Dagur - 09.10.1974, Blaðsíða 8
AUGLVSINGASÍII
UR
Akureyri, miðvikudaginn 9. okt. 1974
j
NÝKOiVllÐ g L GÚLLSIVÍIÐIB ’
ÚRVAL AF f/jj SiGTRYGGÚR
GULLVÖRUIVl 1J 8í. PÉTÚR •
yT l/ r' ;T
N— 5 AKUREYRI 1
& S.l. laugardag afhenti Kiwanisklúbburinn Kaltíbakur 250 þúsund krónur í hjartabílsöínunina
<?>
^ og er meðfylgjandi mynd tekin er Stefán Gunnlaugsson forscti Kaídbaks afhenti Guðmundi
4 Biönda! gjöfina. Aðrir á myndinni erli, Khvan isfélagarnir (f. v.) Haraldur Sveinbjörnsson,
% Otto Tuíinius, Sævar Vigfússon og Sigurjón Þorvaldsson. (Ljósm.: Fr. Vestm.).
<$X$><»^<$>^^X^<^<^<J>^^X$X^X$K$X$X$K$>^X$X$X$><JXÍXÍX$>^X^<Í^X$><$X$X$><$>^<Í>^><$X$X^>^X$X$XJ><$^XÍXÍXJ><^<$X5XÍXÍXÍ>^
Á LAUGARDAGINN var nýtt
barna- og unglingaskólahús vígt
á Hofsósi. Er það fyrsti áfangi
af fleiri fyrirhuguðum, og eiga
skólann þrír hreppar: Hofs-
hreppur, Hofsóshreppur og
Væn iömh írá
Brúnastöðum
Sauðárkróki 7. október. Sigurð-
ur Sigurðsson á Brúnastöðum í
Lýtingsstaðahreppi lagði nýlega
inn 137 dilka og fóru allir í
fyrsta flokk og var meðalvigt
þeirra 20,9 kg. Mun þetta með
eindæmum, enda bóndinn mik-
ill fjárræktarmaður og fyrir-
myndar bóndi.
Þyngsta dilkinn, 32,4 kg, átti
Símon Traustason, Ketu í Hegra
nesi. Sauðfjárslátrun stendur
enn yfir hjá Kaupfélagi Skag-
firðinga. G. Ó.
BANASLYS Á DALVÍK
AÐFARANÓTT 5. október varð
dauðaslys hér á Dalvík. Sjómað
ur, að nafni Þorleifur Kristinn
Arnason, Karlsbraut 12, var að
ganga yfir götuna og heim til
sín, varð fyrir bíl og lést sam-
stundis. Hann var ókvæntur og
barnlaus. V. B.
Fellshreppur. Nemendur verða
115 talsins. Skólastjóri er Garð-
ar Jónsson, fastir kennarar 6 og
stundakennarar að auki.
Þessi byggingaráfangi mun
kosta um 27 milljónir króna,
642 fermetrar að stærð með 5
kennslustofum og öðru nauð-
synlegu húsrými. Þetta mun
fyrsti skólinn, sem byggður er
með hliðsjón af hinum nýju
fræðslulögum.
Skólabörn verða flutt heim og
heiman. Við erum mjög ánægðir
með nýja skólann, sagði Óli M.
Þorsteinsson á Hofsósi er blaðið
Hrísey 8. október. Okkur líður
ljómandi vel í Hrísey, því allir
eru friskir og brattir það ég
veit, enda kemur Eggert Bríem
læknir á Dalvík hingað rcglu-
lega. Hann er ljómandi maður
og heldur viö heilsunni, er ný-
kominn núna og er þessa stund-
ina að hressa upp á mannskap-
inn, sem hans þarf að leita.
Menn fara á sjó þegar gefur.
Fjórir bátar eru ó snurvoð, þrír
á línu og þegar vel viðrar fara
menn á trillunum og renna
færi. Alltaf reitist eitthvað, en
heilt yfir má -segja, að afli sé
tregur. Okkur vantar alltaf fisk
og það er nú það eina, sem okk-
Állt er á kafi í snjó
FRÉTTIR bárust af því í norðan
hríðinni á dögunum, að allt
hefði farið á kaf í snjó á fremstu
bæjum Svarfaðardals. Þar var
mikill og jafnfallinn snjór, um
eins meters djúpur. Var þá jarð
laust fyrir allar skepnur og
nokkrum erfiðleikum bundið að
koma sláturfé til Dalvíkur
vegna snjóanna, en slátrun var
hraðað á þessum bæjum vegna
hinna óvenjulegu aðstæðna.
