Dagur - 09.10.1974, Side 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prcntverk Odds Bjömssonar h.f.
HEIÐURSBORGARI
BÆJARSTJÓRN Akureyrar heiðr-
aði Jakob Frímannsson fyrrverandi
kaupfélagsstjóra 7. október með því
að kjósa hann samhljóða heiðurs-
borgara kaupstaðarins. í samþykkt
þessari felst persónuleg viðurkenn-
ing, en kjör heiðursborgara felur þó
annað og meira í sér en að gleðja
góðan mann á efri árum. Hún fel-
ur í sér viðurkenningu, þá mestu
opinberu viðurkenningu á störfum
manns, sem bæjarfélag veitir.
Jakob Frímannsson er borinn og
barnfæddur Akureyringur og á
þar sína starfsævi alla, og er bún eink
um ofin tveim þáttum. Hann var
samvinnuleiðtogi um áratugi, sem
framkvæmdastjóri Kaupfélags Ey-
firðinga, stjórnarmaður Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga og formaður
þess mörg síðustu árin, og liann var
nær þrjá áratugi bæjarfulltrúi og
um skeið forseti bæjarstjórnar, kjör-
inn af framsóknar- og samvinnu-
mönnum í höfuðstað Norðurlands.
Undir forystu Eyfirðinganna,
þeirra Kristinssona og Vilhjálms
Þór og Akureyringsins Jakobs Frí-
mannssonar, efldist samtakamáttur
og starf Kaupfélags Eyfirðiuga og á
óumdeilanlega stærri lilut að vexti
og velmegun Akureyrar og framfara
nálægra sveita en nokkur annarr fé-
lagsskapur. Hugsjónir samvinnu-
manna gerðu Akureyri öllu öðru
fremur að því sem lnin er og meðal
annars að hlutfallslega mesta sam-
vinnubæ álfunnar. Á síðustu árum
hefur það svo komið í ljós, svo ekki
verður um villst, að þegar kjósendur
á Akureyri juku fylgi við fulltrúa
samvinnumanna og framsóknar-
manna í bæjarstjórn, liófst þar enn
nýtt framfaraskeið, sem enn stendur.
Það er samvinnustefnunni og um-
bótasinnuðum framsóknarmönnum
mikið gleðiefni, að þetta skuli opin-
berlega og samliljóða viðurkennt í
bæjarstjórn með lieiðursborgarakjör
inu á mánudaginn.
SAMVINNUSTARFIÐ
ÞAÐ fer vel á því að minna á sam-
vinnustarfið við Eyjafjörð sem enn
einu sinni hefur hlotið viðurkenn-
ingu ábyrgra aðila. Félagið var stofn
að 1886. Félagsmenn áttu engan sjóð
en næga bjartsýni og félagsþroska til
að koma samvinnuhugsjóninni í
framkvæmd. Þeir hafa með samtaka-
mætti sínum lyft mörgum Grettis-
tökum, en þau síðustu er bygging
kjötiðnaðarstöðvar og nú mjólkur-
stöðvar, vöruhússins við Hafnar-
stræti og hraðfrystihúsanna á félags-
svæðinu. Fastráðnír starfsmenn KEA
eru 700, velta félagsins síðasta ár var
meira en liálfur fjórði milljarður.
Sex þúsund félagsmenn kaupfélags-
ins vinna enn að stórum verkefnum.
Frímannsson
Dánarminning hjónanna á
Jakob
JAKOB FRÍMANNSSON, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri
KEA, verður 75 ára í dag'. En
hann fæddist á Akureyri 7. okt.
1899 af eyfirsku og svarfdælsku
foreldri. Jakob tók við kaupfél-
lagsstjóastarfi af Vilhjálmi Þór
í ársbyrjun 1940 og gegndi því
samfleytt uns hann lét af störf-
um í samræmi við aldursreglur
fyrirtækisins vorið 1971.
Það er alkunna og eyfirskum
samvinnumönnum í fersku
minni, með hvílíkri atorku og
hvílíku öryggi Jakob stjórnaði
KEA þá fulla þrjá áratugi, sem
hann hélt um stýrið. Hann tók
við félaginu sem viðskipta- og
atvinnulegu stórveldi á íslenska
vísu. Það er vandasamt hlut-
verk að taka við svo stóru, fjöl-
þættu og blómlegu búi og verja
það áföllum í umróti tímans.
