Dagur - 29.11.1975, Qupperneq 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Ótrúlegf siðleysi
í haust báru íslenskir og breskir fiski
fræðingar saman bækur sínar um
fiskstoínana við ísland og greinar-
gerð Hafrannsóknarstöfnunarinnar
um það efni. Bresku íiskifræðing-
arnir voru að heita mátti sammála
okkar fræðimönnuin um stærð stofn-
anna og hámarksnýtingu þorsks, ýsu,
ufsa og karfa. Samkvæmt niðurstöð-
um þessum eru botnlægar fiskteg-
undir ofveiddar, alveg sérstaklega
þorskurinn, og má ekki á næsla ári
veiða meira af honum en 230 þús-
und tonn, og það magn og miklu
meira, geta íslendingar sjálfir veitt
með sínum fiskiskipum. Þrátt fyrir
þessar niðurstöður heimta bretar
110 þúsund tonna veiðar í landlielgi
Islands, og þær veiðar eru hafnar
undir herskipavemd. Þetta er ótrú-
legt siðleysi, þótt ofveiðisjónarmiðið
eitt sé lagt til grundvallar, og þetta
siðleysi er byggt á valdi stórþjóðar,
sem bæði á herskipaflota og flug-
flota og beitir þeim nú þegar báð-
um.
Vegna ofveiði við ísland blasir sú
hætta við, að fiskistofnar liverfi eins
og síldin og þá blasir jafnframt við
efnahagshrun hér á landi. Þetta
skilja allir landsmenn og þoka sér
einhuga saman í baráttunni við
ásælnar fiskveiðiþjóðir. Því er þó
ekki að leyna, að mikill skoðana-
munur er á milli stjómmálaflokka
um framkvæmdaatriði málsins. Allir
kjósum við sem skjótust og fyllst yfir
ráð til nauðsynlegrar friðunar og
fullan rétt til nýtingar á öllum fiski
innan 200 mílna landhelginnar. En
við stöndum jafnframt frammi fyrir
þeim vanda, að geta ekki varið mið-
in gegn flotavelduni, sem bæði liafa
vilja og vald til að veiða innan ís-
lenskrar lögsögu.
Sá vandi, að geta ekki varið miðin,
skapar þá aðstöðu að verða að velja á
milli samninga, þar sem undanþág-
ur yrðu veittar, eða engra samninga,
og verja miðin eftir bestu getu. An
sanminga geta erlendar fiskveiði-
þjóðir sótt afla á fslandsmið, í skjóli
valds, svo sem dæmin sanna. Það er
átakanlega grunnfær stefna, þótt
hún eigi hvarvetna vemlegan hljóm-
grunn, að neita fyrirfram öllum
samningum. Samningar með nokkr-
um veiðilieimildur innan 200
mílna, geta, frá verndunarsjónar-
miði einu saman, verið hagkvæmari
en engir samningar. En hvor leiðin
sem valin er, verður hún að miðast
við lokatakmarkið, sem er vemdun
Og nýting fiskstofna innan hinnar
nýju landhelgi, íslendingum einum
til handa og full yfirráð eins fljótt
og verða má. □
Yfirlit um gjaldskrár
rnuii símaþjónustu
laiidsbyggðarinnar
Krisfjana Ingibjörg Halldórsdóftir
NEÐRI DÁLKSTÖÐUM
Fædd 11. nóvember 1930. Dáin 10. nóvember 1975.
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið 1.—3. september 1975 á
Raufarhöfn gerði ályktun um
jöfnun aðstöðu vegna álags á
símagjalda eftir fjarlægð. Enn-
fremur ályktun um bætta síma-
þjónustu í sveitum.
Það er réttlætismál að íbúar
landsins hvar sem þeir búa
njóti sömu kjara um síma-
þjónustu.
Ljóst er, að gjald fyrir hvert
teljaraskref hefur hækkað með
almennu verðlagi, en afnota-
gjöldih hafa ekki fylgt eftir.