Nú hefur snjóa leyst svo, að
ekki er nema snjóhrafl eftir á
láglendi, þar sem mestur snjór-
inn féll.
Margir bændur voru uggandi
yfir því í haust, að ekki yrði
unnt að koma öllum nautgrip-
um í hús ef veður spilltust
snemma. Sú varð og raunin á,
þar sem svo mikið er nú víða
af geldneytum. En hey eru hvar
vetna næg og skjól finnast einn
ig, svo ekki mun þetta hafa
komið að sök.
Nautgripaslátrunin hefst að
sauðfjárslátrun lokinni. Q
leitaði frétta hjá honum á mánu
dagsmorguninn. Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra var meðal gesta. Óli sagði
ennfremur: Hofsós er nú að rísa
úr öskustónni. Hér hefur verið
ágæt atvinna í tvö ár og afkoma
fólks ólíkt betri en hún áður
var, enda vill nú unga fólkið
gjarnan setjast hér að. Eru nú
sex íbúðarhús í byggingu og í
haust verður byrjað á tveimur í
viðbót. Það er allt ungt fólk,
sem nú er að byggja. Það mátti
heita hér eymdarástand, en nú
hafa orðið þáttaskil.
ur vantar tilfinnanlega. En það
vantar líka mikið þegar fiskinn
vantar. Allt getur þetta þó stað
ið til bóta.
í hretinu varð jörð alhvít en
ekki mikill snjór og er hann
að mestu farinn.
Skólinn er byrjaður, nemend
ur um 60 talsins og við hann
starfa fjórir íastir kennarar.
Dalvíkurrútan hefur nú
minnkað þjónustu sína. Hún
kom niður á Litla-Árskógssand
þrisvar til fjórum sinnum á
viku í sumar og Hríseyjarferj-
an fór þá jafnframt til lands.
Nú eru ferðir ekki nema tvær
á viku og þykir okkur það held
ur lítið og erum við ekki ánægð
ir með það.
í morgun sátu ellefu rjúpur
rétt við húströppurnar hjá mér
þegar ég kom út og rótuðu þær
sér ekki er ég gekk hjá þeim,
áleiðis til vinnu minnar.
Það eru heilar breiður af rjúp
um á eynni nú í haust og þær
eru að verða talsvert hvítar, og
ósköp gæfar eru þær. Þær eru
mikið í görðunum lieima við
húsin og una sér vel þar. Fálk-
ar virðast hér mun fleiri en áð-
ur og eru rjúpurnar þeim auð-
veld bráð eins og allir þekkja.
Stundum fljúga rjúpnahópar
undan fálka hér inn á milli
húsa, en fálkinn hverfur þá frá
Síminn lélegur í Valnsdal
Ási í Vatnsdal 7. október. Mikið
ólag er á símanum í þessari
sveit og getur skapast af því
hálfgert neyðarástand. Línurn-
ar eru gamlar og ónýtar og
þriðjungur sveitabæjanna eru
öðru hverju símasambandslaus-
ir. Fólk verður að aka langan
veg til að reka almenn erindi,
sem annars væri hægt með því
að nota símann, og sjá allir hve
mikið ófremdarástand þetta er,
og skjótra úrbóta þörf.
Okkur' vantar fólk til starfa
við sauðfjárslátrunina, því skóla
fólkið, sem þar hefur unnið,
hefur verið að hverfa til skóla
sinna, en örðugt reynist að fá
fólk til að fylla í skörðin. Fá-
mennt er á sveitaheimilunum,
svo ekki er gripið upp fólk þar,
þótt á þurfi að halda. G. J.
