Dagur - 10.05.1974, Síða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
------- %"S
Prentverk Odds Björnssenar h.f.
Slór verkefni
BÆJARSTJÓRN Akureyrar hefur
unnið að mörgum meiriháttar mál-
um á þessu kjörtímabili. Atvinnu-
leysinu, sem var jafn árvisst og
skammdegið, var þurrkað út. Fram-
kvæmdasjóðurinn var efldur, svo að
kleift varð að endurnýja togaraflot-
ann og endurreisa stálskipasmíðina,
sem var að stöðvast. En þessar tvær
mikilvægu greinar atvinnulífsins
hafa síðan skipað sinn sess með
sóma. Gatna og holræsagerð var
meiri en nokkru sinni áður í sög-
unni, en það eru fjárfrekar fram-
kvæmdir. Tvær miklar skólabygg-
ingar, Glerárskóli og Lundarskóli
eru í byggingu, og sá fyrmefndi þeg-
ar tekinn í notkun. Hafin er bygg-
ing sjúkrahúss, framkvæmdum fram
haldið í Hlíðarfjalli og unnið að
heildarskipulagi bæjarins.
Hin stöðuga atvinna, menntunar-
og menningaraðstaða, hefur laðað til
sín fólk úr öllum landsfjórðungum
svo að bærinn hefur tekið vaxtar-
kipp. Hinni öru fólksfjölgun hefur
meðal annars verið mætt með því að
hafa jafnan nægar byggingarlóðir
tiltækar, og er þar um mikla breyt-
ingu að ræða.
En þótt margt hafi áunnist, eru
enn stærri verkefni framundan.
Nýtt sjúkrahús, sem nú er áætlað að
kosti um eitt þúsund milljónir kr.,
er viðfangsefni ríkis og bæjar nokk-
ur næstu ár. Kaup tveggja þúsund
tonna Spánartogara eru undirbúin.
Gera verður nýja og mun djarfari
gatnagerðaráætlun en þekkst hefur,
og við það miðað, að allar núver-
andi götur bæjarins verði með var-
anlegu slitlagi áður en fimm ár eru
liðin. Til þessa verks verður að fá
mikið fjármagn að láni, en þessi
framkvæmd, er ein liin brýnasta í
nútíma bæjarfélagi. Bygging nýrrar
og fullkominnar vöruhafnar, sem
stöðvaðist, er sá liður samgöngumál-
anna, sem mesta áherzlu verður að
leggja á næstu misserin, ásamt vega-
málunum.
Raforkuskortur er Akureyringum
nokkur fjötur um fót. Með ný sam-
þykktum lögum um jarðhitavirkjun
í Mývatnssveit, samtengingu raf-
orkuvera, norðanlands og sunnan,
glæðast vonir manna um nýja og
tryggari orku. En jafnhliða verður
unnið að rannsóknum á nýrri hita-
veitu frá sömu orkulind og má segja,
að ærin verkefni séu framundan.
Um öll framfaramál ætlast bæjarbú-
ar til að Framsóknarmenn hafi for-
ystu, hér eftir sem hirigað til.
Bæjarbúar hafa fengið í hendur
sérprentað kosningaávarp frá Fram-
sóknarfélögunum í bænum, þar sem
viðfangsefnin eru rakin.
Dalvík með kaupstaðarréttindi
Aðallundur Mjólkursamlags KEA
Dalvíkurhreppur hefur nú öðl-
ast kaupstaðarréttindi frá 22.
apríl sl. að telja. íbúar eru 1123,
samkvæmt síðasta manntali.
Dalvík er þar með orðið sér-
stakt lögsagnarumdæmi, en
undir stjórn bæjarfógetans á
Akureyri og sýslumannsins í
Eyjafjarðarsýslu, sem jafnframt
er bæjarfógeti á Dalvík. Lög-
lærður fulltrúi verður þar hafð-
urý er hafi með höndum skipa-
skráningu, bifreiðaskráningu,
veðmálabækur og aðra þjón-
1 ÚBtú, er slíkar skrifstofur veita.
Bæjarfulltrúar eru sjö talsins
og verða það áfram.
