Dagur - 17.12.1975, Qupperneq 1
ESU EFNAVERKSMIÐJAN SJÖFN
LVIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 17. des. 1975 — 54. tölublað
FILMUhÚSÍS akureyri
Jólatréð afhent með viðhöfn. (Ljósmyndastofa Páls)
JÓLAKVEÐJA FRÁ
Um lán til liitaveitu.
Bæjarráð hefur heimilað hita
veitunefnd bæjarins að leita
eftir ríkisábyrgð á láni vegna
hitaveituframkvæmda á næsta
óri, allt að 400 milljónum króna.
Engin ákvörðun hefur verið
tekin um það, hvar lánið verð-
ur tekið.
Galtalækur.
Bæjarráð hefur heimilað
bæjarstjóra að ganga til samn-
Vegir allgóðir
Samkvæmt upplýsingum Vega-
gerðarinnar í gær, eru vegir nú
allgóðir. Þó er Múlavegur að-
eins fær jeppum. Snjór var
hreinsaður af Vaðlaheiðarvegi í
gær og er hann því öllum bíl-
um fær þar til snjóar.
Undanfarna daga hafa vegir
verið hættulega hálir og enn
eru á þeim hálkublettir, sem
vegfarendur þurfa að átta sig á.
Umferð er nú mikil, eins og
venja er í góðu færi fyrir jól. □
Kasthvammi í Laxárdal, 15.
desember. Hér hefur ekki verið
látið út fé síðan 20. nóvember.
Það er nú talið gamaldags og
ekki lengur við hæfi að beita
sauðfé á þessum árstíma. Ég
var alinn upp við annað. Þá var
beitt í flestum veðrum, stund-
um jafnvel um of, en þá var
svo mikið hugsað um að spara
hey og var gert, enda var þá
erfiðara að afla heyja en síðar
varð. En féð verður hraustara
á að hafa verulega útivist.
Ekki hef ég fundið þessar
þrjár rjúpur, sem ég sá í haust
en tapaði svo af. Kannski hefur
einhver drepið þær.
Tíðin hefur verið ein sú
óstilltasta um tíma, sem ég man
eftir, en heita má snjólaust og
engin hörkuveður, en þó nokk-
Ur hvassviðri. Vegir eru svell-
aðir og hálir hér í Laxárdaln-
um.
Laxá hefur aldrei lagt í vetur
og það hefur ekki enn vei'ið
reynt að auglýsa væntanlegan
rafmagnsskort. Vel man ég
iifiiiiiniiiiiiiiimiiiiiimiiiiii
Á morgun, fimmtudag, eru
verslanir opnar til kl. 22.00.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
inga við Flugbjörgunarsveitina
um makaskipti á húseign sveit-
arinnar Strandgötu 55 B og úti-
húsum á Galtalæk, Samnings-
uppkastið verði lagt fyrir bæjar
ráð til samþykktar eða synjun-
ar. í þessum samningum skal
athugað, hvort Hjálparsveit
skáta getur fengið aðstöðu til
geymslu og viðhalds tækjabún-
aðar á sama stað. Flugbjörgun-
arsveitin hefur lagt fram teikn-
ingar að breytingum á umrædd-
um útihúsum.
Úthlutun úr Byggingalánasjóði.
Nýlega fór fram úthlutun úr
Byggingalánasjóði kaupstaðar-
ins. Alls bárust 155 umsóknir
um lán úr sjóðnum, en úthlutað
var 83 lánum að upphæð sjö
milljónir sex hundruð og fimm-
tíu þúsund krónur, sem skipt-
ust þannig: 59 fengu 100 þús-
und krónur, 22 feiigu 75 þúsund
króriur og 2 fengu 50 þúsund
krónur.
Réttindi og skyldur.
Fram eru komnar til annarr-
(Framhald á blaðsíðu 6)
þennan sama mánaðardag fyrir
40 árum. Þá var hörku stórhríð.
Menn ferðast mikið, kaupa
mikið og eyða miklu fé. Það er
ekki að sjá að það sé nein
kreppa. G. Tr. G.
f fyrrinótt urðu jarðskjálftar í
Grímsey. Fyrsti kippurinn varð
klukkan 3.57 og sagði Steinunn
Sigurbjarnardóttir, fréttaritari
Dags þar í eynni, að sá kippur
hefði verið svo harður, að flest-
ir myndu hafa vaknað. Mældist
hann 4,8 stig á Rigterskvarða og
klukkan rúmlega 10 fyrir há-
degi varð annar jarðskjálfta-
kippur, litlu minni, en margir
smærri kippir fram að þeim
tíma. Síðan var kyrrt fram að
hádegi, sagði fréttaritarinn.
í fregnum útvarpsins um há-
degi f gær var jarðskjálftanna
getið og frá því sagt, að þessara
jarðhræringa hefði einnig orðið
vart á Siglufirði. Ragnar Stef-
ánsson jarðskjálftafræðingur tel
ur upptökin 10 km norðvestur
í gær hafði bresku togurunum
á íslandsmiðum fækkað úr
fimmtíu niður í sextán eða
seytján og átta verndarskip.
Að venju eru hér fáir breskir
togarar um jól og áramót. Talið
er, að afli þessara togara hafi
verið mjög rýr að undanförnu.
„Áreitni“ Landhelgisgæslunn
ar hefur verið mikil og enn-
fremur hafa veður oft verið
hörð.
