Dagur - 28.08.1974, Blaðsíða 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Þáttaskil
í íslenskum
stjórnmálum
ÓLAFUR Jóhannesson rauf þing í
maí, eftir að nokkrir stuðningsmenn
stjórnarflokkanna höfðu hlaupist
undan merkjum og boðaði alþingis-
kosningar, er fram fóru 30. júní sl.
Þær kosningar leystu þó engan
vanda, því vinstri menn fengu 30
þingmenn kjörna en Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýðuflokkur 30. For-
seti landsins fól Geir Hallgrímssyni
stjórnarmyndun, sem ekki tókst. For-
seti kvaddi þá Ólaf Jóhannesson til
að gera tilraun til stjórnarmyndun-
ar. Reynt var til þrautar að mynda
nýja vinstri stjórn með þátttöku Al-
þýðuflokks. Sú stjómarmyndun tókst
heldur ekki. Forseti óskaði þá eftir,
að Ólafur reyndi stjórnarmyndun
eftir öðrum leiðum. Þá stjórn tókst
Ólafi Jóhannessyni að nrynda, þó
ekki undir sínu forsæti heldur Geirs
Hallgrímssonar, sem í gærmorgun
gekk á fund forseta með ráðherra-
lista sinn, og er þessi stjórnarmynd-
un því óvenjuleg. Því ber þó að
fagna, að þjóðin býr ekki lengur við
stjórnarkreppu og að Alþingi tókst
að mynda þingræðislega meirihluta-
stjórn, svo sem því ber skylda til og
mun það mest þakkað formanni
Framsóknarflokksins, sem ekki setti
það öðru ofar að verða sjálfur for-
sætisráðherra, svo sem þjóðin bjóst
við.
Með hinni nýju ríkisstjórn, sem til
mikils verður að ætlast af, verða að
sjálfsögðu þáttaskil í íslenskum
stjórnmálum, sem framtíðin skýrir.
Við þessi þáttaskil er nýrri ríkisstjórn
árnað heilla, og við þessi þáttaskil er
þess einnig eflaust óskað af þorra
þjóðarinnar, að mörgu því verði
fram haldið, svo sem liorft hefur
undanfarin þrjú ár. Nú mun á það
reyna hvort fram verði haldið þeirri
þjóðmálastefnu, sem stöðvað hefur
fólksflóttann til höfuðborgarsvæðis-
ins á síðustu þrem árum. Einnig
mun á það reyna hvort atvinnu-
öryggið og þau bestu lífskjör, sem
þjóðin hefur þekkt, verða skert
meira en brýn nauðsyn krefst. Og
í enn mun á það reyna, hvort sjálf-
stæðri utanríkismálastefnu og hik-
| lausri baráttu í landhelgis- og varnar-
h málum verði fram haldið. A það
; reynir, hvort hinni nýju stjóm tekst
; nauðsynleg samvinna við Alþýðu-
; samband fslands og aðra aðila vinnu
I markaðarins, sem er forsenda þess,
► að unnt sé að stjórna efnahagsmál-
► . um landsins. □
Kjarnaland er öllum opið Unglingakeppni LI.N.Þ. 1974
oMn
sem hingað vilja koma
99
SAGÐI BJARNI EINARSSON BÆJARSTJÓRI ER HANN' OPNAÐI
HIÐ NÝJA ÚTIVISTARSVÆÐI í KJARNALANDI ALMENNINGI
Á ÞJÓÐHÁTÍÐ Eyfirðinga og
Akureyringa í Kjarnaskógi í
sumar, opnaði Bjarni Einarsson
bæjarstjóri formlega hið nýja
útivistarsvæði, þar sem ungur
skógurinn, Kjarnaskógur, er í
örum vexti, Hann sagði við
þetta tækifæri:
Eyfirðingar, aðkomnir gestir.
Gleðilega þjóðhátíð.
