Dagur - 27.08.1975, Síða 1

Dagur - 27.08.1975, Síða 1
CgX ’sw0 EEal EFNAVERKSMIÐJAN SJÖFN LVIII. árg. — Akureyri, niiðvikudaginn 27. ágúst 1975 — 35. tölubl. FILMUhúsið akureyri Fyrir nokkrum dögum var þessi mynd tekin yfir kauptúnið Þórshöfn. (Ljósrn.: E. D.) Heyskap ad Ijuka hér eystra Togarinn kemur innan skamms Hrísey, 26. ágúst. Jón á Hofi lagði hér upp 80 tonn af fiski í gær, svo það er nóg að gera næstu dagana'. Trillur og minni dekkbátar reyta einnig ofur- lítið. Bátarnir hafa haldið frysti húsinu gangandi. Svó eru menn farnir út til að sækja 280 tonna skuttogarann til Frakklands. Þetta er fjög- urra ára togari og kostar um 180 milljónii'. Ekki er vitað hvenær hann kemur, en von- andi eftir fáar vikú'r og þá mrn hráefnisöflunin ganga betur en áður. Þennan togara kaupir Kaupfélag Eyfirðinga og Hrís- eyingir í félagi. Ekkert tún hefur verið heyj- að í Hrísey í sumar, en kvígur hinnar nýju sæðingastöðvar taka fóður sitt á túnunum, en vetrarfóðrið verður svo keypt í háust. Esja kom í gær með efni í fóðurgeymsluna, sem er stálgrindahús, talsvert stórt og verður þetta hús reist í haust. S. F. Akureyrartogararnir Sléttbakur landaði 13. ágúst 166 tonnum og er væntanlegur í dag, miðvikudag, með álíka mikinn afla eða meiri. Harðbakur gamli landaði 15. ágúst 110 tonnum. Sólbakur landaði 18. ágúst 153 tonnum. Kaldbakur landaði 20. ágúst 144 tonnum. Svalbakur landaði 22. ágúst 216 tonnum. Harðbakur nýi er að landa í dag 230 tonnum. □ Föstudaginn 15. ágúst um kl. 21.20 varð 9 ára stúlka fyrir bifreið á Byggðavegi og mun hafa lærbrotnað. Þriðjudaginn 19. ágúst valt bifreið með tveim mönnum á Vaðlaheiðarvegi. Hlutu menn- irnir minniháttar meiðsli. Bif- reiðin skemmdist nokkuð. Fimmtudaginn 21. ágúst um kl. 19.50 varð harður árekstur bifreiðar og létt bifhjóls á mót- um Þingvallastrætis og Byggða vegar og slasaðist ökumaður hjólsins mikið, hlaut beinbrot á handlegg og fæti. Sama dag kl. 21.40 varð árékstur á Strandgötu og var annar ökumaðurinn fluttur á sjúkrahús, en meiðsli ekki talin alvarleg. Föstudaginn 22. ágúst kl. 17.00 varð umferðarslys á Tryggvabraut móts Við BP-stöð ina milli bifreiðar og létts bif- hjóls. Var ökumaður hjólsins fluttur á sjúkrahús, en hann hafði skorist á augabrún og skrámast á fæti. Hann fékk að fara samdægurs af sjúkrahús- inu. Sama dag um kl. 21.45 valt bifreið út af veginum við Syðri- Bægisá og var ökumaður einn í bifreiðinni. Hann slapp með Gunnarsstöðum, 25. ágúst. Veðr ið er gott, ekki þurrkur og rign ingarlegt. Heyskap er að heita má lokið, nema hjá þeim, sem eru með heyskap á eyði- býlum. Heyin eru mun minni Ási í Vatnsdal, 25. ágúst. Ég held að mig hafi verið að dreyma þig eitthvað í nótt. En ég var vestur í Kanada og er lítilshgttar meiðsli, en bifreiðin skemmdist mikið. Sama dag varð árekstur bif- reiðar (kl. 12.56) og reiðhjóls á (Framhald á blaðsíðu 5) en í fyrra, en líklegt þykir mér, að heyin séu allgóð að þessu sinni. Hey hraktist ekki og þótt seint væri slegið mun grasið óvíða