Dagur - 23.04.1975, Side 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Landshlufasamfökin
Starfsemi landshlutasamtakanna úti
um landið er í eðli sínu tvíþætt. í
fyrsta lagi að stuðla að samstarfi
sveitarfélaga um sameiginleg fram-
faramál í .öðru lagi að byggja upp
stefnumótun í hagsmunamálum
landshlutans. Starf landshlutasam-
takanna úti um landið stefnir í vax-
andi mæli í þá átt, að þau fái til
meðferðar fjölda verkefna, sem leysa
verður í samskiptum við ráðuneyti,
ríkisstofnanir og Alþingi. I’að er að-
kallandi, vegna þessara samskipta,
að staða landshlutasamtakanna sé
lögformleg og ótvíræð. Við, sem
búum fjarri höfuðstöðvum löggjafar
og miðstjórnarvalds, verðum fyrir
barðinu á því að sumar ríkisstofn-
anir telja sér ekki skylt að viður-
kenna landshlutasamtökin. Mörg
verkefni í samskiptum ríkis og
sveitarfélaga t. d. fræðslumál og
skipulagsmál eru best leyst í umsjá
landshlutasamtakanna. Með þeim
hætti má tryggja áhrifavald sveitar-
félaganna, þótt verkefnin séu að
mestu kostuð af ríkinu. Sannleikur-
inn er sá að íslensk þjóðlíf er svo
margþætt og flókið af lagafyrirmæl-
um og opinberum afskiptum, að
ekki verður komist hjá löggildingu,
ef landshlutasamtökin eiga að vera
verkefni sínu vaxin. Lögfesting
landshlutasamtakanna er í eðli sínu
nauðvörn frjálsra samtaka, sem
þurfa að sækja á brattann við lög-
bundið ríkiskerfi, sem í eðli sínu er
fjandsamlegt nýjum aðilum. Við-
brögð bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
taka af öll tvímæli um, að það er
nauðsyn að tryggja réttindi lands-
hlutasamtakanna að lögum. Hitt er
annað mál, að sennilega má sitthvað
bæta í því frumvarpi um landshluta-
samtök, sem nú liggur fyrir Alþingi.
Landshlutasamtökin eiga að vera
byggð upp af fulltrúum sveitar-
stjórnanna, en eiga ekki að verða nýr
pólitískur vettvangur, sem væri
smækkuð mynd af Alþingi. Þetta er
kjarni málsins, þegar greint er á
milli landshlutasamtaka sveitar-
félaga og hugmynda um fylkjaskip-
an. Sú meginstefna er í öllum lands-
hlutasamtökum, að hvert sveitar-
félag eigi fulltrúarétt á aðalíundi.
Taka verður eðlilegt tillit til stærri
sveitarfélaganna, án þess að gefa
þeim húsbóndarétt í samtökunum.
Landshlutasamtökin eru staðreynd í
þjóðfélaginu og því er löghelgun á
stöðu þeirra viðurkennd nauðsyn.
Lögfesting réttarstöðu landshluta-
samtakanna var eitt þeirra mála,
sem kveðið var á um í stefnuyfirlýs-
ingu núverandi ríkisstjórnar og því
er þess að vænta að þetta mál komist
í höfn. □
- BRAÐABIRGÐAVIKJUN VIÐ KROFLU
(Framhald af blaðsíðu 8)
vegar yfir, að hún mun ekki
geta tekið á sig sinn hluta af
hinum gífurlega olíukostnaði,
sem hér um ræðir, ef ráðu-
neytið tekur þá ákvörðun að
ráðast ekki í bráðabirgðavirkj-
unina, og síst af öllu hinn mikla
olíukostnað, sem verður á árinu
1977 (eða hluta þess), ef Kröflu
virkjun seinkar frá því, sem nú
er áætlað.
Það er því skýlaus krafa Lax-
árvirkjunar, að hún vei'ði skað-
laus af þeim ákvörðunum, sem
hún er ekki aðili að, og ber
enga ábyrgð á.
Laxárvirkjun er hins vegar
reiðubúin til þess að taka að sér
Húsnæói
Ung barniaus hjón óska
eftir lítilli íbúð til leigu.
Uppl. í síma 2-36-69
eftir kl. 7 á kvöldin.
Þrjár 17—18 ára stúlkur
reglusamar, óska eftir
lítilli íbúð til leigu á
Akureyri frá 1. júní n.k.
Góðir greiðsluskilmálar.