Það tókst þó Jakobi og hans
samstarfsmönnum til fullnustu
og mun sagan án alls efa kveða
upp þann dóm, að ekki hafi veg
ur Kaupfélags Eyfirðinga áður
orðið meiri eða hagur þess blóm
legri en þegar hann skilaði því
í hendur næsta manns.
Margir munu hugsa hlýtt til
Jakobs Frímannssonar á þess-
um degi, hvar sem hann er nið-
ur kominn. í þeim stóra hópi
munu eyfirskir samvinnumenn
vera fjölmennastir því þeir
munu eiga afmælisbarninu mest
upp að unna. Fyrir þeirra hönd
sendi ég Jakobi Frímannssyni
hugheilar afmæliskveðjur og
bið honum og fjölskyldu hans
farsælar á komandi árum.
Tjörn, 7. október 1974.
Hjörtur E. Þórarinsson.
TÍMINN líður áfram með sínum
þunga nið, inort sem okkur líkar
það betur eða verr, og við menn-
irnir komumst ekki Iijá því að
eldast.
í dag (7. okt.) á góðvinur okkar,
Jakob Frímannsson, 75 ára afmæli
og í því tilefni vil ég biðja blaðið
okkar, „Dag“, að flytja Iionum
innilegar hamingjuóskir á þessum
merku tímamótum ævinnar og
jafnframt með óskum um, að
liann eigi enn eftir að lifa og
starfa í mörg ár að sínum fjöl-
mörgu og víðkunnu áhugamálum
í þágu þjóðar okkar.
Kæri Jakob Frímannsson. Sem
vin og góðum félaga vil ég þakka
þér fyrir vináttu þína á liðnum
árum og einnig fyrir það að hafa
notið þeirrar gleði og gæfu að geta
verið samferðamaður Jnnn í meira
en hálfa ökl. Fyrst í Ungmennafé-
lagi Akureyrar í allmörg ár og
síðar sem eins konar starfsfélagi
hjá KEA hér á Akureyri ,og svo
að lokum undir þinni yfirstjórn
hjá Kaupfélaginu í meira en 25
ár.
Hér verður ekki rakinn uppruni
eða æviferill Jakobs Frímannsson-
ar í einstökum atriðum, svo sem
gert er í æviminningum um menn,
sem horfnir eru af athafnasvið-
inu og hnigið hafa í faðm hvíldar-
innar. Okkur öllum til ánægju,
sem enn erum hans samferða-
menn, þá býr Jakob Frímannsson
ennþá yfir miklum andlegum og
líkamlegum styrk og lílsjirótti til
starfa og Jjjónustu í Jiágu Jreirra
fjölmörgu menningar- og áhuga-
mála, sem rikt hal’a í liuga hans,
allt frá æskudögum og sem síðar
hafa hlotið eldskirn í liinum mik-
ilvægu og merku störfum hans á
liðnum áratugum.
Ungur að árum hreyfst Jakob
af hugsjónum og þjónustuvilja
ungmennafélagsskaparins. — Með
starfi sínu innan Jress félagsskap-
ar vann hann sér álit og traust
75 ára
til starfa í fremstu víglinu. Hann
aflaði sér snemma góðrar mennt-
unar innanlands og utan, en að
Javí loknu hvarf liann til starfa
lijá Kaupfélagi Eyfirðinga, fyrst
undir stjórn Sigurðar Kristinsson-
ar framkvæmdastjóra en síðar sem
aðalfulltriii og nánasti samstarfs-
maður Vilhjálms hórs framkv.stj.
félagsins til ársins 1939, en frá
þeint tíma og til ársins 1969, var
Jakob Frímannsson.
Jakob framkvæmdastjóri Ivaupfé-
lags Eyfirðinga, en hætti því starfi
er hann náði sjötugsaldrinum.
Fjölþættum og umsvifamiklum
störfum Jakobs Frímannssonar
hjá KEA, í þágu almennings á
Akureyri og hinna eyfirsku
byggða, verða ekki rakin hér,
enda mun sagan skrá Jrau á sín-
um tíma, en eins og kunnugt er,
hefur Jakob verið öll sín starfsár
sterkur Jjátttakandi í lífi og starfi
sinnar samtíðar. Þar tala verkin,
svo að um [rau störf Iians er óþarft
að hafa hér mörg orð.
