Dagur - 17.12.1975, Qupperneq 8
GILTU
TÍSKUHÁLS-
KEÐJURNAR
NÝKOMNAR
Akureyri, miðvikudagimi 17. des. 1975
SMÁTT & STÖRT
Gjöfin aíhent í Fjórðungssjúkrahúsinu.
(Ljósmyndastof a. Páls)
Á sunnudaginn afhenti Lions-
klúbbur Akureyrar Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri ljós-
myndatæki til leitar krabba-
meins. í fréttatilkynningu um
þetta segir svo:
Athygli manna hefur í æ rík-
ari mæli beinst að brjóstkrabba
meini. Komið hefur í ljós að
brjóstkrabbi er nú algengasti
illkynja sjúkdómur hjá konum,
og fer tíðni hans stöðugt vax-
andi. Batahorfur eru fyrst og
Heroin í inn
fliEttum bíi
Mörg og leið mál hafa verið
tekin til meðferðar vegna
smygls á eiturlyfjum. Hið síð-
asta af því tagi varð uppvíst er
hass-hundur og tollverðir í
Reykjavík fundu verulegt magn
af heroini eða morfíni, falið í
innfluttum bíl. Gerðist þetta er
Citroen-bifreið var flutt frá
borði í Reykjavíkurhöfn í síð-
ustu viku. Þá var hass-hundur-
inn kallaður til og tók hann
þegar að krafsa í bílinn. Var
hér um að ræða mesta magn,
sem fundist hefur í einu, eða
svo kílóum skipti. En giskað
hefur verið á 3—4 milljón króna
söluverðmséti, ef það hefði
komist á markað.
Hass-hundurinn frægi sann-
aði ágæti sitt í þessu máli, eins
og svo oft áður. □
fremst undir því komnar, að
meinið greinist strax á byrjunar-
stigi.
Vegna fjármuna- og tækja-
þkorts, hefur fram að þessu
ekki verið unnt að framkvæma
hóprannsóknir á konum. Ollum
má þó ljóst vera, að lífsnauðsyn
er að hefjast nú þegar handa,
enda með því beinlínis verið að
bjarga mannslífum.
Með þessa brýnu þörf í huga
ákváðu félagar í Lionsklúbbi
Akureyrar, að beita sér fyrir og
skipuleggja fjáröflun, til kaupa
á brjóstmyndatæki til leitar
krabbameins. Er tæki það sem
valið var (Mammograph), talið
hið fullkomnasta sem völ er á,
til leitar og rannsókna á krabba
meini í brjósti, og kostar um
3,3 milljónir króna, auk tolla og
aðflutningsgjalda. Hefur tækið
nú verið sett upp á Röntgen-
deild F.S.A., og verður fljótlega
tekið í notkun í þágu almenn-
ings.
Þar sem um svo dýran grip
var að ræða, var leitað aðstoðar
nokkurra félagasamtaka á Akur
eyri og í nágrenni.
Er skemmst frá því að segja,
að málaleitun glúbbsins var
mjög vel tekið, og bárust drjúg-
ar peningasendingar frá félög-
um innanbæjar og utan, auk
þess sem tveir aðilar aðrir
lögðu fram góðan skerf.
Félagar í Lionsklúbbi Akur-
(Framhald á blaðsíðu 4)
EITT ER MEST
Á tímum stórra viðburða á ís-
landsmiðum, mikilla veðra,
tíðra veðraskipta, skammdegis,
annríkis á Alþingi og amsturs
almennings fyrir daglegu
brauði sínu, yfirskyggir einn
hlutur allt hitt og það er undir-
búningur jólanna, svo ríkan
þátt á þessi hátíð enn í hugum
fólksins. Hve gott er það ekki
í erfiði dagsins, skammdegis-
myrkri og linnulausri baráttu
okkar innbyrðis og út á við, að
eiga þessa hátíð framundan,
gleðjast sameiginlega og hvert
og eitt — og verða betri menn
um stund.