Skrefagjöldum sjálfvirka sím
ans er skipt í 9 gjaldflokka. í
gjaldflokki O er tími ekki
mældur en á því svæði eru
bæjarkerfi innbyrðis. í hæsta
gjaldflokki er hvert skref 6
sekúndur, sem kostar kr. 7,32
með söluskatti. 1 þessum gjald-
flokki er Reykjavíkursvæðið
miðað við fjarlægðarsvæði eins
og ísafjörð, Akureyri og Egils-
staði.
Tífaldur munur á snnaþjónustu.
Sé hringt frá Akureyri eða
fjarlægari svæðum til Reykja-
víkur telur teljari sjálfvirku
stöðvanna tífalt miðað við skref
innan svæðis í Reykjavík. Það
er hægt að hringja í 10 númer
í Reykjavík fyrir eina mínútu
eða 10 skref frá Akureyri.
Hugsum okkur fyrirtæki á
Akureyri, sem mundi hringja 5
símtöl á dag til Reykjavíkur
miðað við 3 mínútur hvert, þarf
að greiða fyrir það 274 þús. á
ári. Ef sama fyrirtæki er í
Reykjavík og hringir sama sím-
talafjölda innan svæðis er kostn
aður kr. 9—10 þús. Fyrir sömu
gjaldtöku má hringja 150 um-
framsímtöl á dag innan Reykja-
Þar sem starfstími handvirku
stöðvanna er til muna styttri er
ljóst að mikið vantar á að sveit-
irnar njóti sama öryggis í síma-
þjónustu og þéttbýlið. Þá kem-
ur fram veruleg mismunun
milli bæja í nálægð við þéttbýli
hvort þau eru í tengslum við
aðalstöð eða millistöð.
í Norðurlandi eru 10% allra
notenda sjálfvirka símans í
landinu. Þeir greiða 17,3% allra
skrefagjaldanna. Notkun síma
eykst meira í Norðurlandi en
landsmeðaltal.
Um 60% af tekjum sjálfvirku
stöðvanna eru vegna umfram-
símtala. Umframsímtöl í Norð-
urlandi er tæp 18% teljara-
skrefa í landinu.
Símanotkunin í dreifbýli fer
vaxandi og er handhægur sam-
skiptamiðill fólks milli svæða
og því þýðingarmikill liður fyr-
ir þjónustustarfsemi úti um
landið.
Þjónustan ódýrust á Reykja-
víkursvæði.
Um helmingur þjóðarinnar er
á gjaldskrársvæði Reykjavíkur
og nágrennis. Þetta eru um
66% notenda sjálfvirku stöðv-
anna. Þessi hópur er innan
lægsta gjaldflokks, þar sem
hvert símtal er aðeins reiknað
eitt ski'ef eða kr. 7,32. Innan
þessa svæðis eru allar greinar
þjónustustarfsemi í landinu og
mest af umsvifum þjóðfélagsins.
Ofan á þá staðreynd að megin
hluti skrefagjalda í Reykjavík
er í lægsta flokki og svæðið
greiðir ekki hlutfallslega skrefa
fjölda miðað við símnotenda-
fjölda hafa afnotagjöldin ekki
fylgt vei'ðlagsþróun. Þetta hef-
ur skapað mismun, sem nemur
um 65% í verðlagi afnotagjalda.
Væri þetta leiðrétt má færa
niður skrefagjöldin um 400—
500 millj. kr. á ársgrundvelli.
Sé gert ráð fyrir að 40%
skrefagjalda sé í hæsta gjald-
flokknum má nota hækkun
afnotagjalda til þess að fella þá
Möguleg lækkun frá 50%—90%
Sé gert ráð fyrir niðurfell-
ingu hæstu gjaldflokkanna er
það sparnaðui' fyrirtækis, sem
hringir að norðan 5 símtöl á
dag, til Reykjavíkur um 50%.
Hins vegar séu öll skrefin jöfn-
uð út í símgjaldaflokka er
sparnaður allt að 97%.