Sími 7-14-31
á Siglufirði.
Ungt par óskar eftir að
taka á leigu litla íbúð
næsta vetur.
Góðri umgengni heitið.
Uppl. í síma 2-34-31.
2—3ja herbergja íbúð
óskast til leigu.
Uppl. í síma 2-11-58.
Tvær stúlkur með eitt
barn óska að fá leigða
litla íbúð frá og með 16.
maí.
Uppl. í Húsmæðraskól-
anum, Laugalandi.
Til leigu 4ra herbergja
íbúð í blokk við Skarðs-
hlíð.
Sími (91) 3-80-54.
Til leigu 5 herbergja
endaíbúð í raðhiisi í
Glerárhverfi.
Tilboð sendist á afgr.
blaðsins fyrir 1. maí
merkt „ÍBÚÐ 636“.
Ungt par óskar eftir
íbúð frá miðjum júní
fram í miðjan september
Uppl. í síma 2-24-66.
Tveggja herbergja íbúð
til sölu.
Uppl. í síma 2-15-15
milli kl. 7 og 8 e. h.
Kona með eitt barn ósk-
ar eftir eins til tveggja
herbergja íbúð strax.
Uppl. í síma 2-21-86
á kvöldin.
Tvær stúlkur óska eftir
2ja herbergja íbúð strax.
Uppl. í síma 2-21-86
á kvöldin.
framkvæmd bráðabirgðavirkj-
unai' í Kröflu að því tilskyldu,
að fjármagn sé tryggt og að
háspennulína Krafla—Laxá sé
framkvæmanleg á þeim sama
tíma.“
Stofnkostnaður þessarar
bráðabirgðavirkjunar með
japönsku vélunum er áætlaður
um 230—250 millj. kr. en um
50 millj. kr. ódýrari með banda-
rísku vélinni.
Ef bráðabirgðavirkjunin verð
ur ekki framkvæmd og byggða-
lína og/eða Krafla komast ekki
í gagnið fyrr en seint á árinu
1977, þá vantar það ár vélaafl
til þess að mæta aflþörf þess
árs, auk þess að ekkert afl er
þá tiltækt til þess að mæta afl-
minnkun vatnsaflsstöðvanna á
Norðurlandi, vegna rennslis-
truflana.
Ef bráðabirgðavirkjun verður
reist og hún kemst í gagnið um
næstu áramót, þá áætlast olíu-
kostnaðurinn árin 1975—1976
um 245 millj. kr. á móti uni
460 millj. kr., ef ekkert verður
gert.' Ef hins vegar virkjunar-
framkvæmdum (þ. e. Kröflu-
virkjun og/eða byggðalínu),
seinkar t. d. um 1 ár, þá eykst
þes'si kostnaður um ca. 120
millj. kr. í því tilviki að bráða-
birgðavirkjun verði fram-
kvæmd, en um 400 millj. kr. ef
ekkert verður gert, auk þess að
til kemur þá stofnkostnaður
vegna viðbótar á dísilafli.
í lok fréttatilkynningarinnar
er mælt með stofnun Norður-
landsvirkjunar. □
ESSÓ-NESTIN NÝKOMIÐ: F ranskar kartöflur í dósum, 3 stærðir. Kartöfluflögur í pokurn, 3 tegundir. Sterkar hálspillur í dósum. Tropikana, appelsínu og grepe safi.
æjl "
Mlmmm . a
Okkur vantar mann í létt og hreinlegt starf sem fyrst. Skóverksmiðjan Iðunn sími 2-19-00.
Vantar lconu til að gæta 3ja ára drengs í einn mánuð frá 1. maí. Helst á eyrinni. Sími 2-18-13 eftir kl. 7.
íþróttafélagið Þór óskar eftir að ráða fram- kvæmdastjóra til 6 mán- aða, (hálfs dags starf), frá 1. maí. Umsóknir ásamt launa- kröfum sendist íþrótta- félaginu Þór, Goða- byggð 2, Akureyri, fyrir 28. apríl n. k.
Unglingsstúlka óskast til að gæta tveggja barna á Eyrinni í sumar., Til sölu á sama stað vegna flutnings, nýlegt sófasett. Ujjplýsingar í Lækjargötu 6, ujipi.
aSkemmtaniri Kaup
Eldri dansa klúbburinn
heldur dansleik í
Alþýðuhúsinu miðviku-
daginn 23. apríl.
