Dagur - 03.07.1974, Blaðsíða 1

Dagur - 03.07.1974, Blaðsíða 1
&§><$>$><§><§><§><§><§><§><§><§>$>$><§><$><§>$><§><§><§><§><§><$>$><§><§><§><§><§><§>^^ Þakkir til Við'uridifritaðir þingmenn Framsóknarflokksins i Norðurlandskjördccmi eystra sendum kjósendum B- listans og öllum þeim, sem lögðu fram vinnu og aðstoð i sambandi við alþingiskosningarnar, alúðarþakkir og innilegar hveðjur. Ingvar Gíslason. Stefán Valgeirsson. Ingi Tryggvason. I- Margir bíða eílir þurrkinian Þistilfirði, 1. júlí. Búið er að hirða fyrstu töðuna á einum bæ, en nokkuð margir eru byrjaðir að slá, en bíða nú eftir þurrki. Tún eru að verða allvel sprott- in, þar sem ekki var beitt því lengur frameftir. Hér fór fram óhlutbundin kosning í hreppsnefnd í Sval- barðshreppi. Hreppsnefndar- menn eru: Sigtryggur Þorláks- son, Svalbarði, Þórarinn Krist- jánsson, Holti, Grímur Guð- björnsson, Syðra-Álandi, Oli Halldórsson, Gunnarsstöðum og Skúli Ragnarsson, Ytra-Álandi. Sýslunefndarmaður var kjörinn Sigtryggur Þorláksson. í Sauðaneshreppi, þar sem einnig var óhlutbundin kosning, voru kjörnir: Sigurður Jónsson, Eíralóni, Kristbjörn Jóhanns- son, Tunguseli, Indriði Krist- jánsson, Syðribrekkum, Lárus Jóhannsson, Hallgilsstöðum og Þórarinn Björnsson, Ártúni. Sigurður Jónsson var kjörinn sýslunefndarmaður. Ó. H. Mok-silunpelði er í Húnavalni Ási, Vatnsdal 1. júlí. Heyskapur er hafinn og nokkuð hefur náðst upp af hcyi, en menn byrja missnemma að venju. Þar sem ekki var beitt er vel sprottið. Menn hafa veriö að taka ull af fé sínu og er féð svo flutt jafnharðan á afrétt. Mun flest fé nú þangað komið en ein- hverjir bændur hafa þó ekki lokið rúningi. Laxveiði er hafin, en hún hef- ur verið heldur treg, laxveiðin hér í ánum, það sem af er. Hinsvegar hefur verið ágæt sil- ungsveiði, stundum mokveiði, einkum í Húnavatni. Silunga- gengd var feiknamikil í vor og veiði er enn góð. Kosningaþátttaka var ágæt hér um slóðir, 92% eða um það bil. Hér fóru einnig fram hrepps nefndarkosningar. í hrepps- nefnd eru: Jón Bjarnason, Ási, Reynir Steingrímsson, Hvammi, Helgi Sveinbjörnsson, Þórorms- tungu, Gísli Pálsson, Hofi og Auðunn Guðjónsson, Marðar- núpi. í sýslunefnd var kosinn Guðmundur Jónasson, Ási. Frá aðalfundi Norræna bændasambandsins. (Ljósm. Fr. Vestm.). Aðalf. Norræna hændasamhandsins landbúnaðarvara á Norðurlönd- um og landbúnaðarpólitíkina. Norræna bændasambandið var stofnað 1934. Það gefur út tímaritið Landbruks Ekonomisk Tidskrift. Aðalfundinum var ekki lokið í gær þegar blaðið var að síð- ustu búið til prentunar, og verða nánari fregnir að bíða. FuiltrúaréðS' fundur FUNDUR verður í fulltrúaráði Framsóknarfélaganna á Akur- eyri miðvikudagskvöld 3. júlí kl. 8,30 í Hafnarstræti 90. Friðbjsrnarhús AÐALFUNDUR norræna bændasambandsins var haldinn á Akureyri