Svo að fullkomin jöfnuður
náist þarf að mæla öll teljara-
skref sömu tímaeiningu, hvort
heldur er um að ræða innan
svæðissamtöl eða. milli svæða.
Framkvæmd þessara tímamæl-
inga ætti að vera auðleysanlegt
tæknilega séð. Þetta er til hags-
bóta á tvennan hátt. Með þessu
fæst fullkomið jafnrétti allra
landsmanna gagnvart sömu
þjónustu og léttbæri álagi sím-
ans og komast mætti hjá jöfn-
um, sem hækkaði afnotagjöldin.
(Fréttatilkynning)
Laugardaginn 15. nóvember var
kvödd frá Svalbarðskirkju að
viðstöddu miklu fjölmenni hús-
freyjan á Neðri-Dálksstöðum,
Svalbarðsströnd, en hún lést af
slysförum 10. nóvember síðast-
liðinn.
Mig setti hljóða er ég frétti
um lát þessarar góðu nágranna-
konu minnar og við spyrjum
því er kona í blóma lífsins, sem
á svo mörg verkefni óleyst
hrifin á brott frá eiginmanni og
börnum?
Kristjana var fædd á Neðri-
Dálksstöðum, dóttir hjónanna
Kristjönu Vilhjálmsdóttur og
Halldórs Albertssonar bónda
þar. Þau eignuðust þrjú börn
auk hennar: Huldu sem gift er
Hreini Ketilssyni, Elínu gift
Þorsteini Jónssyni, og Björn er
þau misstu á fyrsta ári.
Kristjana giftist eftirlifandi
eiginmanni sínum Inga Þór
Ingimarssyni 5. júní 1949. Eign-
uðust þau fimm börn: Björn, dó
á fyrsta ári, Ómar Þór f. 9 mars
1953, Ingu Maríu f. Í7. júní 1955
sem he'itbundin er Gunnari
Tryggvasyni, Hönnu Dóru f. 26.
maí 1960, og litla augasteininn
þeirra allra Huldu Hrönn sem
Náttúruminjaskrá
Norðurlands vestra
Samtök um náttúruvernd á
Norðurlandi (SUNN) hafa á
undanförnum árum unnið að
skrásetningu náttúruminja á
Norðurlandi í samvinnu við
N áttúruverndarráð.
Með náttúruminjum er átt
við hvers konar sérstakar lands
lagsmyndanir, svo sem fossa,
hella, dranga, gil, framhlaups-
hóla o. s. frv., jarðfræðilegar
minjai', svo sem fundarstaði
steingervinga, svo og staði með
ríkulegum eða sérstökum
gróðri, dýralífi o. s. frv., en þar
má nefna t, d. flæðiengjar.
Félagið hefur nú sent frá sér
fyrsta hluta þessarar svonefndu
náttúruminjaskrár, þ. e. Nátt-
úruminjaskrá Norðurlands
vestra (Húnaþings og Skaga-
fjarðar) í fjölrituðu formi.
í skránni eru tilgreindir rúm
lega eitt hundrað staðir og
svæði, sem félagið telur mikil-
vægt að vernda í vestursýslum
Norðurlands. Er þeim skipt í
fjóra flokka, I. Stór landslags-
svæði, II. Strandlendi og eyjar,
III. Votlendi og vötn og IV.
Ymsar landslagsminjar.
Af stærri svæðum, sem
SUNN leggur til að vernda sér-
staklega má nefna Bjargasvæð-
ið í V.-Hún., hluta Vatnsdals og
Þings í A.-Hún. og hluta af
Hegranesi í Skagafirði.
í formála skrárinnar kemur
fram, að tilgangur hennar sé
fyrst og fremst að vekja athygli
á náttúruverndargildi hinna
skráðu minja. Félagið vonar, að
vitneskjan um þetta gildi geti
orðið minjunum einhver vernd,
eða a. m. k. orðið til þess að
menn hugsa sig um áður. en
þeir raska þeim.
Skráin fæst afhent á Náttúru
gripasafninu á Akureyri
(Náttúr uverndartof u ).