Fram hafa komið fjórir listar
til bæjarstjórnarkosninganna á
Dalvík. Þeir eru: Framsóknar-
flokkur og Samtök frjálslyndra
og vinstri manna, Sjálfstæðis-
flokkur, Alþýðubandalag og
listi óháðra kjósenda.
Bæjarstjórnin er þannig skip-
uð nú: Þrír fulltrúar eru frá
Framsókn, tveir frá Sjálfstæð-
inu og tveir frá Alþýðubanda-
lagi, Alþýðuflokknum og Sam-
Gerðisnámskeið í Svarfaðardal
HÉSTAMANNAFÉL. Hringur í
Svarfaðardal gekkst fyrir nám-
skeiði í hestamennsku fyrstu
vikuna í apríl. Kennari var Sig-
urður Haraldsson á Kirkjubæ á
Rangárvöllum. Var þetta gerðis-
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
lyndra og krata. Síðustu atburð-
ir hafa og opnað augu manna á
bágborinni stöðu þessara flokka.
TALBEITA
Við síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingar bauð íhaldið fram Lárus
nokkurn Jónsson. En hann
hvarf úr bæjarstjóm vegna
setu á Alþingi og var bænum
lítið gagn í honum. Nú býður
íhaldið Jón Sólnes fram, en
hann þykir nú einna bitastæð-
astur á listanum og er hafður
þar til beitu. En hann er þó að-
eins tálbeita, því hann ætlar á
þing eins og Lárus, og getur þá
ekki fremur en hann sinnt mál-
efnum í bæjarstjóm Akureyrar.
KONUNGUR f HEIMSÓKN
Ólafur 5. Noregskonungur
heimsækir ísland í sumar og
verður hér á landi 4.—7. júní,
ásamt fylgdarliði sínu. Kemur
hann hingað á konungsskipinu
Norge, og hefst hin opinbcra
móttaka á hafnarbakkanum í
Reykjavík þriðjudaginn 4. júm'.
Til Akureyrar kemur konungur
og verður síðar sagt frá þessari
heimsókn og undirbúningi henn
ar,
námskeið og var gerðið 20x40
metrar og fór kennslan þar
fram að mestú, bæði áseta, taum
hald o. fl. En auk þess voru
kvöldfundir og þá fjallað um
hestamennsku og tamningar. í
námskeiðinu tóku þátt 30
manns og margir fleiri sóttu
kvöldfundina, og hleypti lífi í
reiðmennskuna.
í framhaldi áf þessu hélt
hestamannafélagið firmakeppni
á laugardaginn fyrir páska og
tóku 24 firmu þátt í henni og
24 hestar.
Sigurvegari varð Útibú KEA
á Dalvík og var það Nótt Ingva
Eiríkssonar og Hilmars Gunn-
arssonar, sem keppti fyrir það
fyrirtæki. í öðru sæti varð Árni
Arngrímsson hf. og keppti
Þröstur Vilhjálms Þórarinsson-
ar á Bakka, en í þriðja sæti BP
og færði Skuggi Gunnars Þórar-
inssonar, Dalvík, félaginu það
sæti.
í dómnefnd voru Reynir
Hjartarson, Þorvaldur Péturs-
son og Zophonías Jósepsson. En
þessir menn eru nýbakaðir
hestadómarar hjá Landssam-
bandi hestamannafélaga, sem
námskeið hélt á Akureyri í
vetur fyrir norðlensk hesta-
mannafélög. En þar voru kenn-
arar Sigurður Haraldsson og
Friðþjófur Þórkelsson.
í stjórn Hestamannafélagsins
Hrings eru: Ármann Gunnars-
son form., Ingvi Eiríksson gjald-
keri og Rafn Arnbjörnsson rit-
ari. Um 150 hestar eru í Svarf-
| aðardal og Dalvík. IQ
Frá Seðlabankanum
RÍKISSJÓÐUR hefur til þessa
boðið út þrjá flokka verð-
tryggðra happdrættisskulda-
bréfa, sem varið er til vega- og
brúagerða á Skeiðarársandi.
Bréfin eru samtals að fjárhæð
kr. 330 milljónir og hafa öll selst
upp.
Framkvæmdir á Skeiðarár-
sandi hafa gengið vel, og er nú
aðeins lokaáfangi efir við að
Ijúka lagningu hringvegar um
landið.