fyrstu daga júlí- mánaðar og átti honum að ljúka í gær. Kynningarferð á svo að fara í dag um næstu sveitir og sýslur. Forseti Norræna bænda- sambandsins þetta árið er Sveinn Tryggvason. Fundurinn var haldinn í húsa kynnum MA og voru fundar- gestir um 220 talsins, þar af 120 fulltrúar Norðurlandaþjóðanna, þeirra á meðal um 50 íslending- ar. Guðmundur Sigþórsson flutti erindi um þróun landbúnaðar á Norðurlöndum, og Tryggvi Gíslason flutti erindi um Eyja- fjörð. Sveinn Tryggvason flutti skýrsiu forsetanefndarinnar og kosið var í nefndir og ráð, er ræddu eftirfarandi málaflokka: Matvælaráðstefnu FAO, — Tollabandalagið (GATT), olíu- notkun og innkaup, verslun Sveinn. Tryggvason, forseti Norræna bændasamb. FRIDBJARNARHÚS, Minja- safn I.O.G.T., Aðalstræti 46, Ak- ureyri, verður opnað almennigi til sýnis sunnudaginn 7. júlí n.k. og verður húsið opið á sunnu- dögum kl. 2—4 e. h. til ágúst- loka. Á kvisti Friðbjarnarhúss er uppsettur stúkusalur og þar var fyrsta stúkan á íslandi, stúkan ísafold nr. 1 stofnuð 10. janúar 1884, og varð því 90 ára á 1100 ára afmæli íslandsbyggðar. — Einnig er að sjá í húsinu mynd- ir og muni frá upphafi Regl- unnar. Sjón er sögu ríkari. Verið velkomin í Friðbjarnarhús. Gestir, sem ekki geta skoðað safnið á framangreindum tím- um mega hringja í síma 11459 12279 eða 22600. F riðbjarnarliúsnefnd. Sýning ÁRMANN Guðjónsson (Ommi) opnar málverkasýningu í Mynd smiðjunni n.k. laugardag kl. 2 og stendur hún eina viku. Sjá auglýsingu á öðrum stað. LAUG ARD AGINN 29 júní voru undirritaðir samningar um tvo skuttogara og nótaveiði- skip milli Slippstöðvarinnar hf. annars vegar og Álftpfells hf., Stöðvarfirði og Gunnars hf., Reyðarfirði hins vegar. ■ Skipin eru að því leyti sér- stæð, að þau sameina það tvennt, að vera skuttogarar og nótaveiðiskip og er það nýjung. í því sambandi má benda á, að brúin stendur á tveimur breið- um stöplum og myndast við það athafnasvæði undir henni. Aðalmál skipanna eru þessi: Mesta lcngd ............ 45.50 m Breidd .............. 9.50 m Dýpt að milliþilfari . . 4.30 m Dýpt að þilfari...... 6.60 in Aðalvélar verða Alpha 12V23 L-VO 1740 hö v/800 s/mín., og ljósavélar 2 stk. 1V4WM TBD- 232V-12 321 hö v/1500 s/mín. í hvoru skipi. Hafnarljósavélar Úlitsteikning skuttogara. verða MWM D-327-4 40 hö v/1500 s/mín. Samnalögð raf- orkuframleiðsla hvors skips verður 573 KVA og aðalljósavél ar búnar fyrir samkeyrslu. — Tvær togvindur 17.2 tonn í hvoru skipi og 2 stk. snurpu- vindur 14 tonna hvor ásamt net- tromlu og 6 hjálparvindum eru frá Rapp Fabrikker a/s. Kraftblakkir verða Tréplex gerð 603/360 en færslublakkir og tvær síldardælur í hvoru skipi frá Rapp Fabrikker a/s. (Framhald á blaðsíðu 2) Slipps E9 smíðar tvo togara

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.