(Fréttatilkynning)
Til ríkisstjórna á Norðurlöndum
Norræna bindindismótið, hið
26., haldið í Molde 8.—14. ágúst
1975, hefur eftir ýtarlegar um-
ræður um áfengismál á Norður-
löndum samþykkt eftii'farandi
ályktun samhljóða:
Á Norðurlöndum öllum eykst
áfengisneysla sífellt. Slíkt hið
sama gerist nú í flestum lönd-
um heims. Víðtækar vísinda-
rannsóknir hafa sannað að tjón
af völdum áfengis stendur í
réttu hlutfalli við heildarneyslu
þess. Það á bæði við um heilsu-
tjón og félagslegan vanda af
ýmsu tagi. Þessar nýju vísinda-
legu staðreyndir benda á að
Norðurlandaþjóðirnar munu
innan tíðar verða að horfast í
augu við aukið tjón af völdum
áfengisneyslu ef ekki veiður
spyrnt við fótum.
Ríkisstjórnir Norðui’landa
hljóta að líta á það sem hlut-
verk sitt — innan vébanda Sam
einuðu þjóðanna, Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar og
annarra alþjóðastofnana — að
hrinda af stað áætlunum um
að draga úr áféngisneyslu. Ef
látið verður hjá líða að vinna
að slíku, á sama hátt og unnið
er gegn neyslu annarra vímu-
efna, jafngildir það því að láta
sig engu skipta geigvænlega
ógnun við þroskamöguleika og
heill einstaklinga og þjóða.
Á Norðurlöndum er áfengis-
neysla tiltölulega lítil miðað við
önnur iðnaðarríki. Það stafar
einkum af því að hér er þessum
vanda veitt náin athygli og
áfengismálanstefna okkar er
virkari en gerist víðast annars
staðar.
Áfengisvarnaráð.
verður sex ára 15. desember.
Á heimili þeirra er einnig María
móðursystir hennar, sár er nú
söknuður hennar.
Kristjana var sístarfandi
enda mörg verkefni er sveita-
konan þarf að leysa af hendi.
Hún hafði mikinn áhuga á bú-
skapnum, var sama hvort hún
starfaði innan húss eða utan,
allt var unnið af sannri gleði
enda hjónin samhent og hjóna-
band þeirra farsælt.
Kristjana var mjög félagslynd
og naut þess að starfa að félags-
málum með sveitungum sínum.
Hún mætti alltaf kát og' hress
og smitaði alla af sinni einlægu
gleði. Það er gæfa fyrir okkur
sveitunga hennar að hafa átt
slíka konu. Ég vil tileinka minn
ingu hennar þessar fögru ljóð-
línur Davíðs Stefánssonar:
Þá bar hún hæst, er byljir
skullu á
og brauzt gegn þeim, sem
væri hríðarmugga.
Með fórn og elsku vann hún
vegsemd þá,
er veitist þeim, sem gefa líf
og hugga.
Hún fann. hvað þegn og þjóðir
mestu varðar,
var þerna guðs, en dóttir
sinnar jarðar.
Það er þungbært fyrir eftir-
lifandi eiginmann að sjá á eftir
tryggum og góðum lífsförunaut,
en í huga hans munu geymast
dýrmætar minningar um góða
og mikilhæfa konu.
Við hjónin viljum þakka
henni fyrir þær ánægjustundir
er við áttum á heimili þeirra,
við kveðjum með sárum sökn-
uði og biðjum Guð að blessa
minningu hennar.
Innilegar samúðarkveðjur
sendi ég og fjölskylda mín eigin
manni, börnum, foreldrum,
móðursystur, systrum og öðr-
um ættingjum.
Megi góður Guð styrkja ykk-
ur og hugga.
S. G.
'SxS:
1 Sofðu nú hér
sofðu, mitt hjarta skal
vaka hjá þér.
Á ljómandi guðsdýrðar
landi
lifir þinn andi.