JÓLAGJAFIRNAR
Eitt atriði jólaundirbúnings eru
jólagjafirnar. Vart er hægt að
líta inn í nokkra verslun án
þess að taka eftir því, að fólk er
að hugsa um jólagjafir. Á með-
an velmegun var meiri en hún
er nú, stækkuðu jólagjafirnar
ár frá ári, að minnsta kosti að
verðgildi og þeir sem eldri eru
og muna tvenna tíma, þcgar
það þótti gott „að hafa í sig og
á,“ hættu jafnvel að spyrja
hvað hlutirnir kostuðu. Þaðan
af síður voru menn að hafa fyr-
ir því að gera verðsamanburð
í verslunum. Synd væri að
segja, miðað við fyrri tíma, að
kaupgeta sé lítil. Hið sanna er,
að hún er mikil, þótt enginn
mótmæli, að liún hafi minnkað.
AÐ VELJA OG HAFNA
En þessi rýrnun kaupmáttar
veldur því, að menn eru farnir
að velta fyrir sér hverjum seðli
af brýnni þörf og hefði e. t. v.
mátt fyrr vera. Og þessi þörf
ætti að styðja þau gömlu og
nýju sannindi, að það eru ekki
alltaf stærstu jólagjafirnar, sem
gleðja mest, heldur hugkvæmni
í vali og þó er það mesta gleðin
Húsaþök skemmdus! í ofviðri á Bakka
A laugardaginn var gerð frá
Tjarnarkirkju í Svarfaðardal
útför Þórs Vilhjálmssonar á
Bakka, að viðstöddu fjölmenni.
Hann var 82 ára er hann lést á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur
eyri. Ekkja hans er Engilráð
Sigurðardóttir frá Göngustöð-
um. Tvær dætur þeirra hjóna
búa nú á Bakka.
Aðfaranótt síðasta sunnudags
gerði ofsarok og var hvassast
klukkan 2—4. Þá fauk ýmislegt
lauslegt á Dalvík, en hvergi var
um mikinn skaða að ræða. Hins
vegar fauk hluti af hlöðuþaki
á Bakka og einnig nokkuð af
járnplötum af íbúðarhúsi.
Björgvin kom á mánudags-
morgun með 110 tonn af fiski
og er aflaverðmæti um 4
milljónir.
Rækjuvinnsla er engin því ekki
viðrar til sjósóknar' á rækju-
miðum.
Upp eru komnar skreytingar
við kirkju og hefur Lionsklúbb
ur Dalvíkur sett þar upp mynd-
arlegt jólatré. Komnar eru einn
ig jólaskreytingar í verslanir,
svo sem útibú KEA og víðar.
Ennfremur skreyta margir
heimili sín með útiljósum.
Vegirnir eru ágætir og notar
sveitafólkið greiðfærar og góð-
ar leiðir til að skreppa í kaup-
stað til að gera jólainnkaup sín.
Á laugardaginn var skipað út
4400 pökkum af saltfiski í Eld-
vík fyrir markað á ítalíu og
Grikklandi.
(Samkv. viðtali við Kristján
Ólafsson útibússtjóra á Dalvík)
Siökkviíiðið kaliað út í þrjú skipii
rafmaogstruflanir
urðu í Kelduhverfi
Á laugardaginn, klukkan 9.40,
var slökkviliðið á Akureyri kall
að að Bautanum. Þar hafði
kviknað í grillofni. Skemmdir
munu ekki hafa orðið teljandi
nema af reyk.
Sama dag klukkan 19.20
kviknaði í kyndiklefa útibús
Nýlenduvörudeildar KEA að
Hlíðargötu 11. Þar urðu litlar
skemmdir af bruna en miklar
af völdum reyks og vatns. Vör-
ur verslunarinnar voru fjar-
lægðar, allt málað hátt og lágt
um helgina og klukkan 3 á
mánudaginn var útibúið opnað
á ný með nýjum vörum.
Enn var svo slökkviliðið kall-
að að Skinnaverksmiðjunni
Iðunni næstu nótt, en þar urðu
engar skemmdir, aðeins trufl-
anir vegna rafmagnsbilunar.
(Samkvæmt upplýsingum
slökkvistöðvar)
í samtali við Ingibjörgu Indriða
dóttur, Höfðabrekku, Keldu-
hverfi á mánudaginn, kom fram:
Vegirnir eru alveg ágætir og
eru menn ánægðir yfir því og
mikils um það vert að hafa
greiðar samgöngur, ekki síst nú
fyrir jólin. Og hér líður öllum
vel og hafa ekki yfir neinu sér-
stöku að kvarta nema rafmagns
truflunum undanfarna daga.
