þriðju útgáfu af gömlu og góðu bók- inni, Eiríkur Hansson, skáld- söguna frá Nýja Skotlandi eftir Jóhann Magnús Bjarnason. Árni Bjarnarson bókaútgefandi bjó bókina undir prentun. Þetta er 500 blaðsíðu bók, hið skemmtilegasta lesefni fyrir unga og gamla, þar sem segir frá uppvexti íslenzks drengs á landnámsárum íslendinga í Vesturheimi, frá því hann flutt ist vestur, um 10 ára að aldur, með afa sínum og ömmu, en er fáum árum síðar orðinn mun- aðarlaus og á hrakningum. Lýk- ur þar sögunni er hann stofnar sitt eigið heimili. Hinn hvíti galdur Hirm hvíti galdur nefnist sjötta bók Ólafs Tryggvasonar frá Hamraborg og er hún ný- komin út hjá Skuggsjá. En fyrri bækur Ólafs, sem telja má í sérflokki íslenzkra bóka hin síð ari ár, hafa hlotið stóran les- endahóp hugsandi manna. Allar fjalla þær verulega um dulræn efni, enda hefur höfundurinn stundað „andlegar lækningar,“ um fjölda ára, sem svo eru kallaðar og eru hinar merkileg- ustu. í þessari nýju bók „er sagt frá fleiri furðulegum atburðum en í hinum fyrri bókum mín- um,“ segir höfundur í formála, „sem ég hef sjálfur lifað og eru meðal þeirra andlegu at- burða, er öðlast vaxandi hlut- deild í sannri menningu." Auk formála höfundar eru 24 þættir í bókinni, sem er nær 200 blað- síður. Höfundur segir, að tilgangur- inn með þessum frásögnum sé sá, að vekja menn til umhugs- unar á því, hvar þeir eru stadd- ir, hve mikla fegurð og farsæld jarðlifið hefur að bjóða, ef menn ganga að því sem daglegu skyldustarfi að hreinsa hugar- far sitt. Kalli kaldi Út er komin hjá Skjaldborgar útgáfunni á Akureyri barna- og unglingabókin Kalli kaldi eftir Indriða Úlfsson, rithöfund og skólastjóra, og er það þriðja bókin frá hans hendi, sem fjall- ar um þá félaga, Kalla kalda og Sigga svarta. En alls hefur Indriði sent frá sér sex bækur og er hann „tvímælalaust kom- inn í fremstu röð rithöfunda, sem skrifa fyrir yngri kynslóð- ina á íslandi,“ eins og útgef- endur segja. Þessi þriðja bók um Kalla kalda og þá félaga er algerlega sjálfstæð saga, og ekki beint framhald af fyrri bókum í þessum bókarflokki, og ber undirtitilinn, landnemar á Drauganesi. Káputeikningar og myndir eru eftir Bjarna Jóns- son. ÞRJÁR NÝJAR BOB BÆKUR Blaðinu hafa borizt þrjár nýjar bækur frá Bókaforlagi Odds Björnssonar á Akureyri. Gamall maður og gangastúlka 1 Gamall maður og ganga- stúlka eftir Jón Kr. ísfeld er 160 blaðsíðna bók, og er ástar- saga. Nafn bókarinnar gefur ýmislegt til kynna og þau kynntust einmitt í elliheimili, hann gamall en hún ung. Bókin er í 23 köflum. Strokustrákarnir Strokustrákarnir er eftir Svein Hovet, en Sigurður O. Björnsson þýddi. Bókin fjallar um strákana Ásbjörn og Þór, báða norska, sem lenda óvænt í erfiðleikum og taka það til bragðs að strjúka upp á heiðar af ótta við lögregluna. Þar lenda þeir í ýmiskonar ævintýrum, meðal annars verða þeir varir við veiðiþjófa við fiskivatn eitt á heiðinni. Loks finnast stroku- piltarnir og eru fluttir til síns heima, og verður heimkoman önnur en þeir hugðu. Bók þessi er skemmtileg fyrir börn og unglinga. Guðfaðirinn Þriðja bókin frá Bókaforlagi Odds Björnssonar er Guðfaðir- inn, allmikil bók eftir Mario Puzo en þýdd af Hersteini Páls- syni. Á bókarkápu segir, að Guð faðirinn hafi verið talin ein- hver mest spennandi skáldsaga sem skrifuð hafi verið á seinni árum. Samnefnd kvikmynd hef- ur slegið öll met í aðsókn. 