Mákona mín Kristjana Ingi-
björg Halldórsdóttir (kölluð
Gósa) er dáin, horfin okkur
öllum vinum sínum svo óvænt,
á besta aldri, í miðri dagsins
önn. Það er svo ótrúlegt, samt
er það svo. Það er mikil eftirsjá
að þessari konu fyrst og fremst
fyrir hennar nánustu, ástvini
(sem sýnd hefur verið mjög
mikil samúð og þeir þakka af
alhug) einnig hennar mörgu
vini. Hennar er sárt saknað.
Gósa var fædd á Neðri-Dálks-
stöðum á Svalbarðsströnd þann
11. nóv. 1930. Foreldrar hennar
eru hjónin Kristjana Vilhjálms-
dóttir og Halldór Albertsson,
þar bóndi þá. Gósa ólst upp hjá
foreldrunum á Dálksstöðum og
með systrum sínum tveim, þeim
Huldu, sem er elst og Elínu,
sem er yngst. Bróður áttu þær
einn, Björn að nafni. Hann dó
á fyrsta ári.
Með ágætum foreldrum og í
glöðum og mjög samrýmdum
systrahóp dvaldist Gósa þar
heima öll sín uppvaxtarár.
Einnig með Maríu móðursystur
sinni, sem var henni sem önnur
móðir og hennar börnum eftir
að þau komu til og hefur ætíð
borið hag heimilisins svo mjög
fyrir brjósti.
Lánsöm var Gósa að eiga
svona gott æskuheimili og æsku
daga, enda átti hún til að bera
gott lundarfar, hress, kát og
drífandi var hún, jafnaðarlega,
en heilsan var ekki alltaf sterk.
Henni var mjög mikið gefið,
íramúrskarandi dugleg og allt
lék í höndum, hvort sem það
var við útivinnuna eða innan-
hússstörfin, líka var hún mikil
hannyrðakona við útsaum, hekl
og prjón. Mér varð stundum
starsýnt á hve miklu hún kom
í verk á því sviði, með öllum
öðrum heimilisstörfum.
Hún hefur eflaust helgað sér
sálmaversið.
Starfa því nóttin nálgast
nota vel æviskei'ð
ekki þú veist nær endar
ævi þinnar leið.
Starfa því aldrei aftur
ónotuð kemur stund
ávaxta því, með elju
ætíð vel þitt pund.
Ung giftist Gósa hálfbróður
mínum Inga Þór Ingimarssyni
frá Vatnsleysu, og var þeirra
sambúð til fyrirmyndar, skiln-
ingsrík og hlý. Þau eignuðust
5 börn. Þeirra elstur er Björn,
næstur er Ómar Þór, Inga
María, Hanna Dóra og Hulda
Hrönn tæpra 6 ára. Öll eru
börnin elskuleg og gott fólk.
Ungu Dálksstaðahjónin tóku
við búi af tengdaforeldrum Inga
ásamt Huldu og manni hennar
Hreini Ketilssyni frá Finnastöð-
um. Fyrstu búskaparárin
bjuggu þessi ungu hjón ásamt
foreldrum systranna í Dálks-
staðahúsinu, sem þá var mun
minna en það er nú, en síðar
fengu þau Hulda og Hreinn
hluta af Dálksstaðalandi undir
býlið Sunnuhlíð.
Allur hefur sambúskapurinn
hjá þessu fólki gengið frábær-
lega vel. Samrýmdar voru syst-
urnar mjög og menn þeirra
hafa líka átt samlyndi og sam-
stöðu, en það er mikið lán fyrir
alla er slíks njóta og því var
þeim betur stætt, er yfir dundi
höggið þunga sára. Tíminn
mildar meinin, svo er Guði fyr-
ir að þakka Gósa mín, ég undir-
rituð, tengdamóðir þín Þórunn
og allt mitt fólk, þökkum þér
frá innsta hjartans grunni kynn
in á gengnum árum. Öllum ást-
vinum þinum sendum við okk-
ar dýpstu samúðarkveðjur.
Margrét H. Lúthersdóttir.