Er nú boðinn út nýr flokkur
happdrættisskuldabréfa, að fjár
hæð kr. 250 milljónir. Hlutfall
þeirrar fjárhæðar, sem varið er
árlega í vinninga, hækkar úr
7% í'9% af heildarfjárhæðinni.
Árlegir vinningar eru samtals
að fjárhæð kr. 22.5 milljónir, og
skiptast þeir sem hér segir:
6 vinningar á kr. 1.000.000
4 vinningar á kr. 500.000
55 vinningar á kr. 100.000
900 vinningar á kr. 10.000
965 vinningar
Verð hvers bréfs í þessum
flokki happdrættislánsins verð-
ur nú 2.000 kr. Sölu lýkur fyrir
12. júlí n. k., og verður þá dreg-
ið um vinninga í fyrsta sinn.
Alls er dregið 10 sinnum.
Bréfin verða endurgreidd
handhafa með verðbótum að 10
árum liðnum frá útgáfudegi.
Verðbætur eru greiddar á
bréfin í hlutfalli við hækkun
framfærsluvísitölu næstu 10 ár.
Sem dæmi um þróun fram-
færsluvísitölu hækkuðu 1.000
kr. bréf, sem útgefin voru 10.
april í fyrra, um 322 kr. á einu
ári, sem jafngildir 32% árs-
vöxtum.
Happdrættisskuldabréfin eru
framtalsfrjáls og vinningar, sem
á þau falla, skattfrjálsir.
Allir landsmenn hafa hér
tækifæri til að leggja fram sinn
hluta til veglegustu afmælis-
gjafar, sem þjóðin getur veitt
sér á 1100 ára afmæli byggðar
á íslandi.
............ kr. 6.000.000,00
............ kr. 2.000.000,00
............ kr. 5.500.000,00
............ kr. 9.000.000,00
.... samtals kr. 22.500.000,00
Útboðsskilmálar liggja frammi
á venjulegum sölustöðum, sem
eru bankar og sparisjóðir um
land allt.
tökum frjálslyndra og vinstri
manna. Forseti bæjarstjórnar er
Baldvin Magnússon og bæjar-
stjóri er Valdimar Bragason.
Þeir sjö efstu, sem eru í fram-
boði fyrir Framsóknarflokkinn
og Samtök frjálslyndra og
vinstri manna nú, á I-listnaum,
eru: Jóhann Antonsson, Hilmar
Daníelsson, Bragi Jónsson,
Helgi Jónsson, Rúnar Þorleifs-
son, Árni Óskarsson og Valgerð-
ur Guðmundsdóttir. Q
AÐALFUNDUR Mjólkursam-
lags KEA var haldinn í Sam-
komuhúsinu á Akureyri mið-
vikudaginn 8. maí. Formaður
félagsstjórnar, Hjörtur E. Þórar-
insson, setti fundinn, en á fund-
inum voru um 150 mjólkurfram
leiðendur á félagssvæðinu. —
Mjólkursamlagsstjóri flutti
skýrslu um .starfsemi samlags-
nis á síðasta ári og skýrði reikn-
inga þessj.sem, dreift var einnig
meðal fundarmanna.
- Rufu
(Framhald af blaðsíðu 1)
inn getur verið hvorttveggja í
senn ráðherra og forseti Al-
þýðusambandsins. Þegar maður
er ráðherra, er hann ekki leng-
ur forseti Alþýðusambandsins,
og út frá því sjónarmiði verður
að taka ákvarðanir.
Forsætisráðherra þakkaði
svo Birni Jónssyni samstarfið
og óskaði honum alls góðs og
góðs bata. (Björn dvaldi í
sjúkrahúsi).