Húsið opnáð kl. 21.
Miðasala við inngang-
inn.
Stjórnin.
wBifpeiéip^m
Til sölu bifreiðin A-54,
Peugeot dísel árg. ’73.
Ellert Kárason, B.S.O.
BRENNIÐ EKKI
bækur og rit, nema tala
fyrst við
FORNBÓKASÖLUNA.
Síminn er 2-33-31.
Óskum að kaupa eitt
til tvö þúsund ferm. af
túnþökum í vor.
Uppl. í síma 2-20-34
eða 2-16j-80 eftir kl. 7
á kvöldin.
AUGLÝSIÐ í DEGI
TIL SÖLU:
Húseignirnar Birkilundur 1 og Hamragerði 12.
Vönduð einbýlishús með góðri staðsetningu.
Einnig eru til sölu þriggja herbergja íbúðir við
Norðurgötu og Skarðshlíð.
GUNNAR SÓLNES hdl.,
Strandgötu 1. — Sími 2-18-20. — Akureyri.
Akoreyrinpr - Eyfirðingar
FÉLAGSVIST að Varðborg föstudaginn 25. apríl
kl. 8,30 e. h.
1. verðlaun:
Flugfar Akureyri—Reykjavík—Akureyri.
2. verðlaun:
Flugfar Akureyri—Reykjavík.
SYSTRAFÉLAGIÐ GYÐJAN.
GLERÁRGÖTU 20.
Mikið úrval fasteigna.
Kynnið ykkur framboðið.
ÁSMUNDUR S. JÖHANNSSON hdl.,
Gleráigötu 20, Akureyri, sími 2-17-21.
Sölustjóri:
KRISTBJÖRG RÚNA ÓLAFSDÓTTIR,
heimasími 2-22-95.
Til sölu
Lítil verslun í miðbænum. Verslunin er í fullum
gangi. Hentugt fjölskyldufyrirtæki.
Iðnaðar- eða verslunarhúsnæði rétt við miðbæ-
inn ca. 100 ferm.
Mikið úrval af íbúðum af ýmsum stærðutn.
RAGNAR STEINBERGSSON hrl.,
Geislagötu 5, viðtalstími 5—7 e. h. sími 2-37-82.
HEIMASÍMAR:
Kristinn Steinsson sölustjóri, 2-25-36.
Ragnar Steinbergsson hrl., 1-14-59.
Tilboð óskasf
í INTERNATIONAL W-4 gaffallyftara, ógang-
færan, sem er til sýnis á Svalbarðseyri.
Tilboðum skal skila fyrir 6. maí n. k.
SAMVINNUTRYGGINGAR,
Svalbarðseyri.
5
Philips plötuspilari og
Garrard plötuspilari og
tveir samstæðir hátalar-
ar til sölu.
Uppl. í síma 2-18-31.
Fjórar vorbærar KÝR
til sölu.
Sigurvin Sölvason,
Vallholti Árskógsströnd.
SKÁPUR!
Sá sem hefur hug á að
kaupa skáp, getur hringt
í síma 1-14-72.
Til sölu rafmagnsþvotta-
pottur, fiskabúr með
fiskum og þvottavél.
Sími 1-13-43.
Nýleg vagnkerra til sölu.
Uppl. í síma 2-10-52
eftir kl. 8 á kvöldin.
Til sölu Ford Junior
trillubátavél. Þarfnast
smáviðgerðar á gír.
Uppl. í síma 2-37-13
eftir kl. 7 á kvöldin.
Vil selja Hondu SS 50
árgerð 1973.
Selst ódýrt.
Uppl. í síma 2-25-41.
cg
í Hlíðarbæ (Félagsheimili Glæsibæjarhrepps),
síðasta vetrardag 23. apríl kl. 10 e. h.
Góðir vinningar.
Dansað til kl. ?
Hljómsveit Pálma Stefánssonar.
KVENFÉLAGIÐ.
Akureyrarbæjar
verða starfræktir í sumar fyrir unglinga sem
fæddir eru 1963, 1964 og 1965.
Umsóknum veitt móttaka á Vinnumiðlunar-
skrifstofunni til 17. maí n. k.
Garðlönd bæjarins
Vinsamlegasl. endurnýjið greiðslukvittunina á
sikrifstofu bæjarins, Geislagötu 9, fyrir 17. maí
næstkomandi.
