Dagur - 04.02.1976, Page 4

Dagur - 04.02.1976, Page 4
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-C6 og 1-11-67 Ritstjóri og óbyrgSarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. Rógsherferð gegn dóms- málaráðherra Undanfarið hefur verið lialdið uppi rógslierferð á hendur dómsmálaráð- herra og formanni Framsóknarflokks ins, Ólafi Jóhannessyni. Atliyglisvert er, hve greiðan aðgang foringjar þessarar herferðar eiga að flesturn dagblöðum Reykjavíkur. Það er engu líkara en myndað hafi verið bandalag þessara blaða í þeim eina tilgangi að grafa undan þessum stjórnmálaforingja. Naumast er það tilviljun, að öll þessi blöð skuli dag eftir dag beina spjótum sínum að einum og sama manni, því ekki er að sjá annað sameiginlegt. En kannast menn ekki við þessi vinnubrögð þegar betur er að gáð? Það er ekki nýtt að þeir forystumenn Framsóknarflokksins, sem borið hafa af stjórnmálamönnum sinnar sam- tíðar, hafi orðið fyrir svipaðri aðför og nú er gerð að formanni Fram- sóknarflokksins. Árið 1930 var gerð aðför að Jónasi Jónssyni, þáverandi dómsmálaráðherra og formanni Framsóknarflokksins, og gerð til- raun til að fá liann úrskurðaðan geð- veikan. Og árið 1934 voru tveir pöru piltar fengnir til að bera ljúgvitni gegn Hermanni Jónassyni, sem þá var lögreglustjóri í Reykjavík og bæjarfulltrúi framsóknarmanna þar. Þjóðin dæmdi í þessum málum í alþingiskosningunum 1934 og hlaut Framsóknarflokkurinn einn sinn mesta kosningasigur. Rógberarnir fengu sinn dóm. Nú er komið að Ólafi Jóhannes- syni, sem í þjóðarvitundinni er nú fremsti stjómmálaforingi þessarar þjóðar. Svo langt er seilst í rógskrif- unum, að honum er borið á brýn, að hann hindri í krafti síns ráðuneytis, að eðlileg dómsrannsókn færi fram í morðmáli, svo ógeðslegasta dæmið sé nefnt. Munurinn á aðför- inni nú og í liin fyrri skiptin er sá, að nú er Framsóknarflokkurinn í stjórnarsamstarfi með Sjálfstæðis- flokknum. Þess vegna hlýtur sú spurning að vakna, hvort sjálfstæðis- menn séu að undirbúa stjórnarslit. Eða kveljast þeir svo af minnimáttar- kennd gagnvart dómsmálaráðherra, að þeir hafi tapað dómgreind sinni. Svo langt gengu þeir menn, sem berjast fyrir því að grafa undan embættisheiðri Ólafs Jóhannessonar, að þeir fluttu rógsmálin inn á Al- þingi á mánudaginn og var hluta umræðna sjónvarpað. Má með sanni segja, að þar snerust vopnin eftir- minnilega í höndum tilræðismanna. Bókin sem beðið var eftir: Jökulsárgljúfur, íslenskur undraheimur eftir Tbeódór Gunnlaugsson frá Bjannalandi. Útgefandi Bókaforlag Odds Björnssonar. Bók þessi fjallar í máli og myndum um þá töfraveröld sem náttúruöflin hafa skapað á þessu svæði, með Jökulsá sem höfuðsmið. Enginn maður þekk ir þetta landssvæði betur en Theódór frá Bjarmalandi né elskar það heitar. Leiðarlýsing hans er ákaflega ýtarleg, m. a. koma hér fyrir nær 200 örnefni auk þeirra sem allir ' þekkja. Til viðbótar texta Theódórs skrifa Helgi Hallgrímsson og Oddur Sigurðsson um lífríki og jarðsögu Jökulsárgljúfra. Aftast fylgir útdráttur á ensku og örnefnaskrár. . -.. En þetta er ekki nema helft bókarinnar. Hitt eru myndir. 