Með starfi sínu fyrir samvinnu-
hreyfinguna á undanförnum ár-
um hcfur Jakob Frímannsson veitt
nýrri kynslóð góða leiðsögu, en
í því efni liefur hann verið sí-
vökull og sókndjarfur. Hann hef-
ur sýnt alkunna samviskusemi í
hverju starfi. Hann er yfirlætis-
laus, alúðarfullur og glaðsinna í
öllu viðmóti og nýtur sérstakra
vinsælda lijá öllum, sem hann á
BRÉF TIL ÓLA
HALLDÓRSSONAR
Á GUNNARSSTÖÐUM
Þótt ég sé oftast önnum kafinn
ætla ég nú að skrifa þér.
Víst er það ljótt með litla
stafinn,
að láta ei það rétta halda sér.
Uppátækið vor augu stingur.
Enda á borð við stuld og rán.
Og þú sem ert sannur
Þingeyingur
þola ei máttir slíka smán.
Til voru lög svo haldin heimsku
að hæddu þau allir góðir menn.
Þeim var hollust hjá gröf og
gleymsku
gisting fengin, og svo er enn,
Langskólamenn og landsins
pressu
langar að buga metnað vorn.
Við skulum ekki ansa þessu
og áfram nota hið stóra ÞORN.
Alúðarkveðja og þökk fyrir
viðtökurnar í sumar.
J. B. frá Garðsvík.
samskipti við. Hann er mjög skýr
í öllum málflutningi og djarfur í
skoðunum, Jíegar liann túlkar við-
liorf sitt á fundum óg í viðræðum
um málefni samfélagsins, er taka
Jiarf afstöðu til hverju sinni.
Kæri vinur, Jakob. Eg ler nærri
um Jtað, að þú munir nú vera
mér síður en svo þakklátur fyrir
ýniis Jjau orð, Jjó ekki séu mörg,
sem ég hef liér látið falla varð-
andi meðfæddar gáfur þínar og
glæsilegan árangur í starfi, Jjví þú
hefur aldrei látið mikið af Jjínum
störfum í þágu samfélagsins. —•
Hins vegar eru Jjcssí fáu orð mín
mælt og studd af langri reynslu í
gegnum samstarf liðinna ára og
eru einnig studd al' áliti samferða-
mannanna.
Jakob Frímannsson hefur verið
gæfumaður í lífi sínu og starfi,
og mun gæfa lians hafa náð há-
marki er hann, árið 1926, giftist
heitmey sinni, Borghildi Jóns-
dóttur, sem æ síðan hefur verið
lians góði og hjartfólgni förunaut-
ur á lífsgöngunni.
Þessa dagana dvelja þau Jakob
og Borghildur á hressingarhæli í
Silkeborg á Jótlandi. Eg Jjykist
vera viss um, að í dag leitar liug-
ur [reirra heim á hinar fornu og
kæru slóðir, og munu áreiðanlega,
eins og margir íslendingar, sjá
Jrað í hugsýn, að „Fögur er hlíð-
in“, og heillandi og gróðursæl er
hin gamla Akureyri, umkringd a£
kyrrlátri fegurð eyfirsku dalanna.
Kæru vinir Jakob og Borghild-
ur. Við, liinir fjölmörgu vinir ykk-
ar hér á Akureyri og í Eyjafirði,
minnumst ykkar sérstaklega á
Jjessum merkisdegi og sendum ykk-
ur innilegar hamingjuóskir, og við
munum öll gleðjast er við fáum
að sjá ykkur aftur hér lieima eftir
góða og kyrrláta hvíldardaga í
góðviðri á gömlu Jótlandsheið-
unum.
Akureyri 7/10 1974.
Jónas Kristjánsson.
TIL SÖLU:
Neðri liæð liúseignar-
innar Svalbarð,
Árskógssandi.
Ragnar Steinbergsson,
hrl. — Skrifstofan Geisla
götu 5, opin daglega kl.
5-7 e. h., sími 1-17-82.
Heimasímar:
Ragnar Steinbergsson
hrl., sími 1-14-59.
Kristinn Steinssson sölu-
stjóri, sími 2-25-36.
Fasteignasalan
RÁÐHÚSTORGI 1,
SÍMI 2-22-60.
Höfum kaujrendur að
ýmsum stærðum íbúða.