1 bók þessari er flett ofan af glæpastarfsemi hinnar illræmdu Mafíu. Þarf naumast að efa, að þessi bók eignist marga lesend- ur, sem velja sér æsandi lesefni. Bók þessi er rúmar 250 blað- síður í 32 köflum. Fjallkirkjan Fjallkirkjan, hið mikla skáld- verk Gunnars Gunnarssonar, 1—3 bindi, er komið út. Af þessari nýju og veglegu útgáfu eru þegar komnar út þessar bækur hjá Almenna bókafélag- inu: Svartfugl, Víkivaki og Saga Borgarættarinnar, og verð ur útgáfunni haldið áfram. All- ar þessar bækur eru í endan- legri gerð skáldsins qg sumar styttar frá fyrri þýddum út- gáfum. Munu hinir fjölmörgu unn- endur skáldsins og bóka hans, fagna því heilshugar, að bækur hans verða innan tíðar allar „komnar heim“. Fimleikaflokkar í mótun liér á Akureyri Kennari leíðbeinir einum nemanda sínum. KÁRI ÁRNASON íþróttakenn- ari hefur með höndum þjálfun fimleikaflokka á vegum Barna- skóla Akureyrar og íþrótta- bandalags Akureyrar. Fimleik- ar eru ein glæsilegasta íþrótt, sem iðkuð er, en hefur því mið- ur ekki náð hjá okkur þeirri fótfestu, sem æskilegt hefði verið. Vonandi ber þessi tilraun Kára þann ávöxt, að okkur auðnist í framtíðinni að sjá hér listir þjálfaðra fimleikamanna. Ég heimsótti annan þeirra tveggja hópa, sem Kári þjálfar. Mikil vinnugleði ríkti í salnum og margir svitadropar perluðu á ungum líkömum drengjanna, sem glímdu við erfiðar sveiflur og kippi bæði í hringjum og á svifrá. Ég rabbaði stuttlega við stjórnanda drengjanna og lagði nokkrar spurningar fyrir hann. — Á hvers vegum er þessi flokkur. — Hann er á vegum Barna- skóla Akureyrar og er alveg kostaður af honum. — Ertu með annan flokk. — Jú, ég er með eldri stráka, sem eru á vegum íþróttabanda- lags Akureyrar. — Hvað ertu búinn að vera lengi með þessa flokka. — Ég man það nú ekki glöggt, en ætli sumir drengj- anna séu ekki búnir að vera í þessu sex, sjö ár, þeir elztu. — Á hvaða aldri eru dreng- irnir. — í ÍBA flokknum eru þeir á aldrinum 14—17 ára. — Hvað eru þeir margir. — Um það bil 15. — Hvað vakir fyrir þér með æfingar ÍBA flokksins, ertu með einhver áform um sýning- ar eða þess háttar. — Nei, það er nú ekki mark- miðið, ég held að aðallega sé ég að þessu af því að ég hef gaman af því. — Væri það ekki ómaksins vert að halda sýningu. — Ég held að hægt væri að velja ágætan flokk úr þessum eldri, að vísu koma þar ekki allir til greina, en það ætti vissu lega að vera hægt. hérna. Eftir upphitun taka þeir fram dýnur, hringi og svifrá. Þeim ferst furðu vel að koma öllum áhöldum á sinn stað, þótt ekki séu