33 þeirra eru í lit og hafa flestar þeirra tekist vel. Þar að auki er mikill fjöldi svart/hvítra mynda og ágætis yfirlitskort yfir svæð- ið með númerum yfir örnefni, sbr. texta Theódórs. Fjöldi manna hefur á undan- förnum árum heillast af Jökuls- árgljúfrum og umhverfi þeirra, en þar var loks stofnaður þjóð- garður 1973. Má því búast við mikilli fjölgun ferðamanna. Er þá bók þessi mikilsverð . hand- bók. En þar að auki er bókin augnayndi og þeir sem ekki komast í gljúfrin sjálf geta ferð ast um þau í huganum með bók þessa að leiðsögu. Kristján Kristjánsson hefur „hannað“ bókina, ”og hann á góðan hlut að ágætu útliti bóka frá Bókaforlagi Odds Björns- sonar. □ Hrakningar á söltum sjó skipbrotssaga eftir Dougal Robertson. Útgefandi Bókaforlag Odds Bjömssonar. Hrakningasögur eru vinsælt les efni á íslandi enda okkur málið skylt. Ekki trúi ég öðru en að bók þessi eigi eftir að skipa veglegan sess í þeim flokki. í júní 1972 réðust illhveli að skútunni Lucettu á Kyrrahafi. Höfundurinn og fjölskylda hans björguðust í gúmmíbát og þar máttu þau dúsa í 38 sólar- hringa. Um þetta allt er fjallað í smáatriðum eins og í öðrum bókum af þessu tagi. Og enda- lokin eru farsæl. Þýðing þeirra Ólafs Rafns Jónssonar og Rafns Kjartans- sonar er ágæt. □ Skáldið sem skrifaði Mannamun sendibréf frá Jóni Mýrdal. Finnur Sigmundsson bjó til prentunar. Útgefandi Bókaforlag Odds Björnssonar. Þetta er ótrúlega skemmtileg bók og lærdómsrík. Það er ekki einungis að skáldið Jón Mýrdal hafi verið góður bréfritari held- ur gera hinar ágætu upplýsing- ar og athugasemdir Finns bók- ina að landsháttalýsingu á öld- inni sem leið. Jón Mýrdal var fæddur 1825. Hann lærði tré- smíði og vegna atvinnu sinnar lágu spor hans vítt um land. Merkur þáttur ævi hans gerðist x Fnjóskadal. Einnig í Skaga- V.V.V.V.V.V.V.V, "■"■"■"■"■"■"■"■"■"■"■"■"■"■"■"l Si; '.V.V.V.'.V.V.V, .■.v.v.v.v.v.v '.VV.V.V, .vv.v.v, .vvv.vv :■> Nýrra bóka ■ ■■■■■■■■■■ .v.vvv.vv.v VIUA BYGGJA A LANDIFEÐRANNA firði, við Breiðafjörð og síðast á Skipaskaga. Jón var ágætur smiður og standa enn nokkur verka hans. En það. er ekki það sem gerir manninn eftirminni- legan heldur skáldskapur hans. Hver þekkir ekki söguna Mannamun? En engin þjóð kann að meta samtíðarskáld sín að fullu. Jón fékk að heyra orð- in leirskáld og fúskari, og bar- átta hans fyrir að koma verkum sínum á framfæri var mikil raun — en nú loks á okkar bóka- og listaöld hafa skáldverk hans verið gefin út og þó þau kunni að reynast haldlítil til að forða nafni þessa sérstæða manns frá gleymsku þá mun bókin sem Finnur Sigmundsson hefur nú gjört svo vel úr garði, bréf skáldsins, tryggja nafn þess í sögunni. □ Framtíðin gullna skáldsaga eftir Þorstein Stefánsson. Útgefandi Bókaforlag Odds Bjömssonar. Á kápusíðu stendur um þessa bók: -„Höfundurinn, Þorsteinn Stefánsson, hefur verið búsett- ur í Danmöi-ku um langt ára- bil og þar kom bókin fyrst út. Hlaut hún hinar bestu viðtökur og höfundurinn var heiðraður með H. C. Andersen bókmennta verðlaununum. Næst var bókin gefin út í Englandi af hinu heimskunna bókaforlagi Oxford University Press og hlaut ágæta dóma.