Dagur


Dagur - 28.01.1976, Qupperneq 8

Dagur - 28.01.1976, Qupperneq 8
BAGUB Akureyri, miðvikudaginn 28. ján. 1976 GILTU TÍSKUHÁLS- KEÐJURNAR NÝKOMNAR GULLSMIÐIR sigtryggUr & PÉTUR AKUREYRI Æ SMÁTT & STÓRT, Afli Akureyrarfogarsnna árið 1975 Samkvœmt aflaskýrslu ÚtgerS- arfélags Akureyringa h.f. fyrir síðasta ár^ hafa togararnir skil- að samtals 13.781 tonni á land í 108 veiðiferðum. Harðbakur EA 3 aflaði 1.590 tonn, Sólbakur EA 5 1.714 tonn, Kaldbakur EA 301 2.458 tonn, Svalbakur EA 302 2.732 tonn, Harðbakur EA 303 1.996 tonn og Sléttbakur EA 304 3.289 tonn. Enga samninga við brel Á fundi bæjarstjórnar Húsa- víkur 20. janúar 1976 var svo- hljóðandi ályktun samþykkt: „Fundur í bæjarstjórn Húsa- víkur haldinn 20. janúar 1976 samþykkir eftirfarandi ályktun um landhelgismál: 1. Fundurinn sendir öllum starfsmönnum Landhelgis- gæslunnar baráttukveðjur og þakkar þeim framúrskarandi árangur við hin þýðingar- miklu og áhættusömu störf þeirra. Einnig lýsir fundurinn full- um stuðningi við aðgerðir fólks á Suðurnesjum og í Hornafirði. 2. Fundurinn skorar á ríkis- stjórnina að gera enga samn- inga við breta um veiðiheim- ildir þeim til handa innan 200 mílna. 3. Landhelgisgæslan verði stór- efld og varðskipum okkar fjölgað. 4. Stjórnmálasambandi við breta verði slitið tafarlaust-. 5. Nú þegar verði tekið fyrir ofbeldi og rányrkju breta í i íslenskri fiskveiðilögsögu. Annars verði hervarnarsamn FRÁ LÖGREGLUNNI Um síðustu helgi voru nokkur innbrot framin á Akureyri, sam kvæmt umsögn lögreglunnar. Aðfaranótt sunnudags var brotist inn í Shellbúðina við Hjalteyrargötu, stolið fimmtán þúsund krónum og vörum og hurð var þar brotin. Ennfremur var brotin rúða á verkstæðinu Varma og í dísilverkstæði Kristjáns Jóhannssonar. En þessir staðir allir eru á litlu svæði og skammt á milli. í Kaupvangsstræti var brot- ist inn á skrifstofur Sjálfstæðis flokksins og ritstjórnarskrif- stofu íslendings og skrifstofu Bókvals. Hurðir voru brotnar, tveim útvarpstækjum stolið, tómum peningaskáp o. fl. ingur okkar við Bandaríkin og aðild okkar að Atlants- hafsbandalaginu tekin til end urskoðunar, með tilliti til uppsagnar. Enda verður þá að telja að brostinn sé grund völlur fyrir aðild okkar að bandalaginu.“ Q Tala veiðiferða var frá 14—21 og afli á veiðidag frá 7.502 kg upp í 12.556 kg. Meðalverð afl- ans var 37,27 krónur kílóið. Framleiðsla til útflutnings var sem hér segir: 144.456 kass- ar freðfiskur, 77 smálestir skreið og 757 smálestir salt- fiskur. Ein söluferð var farin til útlanda. Landað var á Akureyri 13.316 tonnum. Vinnulaun hjá Ú. A. síðasta ár voru 470,5 millj. ki'óna, þar af til sjómanna 223,6 millj. kr. Útgerðarfélag Akureyringa er ein styrkasta stoð atviiinulífsins á Akureyri, vel rekið og öflugt fyrirtæki. Q Friðrik Jónsson oddviti á Kópa- skeri sagði meðal annars í við- tali við blaðið í gær: Jarðskjálftar voru hér í gær- morgun, um klukkan hálf tíu og eru þeir síðustu hér, sem nokk- uð kveður að, en jai'ðskjálfta varð þó vart í nótt, inni á Arnar stöðum, um. kl. 4 og svo hálf- um þriðja tíma síðar. Vatn er nú komið í öll hús á staðnum, í aðal lagnir, en í ljós hefur komið, að í sumum hús- um er innanhúskerfið ekki í lagi. Þá hafa skólplagnir bilað. amundan Fólk er lítið farið að