KRISTJÁN
ERÁ DJÚPALÆK:
SÓLIN OG ÉG
Kristján frá Djúpalæk hefur
fyrir löngu unnið sér sess sem
eitt af helstu ljóðskáldum þjóð-
arinnar. Hann hefur gefið út 10
ljóðabækur, auk þýðinga og
sendir nú frá sér þá elleftu, 88
blaðsíðna bók: Sólin og ég.
Bókin skiptist í 2 kafla og
nefnist sá síðari „Glettur og
gráglettur.“ í fyrri kaflanum
eru ýmis kvæði þar sem kemur
fram tær lyrik. Vil ég þá nefna
Sólin og ég sem er eins konar
uPPgjör og niðurstaða. Fyrsta
erindið er svona:
Senn er okkar samvist lokið,
sól, þig eina lofa ég. -
Þakka fylgd um furðulanda
farinn veg.
Og vegna þín varð þessi ganga -
þolanleg.
Þá má benda á annað mjög
ljóðrænt kvæði. Það nefnist
„Þetta land.“
Þetta land geymir allt,
sem ég ann.
Býr í árniði grunntónn míns
lags.
Hjá þess jurt veit ég blómálf
míns brags.
Milli bjarkanna yndi ég fann.
Ber mér útræna ilminn frá sjó.
Blærinn angan frá lyngi í mó.
Djúpa hugró á fjöllum ég finn.
Meðal fólksins er vettvangur
minn.
Þetta land skamma stund
bjó mér stað.
Ég er strá í þess mold.
Ég er það.
Þá skal minna á enn eitt ljóð
í svipuðum tón. Þar lýsir skáld-
ið þreytu sinni á ys borgar-
Þeir týna margir hugarró
í borga ys og önn,
sem áttu kyrrlátt bernskuvor
í sveitum.
Við hverfum eins og reköld
í múgsins myrka sæ
og munum ekki lengur
hvað við heitum.
Hve gott er þá að flýja
sem hraðast þaðan heim
í hug, og leita aftur draums
og friðar,
og seiða fram í minningunni
glötuð berskugull
í gili, þar sem bergvatnslindin
niðar.
!■■■■■■■■!
Nyrra bóka qetið
I
:■:■
*.■«
!■■■■■
,v.v.v
Ó, má ég ekki sitja þarna
aðeins stutta stund
' á steini hjá þér, káti bæjar-
lækur,
og heyra gömlu lögin, sem þú
leikur enn í dag,
~og ljóð, sem aldrei voru fest
á bækur.
Því ég er orðinn þreyttur
á þessum tónagný,
sem þrumii' mér við eyru
dag og nætur.
„XJiorg er hvorki fossbúi né
hjarðpípa, sem hlær,
og heldur enginn strengur til,
sem grætur.
En Kristján á fleiri strengi.
Þarna er aðeins eitt minningar-
kvæði — það er um skáldbróð-
ur hans og náinn vin í áratugi,
Guðmund Böðvarsson. Þetta er
voldugt kvæði og eitt af því
besta sem Kristján hefur ort.
í því er innilegur tónn og —
þrótt fyrir tilefnið, bjartsýni.
Ég ætla að vitna í 3 erindi:
Menn vita hvar hönd sú liggur,
er ljóð þín skráði.
í litlum grafreit í byggð þinni
fram til dala.
En hvar er andinn, skaparinn
þú, er skópst þau?
Þeir skynja það ei né sjá.
— Ég veit, að hann lifir í ljósi,
og til hans tala.
— Láta hörpuna hljóma
við hjarta síns undirspil,
fara fingrum um strengi
fimlega, kenna til
með öllu, sem órétt þolir,
öllum, er sigla í strand.
— Þruma gegn þeim, sem kúga
og þeim er svíkja vort land.
Veröld þú kvaddir og vini,
vel undir ferðir búinn.
— Roðnar í eyri rósin,
ryður sig Hvítá og ymur:
— Hörpusveinn, hittumst
við ósinn.