En raunverulega ástæðan til
þessara slita á stjórnarsam-
starfi er auðvitað öll önnur,
eins og allur þingheimur veit og
eins og alþjóð veit, sagði for-
sætisráðherra. — Raunverulega
ástæðan er sameiningardraum-
urinn mikli, Alþýðuflokksins og
þessa brots samtakanna. Sá
draumur hefur lengi staðið. —
Hann hefur staðið frá því þetta
stjórnarsamstarf hófst. Ég vil
ekki segja, að hann hafi staðið
í vegi fyrir á margan hátt á-
nægjulegu stjórnarsamstarfi, —
en hann hefur verið til og búið
um sig í brjóstum þeirra, sem
að honum stóðu. Þá hefur
langað til að koma honum í
framkvæmd sem fyrst. En
þröskuldur hefur verið í veg-
inum. Annar parturinn hefur
verið inni og hinn úti. Viðfangs-
efnið hefur nokkuð lengi verið
það að nema burt þennan þrösk-
uld. Það er hin raunverulega
ástæða til þess, að nú er stjórn-
arsamstarfið rofið af þessum að-
ilum, er fyrir því standa. Nú er
þessi þröskuldur numinn á
brott. Nú geta þeir sameinast í
bandi friðarins. Ég óska þeim
hjartanlega til hamingju með
það að sameiningin geti tekist
sem allra best. — Síðan lét for-
sætisráðherra hlýleg orð falla
um samráðherra sína.
Ef til vill var það óheillaspor,
þrátt fyrir allt, sagði Ólafur Jó-
hannesson, — að þótt Björn
Jónsson sé hinn mætasti maður,
að háttvirtur þriðji þingmaður
Vestfirðinga, Hannibal Valdi-
marsson, skyldi nokkurn tíma
yfirgefa ráðherrastólinn. Því
hvað sem um þá kempu má
segja, er það alveg víst, að hann
er maður, sem þorir að gera
hlutina, hvort sem þeir eru vin-
sælir eða ekki — og stundum
hvort sem þeir eru skynsamleg-
ir eða ekki. —
KEPPNI
FIRMAKEPPNI Hestamánnafé-
lagsins Léttis fer fram á skeið-
velli félagsins á Eyjafjarðarár-
bökkum laugardaginn 11. maí
kl. 2 eftir hádegi. Áhorfendur
munu dæma besta gæðinginn.
Allt að 60 bestu hestar bæjarins
taka þátt í keppninni. — For-
eldrum er bent á að koma með
börn sín, en þeim mun þarna
verða lofað að koma á bak.
HAFNARSTR.91—95
AKUREVRI
SlMI (96)21400
Kvenkápur
POPLIN
Buxur
Pils
Blússur
Peysur
FJÖLBREYTT URVAL
ánægju sinni með þessa breyt-
ingu. Á þessu ári hefjast tank-
flutningar úr Saurbæjar-
Hrafnagils- og Grýtubakka-
hreppum. Er áætlað, að allir
mjólkurframleiðendur á mjólk-
ursamlagssvæði KEA hafi mjólk
urtanka í fjósum sínum 1977.
Valur Arnþórsson kaupfélags-
stjóri gaf fundinum skýrslu um
framkvæmdir við hina nýju
mjólkurstöð, sem ráðgert er að
taki til starfa um áramótin 1977
og 1978. Framkvæmdir við
byggingar hófust í fyrrasumar
og á aðalbyggingin að verða
fokheld í haust. Alls verður
byggingin rösklega 8.500 fer-
metrar eða 40 þús. rúmmetrar
að stærð. Q
Hinn 2. maí 1974 framkvæmdi notarius publicus
í Akureyrarkaupstað útdrátt á 9i/£% skuldabréfa-
láni til byggingar elliheimila á Akureyri og í
Skjaldarvík teknu 1969, og voru eftirtalin bréf
dregin út:
Litra A nr.
Litra B nr.
Litra C nr.
Gjaddagi útdreginna bréfa er 1. október 1974 og
fer innlausn þeirra fram á bæjarskrifstofunni á
Akureyri.
Akureyri, 3. maí 1974.
BJARNI EINARSSON.
Áðalskoðun bifreiða 1974
Hinn 10. maí á að vera lokið skoðun bifreiða
með lægra einkennisnúmer en A—1700 og hinn
31. maí bifreiða með lægra einkennisnúmer en
A-3200.
Skoðunin fer fram við skrifstofu bifreiðaeftirlits-
ins á Akureyri.
Ökutæki, sem ekki verða færð til skoðunar verða"*
stöðvuð.
BÆJARFÓGETINN Á AKUREYRI.
BÆJARFÓGETINN Á DALVÍK.
SÝSLUMAÐURINN í EYJAFJARÐARSÝSLU
1, 5,10, 11,12, 28, 29, 35, 37, 39, 42,
46, 55, 56, 59, 87, 93, 96, 100.