Höfum verið beðnir að
útvega einbýlishús eða
raðhiis. Góð hæð kemur
til greina.
Fasteignasalaii
RÁÐHÚSTORGI 1,
SÍMI 2-22-60.
Sami inngangur og
Norðlensk trygging.
Steindór Gunnarsson,
lögfræðingur.
OPIÐ BRÉFA TIL BÆJAR-
YFIRVALDA.
í síðasta tölublaði Dags. 18.
sept. birtist grein frá íbúum 15
ára íbúðarhverfis. Það var svo
sannarlega rétt sem um var
fjallað. Mig langaði í framhaldi
af Jjeirri grein að vekja athygli
bæjaryfirvalda á íbúðarhverfi,
sem er ekki langt frá því sem
um er talað í þeirri grein.
En þar á ég við Stórholt,
Lyngholt og jafnvel ofan í Sand
gerðisbót. Þar sýnist mér allt
vera í ósómanum. Þar er aldrei
hreyft við neinu til bóta, fúll
lækur rennur Jjar meðfram vegi
a. s. frv.
En við fyrrnefndar götur
þrífst ekki gróður í görðum svo
vel sé, runnar visna á miðju
sumri vegna sjávarseltu, því
vatnsbíllinn færir okkur ekkert
annað en sjó. Hér er orðin mikil
umferð af ýmsum ástæðum og
vatnsbíllinn kemur hér kannski
oftar en í þær götur, sem um-
ferð er minni, enda eru runnar
þar ennþá í blóma.
Svo er ljað barnaleikvöllur-
inn hér, hann er áreiðanlega
LÖGM ANN SHLf Ð ARKIRK JU
hefur borist fögur minningar-
gjöf. Er Jjað ljóskross á turn
kirkjunnar, en slíkir krossar
eru víða á kirkjutumum. Gjöf-
in er gefin til minningar um
Sigurð Árna Sigurðsson, sem
lengi bjó á Þyrnum í Glerár-
þorpi, og fyrri konu hans, Sig-
ríði Árnadóttur, ennfremur
hjónin Þórkötlu Jónsdóttur og
Jakob Guðmundsson frá Hjarð-
arholti.
Gjöfin er gefin í tilefni þess,
að 7. október s.l. var 100 ára
afmælisdagur Sigurðar Árna
Sigurðssonar. Hann fæddist 7.
okt. 1874 og dó 7. september
1947. Gefendur eru börn,
tengdabörn og seinni kona Sig-
urðar Árna, Guðrún Hálfdánar-
dóttir, Lyngholti 8, Akureyri.
Ljóskrossinn verður settur á
kirkjuna í þessari viku og
kveikt á honum við guðsþjón-
ustu á sunnudaginn kl. 2 í Lög-
mannshlíðarkirkju. — Gefend-
Bifreióir
Til sölu Ford Bronco
árg. 1966.
Sími 1-21-77.
Glæsilegur amexískur
bíll til sölu, sjálfskipt-
ur. Selst ódýrt ef samið
er strax.
Uppl. í síma 1-21-59.
Til sölu rússajeppi með
díselvél.
Uppl. gefur Gunnar
Kristjánsson,
Dagverðareyri.
Til sölu er Land Rover
dísel árg. 1972.
Ekinn 40.000 km.
Lítur vel út, ný dekk.
Uppl. í síma (96) 22634.
Lítið ekinn Citroen til
sölu, árg. 1972, gerð
D súper.
Uppl. í sítna 1-12-49
eða 1-15-09.
eitt af olnbogabörnum leikvalla
hér í bæ. Þar eru að vísu nauð-
synlegustu leiktæki, en þar er
líka fleira, t. d. glerbrot á víð
og dreif og rusl út um allt. Þetta
er svo ljótt að sjá að því verður
varla með orðum lýst. Aldrei
hef ég séð neinn koma og líta
eftir þessum leikvelli í allt
sumar. Hvernig er með öll skóla
börnin sem eru í sumarvinnu?
Er þar ekki nægur vinnukraft-
ur? Er það út af manneklu sem
þetta er vanrækt?