Við erum hér saman komin
til a'ð minnast þess og fagna, að
1100 ár eru liðin síðan forfeður
vorir námu land á Islandi. Til
þessa mikla samkomuhalds Ey-
firðinga hefur verið valinn nýr
staður, sem í dag er formlega
tekinn í notkun sem hátíðar-
svæði og sem vettvangur úti-
vistar og hvíldar. Hér í Kjarna-
landi er skjól gott og fagurt um
að litast, en hér hafa margar
hendur unnið mikið starf við að
prýða þennan reit. Hér er gott
að halda hátíð og hér er gott að
njóta hvíldar og hressingar í
náinni snertingu við land og
gróður.
Eitt af helstu táknum sjálf-
stæðisbaráttu þjóðar vorrar og
endurreisnar hins íslenska þjóð
félags er skógræktin. í önd-
verðu var land okkar skógi vax-
ið, en það er táknrænt fyrir
niðurlsegingu þjóðarinnar og
örbirgð að hjn varð að eyða
þessum skógum að mestu til
þess að halda lífi. Þar með gekk
þjóðin stöðugt á það forðabúr
lífsorku, sem landið bjó yðir,
eyddi sjálfum höfuðstólnum.
Því var vissulega eðlilegt þegar
endurreisnarskrefið hófst fyrir
alvöru að skógrækt yrði meðal
þeirra verkefna, sem lögð yrði
áhersla á. Með skógrækt á ís-
landi er einmitt verið að endur-
gjalda landinu það, sem frá því
hefur verið tekið, endurnýja lífs
orku þess, endurgreiða þann
höfuðstól, sem eytt hefur verið.
Og einmitt nú, á þessu afmælis-
ári, er gert ráð fyrir, að grund-
völlur verði lagður að nýju stór
átaki þjóðarinnar til að greiða
upp skuldina við landið.
Eyfirðingar skipuðu sér fljótt
í forystusveit skógræktarmanna
og í þessu héraði var mikið
brautryðjendastarf unnið. Ár-
angur þess starfs leynir sér
ekki, á Akureyri, en trjágróður
inn er einn höfuðþáttur svip-
móts bæjarins, og víðsvegar um
byggðir Eyjafjarðar, í öllum
þeim fögru lundum sem þær
prýða. Og í dag helgum við
þetta skógræktarsvæði hér í
Kjarnalandi og opnum það al-
menningi til afnota. Það er
stefna skógræktarmanna yfir-
leitt að opna skógræktarsvæði
almenningi þegar þau hafa náð
nægum þroska. Þetta er rétt
stefna en fólk verður þá líka að
sýna það með umgengni sinni
um slík svæði að það sé þess
trausts vert sem því með þessu
er sýnt.
Ræktun skógar í Kjarnalandi
hefur verið höfuðverkefni Skóg
ræktarfélags Akureyringa um
árabil. Hér hefur mikið verk
verið unnið. Margir hafa lagt
hönd á plóginn, og mikilhæfir
hugsjóna- og kunnáttumenn
hafa veitt starfinu forustu. Við
stöndum öll í þakklætisskuld
við þessa menn. Ég vil nefna
einn mann sem átt hefur sér-
stakan þátt í þeirri sköpun, sem
vér stöndum hér frammi fyrir.
Það er Ármann Dalmannsson,
sem er táknrænn fulltrúi endur
reisnarstarfsins á íslandi á þess-
ari öld. Ég vil óska honum sér-
staklega til hamingju í dag og
færa honum þakkir okkar allra
sem hér erum.
Bjarni Einarsson, bæjarstjóri.
Skógræktarfélag Akureyrar
hefur hér breytt móum og mýr-
arflóum í fagran skóg, hér í út-
jaðri vaxandi bæjar. Þetta er
einstæð aðstaða í jaðri þéttbýlis.