1, 9, 11, 16, 17, 26, 36, 39, 52, 58, 59,
61, 62, 65, 84, 91, 95, 97, 138, 141,
152, 154, 162, 165, 174, 181, 185,
191, 192, 193, 196, 198, 200, 203,
207, 209, 211, 224, 228, 230, 234,
235, 248, 252, 253, 259, 265, 285,
286, 287, 294, 295.
2, 11, 12, 17, 18, 20, 25, 53, 61, 62,
63, 65, 70, 80, 81, 83, 85, 87, 88, 91,
99, 100,103, 111, 115,121, 122, 128,
131, 149, 152, 157, 166, 167, 170,
171, 172, 173, 174, 175, 234, 235,
244, 245, 260, 261, 266, 270, 271,
273, 274, 276, 287, 307, 308, 310,
315, 319, 334, 335, 346, 352, 357,
360, 361, 362, 363, 374, 380, 387,
389, 400, 402, 403, 404, 409, 410,
415, 416, 418, 422, 428, 433, 436,
438, 439, 457, 458, 464, 487, 497,
500, 504, 505, 506, 511, 516, 517,
522, 523, 530, 539, 540, 549, 550,
555, 561, 575, 598, 599, 601, 603,
606, 609, 611, 612, 613, 630, 632,
633, 638, 643, 656, 659, 662, 666,
669, 692, 695, 701, 710, 712, 718,
rií 735) 739, 740, 741, 759, 779.
Innlagt mjólkurmagn nam
rösklega 21 milljón lítrum og
hafði aukist um 1,7 af hundraði
frá fyrra ári. Fitumagn mjólk-
urinnar var 4,268%. Mjólkur-
framleiðendur voru 383 og hafði
þeim fækkað um 21 frá fyrra
ári. Meðalinnlegg frá hverjum
mjólkurframleiðanda var rösk-
lega 55.600 lítrar. 20% mjólkur-
innar var seld til neyslu, en
unnar ýmiskonar mjólkurvörur
úr nær 80% mjólkurinnar.
Heildarverð til framleiðenda
fyrir hvern innveginn mjólkur-
lítra var kr. 25,20.
í október á liðnu ári hófust
flutningar með tankbílum úr
Öngulstaða- og Svalbarðsstrand
arhreppum, og hafa bændur lýst
Jónas í
hvalnum
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
frumsýndi Jónas í hvalnum á
Vopnafirði á sunnudaginn. —
Næsta sýning var á Þórshöfn
og sú þriðja á Raufarhöfn.
Sjónleikurinn var sýndur á
Akureyri á fimmtudaginn. og
stendur hann í tvo klukkutíma.
Jónas í hvalnum er eftir Vé-
stein Lúðvíksson rithöfund. —
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs-
dóttir. Leikendur -eru átta tals-
ins.
Dagvb
Dagur kemur næst út miðviku-
daginn 15. maí.
Fæst í kaupfélaginu
r
Oskilahross
Brúnstjörnótt lii'yssa, 4rá vetrá, er x óskilum.
Fannst inn viðt-yindheimajökul.
Eigandi haíi' samband við Árni Magnússon og
greiði áfallinn kostnað.
HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR.
UM LEIKSKÓLA OG DAGHEIMILI
AKUREYRARBÆJAR
Þar sém ákvéðið hefúr verið að opna leikskóla í
gamla Glerárskólanum í sumar, tilkynnist hér
með að umsóknif þurfa að hafa borist fyrir 15.
maí næstkomandi.
Leikskólinn verður opinn frá kl. 8—12 árdegis og
frá kl; 1—6 síðdegis.alla virka daga, nema laugar-
daga. ■
Tekin verða börn á aldrinum 3ja til 6 ára, þó
kemur til greiira að taka tveggja ára börn fyrir
hádegi ef nauðsyn krefur.
Leikskólinn tekur væntanlega til starfa 1. júní
næstkomandi,
Eins þurfa þeir, sem óska eftir að koma börnum
á Pálmholt í sumar, að sækja um pláss fyrir sama
tíma.
Eyðublöð liggja frammi á bæjarskrifstofunni.