Eins og allir vita er Akur-
eyri alltof fallegur bær til þess
að svona ljótleiki megi þrífast
hér. Og í guðanna bænum, góðu
menn sem ráðið, finnið þið
lausn á því að börnin slasist
ekki á glerbrotum á leikvelli, og
að hægt sé að rækta tré og
runna hér sem annars staðar í
bænum. Við hér fyrir utan
Glerá og neðan Hörgárbrautar
borgum okkar gjöld til bæjarins
eins og aðrir. En við erum látin
afskiptalaus. HVERS VEGNA?
um eru færðar bestu þakkir fyr
ir þessa fögru gjöf til kirkjunnar
og Guð blessi minningu hinna
látnu ástvina þeirra, sem gjöfin
er gefin til minningar um.
Sóknarprestar og sóknamefnd.
RÆTT UM NÝJA
SORPEYÐINGARSTÖÐ
Á SÍÐASTA bæjarstjórnar-
fundi urðu nokkrar umræður
um sorpeyðingu bæjarins vegna
tillögu Tómasar Inga Olrich.
Að umræðum loknum var sam-
þykkt eftirfarandi tillaga frá
Val Arnþórssyni og Ingólfi
Árnasyni:
„Bæjarstjórn Akureyrar sam
þykkir að fela bæjarverkfræð-
ingi að ljúka við gerð frum-
áætlunar um stofn- og reksturs
kostnað sorpmölunarstöðvar, og
jafnframt verði gerð samskonar
áætlun um sorpbrennslustöð
fyrir Akureyrarbæ.
Skal frestur til að gera áætl-
unina við Jjað miðaðaur, að
unnt verði að taka tillit til henn
ar í fjárhagsáætlun fyrir árið
1975.“ □
ÞEGAR Flugfélag íslands hóf
sólarferðir til Kanaríeyja í árs-
lok 1970 varð fljótlega ljóst, að
mikill áhugi var fyrir vetrar-
orlofi í sól og sumri, að margir
myndu notfæra sér þessa þjón-
ustu, þegar fram í sækti. Sú
hefur einnig orðið raunin á og
þrátt fyrir nokkra örðugleika í
byrjun hvað áhrærði gistingu á
Kanaríeyjum, Jjá hafa þessar
ferðir átt ört vaxandi vinsæld-
um að fagna, enda hefur gisti-
aðstaða batnað ár frá ári með
auknum viðskiptum og betri fót
festu á hótelmarkaði eyjanna.
í haust munu Kanríeyjaferðir
Flugfélags Islands og Loftleiða
hefjast þann 31. október, en alls
eru áætlaðar 17 ferðir til Kanarí
eyja í vetur. Sú breyting verður
á ferðatilhögun, að flogið er nú
frá íslandi að morgni fimmtu-
dags og komið til Kanaríeyja
kl. 14.00. Hópur, sem er á heim-
ÞANN 14 september síðastlið-
inn var til moldar borin frú Jó-
fríður Þorvaldsdóttir frá Hálsi
í Svarfaðardal, þá á 81. aldurs-
ári, og var hún jarðsett að Völl-
um í Svarfaðardal við hlið eigin
manns síns Þorsteins Þorsteins-
sonar, sem látist hafði fyrr á
árinu eða þann 17. apríl og verið
jarðaður þar. Prófasturinn Stef-
án Snævarr jarðsöng. Fjöl-
menni var við báðar þessar jarð
arfarir, því að þessi hjón höfðu
áunnið sér aðdáun og hylli sam
borgara sinna í Svarfaðardal og
víðar, vegna ágætrar frammi-
stöðu í búskaparmálum sveitar-
innar og margháttaðrar lið-
veislu, bæði vegna útvegsmála
og á ýmsan annan hátt, og vildu
þessvegna votta þeim virðingu
sína og þakklæti með því að
fylgja þeim til hinnar hinstu
hvíldar.
Ég tel mér skylt með nokkr-
um orðum að minnaast þessara
ágætu hjóna bæði af því að [jau
voru nágrannar mínir í æsku,
og þá ekki síður vegna þess,
hve síðari kynni urðu framúr-
skarandi góð.
Frú Jófríði þekkti ég ágæt-
lega allt frá því að við vorum
smákrakkar, sem einfaldlega
kom til af því, að við áttum svo
margt sameiginlegt, við vorum
samsveitungar og þar að auki
systrabörn, þá vorum við lær-
dómsfélagar í undirbúningi að
fermingu og svo vorum við
fermd samtímis, eða vorum
fermingarsystkini, en sú athöfn
fór fram í Stærriárskógskirkju
á Hvítasunnudag vorið 1908.