Það er búið að vera rafmagns-
laust hér síðan í gær og veit
ég ekki ástæðuna.
Kvenfélagið okkar í Keldu-
hverfi varð að fresta basar í
Skúlagarði, en að viku liðinni
var unnt að halda hann og tókst
það vel. Ágóðanum á að verja
til endurbóta á Garðskirkju og
til Sólborgar á Akureyri.
í Skúlagarði hefur verið unn-
ið af kappi við byggingu skóla-
stjórabústaðar og er það hús
orðið íokhelt.
Kirkjukór Garðskirkju byrj-
aði fyrir nokkru æfingar og ung
mennafélagið undirbýr veglega
samkomu, sem haldin verður
milli jóla og nýárs. □
fyrir livern þiggjanda, að vita
að eftir honum sé munað og til
hans hugsað af hlýjum liuga.
Þessu mættu margir velta fyrir
sér, ef þeim finnst peningavesk-
ið ætla að rýrna óeðjilega fljótt
í þessari miklu jólakauptíð.
TVÆR NIÐURSTÖÐUR
f jólakauptíð, þegar allar versl-
anir cru fullar af fögrum og góð
um vörum og kaupgeta veru-
leg, keppa verslunaraðilar um
peninga fólksins. Það er slegist
um viðskiptavinina eins og um
sálirnar við „hið gullna hlið“
og veitir ýmsum betur. Mikils
virði er það fyrir almenning, á
meðan atvinna lielst sæmileg og
menn hafa einhverja peninga
handa á milli, að hafa mikið og
fjölbreitt úrval pf hvers kyns
vörum og góða verslunarþjón-
ustu í ofanálag. Vandinn er hins
vegar enn meiri, að velja og
hafna, því vandi valsins er
hverju sinni erfiður, á hvaða
sviði sem er. En niðurstöður
þessara hugleiðinga eru tvær.
Sú fyrri er, að kaupa fremur
fleiri jólagjafir og smærri, til
þess að gleðja sem flesta, og hin
er sú, að kaupa fremur þá hluti
en aðra, sem hagnýtir geta tal-
ist eða veitt geta fleiri ánægju-
stundir en það augnablik, sem
jólapappírinn er tekinn utan af
þeim.
SKEMMTILEG TILLAGA
f gærmorgun gerði Guðmundur
Þorsteinsson það að tillögu
sinni í umferðarþætti sínum, að
akureyringar og hafnfirðingar
kepptu á næsta ári um lækkun
umferðarslysa. Þetta er ágæt
hugmynd, ef unnt er að fram-
kvæma hana. Svo mikill þáttur
er umferðin í daglegu lífi fólks,
og svo mikið áhyggjuefni eru
hin tíðu umferðarslys, að al-
menningur lifir í stöðugum ótta
við þau og ekki að ástæðulausu.
f stað góðra samgöngutækja, ogj
er þá átt við hinn mikla bifreiða
kost, og akfærra vega og það
gagn og gleði, sem þetta á að
veita öllum landsins börnum,
er gleðin blönduð ótta.
ÁHUGAVERÐ KEPPNI
Þegar í huga eru höfð þær þús-
undir umferðarslysa á ári
liverju í umferðinni hér á landi,
Iimlestingar og dauða af völd-
um þessara slysa og einnig er
liorft til þeirra milljarða króna,
sem slysin valda á farartækjum
ár hvert, er það sannarlega um-
hugsunarefni, hvernig unnt
væri að keppa í fækkun um-
ferðarslysa. Keppni er í liáveg-
um höfð á flestum sviðum, og
þótt einhverjum finnist hún
stundum ganga út í öfgar, ætti
umferðarkeppni á milli kaup-
staða að verða almennt áhuga-
mál. Tryggingafélög, lögregla,
bæjarstjórnir, umferðarnefndir
og Umferðarráð ættu að vera
málinu fylgjandi, bvað sem
segja niá um sjálfa framkvæmd
ina, sem enn mun lítt hugsuð
en þyrfti að rökræða nánar.
£<$3>-$><S><$<$<$x$<$<$<Sx$3*$^<$3xí><í*$®*$
Dagur
kemur næst út á föstudaginn.
Þurfa því auglýsingar að berast
fyrir hádegi á fimmtudag. —