þeir allir háir í loftinu. Þeir skipta sér í þrjá hópa og hefja æfingar af fullum krafti. Æft er eftir sérstöku kerfi, sem er norskt að uppruna. Þótttak- endur verða að vinna sig stig af stigi upp eftir kerfinu og von- andi komast þeir á efsta þrepið, þótt seinna verði. Ég tek nokrra þeirra tali. — Hvað heitir þú. — Björgvin Jóhannsson. — Hvað ert þú gamall. — Ég er níu ára. — Ert þú nýbyrjaður hérna. — Það er dálítið síðan. — Ertu í öðrum íþróttum. — Neei, ja ég er í skólaleik- fimi. — Finnst þér gaman í þessu. — Já. — Mætirðu alltaf. — Já. — Hvað finnst þér mest gam- an að gera í leikfiminni. — Ja, það er nú svo margt hægt að segja. — Segðu mér eitthvað. — Ég held að mér þyki hring- irnir skemmtilegastir. — Hvað heiturðu. — Ég heiti Gunnar Gíslason. — Hvað ertu gamail. — Ég er tólf ára. — Ertu búinn að vera lengi í fimleikunum. -— Þetta er þriðja árið mitt. — Hefurðu gaman af þessu. — Já, já. — Hvað er skemmtilegast. — Á svifránni. — Hvað heitir þú. — Ólafur Harðarson. — Hvað ertu gamall. — Tíu ára. — Ertu í öðrum íþróttum en leikfimi. — Ég er í handbolta, fótbolta og á skíðum á veturna. — í hvaða félagi ertu. — K. A. — Finnst þér gaman í leik- fiminni. — Já. — Er ekki sýningaraðstaða fyrir hendi. — Jú, nú hefur skapazt að- staða til þess að sýna niðri í íþróttaskemmunni, sem við höf um tvívegis notað, annað skipt- ið með mjög stóra hópa, en hitt skiptið með fámennari sýningar flokka. — Hefurðu farið með hóp til þótttöku í sýningum sunnan- lands. — Já, ég hef einu sinni farið, það var í sambandi við íþrótta- hátíðina, sem haldin var árið 1970, þá fórum við einir 10 strákar. Strákarnir eru í óða önn að hita sig upp. Af og til gjóa þeir til mín augunum, eins og þeir vilji spyrja, hvað ert þú að gera Gunnar Gíslason gerir æfingar á svifrá. — Hvað ertu oft í viku í leik- fimi. — Ég er þrisvar í viku, með skólaleikfiminni. — Ætlarðu að halda þessu áfram. — Já. — Hvað finnst þér skemmti- legast að gera. — Mér finnst skemmtilegast á svifrá. — Hvað heitir þú. — Ingvar Eiríksson. — Hvað ert þú gamall. — Tólf ára. — Ert þú búinn að vera hér áður. — Já, já, tvo vetur. — Er gaman. — Já. — Stundarðu fleiri íþróttir. — Nei. — Hvað er mest gaman í leik fiminni. — Á svifránni. Að svo mæltu kveðjum við hina ungu sveina og stjórnanda þeirra, og óskum þeim góðs á fimleikabrautinni. □ ÞÓR - ÁRMANN í DAG, laugardag, fer fram einn leikur í 1. deild karla í handknattleik á Akureyri. Leik- urinn fer fram í íþróttaskemm- unni og hefst kl. 15.30. Þetta er annar leikur Þórs í deildinni og má búast við hörkuleik þar sem ætla má að liðin séu svipuð að styrkleika. Um næstu helgi kemur F. H. norður og leikur við Þór. KA fer suður og leikur þar tvo leiki um helgina, gegn Fylki á laugardag og Breiðabliki á sunnudag, og eru þetta jafn- framt fyrstu leikirnir hjá félag- inu í 2. deild á þessu keppnis- tímabili. □ Z7 UMSJQN: EINHR HELGfiSON

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.