Hinsvegar kynntist ég Þor-
steini ekkert í æsku. Hann var
sem sé nokkru eldri en ég, og
svo var hann hinumegin við
hálsinn og það gerði skilsmun-
inn, ég heyrði hans bara getið
sem fóstursonar Hálshjónanna,
og því líklegan til þess að verða
bóndi þar þegar hann hefði ald-
ur til.
Eftir ferminguna slitnuðu
tengslin milli okkar Jófríðar um
langt árabil, eða þar til árið
1949 að ég heimsótti húsfreyj-
una á Hálsi og mann hennar,
ásamt með konu minni Margréti
og var okkur tekið eins og alda-
vinum og boðið allt það besta,
sem heimilið hafði að bjóða, og
síðan höfum við heimsótt þetta
sómafólk á hverju sumri og
stundum oft og ávalt mætt vel-
vild og ljúfmennsku.
Það fór heldur ekki framhjá
neinum, sem kom að Hálsi, að
þar ríkti samhugur og eining
og sást það best á því, hversu
leið leggur af stað frá Kanarí-
eyjum kl. 16.00 og kemur til
Keflavíkur kl. 22.00. Millilent
verður í Glasgow í þessum ferð
um, en þar fara áhafnaskipti
fram. Flestar ferðirnar verða
flognar með Boeing 727 Jjotum
Flugfélagsins, en fjórar ferðir
verða flognar með DC—8 þotum
Loftleiða á þeim tímum, sem
mest eftirspurn er eftir ferðum
til Kanaríeyja, en það er í des-
ember og í janúar. Gisting á
Kanaríeyjaferðum flugfélag-
anna verður sem áður í smá-
hýsum, íbúðum og hótelíbúðum
eða á hótelum, og eru verð og
aðbúnaður við allra hæfi. Þá
hefur verið opnuð skrifstofa á
Kanaríeyjum til þess að greiða
fyrir farþegum. Skrifstofan er
á jarðhæð á besta stað á Playa
del Ingles og verður opin á skrif
stofutíma. Auk þess munu farar
stjórar heimsækja ferðafólkið,
börnin sem þau eignuðust hænd
ust að heimilinu og létu sér
annt um það sem Jjar gerðist,
jafnvel þótt þau væru orðin
sjálfstæðir einstaklingar í öðr-
um byggðarlögum og barnabörn
in sögðu að gott væri að vera
hjá afa og ömmu.
Eftir því sem ég kemst næst,
kom enginn svo að Hálsi, að
honum eða henni væri ekki lið-
sinnt ef þurfa þótti og hægt var
og góðgerðir í mat og drykk
alveg taldir sjálfsagðir hlutir.
En oft mun Jófríður hafa átt
í erfiðleikum þegar bóndinn var
fjarverandi, en það skeði æði
oft, að minnsta kosti fyrst fram-
an af.
Þorsteinn var sem sé mjög
hneigður fyrir smíðar og var
mjög handlaginn við þá iðju.
Hann lærði ungur bátasmíðar
og var því gjarnan, þegar bú-
skaparannir leyfðu, ýmist niðri
á Dalvík, úti í Hrísey, eða kann-
ske annarstaðar við bátasmíðar
eða viðgerðir á bátum og má þá
nærri geta að konan hefur Jjurft
að beita sér til þess að halda
öllu gangandi. Að sjálfsögðu
gekk þetta allt greiðlegar þegar
börnin stækkuðu og gátu farið
að hjálpa til, en það verður ekki
af Jófríði skafið, að henni lét va|
að stjórna búinu þótt bóndinn
væri fjarverandi, og sýndi með
því að hún var mikil búkona.