Félagið hefur með sérstaökum
samningi afhent Akureyrarbæ
svæðið í þeim tilgangi að það
verði útivistarsvæði ahnenn-
ings. Þegar svæðið var afhent
var farið að huga að áætlunum
um þær framkvæmdir, sem
nauðsynlegar voru taldar til að
almenningur fengi notið svæðis-
ins, og var gert ráð fyrir að
þeim yrði lokið á þremur til
fjórum árum. En þegar þjóð-
hátíðarnefndir Akureyrar og
Eyjafjarðarsýslu óskuðu eftir
að halda þjóðhátíð þá, sem nú
stendur hér, samþykkti bæjar-
stjórn Akureyrar að veita fé til
þessara framkvæmda þannig, að
þeim yrði að mestu lokið fyrir
þjóðhátíð. Til þess að þetta
mætti takast þurfti meira en
fjármagnið eitt. Gert var skipu-
lag af svæðinu og síðan hefur
verið unnið af miklu kappi við
að koma því skipulagi í fram-
kvæmd. Lagður hefur verið nýr
vegur hingað og aðrir vegir
endurbættir, lagðir akvegir um
svæðið, göngustígar og gerð bif-
reiðastæði. Lögð hefur verið
vatnsleiðsla hingað, byggt hús
fyrir hreinlætisaðstöðu auk
fjöldamargs annars sem ótalið
skal hér. Hafa starfsmenn Akur
eyrarbæjar, skógræktar og þjóð
hátíðarnefndar lagt fram mikið
starf, sem seint mun fullþakkað.
Vona ég, að allt það fólk, sem
tekið hefur þátt í að skapa þenn
an vettvang, þetta umhverfi,
finni með sjálfu sér til verð-
skuldaðrar gleði og ánægju með
að hafa verið þátttakendur í
þessu verki. Ég veit, að eftir því
sem árin líða og fleiri og fleiri
læra að njóta lífsins hér á sól-
björtum sumardögum, verður
þessi tilfinning sterkari.
í dag opnum við þjóðhátíðar-
svæðið í Kjarnalandi. í dag tök-
um við í notkun útivistarsvæðið
í Kjarnalandi, Þjóðhátíðarhald
er mikilvægt. Það tengir saman
í hugum okkar framtíð, nútíð
og fortíð. Það vekur athygli okk
ar á sameiginlegum arfi, styrkir
þjóðerniskennd okkar og stælir
okkur til sameiginlegra átaka í
nútíð og framtíð. Slík hátíð sem
þessi minnir Eyfirðinga alla
einnig á, að þeir búa hér saman
í einu fögru og gjöfulu héraði
og eru ein heild hvort sem þeir
búa úti við hafið, fram til fjalla
eða í ellefu þúsund manna bæ.
Ég vona að margar sameigin-
legar hátíðir Eyfirðinga verði
haldnar hér í framtíðinni, það
SMÁTT & STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
KÁLFARNIR
Fyrir nokkrum órum sáust
stækkandi kúahópar á beit við
bændabýlin, og svo sem fjórir
eða fimm kvígukálfar, sem áttu
að lifa. Nú eru heilar hjarðir af
geldneytum í liaga, jafnvel á
túnum, margt af því tveggja ára
uxar, jaínvel þykkvaxin naut,
sem eiga að fara í pottinn, ein-
hvers staðar úti í löndum í
haust. Þessir kálfar eru sællegir
og alger andstæða þeirra kálfa,
sem hér áður fyrr fæddust á út-
mánuðuni og voru Iátnir lifa í
trausti þess að hægt væri að
halda í þeim lífinu fram í græn
grös, þótt mjólkin væri ekki til
skiptanna. Svo kom vorið og
gróðurinn og þeir slafra grasið,
sem nýlega var aðeins hugur
guðs, og verður gott af. Geld-
neytahópar nútímans eru til að
sjá eins og stóð í hrossasveitum.
VEL Á MINNST
Og vel á minnst hesta. Um þá
var prestlærður maður látinn
segja: Um stóð veit maður
ekki nema eitt með vissu, að
það tilheyrir engri kirkjusókn,
er ekki skírt, ekki frelsað, með
hefur mikla þýðingu. En hvað
sem hátíðinni líður og hennar
þýðingu er þó mest um vert hið
daglega líf,. sem hér mun fara
fram. 1 þennan reit mun fólk
sækja úr ys og þys hversdags-
lífsins. Hér mun fólk finna frið
í faðmi fagu-rrar náttúru og það
mun hverfá héðan að hvíldar-
stund lokinni bjartsýnna og
sterkara í baráttu lífsins. Það
er einstakt fyrir vaxandi at-
hafnbæ sem Akureyri að geta
boðið íbúum sínum í slíkan
unaðsreit í þessari nálægð.
