Dagur - 27.11.1974, Side 1
AGU
LVU. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 27. nóv. 1974 — 52. tölublað
FILMUhúsis akureyri
ORYGGISBELTI
Á TOGURUM
ÖRYGGISBELTI hafa verið
tekin í notkun á öllum togurum
Útgerðarfélags Akureyringa. hf.
Áki Stefánsson skipstjóri tók
þau fyrst í notkun á Sólbaki.
Þykir þessi nýjung, einkum
eftir að beltin og línurnar voru
endurbættar hér af skipstjórum
Ú. A., veita aukið öryggi um
borð og minnka slysahættu. □
NORÐURVEGUR
KOSTAR
5-7 MILLJARÐA
NÖRÐURVEGUR, þ. e. vegur-
inn milli Akureyrar og Réykja-
víkur með varanlegu slitlagi
hefur verið til umræðu á Al-
þingi. Á því svæði, sem v.egur-
inn liggur um, búa nú um 30
þúsund manns, þegar íbúar
Reykjavíkur og Suðurnesja eru
frá taldir.
Talið er, að sú vegagerð sem
hér um ræðir kosti milli 5 og 7
milljarða króna. Flutningsmenn
þessa máls á Alþingi telja æski-
legt, að framkvæmdin verði
hafin strax á næsta ári og væri
þá þegar hægt að setja varan-
légt slitlag á nokkra þá vegar-
kafla, sem þegar eru undir-
búnir til þess.
Frá 16. flokksþin
•iiianna
ÞRIGGJA DAGA flokksþingi
framsóknarmanna, sem hófst í
Reykjavík 17. nóvember, var að
vonum veitt mikil athygli og sú
athygli var bæði flokksfólki og
landsbyggðarfólki ánægjuleg.
Þingið var óvenju fjölmennt,
þar voru nú miklu fleiri konur
Dalvík, 2G. nóvember. Leikfélag
Dalvíkur er byrjað að æfa sjón
leikinn Hart í bak eftir Jökul
Jakobsson. Leikstjóri er Jóhann
Ögmundsson. Form. Leikfélags
Dalvíkur er Halla Jónasdóttir.
Skíðafélagið hefur staðið að
endurbótum á skíðaaðstöðu í
Böggvisstaðafjalli í haust. Búið
er að flytja togbrautina á betri
stað og lagfæra hús, sem félagið
á þar. Bíða skíðamenn svo eftir
snjónum. Formaður félagsins er
Jón Halldórsson.
Lionsmenn á Dalvík unnu við
það í nótt al skipa út saltfiski
og láta þeir kaup sitt við þessa
vinnu renna til starfsemi félags
síns.
Margir freista gæfunnar við
rjúpnaveiði, en lítið er um
rjúpu og koma flestir með litla
veiði að kveldi. V. B.
en áður hefur tíðkast og unga
fólkið fjölmennti. Að þessu
sinni eru það þó ekki alþingis-
kosningar, sem örvuðu til þátt-
töku, svo sem oft hefur verið,
heldur hinn almenni stjórnmála
áhugi. Vinstri stjórnin opnaði
augu almennings um land allt
meira og betur fyrir því en
nokkru sinni fyrr, að byggða-
stefna Framsóknarflokksins í
verki, olli algerum straumhvörf
um í framfarasókn og atvinnu-
öryggi á landinu öllu á þriggja
ára valdaferli sínum undir for-
sæti formanns Framsóknar-
flokksins, Ólafs Jóhannessonar.
Þá var stigið stórt skref í land-
helgismálinu og fiskiskipastóll
landsmanna efldur, og er það
kunnara en frá þurfi að segja.