Aldrei sá ég vín haft um hönd
á heimilinu og hvorugt hjónana
reykti, og bar það óneitanlega
mjög ljósan vott þess hve heil-
brigðisjjjónustan og reglusemin
voru mikils metnar og vafalaust
hefur Jófríður átt stóran þátt í
því að sá háttur var hafður á
á Hálsi, enda var það helsta
leiðbeina því, og hjálpa því til
að komast í lengri eða skemmri
útsýnisferðir. Svo og greiða fyr
ir Jjví að öðru leyti. Aðalfarar-
stjóri verður sem áður Guð-
mundur Steinsson. Hann hefur
starfað fyrir Flugfélag íslands
á Kanaríeyjum frá upphafi
ferða þangað, en starfaði áður
að slíkum málum á Spáni og
víðar. Um það leyti er sólar-
ferðir til Kanaríeyja hófust
dvöldu um það bil helmingur
farþega í höfuðborginni ó Gran
Canaria, Las Palmas. Þróunin
hefur hins vegar orðið sú, að
fleiri og fleiri kjósa að dvelja á
suðurhluta eyjarinnar, Playa
del Ingles, sem er að öðru jöfnu
sólríkari. Þó eru allmargir, sem
kjósa frekar að dvelja norður
frá, njóta hins fjöruga næturlífs
borgarinnar. Ferðir milli stað-
anna eru tíðar.
(Fréttatilkynning Flugleiða)
ákvæði ungmennafélaganna, en
hún var ein af þeim, að hindra
áfengisneyslu eða drykkjuskap
og tóbaksnautn hjá þjóðinni og
mun hún hafa staðið þar traust-
an vörð til hinstu stundar.
Frú Jófríður var talin mikil
fríðleikskona, nettvaxin, tæp-
lega meðalhá og grannleit með
falleg, blágrá augu og brosti ein
staklega fallega og það garði
hún oft. Þessum fríðleika hélt
hún alveg ótrúlega v.el eða Jjann
ig, að á 80 ára afmælisdegi henn
ar ætluðu þeir, sem ekki vissu
fyrr, að trúa því að aldur henn-
ar væri orðinn svona hár. Hún
gat verið prýðilega ræðin ef því
var að skipta og lét þá ekki eiga
hjá sér í orðavali.
Þorsteinn aftur á móti var
hár og grannur og beinvaxinn,
oftast alvarlegur, hlédrægur og
fáorður, þungur fyrir ef á móti
var mælt, en einkar alúðlegur
ef betur lét og brosti þá stund-
um. Segja má að þessi hjón hafi
verið andstæður í lundarfari, en
eru það ekki einmitt andstæð-
urnar sem oft tengjast sterk-
ustu böndunum, eða svo hefur
mér að minnsta kosti virst og
má benda á mörg dæmi því til
sönnunar.
Jófríður Þorvaldsdóttir var
fædd 21. sept. 1893 á Hellu á
Árskógsströnd dóttir búandi
hjóna þar, Soffíu Jóhannsdótt-
ur og Þorvaldar Vigfússonar, og
ólst hún þar upp við iðjusemi
og reglusemi, ósamt allstórum
systkinahópi framyfir fermingu
en frá þeirri athöfn er áður sagt.
Árið 1910 eða 1911 hætti móðir
hennar búskap á Hellu, Jjá fyrir
löngu orðin ekkja og farin að
heilsu og varð Jófríður Jjá að
sjá um sig sjálf. Réði hún sig
þá að Ósi í Möðruvallasveit og
var þar nokkur ár. Vistaðist þar
næst að Hálsi í Svarfaðardal og
mun það hafa verið vorið 1914.
Haustið 1915 kom Jófríður til
Akureyrar til þess að læra fata-
saum og var þá trúlofuð Þor-
steini Þorsteinssyni fóstursyni
hjónanna á Hálsi og svo giftu
þau sig vorið eftir, eða þann
27. maí 1916.
Þorsteinn Þorsteinsson á
Hálsi, sem fullu nafni hét Þor-
steinn Elías Þorsteinsson, var
fæddur í Syðri Haga á Árskógs-
strönd fyrsta febrúar 1889, son-
ur hjónanna Ágústu Guðmunds
dóttur og Þorsteins Vigfússon-
ar, sem síðar varð þekktur und-
ir nöfnunum Þorsteinn í Rauðu
vík eða Þorsteinn selaskytta.
I janúar 1893 missti Þorsteinn
móður sína, þá tæplega fjögurra
ára gamall, og var Jjá tekinn til
fósturs af hjónunum á Hálsi í
Svarfaðardal, Guðrúnu og Jóni,
eins og áður er frá sagt, ásamt
með tveim öðrum systkinum
Þorsteins, Elínu og Gunnlaugi,
en Guðrún og Ágústa voru syst-
Akureyri, 22/9 1974.