Akureyrarhöfn hefur borist
jólatré að gjöf frá Lúbeck. Það
er útgerð skemmtiferðaskipsins
Regína Maris er heitir Lúbeck
Linie AG sem hefur nú í 6. sinn
sent Akureyringum jólakveðjur
með þessum hætti.
Herluf Ryel umboðsmaður
útgerðarfélagsins á Akureyri
afhenti Akureyrarhöfn tréð 12;
desember sl. og hefur tréð verið
sett upp á mótum Glerárgötu
og Skipagötu.
Við þetta tækifæri sagði
Herluf Ryel að Regína Maris
kæmi fjórum sinnum til Akur-
af Grímsey. Kippirnir voru
snarpir en stuttir og ekki hefur
komið í ljós, sagði fréttaritar-
inn, að skemmdir hafi orðið.
Jarðskjálftamælar sýna stöðug-
ar hreyfingar á eynni.
Ofsaveður gekk yfir Grímsey
Sauðárkróki, 15. desember. —
Tíðarfar var mjög gott fram til
23. nóvember, en síðan hefur
veðráttan verið óskaplega
óstöðug, skipst á úrfelli, rok og
frost með hláku á milli. Þó hafa
frostin verið væg og aldrei veru
legur snjór.
Bresku freigáturnar þrjár á
miðunum austan við land sigla
nú með fallbyssur sínar mann-
aðar, og eru þær upplýsingar
hafðar eftir Guðmundi Kjærne-
sted skipherra á Tý, og sagðist
hann jafnframt aldrei á sínum
skipstjóraferli hafa orðið slíks
hátternis var.
Veiðarfæri hafa verið klippt
aftan úr 13 breskum togurum
síðan 13. nóvember. □
eyrar næsta sumar eða oftar en
nokkru sinni fyrr. Sú nýbreytni
væri nú fyrirhuguð að skiptið
komi við á Húsavík á leið sinni
hingað og gæfist farþegum kost
ur á að íara landleiðina til Akur
eyrar með viðkomu í Mývatns-
sveit. Hann gat þess að þessar
ferðir væru mjög eftirsóttar og
ávallt væri uppselt í þær.
Formaður hafnarstjórnar,
Stefán Reykjalín, veitti trénu
móttöku og þakkaði hann þann
vinarhug, sem gjöf þessari
fylgdi. Hann sagði Akureyringa
ávallt fagna komu skemmti-
kippir
um helgina og á sunnudags-
morguninn var eins og eftir loft
árás, yfir að líta, því margt laus
legt hafði fokið. Bátar, sem búið
var að setja, lögðust á hliðina,
en í óveðri þessu urðu þó engar
skemmdir. □
Þótt jörð sé næg er talið að
folöld, tryppi og yngri folalds-
hryssur séu farin að slást. Féð
hefur verið á fullri gjöf þennan
tíma.
Togararnir þrír lönduðu hér
í síðustu viku, en aflinn var
með minna móti, sökum ógæft-
anna. Minni bátar hafa ekki
róið síðan um miðjan nóvem-
ber. Minni vinna hefur því ver-
ið í frystihúsunum en oftast
áður og jafnvel fallið úr nokkr-
ir dagar.
Utgerðarfélagið er að reisa
400 fermetra byggingu. Er það
stálgrindahús. Undirstöðurnar
voru steyptar í október og nú
er húsið komið undir þak. Þetta
verður skrifstofubygging, neta-
verkstæði og geymsla, sem allt
vantaði tilfinnanlega.
Á laugardaginn og aðfaranótt
sunnudags var ofsarok af suð-
vestan og tók þá upp það föl,
LUBECK
ferðaskipsins Regína Maris,
skipið væri mjög fallegt og sjó-
mennska áhafnarinnar til fyrir-
myndar. Ennfremur kynnu
Akureyringar vel að meta hið
góða veður, sem virtist fylgja
komu Regína Maris til Akur-
eyrar.
(Fréttatilky nning )
Happdrætti
Framsóknarfi.
Blaðið hefur verið beðið að
minna á, að þeir sem fengið
hafa heimsenda happdrættis-
miða flokksins, eru vinsamlega
beðnir að greiða þá sem fyrst.
Skrifstofa flokksins í Hafnar-
stræti 90 er opin á þriðjudögum
og miðvikudögum kl. 20—22, á
fimmtudögum kl. 17—19 og á
laugardögum kl. 10—12. En
einnig má gera skil á afgreiðslu
Dags á skrifstofutíma. □
sem var og mikið af svellunum
einnig.
Á Sauðárkróki er nú mann-
margt, því fólk úr héraðinu er
að gera jólainnkaup sín. Við-
skipti eru mikil að venju og
sést ekki að neitt dragi úr jóla-
kaupum.
Fallegur kross er hér uppi á
Nöfunum og er kveikt á honum
fyrir jól og er búið að kveikja
á honum nú. G. O.
Yinnuslys 1
Síðdegis á mánudag varð það
vinnuslys, að smiður féll af þaki
gamla Gróðrarstöðvarhússins á
Akureyri. Hann var fyrst flutt-
ur í Fjórðungssjúkrahúsið, en
síðan suður til Reykjavíkur,
mikið slasaður. Q
MIKIÐ FERDAST
OG MIKIÐ KEYPT
Mjög snarpir
Rólegt er á miðunum
Ekkert lál á jólakaupunum á Króknum