Hér eru ljóðaflokkar um
björkina, hafið og einnig flokk-
ui' um fornar vættir: álfa,
huldufólk, dverga og tröll. Mig
langar að vitna í 3 vísur úr
kvæðinu um dvergana:
BLÚMAEYJAN TENERIFE
Flugleiðh- h.f. hafa nú ákveðið
að efna til sólarferða til Tene-
rife og eru sjö ferðir áformaðar
í vetur. Fyrsta ferðin verður
farin 14. desember og sú síðasta
4. apríl, þ. e. um páskana.
Sólarfrí í skammdeginu verð-
ur sífellt vinsælla. Um áramót-
in 1970—1971 hóf Flugfélag fs-
lands skipulagðar ferðir til
Gran Canaria. Fyrsta veturinn
voru farnar sjö ferðir, en vegna
mikillar eftirspurnar og vax-
andi vinsælda sólarferðanna
hefur þeim farið fjölgandi og
eru nú orðnar fastur liður í
starfsemi Flugleiða h.f. Flestar
ferðanna hafa verið flognar
með Boeing 727 þotum Flug-
félags íslands, en á annatímum
hafa hinar stóru DC-8-63 þotur
Loftleiða einnig verið nýttar til
Kanaríeyjaflugs. Mörg þúsund
íslendingar hafa nú kynnst
Gran Canaria og í vetur bætist
blómaeyjan Tenerife við sem
viðkomustaður. Tenerife er af
mörgum t.alin fegurst Kanarí-
eyja og hún er þeirra gróður-
sælust. Farþegar Flugleiða
munu dveljast í hinum fræga
ferðamannabæ Puerto de la
Cruz, sem er á austurströnd
eyjarinnar. Gististaðir eru 4.
Vart þarf að taka fram að allir
bjóða þessir staðir upp á góðar
sundlaugar, góða aðstöðu til sól-
baða og á þrem eru diskótek og
dans á hverju kvöldi, en dans
2—3 í viku á því fjórða.
Sem fyrr segir, verður fyrsta
ferðin til Tenerife farin 14.
desember og stendur í þrjár
vikur. Þá verða einnig tveggja
vikna ferðir, en lengsta ferðin
mun taka 24 daga. Eins og í
fluginu til Gran Canaria verður
brottför frá Keflavík kl. 08:00
og komið til Tenerife kl. 14:45.
Við heimferð er lagt af stað frá
Tenerife kl. 16:00 og komið til
Keflavíkurflugvallar um kl.
23:00.
(Frá Kynningardeild Flug-
leiða h.f., Reykjavíkurflugvelli)
Kristján ftá Djúpalæk.
í dvergasteini Dvalinn býr,
dýrir málmar gleðj’ ’ann.
Stál- og gull- og silfur-svarf
sindrar kringum steðjann.
Enginn á svo haga hönd.
Hróður Dvalins vítt um lönd
sverð og sylgjur flytja,
söm til skarts og nytja.
Ei er Dvalinn hár til hnés,
hélað skegg á vöngum.
Hann um forna frægðartíð
fámáll hugsar löngum.
— Menn nú smíða vopn að vild,
vígja dauða, ekki snilld.
Skreytir glys og glingur
grannan háls og fingur.
Dauft er yfir dvergaþjóð,
dagur hennar líður.
Hroðvirk glottir hraðans öld,
handverks dauðinn bíður.
Sumir slípa samt til kvelds
safír meðan birta elds
dvín í dverga smiðju.
Dvalins lýkur iðju.
Þetta kvæði opnar útsýn til
margra átta og er ekki allt þar
sem það er séð. Hefur skáldið
t. d. í huga hina fornu ljóðhefð
þegar það talar um að slípa
safírinn.
Kvæðið Drengur fjallar um
eilíft horfna æsku höfundarins:
Ég sé stundum lítinn
dapran dreng.
Er dimmir hann reikar um
engi sölnað
og leitar að blómi, sem eitt
sinn þar óx
en er nú fölnað.