Virðingarfyllst,
Húsmóðir.
Fögur minningargjöf
Þorsteinn Þorsteinsson og Jófríður Þorvaldsdóttir á Hálsi.
ur. Þorsteinn ólst síðan upp sem
fóstursonur hjónanna á Hálsi
enda átti hann þar heima alla
tíð síðan. Hann var fermdur í
Vallakirkju 31. maí 1903 a£
sóknarprestinum, séra Stefáni
Kristinssyni.
Eftir ferminguna mun Þor-
steinn hafa unnið að búverkum
á Hálsi eins og sjálfsagt þótti í
þó daga, en löngun til að læra
smíðar mun snemma hafa gert
vart við sig hjá Þorsteini, sem
svo varð til Jjses að hann lærði
bátasmíði og mun faðir hans,
scm var bátasmiður, hafa veitt
honum tilsögn í Jjeirri iðn, og
þar sem pilturinn var námfús
og fljótur að læra varð hann
brátt ágætur bátasmiður og
vann síðan við það af kappi þeg
ar búsumstang leyfði. Ekki hefi
ég getað komist að Jjví hversu
marga bóta Þorsteinn smíðaði,
en þeir voru margir. Þann 27.
maí 1916 giftist hann Jófríði Þor
valdsdóttur eins og áður er frá
sagt.
Síðan þetta skeði er nú liðinn
langur tími. Ungu hjónin á
Hálsi tóku við búsforráðum
ekki löngu eftir að þau giftu
sig. Þau hafa búið rausnarbúi
Jjar síðan, bætt jörðina, aukið
bústofn og endurbyggt húsá-
kost og verið sveitarprýði í allri
umgengni, ennfremur hafa [jau
lagt byggðarlaginu og þjóðinni
til 9 mannvænleg börn sem öll
hafa orðið ágætir þjóðfélags-
þegnar, og verður ekki annað
sagt en að það sé vel af sér vik-
ið, og þrátt fyrir allt umstang
sem óhjákvæmilega fylgir stór-
um barnahópi auk annarra
skyldustarfa, gaf frúin sér tíma
til að sinna kvenfélagsmálum í
sveitinni og inna þar af hendi
miskunnarverk ef svo bar und-
ir.
Börn þeirra eru þessi:
Guðrún, nú húsfreyja á Hálsi;
Þorsteinn, verkstjóri hjá Slipp-
stöðinni á Akureyri; Áslaug,
ekkja á Akureyri; Þorvaldur,
bústólpi foreldranna á Hálsi;
Soffía, húsfreyja, nú dáin; Jón,
bifvélavirki í Reykjavík; Anna,
húsfreyja á Akureyri; Guð-
mundur, húsasmiður og organ-
isti, og Gerður, bústýra í
Reykjavík.
Árið 1966 áttu þessi ágætu
hjón 50 ára hjúskaparafmæli,
og hafði Jjá verið ákveðið að þau
hættu bústjórn. Þorsteinn hafði
Jjá kennt sér nokkurs lasleika
undanfarið, kominn hátt á átt-
ræðisaldur og slitinn af vinnu
og konan á áttræðisaldri líka.
Tóku þá við bústjórninni dóttir
þeirra, Guðrún, og maður henn-
ar, Friðrik Magnússon, ásamt
með Þorvaldi, sem verið hafði
bústólpi foreldranna frá því að
hann hafði getu til.
Um mánaðamótin mars-apríl
síðastliðin veiktist Þorsteinn og
var fluttur á spítalann á Akur-
eyri og Jjar dó hann eftir stutta
legu eða þann 17. apríl. Konan,
sem einnig þá hafði orðið nokk-
urs sjúkleika vör, hélt þó velli
þar til í ágústmánuði, að hún
veiktist hastarlega, var flutt á
sjúkrahúsið á Akureyri og lést
þar eftir um það bil mánaðar-
legu, eða þann 8. september síð-
astliðinn, þrátt fyrir það, að
allt var gert sem hægt var henni
til bjargar.
Þarmeð eru þessi ágætu hjón
komin á svið forfeðranna, en
þau hafa skilið eftir minningar
. sem ekki munu gleymast þeim
er til þekktu.
Við hjónin kveðjum þau með
djúpri virðingu og þökk, og að-
standendum sendum við inni-
legar samúðarkveðjur.
Egill Jóhannsson,