hafa verið mikið úr sér sprottið. rétt kominn heim og því veit ég minna úr mínu nágrenni en annars væri. Sá gamli töðugjaldasiður var sá, að halda þau þegar lokið var heyskapnum á heimatúni. En síðan hafa túnin þanist út um allt og allur heyskapur er túna- heyskapur að heita má. Hey- skapui'inn liefur ekki gengið vel. Hann hefur verið mjög taf- samur vegna óþurrkanna og hey eru talsvert hrakin, en mikil að vöxtum. Mikið hey er úti ennþá og nú má heita að Hér sjást naumast krækiber. En bláberjaspretta ei' mikil og góð. Bátar eru hér að skarka með dragnót, en ég held að aflinn sé ekki mikill, en alltaf er ein- rigni á hverjum degi. Þó er rétt að géta þess, að menn náðu ein- staklega vel verkuðu heyi fyrst á heyskapartímanum. Ekki eiga menn eftir að þurrka mjög mikið en það er ekki einu sinni friður til að flytja heyið inn. Tíðin er ákaflega mild og háin er enn að spretta. Um göngur og gangnafyrirkomulag er enn ekki farið að ræða. Menn vilja fyrst vita hvernig heyskaparlokin verða. Við vorum 150 í bændaför- inni til Kanada, undir farar- stjóvn Agnars Guðnasonar og Jónasar Jónssonar. Ferðin var sérstaklega vel undirbúin og móttökurnar fyrir vestan með afbrigðum góðar og skemmti- legt að hitta fólkið þar. G. J. hver reytingur af fiski. Og at- vinna er næg á Þórshöfn. Alltaf er haldið áfram með frystihúsið og miðar þar í áttina, þótt ekki sé þar mikill mannskapur. Þá er einnig unnið við íbúðabygg- ingar, bæði nýjar og frá síðasta ári. Já, það hefur hver maður nóg að gera. Engu vil ég spá um vænleika fjár í haust. Þó sýnist mér full- orðna féð vænt. En um væn- leika dilka get ég ekki spáð fyrr en ég hef séð nokkrar ær sem ég þekki. En ekki spái ég í vænleika fjár þótt ég sjái ókunnugar kindur út um hvipp inn og hvappinn. Ó. H. Málverkasýning í Hlíðarbæ Málverkasýning, sem höfundur inn, Helgi Vilberg, nefnir Mynd ir 1974—1975, verður opnuð í Hlíðarbæ við Akureyri fimmtu daginn 4. september n. k. Helgi sýnir þar 37 verk, sem öll eru unnin á árunum 1974—1975- og hafa ekki verið sýnd áður. Sýningin verður opin til sunnu- dagskvölds 7. september. Verði myndanna, sem allar eru til sölu, er í hóf stillt. □ Þcssi nýi bátur var nýlega afhentur úr Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri. (Ljósm.: Fr. V.) IXðl8Bie!IB!B!EIIEI8IBI!lim8imil§IBgSBIIIIfSieillBflII!IIII!II!ISBSBIII!III Fjórðungsþsngið verður haldið á Rðularhöfn Fjórðungsþing Norðlendinga, hið 17. í röðinni, verður haldið á Raufarhöfn 1.—3. sept. n. k. í félagsheimilinu Hnitbjörgum. Þing- ið sækja um 90 fulltrúar, auk gesta. Efst á baugi verður byggða- þróun á Norðurlandi. Fjórðungssamband Norðlendingi hefur starf- að í 30 ár. í stjórn þess eru: Brynjólfur Sveinbergsson, Bjarni Einarsson og Heimir Ingimarsson. Framkvæmdastjóri er Áskell Einarsson. □ l!3S!!lllllflEBIIfl!flflliS5BI8BIIISIIII9IBIIIB8IBIIIlllll!IE8lllliI!!llllllllllll Frá lögreglunni Tafsamur heyskapur í Yatns- dal, en víðastlivar góð spretta

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.