“ Þessi bók er sérlega eiguleg, eins og reyndar allar bækur B. O. B., og satt hjá útgefanda að kominn var tími til að íslend ingar fengju að kynnast þessari þekktu skáldsögu. □ Afastrákur eftir Ármann Kr. Einarsson. Útgefandi Bókaforlag Odds Bjömssonar. Enn er Ármann Kr. á ferðinni með barnabók. Dugnaður hans í skrifum fyrir yngstu kynslóð- ina er mikill og honum bregst sjaldan bogalistin. Þessi bók er ætluð fyrir allra minnsta fólkið, jafnvel til endur sagnar fyrir þá sem enn horfa spurnar- og undrunaraugum á töfravéröld stafanna. Þetta er falleg bók með teikn- ingum Þóru Sigurðardóttur. □ Húmar að kvöldi skáldsaga eftir Guðjón Sveinsson. Útgefandi Bókaforlag Odds Bjömssonar. / Á bókarkápu stendur að þetta sé fyrsta skáldsaga Guðjóns „fyrir fullorðna". Þetta mun rétt vera þótt bók hans, Ört rennur æskublóð, hafi reyndar eins verið ætluð fyrir þá „full- orðnu“ og yngri kynslóðina. Auk þess hefur Guðjón samið nokkrar unglingasögur í Blyton stíl. Bókin Húmar að kvöldi fjallar um ungt fólk og vandamál þess. Og þótt deila megi um boðskap og niðurstöður þá eru efnistök ágæt og stíll betri en ég hef áður séð til Guðjóns. Hann fet- ar að vísu í fótspor margra sem fjallað hafa um sama efni á síð- ustu árum en á sjálfstæðan hátt. Þessi bók og Ört rennur æskublóð, sem áður var minnst á, sýna og sanna að höfundinum er nú óhætt að kveðja hundinn Krumma og c/o úr leynilög- reglubókunum en snúa sér að bitastæðari viðfangsefnum — hvort sem hann skrifar fyrir yngri eða eldri kynslóð. Húmar að kvöldi er spor fram á við hjá Guðjóni Sveinssyni. □ Tvær bækur eftir Hugrúnu Filippía Kristjánsdóttir, sem tók sér skáldanafnið Hugrún, sendi frá sér tvær bækur fyrir jólin. og bárust Degi þær fyrir fáum dögum. Farinn vegur, ævibrot úr lífi Gunnhildar Ryel og Vigdísar Krist j ánsdóttur. Gunnhildarþátturinn er 66 blaðsíður og mim hugstæður norðlendingum, þar sem frú Gunnhildur Ryel, sem ættuð var úr Arnarneshreppi, átti langa ævi heima á Akureyri, kunn kona og merk af félags- og mannúðai'málum, seih hún tók mikinn þátt í. Hún segir í þessum þætti frá mörgu frá „gömlu Akureyri,11 sem betra er að geymist en gleymist. Vigdísarþátturinn er litlu BÆJARMÁLIN Við, sem reynum að fylgjast með bæjarstjói'narmálum, vit- um að eftir síðustu bæjar- stjórnarkosningar urðu sjálf- stæðismenn enn meira utan- gátta en þeir höfðu verið. Á fyrra kjörtímabili var það m. a. vegna sinnuleysis forystumanna þeirra og þess að þeir höfðu þá öðrum hnöppum að hneppa. Það sem af er þessu kjörtíma- bili hafa þeir tekið upp- nei- kvæða stefnu vegna þess að það tókst samstaða með hinum flokkunum um myndun meiri- hluta. Þessi neikvæða stefna þeirra til bæjarmála kom einna skýrast fram við afgreiðslu fjár hagsáætlunar bæjarsjóðs fyrir árið 1975, þegar þeir treystu sér ekki til að standa að stefnu- mörkun þeirri er í henni fólst. En eins og öllum er ljóst, sem eitthvað þekkja til þessara mála, markar fjái'hagsáætlun stefnuna fyrir, iheilt áþ og á margan máta nokkur ár fram í tímann, þar sem ákvörðun um framkvæmdir verða bindandi þar til þeim er lokið og á ýmsan hátt annan. Fulltrúar sjálf- stæðismanna í bæjarstjórn hafa gert mikið úr því að eftir bæjar stjórnarkosningar hafi meiri- hlutinn aldrei tekið tillit til minnihlutans. Þetta gerði leið- togi þeirra m. a. á fjölmennum bæjarstjórnarfundi í haust. Það hefði því mátt búast við því, að styttri. Þar fjallar Vigdís Kristj ánsdóttir um listnám og list- iðkun, og segir ýmsa aðra þætti ævi sinnar, ekki síst á erlendri grund. Draumurinn um ástina er rúmlega 160 síður í allstóru broti. Bók þessi er ástarsaga ungrar konu, sem höfundurinn leiðir fram í meira eri 30 köfl- um. Hugrún