Allar upplýsingar veitir Stefán G. Sveinsson, bæj-
arskrifstofunni, kl. 1—5 síðdegis.
FÉLAGSMÁLASTJÓRI.
M
KR.200Ö3 VERÐTRYGGT
HAPPDRÆTTISLÁN RÍKISSJÓÐS 1974
UuMabfM MIU M •'MO t*« kundnil ou nmmllM MuMIJMn »'6«« akt
V*0*i|ö6t ofl *f »t»iB Ut Mmkvnmt htlmlld 1 llk'lKflu,
»J» l«< um kkalUltSk KmlUit toIbfMk •. »■ r*U.|*Suf.. ...
1174, um t|kr6nui> III t«o» brúMtfSa t SktlSnkfMiMI. »f opf-l hfli>»tts um ll
n*U.|4*ur tf MuldwpUf h«nft«t« Ifpt.H fkuld«þf*<t VH M tVWMl VSBKt.
r •isdufpftlSb Bkuldtnd m
KR.2000 VERÐTRYGGT
HAPPDRÆXriSLÁN RtKISSJÓÐS 1974
SkutddbrM ptKd m
U ofl n ».118 ut i.Rktnm1 balmlM I
KR.2000 VERÐTRYGGT
HAPPDRÆTTTSIÁN RtKISSJÓÐS 1974
SkulddbrM þ«IU «f MuB Itð KundntS Ofl tlmmHu Mlllón krdna Muld.bf4l.lint fklaaMa ttflna
Vtfl..)4Si Pfl Pf fltllS úl Mmktnnd halmJM I qirlSflum fyrk ifls 1174,
•bf. I4fl um MtlUUfl. mtSltrS tttSbrMa B. H» thU.ldSuf Mluf lnn.nl.nd.. fci mn
117«. um tlifSnun lll rtfl» Ofl bfúMdtSa « SktlSnitMndl. tr opnl lulnptofl um UndM.
HhUi|4Sur tf Mulduguf hindhMi |«u MúMibfMi um l»i puound krtnuf.
».|8Suf tndurflrfllAr Muldlnd moS (VA J SkuldnkrM k»tu 7y
dlum I hluMtHI »18 M hnkkun. if W / • sUMa
■« ■-»• * lin.llmtnum i .IM- /Ám^Uégl
IramfnrtlukotlniSaf, *f rthnwS »f l VVr—OS/ J FMfl h
i xJlllllí
Jíuuji Xr-C- YPIflflft
I /ydtmdUfdMttTa fddunrylúitydn MWaWP -
* Muldibftlilin. fhlMlPS. n
'ISflum tyilf MIS 1S74
*- Ofl btu.ot'B. i SÍ.lSarifMnal. »r opnl hrlnflrtfl um
' -ur h.ndn.l. |rf“. MuMibfiU um N« pumnd kfilt
kuidln* m*« C fs~ uMN SkuMkbrM h<b tindd « 1S Inn *ré
« hakfcun. .f V I ^hu illlfcly »|»lda»flk o« tofbuf Mkl MmMyM nS I
m i bol.fl .14- /.1 UfSfik b«- Omm Uml
• t fihnu* m l \\>—rm KkppMnfdorlnfUnflur i MuUMrM
'isx&i xjllliiJr
Bréfin
brúa
Framkvæmdir við vega- og brúagerð
á Skeiðarársandi vegna hringveg-
arins hafa gengið samkværpt áætl-
un. Þessar framkvæmdir eru fjár-
magnaðar með fé, sem inn kemur
fyrir happdrættisskuldabréf rikis-
sjóðs.
Nú er unnið að gerð varnargarða og
brúar yfir Skeiðará, sem mun verða
lengsta brú landsins, 900 melra
löng.
Beggja vegna Skeiðarár hefur lengi
verið beðið eftir þeirri brú, sem nu
er að verða að veruleika.
: ? ......• 1 • " • ——————
Enn vantar nokkuð á, að bilið sé
brúað, þess vegna eru nú til sölu
hjá bönkum og sparisjóðum um land
allt verðtryggð happdrættisskulda-
bréf rjkissjóðs, þau kosta 2000
krónur.
Brúum bilið.
W) SEÐLABANKI ISLANDS
(Fréttatilkynning)