Hingað er hægt að bregða sér á
nokkrum mínútum, foreldrar
með ung börn, sem ekki þola
langan akstur, gamalt fólk, hver
sem er. Þessi staður mun frekar
en nokkuð annað tryggja tengsl
þéttbýlisfólksins við náttúruna
þó að bærinn vaxi og taki sífellt
meira á sig mynd heimsborgar-
innar.
Ég vil að endingu bera fram
þakkir til allra þeirra, sem hér
hafa starfað. Ég ber fram þessar
þakkir fyrir hönd okkar allra,
sem hér erum í dag, fyrir hönd
allra þeirra, sem nú eru fjar-
staddir en hingað munu koma
í framtíðinni, þar með taldar
óbornar kynslóðir því það sem
hér hefur verið gert mun lengi
standa.
Ég býð ykkur öll velkomin
hingað og ég lýsi því yfir að
Kjarnaland er opið öllum þeim,
sem hingað vilja koma.
Megi blessun guðs fylgja þess
um stað. □
NÍELS Á. LUND framkvæmda-
stjóri Ungmennasambands N,-
Þing, sendir eftirfarandi:
Unglingakeppni NUÞ 1974 fór
fram frá 1. júlí til 15. ágúst.
Aldrei hefur verið jafn mikil
þátttaka í þessari keppni og nú.
Alls tóku 210 keppendur þátt í
mótinu, sem skiptust þannig í
flokka:
Piltar, eldri flokkur 33
Piltar, yngri flokkur 101
Stúlkur, eldri flokkur 16
Stúlkur, yngri flokkur 60
Keppendur voru mismargir
hjá ■ félögunum. Mest var þótt-
takan hjá Snerti. Þar voru alls
55 keppendur og færðu þeir fé-
laginu samtals 716 stig og far-
andbikar til varðveislu. Næst
mest var þátttaka í umf. Oxfirð-
inga, 44 keppendur með samtals
575 stig. Leifur heppni hafði 32
keppendur, sem skiluðu 335 stig
um. Þá kom Austri með 31 kepp
anda og 321 stig. Afturelding
var með 22 keppendur og hlaut
300 stig. Umf. Langnesinga hafði
25 kpependur og samtals 272
stig. Umf. Fjöllunga var með 1
keppanda og 15 stig.
Þess skal getið að aldrei fór
fram nein keppni hjá því félagi
heima fyrir. Vonandi verður
hægt að bæta úr því næsta
keppnistímabil og gera það fé-
lag virkt í þessari keppni.
Ef litið er á úrslitin og stigin
borin saman við keppendafjöld-
ann, má sjá að þar er beint sam-
band á milli. Því fleiri þátttak-
endur því fleiri stig. Það ætti
því að vera ljóst að félögunum
er nauðsynlegt að sem flestir
taki þátt í keppninni.
Að þessu sinni tóku öll félög
UNÞ þátt í Unglingakeppninni
og er það von sambandsins að
svo verði á næstu árum.
Stigahæstu einstaklingar í
hverju félagi:
vex nú örí
fullan mann á bakinu. Meira að
segja engin þörf fyrir þetta í
landinu síðan bæði fullir og
ófullir fóru að aka maskínu.
Samt halda menn áfram að eiga
þessa skepnu, til að monta sig
af henni, kvelja hana, yrkja lof
um hana og eta hana. Við þessa
lýsingu má svo ýmsu bæta, eftir
því sem hverjum og einum þyk-
ir þurfa, og ekki hæfir að horfa
á allt með augum skálda.
Sumargotssíldarstofninn hefur
stækkað ört vegna friðunar
undanfarin ár.
Sjávarútvegsráðuneytið gaf
20. júlí út reglugerð um bann
við veiði smásíldrar. Kemur
reglugerð þessi í stað eldri reglu
gerða um sama efni og eru
óbreytt öll ákvæði um lágmarks
stærð síldar, sem er 25 cm.