Hann vill ekki sannleikann
viðurkenna,
og gráir vestar, hann gáir
austar.
En það er til lítils að leita
að lífsins fegursta blómi,
er haustar.
Og stundum hinn fölleita
ferðalang
mér finnst sem ég þekki:
Drengur,
ég kalla hikandi, komdu nær.
Það er eitthvað, sem minnir
á æsku mína
í augum þér. — Fram hann
gengur.
Ég lít í hans andht.
Mitt líkist því ekki
lengur.
Eyjan græna lýsir tengslum
okkar við írland og harmi yfir
örlögum hinna írsku frænda
vorra. Hér fylgir fyrsta og síð-
asta erindið:
Óku seglum eftir vindi ;|
írskir munkar, norður hingað.
Þráðu land hvar þögnin ríkti, I
þar sem eng'inn hafði syndgað. ■
Heilir menn með helga dóma, ■
handrit, krossa, fjöðurstafi.
Bæn og starfi, bók og Kristi '
byggðin vígðist, nyrst í hafi.
Djúp og sönn er samúð okkar.
Sorgir klakahjúpinn brjóta. J
Valda hlýtur síðusárið ji
sviða fleirum en það hljóta. jv
Frændabyggðir ólög eyða, i
orðið sumar þar að vetri. i
Eyjan græna! Eyjan hvíta
ann þér hlutar miklu betri. i
Að síðustu nokkur orð um
glettur og gráglettur. Þar víkur
höfundur að ýmsu ógeðfelldu í
samtíðinni. Tónninn er alltaf
hófstilltur og óvíða gætir
beiskju. Laun heimsins:
Á fjóskofaburst minni
sólskríkja sat
og söng þar af öllum mætti.
Sama lag, sama brag,
með sömu tilburðum
dag eftir dag.
Það var dálítið þreytandi.
(Verst að hún þóttist vera
veitandi).
Hún reigði sig alla,
raddbrigðin jók
og reif sig niður í kok;
dillaði stéli, dró sig í hnút.
Ég hélst ekki við', inn í hús i\
mitt gekk.
En hleypti kettinum út.
Þetta kvæði getur varla talist
græskulaust, eða er það bara
mér, sem dettur í hu'g sumir,
sem fjalla um listir og bók-
menntir?
í kvæðunum kemur fram, að
Kristján hefur ljóðmálið algjör-
lega á valdi sínu. Hann notar
jafnvel hina erfiðustu hætti án
þess að rímið eða formið beri
innihaldið ofurliði. Og það sem
meira er: Hann breytir, að því
er virðist áreynslulaust, eldri
bragarháttum og býr til nýja.
Þannig verður formið hvergi
tilbreytingarlaust.
Þessi bók er, auk þess að vera
góður skáldskapur, verulegt
framlag til þróunar og endur-
nýjunar á íslensku ljóðformi,
sem er svo sannarlega ekki
dautt. Kristján frá Djúpalælc
hefur að mínum dómi, ásamt
Snorra Hjartarsyni, Þorsteini
Valdemarssyni, Hannesi Péturs
syni, Þorgeiri Sveinbjörnssyni
og fleirum, lagt fram drjúgan
skerf til þessarar endurnýjunar.
Bókin er prýdd myndum eftir
Bolla Gústafsson. Hún er til-
einkuð konu skáldsins, Unni
Friðbjarnardóttur, og er smekk
lega útgefin af Bókaforlagi
Odds Björnssonar.
Magnús Ásnmndsson.
Þörf á vafni
í fundargerðum Vatnsveitu
Akureyrar kemur fram, að þör£
mun á borun nýrrar holu á
Vaglaeyrum á Þelamörk til að .
auka neysluvatn til bæjarins.
En eins og nú standa sakir,
virðist lítið mega út af bera, e£
ekki á að verða vatnsskortur.
Áætlaður kostnaður við borun-
ina er þrjár milljónir króna.
Flutningsgeta leiðslunnar til
bæjarins er enn ekki íullnýtt. j