skáldkona er mikil- vii'kur rithöfundur. Bókamið- stöðin gefur út þessar tvær síð- ustu bækur hennar. □ Frá gömlum vini kr. 10.000. — Til minningar um Karl Jóhann- esson, Ytra-Hóli frá systkinum og mágafólki kr. 35.000. — Til minningar um Héðinn Friðriks- son frá tengdaforeldrum Mar- gréti Árnadóttur og Kristjáni Halldórssyni, Klængshóli kr. 20.000. — Gjöf frá Baldvini Guð jónssyni, Siglufirði kr. 50.000. — Til minningar um Ara Guð- mundsson frá Þúfnavöllum frá Sigi'íði B. Guðmundsdóttur kr. 10.000. — Ágóði af hlutaveltu í Barnaskóla Glerái'hverfis, 7. bekkur 9. stofa, kr. 28.475. — Áheit frá K. M. Sigurðardóttur kr. 5.000. — Gjöf frá Guðrúnu H. Guðmundsdóttur kr. 20.000. — Til minningar um Snjólaugu Sigfúsdóttur og Bjax-na Ai'ason frá Grýtubakka frá Margréti Bjarnadóttur kr. 20.000. — Frá Aðalbjöi'gu Sigurðardóttur til magarannsókna kr. 10.000. — Til minningar um Hennann nú um áramótin kæmi fram hörð gagnrýni á bæjarstjórnar- meirihlutann frá þeim, til að staðfesta þá skoðun sjálfstæðis- manna að stefnumöi’kun meiri- hlutans fyi'ir síðasta ár hefði verið röng. En nú er þv£ ekki að heilsa. í áramótagrein eins bæjarfulltrúa sjálfstæðismanna segir: „Bæjarstjórn Akureyrar reyndi að stefna að sem mest- um framkvæmdum á árinu, enda augljóst mál að í vissum málaflokkum mátti alls ekki á slaka.“ Síðan kemur upptalning á því helsta sem unnið var að á árinu og að því loknu stendur í sömu grein: „Af framan- greindu má sjá, að hugmyndir, sem uppi voru við gerð fjái'hags áætlunar fyrir sl. ár hafa að mestu náð fram að ganga, hvað nýbyggingar snertir og enn- fremur er vert að geta þess að allveruleg tækjakaup voru gerð, m. a. vinnuvélar og slökkvibifreið.“ Spurning sjálfs sín um hvort fylgt hafi verið réttri stefnu á sl. ári svarar hann svo: „í stór- um dráttum held ég að það hafi tekist.“ Það er því augljóst að meii'ihlutinn fær óvenju góðan dóm frá andstöðunni og má því vel við una. En sjálfsagt gera sjálfstæðismenn þetta vegna þess að þeir hafa fundið að þeir áttu ekki byr hjá fólki sem fund ist hefir hlutverk sjálfstæðis- manna heldur bágborið. Sjálf- Túnsbergi, 31. janúar. Óvenju snjólétt er nú, miðað við árs- tíma og þarf þónokkuð aftur í tímann' til að finna hliðstæðu. Má það gjarnan vera yfirbót á þeirri veðráttu, sem var á sl. hausti í miðri sláturtíð og lék bændur nokkuð hart, einkum þá, er við sauðfé og jarðávexti fást. Hjá Kaupfélagi Svalbarðs- eyrar var lógað tæplega 18 þús- und fjár í haust og reyndist meðal fallþungi dilka tæp 15 kg, eða sá sami og árið áður, þrátt fyrir góðar vonir um betri fall- þunga í upphafi sláturtíðar. Hai'ðindakaflinn, sem hófst 20. sept. gerði stórt strik í reikn- inginn. Víða voru lömb tekin á hús og ekki látin út aftur fram að slátrun. Mikil afföll urðu á kai'töflu- uppskeru flestra bænda, því Kristjánsson og Áslaugu Jóns- dóttur, Leyningi og Margréti Skúladóttur frá Kjartani Júlíus syni kr. 15.000. — Til minningar um Vilberg Jóhannesson frá Steinunni Kristjánsdóttur, Eyi'- arvegi 6, Siglufii'ði kr. 1.000. — Gjöf frá togarasjómönnum við Eyjafjörð kr. 30.000. — Margar aðrar gjafir hafa borist sjúki'a- húsinu á árinu, nýlegast stór bókasending frá Lárusi Bjöms- syni trésmiði. — Ein stærsta gjöf sem borist hefir sjúkrahús- inu var röntgenmyndatæki frá Lionsklúbbi Akureyrar ásamt