Samkvæmt fyrri reglugerðum
voru síldveiðar fyrir Suður- og
Vesturlandi bannaðar með öll-
um veiðarfærðum öðrum en rek
netum til 1. september n. k., en
með hinni nýútgefnu reglugerð
er bann þetta framlengt til 15.
september 1975. Er þetta gert
samkvæmt tillögu Hafrann-
sóknastofnunarinnar og með
samþykki L. f. Ú., Fiskifélags
ÁBENDING KONU
Greind og roskin kona í bæn-
um kom að máli við blaðið í
gær. Henni lá eftirfarandi á
hjarta:
Við, eldra fólkið og ennfrem-
ur börnin, horfum mikið á sjón-
varpið og njótum þess ríkulega
og með þakklátum huga. En oft
tapa ég hluta textans á skjánum
og tel mig þó sæmilega læsa, og
svo er einnig um marga þá, sem
ég hef rætt við um þetta. Er nú
ekki hægt að bæta eitthvað úr
þessu? — gefa okkur örlítið
meiri tíma til að lesa textann?
Þessi hógværa ábending hef-
ur við full rök að styðjast og því
er hcnni hér með komið á fram-
færi við rétta aðila.
(Framhald af blaðsíðu 8)
Keflavík, Var það þorskur, 4,67
kg.
Þyngstu lúðu veiddi Friðgeir
Kristjánsson, Reykjavík, 2,36
kg. Hann veiddi einnig þyngsta
ufsann, 1,8 kg.
Þyngstu keilu veiddi Hagan,
Noregi, 5,36 kg.
Mesta veiði á einum degi
hlaut í karlaflokki Matthías
Einarsson, Akureyri, 237 kg.
Mesta veiði á einum degi í
kvennaflokki hlaut Margrét
Helgadóttir, Keflavík, 93 kg.
2. A-sveit íslands
3. Sveit Sviss
s
Borgarkeppni:
1. Sveit Vestmannaeyja
Sveitina skipa:
Sveinn Jónsson,
Bogi Sigurðsson,
Sigurður Sigurðsson og
Jón Ogmundsson.
2. Sveit Reykjavíkur 389
3. Sveit Keflavíkur 378
Sveitarkeppni milli landa: Kg
1. B-sveit íslands 1343
Sveitina skipa:
Karl Jörundsson,
Jónas Jóhannsson,
Konráð Árnason og
Andri Páll Sveinsson,
Piltar, eldri flokkur: Stig
Björgvin Sigurðsson, Snerti 28
Guðm. Jóhannsson, Umf. L. 24
Helgi Þór Helgason, Leifi h. 22
Björn Þórarinsson, Umf. O. 21
Einar Guðmundsson, Austra 21
Piltar, yngri flokkur: Stig
Dagbj. Halldórsson, Umf. Ö. 32
Gylfi Árnason, Snerti 31
Hallur Þorsteinsson, Austra 26
Sigurpáll Arnþórss., Austra 26
Hreggviður Jónsson, Umf. L. 22
Oskar Sigvaldason, Leifi h. 21
Sigurður Bragason, Umf. Fj. 15
Stúlkur, eldri flokkur: Stig
Guðný Sigurðard., Snerti 27
Ólöf Þórarinsd., Umf. Öxf. 24
Eyrún Guðmundsd., Aaustra 24
Freyja Ingólfsd., Leifi h. 11
Sigríður Skúlad., Umf. Langn. 6
Stúlkur, yngri flokkur: Stig
Kristín Friðriksd., Snerti 26
Anna Þórarinsd., Umf. Öxf. 25
Hulda Haraldsd., Leifi h. 17
Soffía Árnad., Umf. Langn. 14
Hafrún Káradóttir, Austra 10
bandið hafði tvo íþróttakennara
á sínum vegum, þá Gunnar
Árnson og Níels Á. Lund. Gunn
ar sá um æfingar á Þórshöfn,
Þistilfirði, Raufarhöfn og Kópa-
skeri. Auk þess mætti hann á
íþróttaæfingar á fimmtudags-
kvöldum í Lund, en á þeim
kvöldum voru sameiginlegar
æfingar hjá Snerti, Umf. Öx-
firðinga og Leifi heppna. Níels
sá um æfingar í Öxarfirði og
Kelduhverfi, auk framkvæmda-
stjórastarfa hjá UNÞ og þjóð-
liátíðarnefnd. Auk þess sá Níels
um íþróttaæfingar og leiki í
Lundi á meðan á sundnámskeiði
þar stóð. Komu þar börn frá 4
hreppum og jafnmörgum félög-
um, Snerti, Umf. Öxfirðinga,
Umf. Fjöllunga og Leifi heppna.