flytjast heim. Á Kópaskeri eru nú inn- an við 50 manns en voru um 130 fyrir jarðskjálftana. Flest af burtfluttu fólki er í Reykjavík og líklega tefur það heimkomu þess, að jarðskjálftarnir tóku sig upp á ný, þótt þeir síðustu hafi engum skemmdum valdið. Mikið vatnsmagn rennur til sjávar úr skurðum þeim, sem Skóga-kíllinn er tengdur. Opn- uð var framrás til sjávar. Þar rennur svipað vatnsmagn og er í Brunná. Q Játning á morði Þrír menn um þrítugt hafa verið úrskurðaðir í allt að 45 daga gæsluvarðhald vegna hvarfs Geirfinns Einarssonar í Keflavík, sem hvarf 19. nóvem- ber 1974 og hefur ekki til hans spurst síðan. Upplýsingar, sem leiddu til handtöku mannanna þriggja, komu fram við yfirheyrslur yfir piltum um tvítugt, sem nú hafa játað að hafa átt þátt í dauða Guðmundar Einarssonar, sem hvarf í Hafna(rfirði í janúar 1974. Piltarnir eru fjórir og hafa þi'ír játað að hafa átt í átökum við Guðmund, sem leiddu til dauða hans og sá fjórði játaði að hafa flut-t líkið út á víðavang og átt þátt í að urða það, en það hefur ekki fundist, enda snjór yfir öllu nú. Eggert Bjarnason rannsóknar SPJARARÆR f ÚLFS- STAÐAHALSI Nokkrir hafa um það spurt að gefnu tilefni, hvað spjararær sé. En þetta orð kemur fyrir í þætti Eysteins Jónssonar í síðustu bókinni í bókarflokknum Aldn- ir liafa orðið. Þar segir svo: „Föðuramma mín var Ólöf Ein- irsdóttir frá Hellisfirði. Mun hún hafa verið röskleikakona og gengu af henni ýmsar sögur, meðal annars fyrir liressilega gamansemi. Einhverju sinni þegar hún hafði margt áð stússa, á hún að hafa sagt: Ég vildi ég væri spjararær í Úlfs- staðahálsi.“ í íslenskri orðabók Árna Böðvarssonar segir: Spjararær, ær sem saumað: er fyrir svo áð hún lembgist ekki. NÚ ERU ÞAÐ KONURNAR Líklega hefur gömlu konuna ekki grunað, þegar liún mælti þessi fleygu orð, að þau yrðu rifjuð upp mörgum áratugum síðar, og að þá yrðu það ekki ærnar lieldur konurnar í land- inu, kannski meirihluti ís- lenskra kvenna á barneignar- aldri, sem í raun væru spjarar- ær, ýmist pillu-konur eða lykkju-konur, til að verjast þungun. Enn síður mun hún hafa hugleitt, að konur, t. d. rauðsokltur, berðust fyrir lög- gjöf um auðveldar fóstureyð- Loðnuveiðin Sextán skip fengu afla í fyrri- nótt, samtals 5 þúsund lestir og hafa farið með aflann til Eski- fjarðar og Reyðarfjarðar. Um 60 skip eru farin til loðnuveið- anna og hafa fengið samtals 26.500 lestir. o lögreglumaður, sem ásamt Sig- urbirni Eggertssyni og Erni Höskuldssyni, hefur unnið að rannsókn þessa máls, lýsti því yfir í gæi', að orsökin til morðs- ins lægi ebki ljóst fyrir. Q Blaðabingó Þórs Nú um helgina fer Knattspyrnu deild Þórs af stað að nýju með blaðabingó í svipuðu formi og í haust. Verða spjöldin seld víðs vegar um bæinn og kosta 2 spjöld kr. 200 og 6 spjölld kr. 500. Vinningur er vöruúttekt hjá Gunnari Ásgeirssyni að upp hæð kr. 150.000. Þrír geta hlotið bingó í einu og skiptist þá vinn- ingurinn milli þeirra. Ef fleiri fá bingó verður dregið úr rétt- um bingóum. Upplýsingablað fylgir hverju spjaldi en útdregn ar tölur birtast í Sjónvarpsdag- skránni ög blöðum bæjarins. Síðasta bingó seldist upp og fengu færri en vildu. (Fréttatilkynning) Frá Kiwanisklúhhm Kaldbaki Svo sem undanfarin ár mun Kiwanisklúbburinn Kaldbakur halda