Viðtalstími garðyrkjudeildar bæjarins er á
þriðjudögum og föstudögum rnilli kl. 10—12
i' gömlu Gróðrarstöðinni. — SÍMI 1-10-47.
GARÐYRKJUSTJÓRI. j j í !
afsrcraaaKiii
Er það nokkur skynsemi, að halda sífellt áfram reyking-
um, þrátt fyrir allar vísindalegar sannanir á því, að reyk-
ingar valdi alvarlegum hjarta- og lungnasjúkdómum, sem
geta dregið menn til dauða?
Nei, að sjálfsögðu ekki. En það er undarlegt, hve margir
berja höfðinu við steininn.
Er heilbrigt að vaða þannig reyk og láta sem öllu sé óhætt?
Láttu heilbrigða skynsemi stjórna gerðum þínum:
HÆTTU AÐ MENGA LUNGU ÞÍN OG ÞRENGJA ÆÐARNAR
TIL HJARTANS ÁÐUR EN ÞAÐ ER ORÐIÐ OF SEINT.
v:
SAMSTARFSNEFND
/^V
W
UM REYKINGAVARNIR
ÍBÚÐIR
Höfum nú til sölu íbúðir í raðhúsi við Heiðar-
lund 3. íbúðirnar seljast í fokheldu ástandi og
verða lausar til afhendingar í haust.
Upplýsingar í síma 2-21-60, en eftir kl. 19 hjá
Sævari Jónatanssyni, í síma 1-13-00, eða Stefáni
Ólafssyni, í síma 2-25-59.
ÞINUR S. F.
Verðlækkun
STRÁSYKUR, enskur.
Aðeins kr. 395 eins kíló pakki.
HAFNARBÚÐIN
SKIPAGÖTU 4-6. SÍMI 1-10-94.
TILKYNNING
um aðtöðugjald á Akureyri
Samkvæmt heimild í 5. kafla laga nr. 8/1972,
um tekjustofna sveitarfélaga, samanber reglu-
gerð nr. 81/1962, um aðstöðugjöld, hefur bæjar-
stjórn ákveðið að innheimt skuli aðstöðugjöld í
kaupstaðnum á árinu 1975 samkvænrt eftirfar-
andi gjaldskrá:
0,33% Rekstur fiski- og verslunarskipa og flug-
véla.
0,65% Fisk- og kjötiðnaður þar með talin niður-
suða.
1,00% Hvers konar iðnrekstur annar, búrekstur,
verslun ótalin annars staðar.
1,30% Heildverslun, leigu- og umboðsstarfsemi,
lyfjaverslun, snyrtivöruverslun, sport-
vöruverslun, leikfangaverslun, hljóðfæra-
verslun, blómaverslun, minjagripaversl-
un, gleraugnaverslun, verslun með ljós-
myndavörur, listmuni, gull- og silfur-
muni, sælgæti og tóbak, kvöldsöluversl-
anir, kvikmyndalnisarekstur, fjölritun,
fornverslun, rekstur bifreiða og vinnu-
véla, persónuleg þjónusta, matsala, hótel-
rekstur, vátrygginga og útgáfustarfsemi,
ennfremur hvers konar önnur gjaldskyld
starfsemi ótalin annars staðar.
Með skírskotun til framangreindra laga og reglu-
gerðar er ennfremur vakin atliygli á eftirfarandi:
1. Þeir, sem ekki eru franrtalsskyldir til tekju- og
eignarskatts, en eru aðstöðugjaldsskyldir,
þurfa að senda skattstjóra sérstakt framtal til
aðstöðugjalds, fyrir 10. nraí n. k., sanranber
14. gr. reglugerðarinnar.
2. Þeir, sem margþætta atvinnu reka, þannig að
útgjöld þeirra teljast til fleiri en eins gjald-
flokks, samkv. ofangreindri gjaldskrá, þurfa
að senda fullnægjandi greinargerð um, hvað
af útgjöldunum tilheyrir hverjum einstökum
gjaldflokki, sbr. 7 gr. reglugerðarinnar.
Framangreind útgjöld ber að gefa upp til skatt-
stjóra fyrir 10. maí n. k., að öðrum kosti verður
aðstöðugjaldið, svo og skipting í gjaldflokka,
áætlað, eða aðilum gert að greiða aðstöðugjald af
öllunr útgjöldum skv. þeim gjaldflokki, sem
hæstur er.
Akureyri, 22. apríl 1975.
SKATTSTJÓRI
NORÐURLANDSUMDÆMIS EYSTRA.