Níels var með þessum börnum
í 27 tíma.
Alls voru haldnar 139 æfing-
ar og kennt í samtals 234 klst.
var þannig:
Æfingafjöldi hjá hverju félagi
var þannig: Meðalt.-
mæting
Æfingar manns
ÞANN 16. ágúst sl. lauk tíunda
starfssumri sumarbúðanna að
Hólavatni. Sumarbúðirnar eru
reknar af KFUM og K á Akur-
eyri, og hafa börn þaðan og víðs
vegar annars staðar að dvalið í
sumarbúðunum. Hefur aðsókn
verið sívaxandi og er nú svo
komið, að vísa verður börnum
frá sökum rúmleysis. Af þeim
orsökum er nú í bígerð hjá ráða
mönnum sumarbúðanna að
stækka húsið að Hólavatni.
Þrátt fyrir, að rekstur sumar-
búðanna byggist að mesttf'leýti
á sjálfboðavinnu, er fjárhagur-
inn yfirleitt fremur þröngur. Til
þess að hressa upp á fjárhaginn,
hefur það verið fastur liður á
hverju hausti að hafa kaffisölu
að Hólavatni. Hafa bæjarbúar
og reyndar fleiri jafnan fjöl-
mennt að Hólavatni og' keypt
það kaffi. Gefst mönnum tæki-
færi n. k. sunnudag að heim-
sækja Hólavatn og fá sér kaffi-
sopa. Verður kaffisala þar frá
kl. 14.30 til kl. 18 um kvöldið.
Vill stjórn sumarbúðanna fyrir-
fram þakka þeim fjölmörgu,
tryggu velunnurum starfsins að
Hólavatni fyrir komuna. Við
hina, sem ekki hafa komið áður
segjum við: Verið velkomin að
Iiólavatni á sunnudaginn.
(Fréttatilkynning)
MÁLEFKIVÁKG
' iFTIRTÍ
íþróttaæfingar UNÞ 1974.
Frjálsar íþróttir voru mikið
iðkaðar hjá félögum UNÞ. Sam-
Umf. Langnesinga 25 12
Umf. Afturelding 14 14
Umf. Austri 21 12
Umf. Snörtur 42 18
Umf. Öxfirðinga 19 18
Umf. Leifur h. 18 10
RANNSÓKN hefur loks verið
gerð á högum vangefins fólks
hér á landi, að tilhlutan heil-
brigðismálaráðuneytisins, og
annaðist hana Margrét Margeirs
dóttir, félagsfræðingur. Hún hef
tir opinberlega skýrt frá niður-
stöðum og kemur þá m. a. þetta
í ljós:
íslands, Farmanna- og fiski-
mannasambandsins, Sjómanna-
sambandsins og fleiri aðila.
Þegar síldveiðar fyrir Suður-
og Vesturlandi voru bannaðar
með öðrum veiðarfærum en rek
netum í febrúar 1972 var áætluð
stærð íslenska sumargotssíldar-
stofnsins um 34 þúsund lestir.
Nú er áætlað, að stofninn sé
orðinn rúmar 84 þúsund lestir
og þar af mun hrygningarsíld,
sem er 4ra ára og eldri, nú vera
um 56 þúsund lestir. Með áfram
haldandi friðun er áætlað, að
hryrningarstofninn verði haust-
ið 1975 orðinn u. þ. b. 95 þúsund
lestir og er þá hugsanlegt að
hægt verði að taka upp síld-
veiðar að nýju að einhverju
marki. □
1225
908
Kg
457
Aflahæsti bátur þriðja árið í
röð var Haraldur, Dalvík. Skip-
stjóri Anton Gunnlaugsson.
2. Albert, Dalvík. Skipstjóri
Sigurður Kristmundssori.