Þótt hér sé ekki rúm til að
rekja ályktanir sextónda flokks
þingsins í heild, fara hér á eftir
stuttir kaflar úr stjórnmála-
ályktuninni:
Úrslit kosninganna 1971 urðu
þau, að flokkar viðreisnarstjórn
arinnar svonefndu misstu meiri
hluta á þingi og mynduð var
stjórn fyrrv. stjórnarandstæðu-
flokka undir forystu Ólafs J-
hannessonar formanns Fram-
sóknarflokksins. Stjórn Ólafs
Jóhannessonar markaði þátta-
skil í sögu landsins. Stjórnin hóf
alhliða framfarasókn, en hæst
af verkum hennar ber þó út-
Fyrsti togarinn
50 niílna niarkanna
VARÐSKIPIÐ Ægir, skipherra
Guðmundur Kjærnested, tók
þýska togarann Arcturus BX
ÞETTA nafn ber nýútkomin
bók, sem þegar er komin í bóka
búðir. Það er bókaútgáfan Ice-
land Riview, sem stendur að
útgáfu bókarinnar á ensku en
Bókaforlag Odds Björnssonar á
Akureyri er útgefandi íslensku
bókarinnar, undir nafninu Akur
eyri og norðrið fagra.
Textann skrifaði Kristján frá
Djúpalæk, en Gísli B. Björns-
son hannaði bókina, sem hefur
auk þess að geyma 74 litmyndir
og nokkrar svarthvítar 16 ljós-
myndara. Flestar eru myndirn-
ar frá Akureyri og nágrenni,
en einnig eru þar myndir
fagurra staða í Þingeyjarþingi.
Bókin er prentuð í Hollandi,
bæði enska og íslenska útgáfan.
May og Hallberg Flallmundsson
sneru íslenska textanum á
ensku.
Flin nýja bók er einstaklega
fögur og á kynningarbók sem
þessari var mikil þörf.
ísland Reviw, en ritstjórar
eru Heimir Iiannesson og Har-
aldur Hamar, hafa áður gefið
út margar fagrar landkynningar
bækur, sem hlotið hafa mikla
viðurkenningu heima og er-
lendis. Heimir, Gísli B. Björns-
son og Geir S. Björnsson
kynntu hina nýútkomnu bók á
fundi með blaðamönnum á
Hótel KEA á mánudaginn. Voru
viðstaddir sammála um nauð-
syn þessarar bókar og luku á
hana lofsorði. Áður hafa komið
út í þessum flokki almenn ís-
landsbók, bók um eldgosið í
Vestmannaeyjum, Reykjavíkur
bók. Samtímis Akureyrarbók-
inni kemur út bók er kynnir
Ásmund Sveinsson og listaverk
hans. Allar þessar bækur eru
sérlega hentugar til gjafa .fyrir
vini og viðskiptamenn erlendis
og fyrir erlenda gesti, er sækja
landið heim, og hafa þær hlotið
miklar vinsældir sem slíkar —
ekki sízt fyrir glæsilegt útlit og
listrænt yfirbragð. □
739 að ólöglegum veiðum 15 sjó-
mílur innan 50 mílna markanna
á Mýrargrunni á sunnudaginn.
Var togarinn færður til hafnar
í Vestmannaeyjum.
Landhelgisgæslan hafði þrisv-
ar á einum sólarhring afskipti
af togara þessum, sem færði sig
út úr landhelginni, er við hon-
um var stuggað en kom jafn-
harðan innfyrir aftur.
Slcotið var fjórum púðurskot-
um að togaranum og síðast
rniian
föstu skoti framan við stefni
hans og gafst skipstjórinn þá
upp en sex vopnaðir skipsmenn
af Ægi fóru um borð, mættu
ekki mótspyrnu og sigldu tog-
aranum til Eyja.
Mælist taka togarans vel fyrir
og þykir atburðurinn ekki hafa
orðið vonum fyrr. Er þetta
fyrsti landhelgisbrjóturinn sem
tekinn er innan 50 mílna mark-
anna og færður til hafríar.