bingó til fjáröflunar, að þessu sinni 1. febrúar næstkom- andi, í Sjálfstæðishúsinu. Öllum ágóða af skemmtun- inni verður varið til kaupa á heyrnarmælingatækjum og hljóðeinangruðum klefa, sem notaður verður til heyrnar- prófunar. Með kaupum á þessum tækj- um er ráðist í stórt og aðkall- andi fyrirtæki. Spilað verður um eins og tveggja manna ferðir innan- lands og utan, einnig munu Halli og Laddi skemmta bingó- gestum. Klúbbfélagar vænta þess að bæjarbúar leggi málefni þessu lið með því að freista gæfunnar í glæsilegu ferðabingói. (Fr éttatilkynning) i 4 ingar þegar ekki dygði pilla eða lykkja, til að koma í veg fyrir að nýtt líf kviknaði. V. • ' . ; ÍSLENDINGAR SAFNA VERÐLAUNUM Segja má, að íslendingar safni um þessar mundir verðlaunum á erlendri grund og er þáð ánægjulegt. Ólafur Jóhann Sig- urðsson lilaut bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs, Atli Heimir Sveinsson hlaut tón- skáldaverðlaun Norðurlanda- ráðs og þess má þá einnig geta, að Hafliði Ilallgrímsson frá Akureyri hlaut fyrstu verðlaun í G. B. Viotti-samkeppni á Italíu. Var hér um tónskálda- keppni að ræða, og voru verð- launin vegleg peningaupphæð. FRÉTTARITARI OG RITSTJÓRI Blaðinu liefur verið bent á þá missögn í sambandi við blaða- mannafund Kröflunefndar við Kröfluvirkjun í haust, að sagt var, að blaðamanni Dags hefði ekki verið þangáð boðið. Þar átti að standa, að ritstjóra Dags hefði ekki verið þangað boðið, en hins vegar fréttaritara blaðs- ins á Húsavík. Þetta leiðréttist hér með þótt seint sé. Vonandi eiga eftir að birtast margar og ánægjulegar fregnir frá Kröflu- nefnd um Kröfluvirkjun, þótt margt virðist í óvissu um raf- orkuöflun á þeim stað um þess- ar mundir. VÖLDU VERRI KOSTINN Breska stjórnin valdi þann kost að troða illsakir við íslendinga með því áð senda freigátur til að vernda veiðiþjófnað breskra togara í fiskveiðilögsögu íslend- inga. Þetta er mjög ósvífið þeg- ar á það er litið, að breskir fiski fræðingar hafa viðurkennt of- veiði þorsks á íslandsmiðum og þar með þau augljósu sannindi, að íslendingar geta ekki leyft erlendum þjóðum veiðar innan íslenskrar fiskveiðilögsögu nema takmarka sinn eigin afla. FURÐULAG STEFNA Með þessum yfirgangi breta og valdbeitingu, eru þeir að ganga gegn eigin stefnu í fiskveiði- málum, leggja líf manna í hættu og kosta miklu til að ná nokkru fiskmagni áður en haf- réttarráðstefnan ákveður 200 rnílna mörkin. Sjálfir krefjast bretar fullra yfirráða land- grunns síns alls og einnig utan 200 mílnanna. Þeir styðja ákveð ið 200 mílna stefnmia á alþjóða- vettvangi, en vilja nota tímann til veiða á íslandsmiðum í skjóli hörkulegrar valdbeiting- ar eða nauðungarsamnings, þar til alþjóðalögin taka gildi. KÖLLUÐU IIERSKIPIN ÚT FYRIR Eftir grófa valdbeitingu þeirra á íslandsmiðum og ásiglingar á íslensk varðskip innan fiskveiði lögsögunnar, ákvað íslenska ríkisstjórnin að hóta stjórnmála slitum við breta innan viku, ef lierskipin liefðu þá ekki verið kvödd út úr landhelginni. Bret- ar brugðust við á þann hátt, áð þeir ákváðu að kaila herskip sín út fyrir 200 mílurnar og óskuðu jafnframt viðræðna við íslenska forsætisráðherrann um lausn landhelgisdeilunnar. íslenska (Framhald á blaðsíðu 2)

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.