3. Sólrún, L.-Árskógssandi.
Skipstj. Sigurður Konráðson.
4. Hafrún, Hrísey. Skipstjóri
i Siguibjörn Ögmundsson.
SLÆM UMGENGNI Á
KRÖFLUSVÆÐINU
Orkustofnunin hefur f sumar
látið leggja veg um Hlíðardal að
Kröflu á Mývatnsöræfum,
vegna tilraunaborana til könn-
unar á möguleikum nýrrar gufu
virkjunar. Vegarlagningin hef-
ur tekist vel eftir aðstæðum, og
ekki valdið teljandi jarðraski,
ef frá er skilinn afleggjari, sem
lagður hefur verið upp á stall-
inn vestaní Kröflu til að komast
að borstæði efst í Hveragilinu.
Afleggjari þessi hefur valdið
miklum spjöllum á því sérstæða
og viðkvæma landslagi, sem
þarna er, og áður var alveg
ósnortið. Það versta er þó, að
hann hefur opnað óteljandi
möguleika til að leggja bílaslóð-
ir um allt Kröflusvæðið, enda
hafa þeir möguleikar greinilega
verið notaðir til hins ýtrasta.
Þannig hafa verið lagðar slóðir
að sprengigígnum Víti, alveg
fram á brún hans, og allt um-
hverfis, og þaðan eru slóðir upp
um vesturhlíðar Kröflu, líklega
allt upp á topp fjallsins. Einnig
hafa verið gerðar bílaslóðir frá
neðra borstaðnum, upp með
Hveragilinu og fleiri giljum, og
sameinast þær slóðunum frá
Víti, svo hægt er að hringkeyra
fjallið þvers og kruss.
Landið er á þessum slóðum
að mestu þakið fíngerðum leir
og sandi, og mótast slóðir því
mjög skýrt í það. í rigningum
blotnar leirinn og slóðirnar graf
ast upp, Er hér augljóslega um
að ræða einhverjar mestu
skemmdir, sem unnar hafa ver-
ið á landslagi á Mývatnssvæð-
inu. í sumar hefur þarna verið
mjög mikil umferð ferðamanna,
sem reyna að aka allar slóðir,
og nýjar bætast við daglega, því
að hægt er að aka næstum hvar
sem er.
Verður þetta að teljast furðu-
legt gáleysi af þeim, sem fyrir
þessum framkvæmdum standa,
enda er umgengni af þessu tagi
sem betur fer orðið sjaldséð
fyrirbæri.
Enn furðulegra verður þetta,
þegar þess er gætt, að síðast-
liðinn vetur voru sett sérstök
lög um verndun Mývatnssvæð-
isins og taka þau yfir allan
Skútustaðahrepp. Megintilgang-
ur þessara laga var einmitt, að
forða landspjöllum af þessu
tagi.
Eins og flestum mun kunnugt
urðu langvarandi eldgos á
Kröflusvæðinu á árunum 1723
—29, og hófust þau með mynd-
un sprengigígsins Víti, suðvest-
an í Kröflu, en síðan hófst
hraungos á langri sprungu, sem
oftast er kennd við Leirhnjúk.
Atburðarás gossins er tiltölu-
lega vel þekkt, og þar með land-
mótun svæðisins. Hér er því um
að ræða mjög mikilvægt svæði
fyrir rannsóknir og kennslu í
jarðvísindum, auk þess sem
landslagið er þarna víða undur-
samlega fagurt. Nú hefur þessu
einstæða landslagi verið spillt
til stórra muna, og að því er
virðist algerlega að óþörfu.
Þótt vissulega sé erfitt og
sumpart ómögulegt, að bæta
fyrir þessi spjöll, verður þó að
gera þá kröfu til Orkustofnunar
innar, að hún láti þegar loka
afleggjaranum upp á fjallið fyr-
ir allri ónauðsynlegri bílaum-
ferð, og tekið verði fyrir allan
akstur utan vegar á svæðinu.
Jafnframt ætti að reyna að
slétta yfir þær slóðir, sem þarna
hafa verið gerðar. Mál þetta er
nú í höndum Náttúruverndar-
ráðs, sem væntanlega sér sóma
sinn í að taka það föstum tök-
Helgi Hallgrímsson.