Viðbrögð útgerðarmanna í
Þýskalandi urðu snörp og frétt-
ir, sem þaðan bárust strax eftir
atburðinn, mjög rangar í veiga-
miklum atriðum.
í ÞESSARI viku er fyrirhuguð
sérstök starfsemi hjá söfnuði
votta Jchóva hér í bæ. Auk þess
að trúboðshjónin Kjell og Iiris
Geelnard heimsmkja söfnuðinn
munu allir meðlimir þess taka
þátt í dreifingu sérstaks frétta-
blaðs, sem gefið er út á vegum
biblíufélagsins „V arðturninn11
og dreift hefur verið um ])essar
mundir í þeim 207 löndum, sem
vottar Jehóva starfa í. Frétta-
blaði þessu er dreift almenningi
að kostnaðarlausu og fjallar um
spurninguna „Er þetta allt, sem
lífið býður?“ I því er bent á
svör Biblíunnar við spurning-
um svo sem hvort upphaflegur
tilgangur Guðs hafi verið að
lífsskeið mannsins ætti að vera
aðeins 70—80 ár.
Söfnuðurinn lítur fram til
þess að dreifa þessu hugvekj-
andi blaði og vonast til að því
verði vel tekið meðal almenn-
ings. Sérstök opinber samkoma
verður á sunnudaginn kemur,
þegar Kjell flytur fyrirlestur
með skuggamyndum frá 26
löndum.
Sýningin verður í Þingvalla-
stræti 14 og er allt áhugasamt
fólk velkomið.
(Fréttatilkynning)
færsla fiskveiðilögsögunnar í 50
rnílur og miklar framkvæmdir
í byggðamálum. Sökum klofn-
ings í Samtökum frjálslyndra og
vinstri manna, missti stjórnin
starfhæfan meirihluta á síðasta
þingi og kom því ekki fram
nauðsynlegum aðgerðum í efna
hagsmálum. Eftir að tilraun
Framsóknarflokksins til að efna
til víðtæks samstarfs um nauð-
synlegar efnahagsaðgerðir og
samstjórn allra þeirra flokka,
sem á þær féllust, hafði mis-
heppnast, var ekki um annað að
ræða en að stofna til nýrra þing
kosninva og leggja málin í dóm
kjósenda.
í samræmi við yfirlýsingar sín
ar fyrir kosningar, reyndi Fram
sóknarflokkurinn fyrst að
mynda stjórn með sömu flokk-
um og áður ásamt Alþýðu-
flokknum og ná samkomulagi
um óhjákvæmileg úrræði í efna
hagsmálum, cn sú tilraun mis-
heppnaðist sökum viljaleysis
bæði í röðum Alþýðubandalags-
ins og Alþýðuflokksins. Fram-
sóknarflokkurinn valdi þá þann
kost að mynda stjórn með Sjálf-
stæðisflokknum, þar sem verj-
andi var að láta ráðstafanir í
efnahagsmálum dragast lengur,
og þingræðisstjórn varð ekki
mynduð með öðrum hætti.
Fyrir þingkosningarnar lagði
Framsóknarflokkurinn alla meg
ináherslu á að lausn efnahags-
mála yrði að ganga fyrir öðru
á næsta kjörtímabili sökum yfir
vofandi stöðvunar atvinnu-
sem sprottin var bæði af útlend
rekstrar og vaxandi verðbólgu
um og innlendum rótum. í sam
ræmi við þessa yfirlýsingu mun
(Framhald á blaðsíðu 2)
Skotmark
BÁTSFORMAÐUR á Árskógs-
strönd kvartaði undan því, að
einhverjir skotglaðir menn
hefðu skotið á og eyðilagt fimm
belgi á þorskanetatrossum á
milli Grunnanna, nú um helg-
ira. Sagði hann auðséð, að skot-
ið hefði verið á fárra faðma
færi, og taldi að vonum sæmra
fyrir skyttur að velja sér annað
skotmark. Q