ígætor kynningarfundur
liiá A.A.‘Samlökunum
SL. laugardag héldu A.A.-sam-
tökin á Akureyri kynningar- og
útbreiðslufund að Hótel Varð-
borg. Þessi fundur verður við-
stöddum ógleymanlegur fyrir
margra hluta sakir. Þarna voru
mættir félagar af Suðurlandi
frá þrem deildum, og fluttu þeir
hreinskilnar og hjartaskerandi
ræður um það böl, sem áfengið
hafði leitt yfir þá og heimili
þeirra. Sorg, smán og niðurlæg-
ing hafði orðið hlutur þeirra í
fylgd Bakkusar. Loks kom að
því að augu þeirra opnuðust,
flestra vegna kynna við félags-
skap A.A., samtök þeirra, til
sjálfsbjargar, er lotið höfðu í
lægra haldi fyrir víni. Hrein-
skilni og kjarkur þessara manna
var virðingarverður, mælska
þeirra og fögnuður yfir unnum
sigri dásamleg. Þeir sögðu
nokrar setningar, sem. mótast
hafa og orðið ályktunarorð, eft-
ir dýran reynsluskóla, t.d.:
Áfengi er ekki framleitt fyrir
mig. Ég hef ekki skapstyrk til
að stjórna drykkju minni, þess
því hann óttast mennina meira
en rjúpan. Rjúpan á sér marga
vini meðal Hríseyinga og falleg
er hún núna. S. F.
SÓLBERG í FYRSTU
VEIÐIFERÐINNI
Ólafsfirði 4. október. Nýi skut-
togarinn, Sólberg, fór í sína
fyrstu veiðiför s.l. þriðjudag.
Virðist allt í besta lagi og geng-
ur veiðin eftir atvikum vel.
Ólafur Bekkur kom inn á
þriðjudagsmorgunn með 70
tonn fiskjar, en að því loknu
fór hann í botnhreinsun á Ak-
ureyri. Veiði hefur verið treg
undanfarið, enda lítt á sjó gefið
þar til nú síðustu daga. B. S.
vegna tek ég ekki staup. Vín er
ekki fyrir mig. Þeir geta ekki
snúið baki við fortíð sinni og
hætt að drekka. Þeir segja að-
eins: Ég ætla að reyna með
guðs hjálp og góðra manna, með
eigin veikum vilja — að neyta
ekki víns í dag. — Nýr dagur
kemur og fyrirheitið er endur-
tekið. Og stenst.
A.A.-samtökin hafa hjálpað
ótrúlega mörgum út úr víta-
hring drykkjuskapar, reist úr
rústum lífshamingju einstakl-
inga, heimila þeirra og nánustu
samferðamanna. Þetta skilja að-
standendur og að drykkju-
hneigð er sjúkdómur, sem
lækna þarf; þeir hafa því stofn-
að félagsskap, „Alanon“, til að
styðja við bak hinna veiku og
efla skilning á vandamálum
þeirra. Þann félagsskap geta all-
ir fyllt, sem vilja styðja við
brákaðan reyr. Þeir, sem eiga
við áfengisvanda að stríða höfðu
gott af því að sækja þennan
fund. Við hin „sterku“ höfðum
einnig mikið að læra þar. —
Fundurinn var sem betur fór
nokkuð vel sóttur. Hafi þeir
þökk, sem að honum stóðu.
XX.
DR. AÐALBJÖRN
KRISTJÁNSSON
AÐALBJÖRN Kristjánsson
varði doktorsritgerð sína við Há
skóla íslands 8. september, en
heimspekideild hafði áður met-
ið hana hæfa til doktorsvarnar.
Ritgerðin fjallaði um Brynjólf
Pétursson, ævi og störf. And-
mælendur voru Bergsteinn Jóns
son og Björn Þorsteinsson.
Dr. Aðalbjörn Kristjánsson er
ættaður úr Köldkinn, bróðir
Árna heitins Kristjánssonar
menntaskólakennara á Akur-
eyri. □
Dagur
kemur næst út 16. október.
SAMKVÆMT símtali við Þór-
ólf bónda í Stórutungu í Bárð-
ardal hefur eitthvað af fé fennt.
Hann sagði: Það fennti nokkuð
af fé en sumt er skriðið úr fönn
og liggur enn ekki ljóst fyrir,
hvernig heimtur eru. Ennþá
vantar nokkuð af fé. Enn er
snjóhrafl og var jarðlaust um
skeið. Féð reynist heldur lélegt,
enda búið að fara illa undan-
farnar vikur.
Enn eru hey úti og á sumum
stöðum mikil. Það hefur ekki
þornað á strái í margar vikur
og heyin því illa farin og sum
alveg ónýt. Búið er að fara í
þrennar göngur og er leitum
þó ekki lokið.