Atvinna
Skemmtanin
Eldri dansa klúbburinn
beldur dansleik í Al-
þýðuhúsinu laugardag-
inn 31. ágúst.
Húsið opnað kl. 21.
Miðasala við inngang-
mn.
Stjórnin.
Karlmannsúlpa tapaðist
nálægt Rafdeild K.E.A.
s. 1. föstudag.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 2-19-31 eft-
ir kl. 7 e. h.
Fundarlaun.
Tágartaska með barna-
fötum, tapaðist af bíl
Akureyri — Vaðlaheiði.
Finnandi vinsamlegast
liringi í síma 1-21-26.
ÍSAK, 2ja ára í haust!
Hver vill passa mig
meðan mamma er í skól
anum.
Sími 2-18-59.
Kona óskast til að gæta
drengs á öðru ári í vetur
Uppl. í síma 1-16-09.
Stúlka getur fengið fæði
og húsnæði gegn barna-
gæslu fimm kvöld í
viku.
Uppl. í síma 2-16-68.
Unglinga vantar við
kartöfluupptöku.
Sigþór Björnsson,
Hellulandi,
sími 1-21-00.
Kona óskast til heimilis-
starfa einn dag í viku.
Hátt kaup.
Tryggvi Gíslason,
sími 1-10-78.
Upplýsingar liggja fyrir um
1304 vangefna einstaklinga á
landinu, en þar af eru þó vafa-
tilfelli mörg. Af þessum fjölda
eru 465 á stofnunum fyrir van-
gefna, dagvistunarhéimili þar
meðtalin. Þessar stofnanir eru
fimm talsins, eða þessar: Kópa-
vogshæli, Skálatún, Tjaldanes,
Sólheimar og svo Sólborg á
Akureyri, en það e.r eina vist-
heimilið utan höfuðborgarsvæð
isins. Þá eru dagvistunarheimil-
in Bjarkarás og Lyngás, bæði í
Reykjavík. Af 1304 vangefnum
eru karlar 56,6% en konur
43,4%.
Þá segir félagsfræðingurinn,
að aðeins helmingur vangef-
inna, er rétt eiga á örorkustyrk,
njóti hans.
Af framansögðu má sjá, að
við erum langt á eftir nágranna
þjóðum okkar í því að sinna
þörfum vangefinna á félagsleg-
um grundvelli. Þá er það ekki
síður athyglisvert, að aðeins eitt
vistheimili fyrir vangefna er
utan Reykjavíkur og það er
Vistheimilið Sólborg á Akur-
eyri, sem byggt var af myndar-
skap fyrir fáum árum. Á Sól-
borg munu vera um 60 vist-
menn, þegar dagvistunarfólk er
með talið. En í ráði er að stækka
vistheimilið til mikilla muna,
bæði til þess að geta annast
fleira vistfólk og einnig til að
bæta kennsluaðstöðu. □
ílr Vafnsdal
Ási í Vatnsdal, 27. ágúst. Norð-
anáhlaupið um helgina var ekki
mjög vont hjá okkur, en þó var
bæði kalt og hvasst. Við óttumst
ekki fjárskaða, þótt heiðar hafi
gránað. Við vorum svo heppnir
að vera rétt búnir að taka fé frá
girðingum og koma því heim.
Þetta fé var rekið til réttar á
laugardaginn, bæði í Auðkúlu-
rétt og Undirfellsrétt. Mér sýn-
ist féð heldur rýrt.
Berjaspretta er góð, eftir því
sem gerist hjá okkur, og kart-
öflusprettan er einnig góð, en
kartöfluræktin er svo lítil, að
tæplega er orð á gerandi.
Veiði er að glæðast mikið í
Vatnsdalsá og sýnist hún ætla
að verða svipuð og í fyrra, en
framan af var veiðin treg. Og
enn er góð silungsveiði, en því
miður allir dagar upp pantaðir.
G. J.
Bændakvöldvaka
verður í Freyvangi 8. sept. —
Nánar verður um hana í næsta
blaði. Q
L