mörgum öðrum félagasamtök- um á Akureyri og í nágranna- byggðum. Kvenfélagið Hlíf og fleiri kvenfélög hafa margsinnis gefið sjúkrahúsinu stórar gjafir og alveg sérstaklega barnadeild þess. Allar þessar gjafir og margar fleiri þakka ég af heilum huga. Torfi Guðlaugsson. sagt hefir bæjarfulltrúi sá er skrifaði greinina verið óánægð- ur að þurfa að fylgja stefnu flokks síns eins og hún var mótuð af foringjunum hans seinast og því minnir hann á hana í sakleysislegu háði og segir: „Það var augljóst að gera átti sigur sjálfstæðismanna að engu og við gerð fjárhagsáætl- unar fyrir árið 1975 voru þeirra sjónarmið að engu höfð,“ sem leiddi af sér þá afstöðu að þeir vildu enga ábyrgð bera á áætl- uninni í heild og sátu hjá. En sem sagt, nú hafa þeir séð að þeir voru á villigötum og hafa að því er fregnir herma, verið fúsir til að ganga til móts við meirihlutann við gerð áætl- unar fyrir yfirstandandi ár, enda þótt hún sé í öllum aðal atriðum byggð á sama grund- velli og síðast, þótt heldur rýmra sé fjárhagslega. Kemur þar til m. a. aðhald á liðnu ári sem meii'ihlutinn varð að sýna. Meirihlutanum er sjálfsagt viss styrkur að breyttri stefnu sjálfstæðismanna en hitt er ljóst með tilliti til undangeng- ins árs að afstaða þeirra skiptir engum sköpum og að meriihlut- inn verður áfram að halda við stefnu sína um auknar fram- kvæmdir og ábyrga stjóm. Ekki síst í sambandi við upp- byggingu hitaveitu og aðra framkvæmdaliði. 170. fáir höfðu lokið upptöku fyrir 20. september. Tjón nemur milljónum króna í héraðinu í heild og er hreint tap, þar sem kastnaður var þegar á fallinn. Að auki er margfalt meiri vinna við flokkun uppskerunnar til sölu nú í vetur og þarf að yfir- fara kartöflurnar allt að þrem sinnum í flokkunarvélum. Nokkru fyrir jól var varpað fram þeirri spurningu í Degi, hvað „stórfjós" væru stór. Hér við Eyjafjörð er það talið merkja fjós yfir 100—200 naut- gripi, en fjögur slik eru risin stærð. Mun það að verulegu leyti koma til vegna svonefndr- ar flýtifyrningar á hluta bygg- inganna, þ. e. 30% byggingar- kostnaðar afskrifist á fimm ár- um og koma til frádráttar tekj- um. Ég tel þessa fyrningu alls óraunhæfa, ekki síst á verð- bólgutímum eins og nú eru, þar sem óverðtryggt fjármagn er fengið til framkvæmda. Nóg um það. Hér hefui' fólk verið venju fremur spilaglatt frá áramótum og þrjár spilavistir verið spil- aðar, auk grímudansleiks ung- mennafélagsins í ársbyrjun, en hann er orðinn fastur liður hjá því félagi. Framundan eru svo fleiri mannamót, þorrablót og fundahöld ýmsra félaga. Leik- list hefur ekki verið stunduð um nokkurra ára skeið, en vei'ður vonandi upp tekin á ný. Lionsklúbburinn Vitaðsgjafi, hvers meðlimir eru úr hrepp- unum framan Akureyrar, auk Svalbarðsstrandar og stofnaður var á vordögum 1974, starfar vel og hefur stutt ýmsa þarfa hluti s. s. neyðarbílskaupin og nú síðast kaup krabbameins- leitartækis, sem akureyrskir Lionsmenn höfðu forgöngu um kaup á. Ýmsar leiðir til fjár- öflunar eru farnar og eiga héraðsbúar þakkir skildar fyrir góðar móttökur, er til þeirra hefur verið leitað með ýmsan söluvarning Lionsmanna. Sé litið fram á við, er búist við miklum framkvæmdum í vegagerð í sumar. Vinna á fyrir a. m. k. 55 millj. ki'. í Svalbarðs- strandarvegi og Víkurskarðs- vegi og fer þá væntanlega að styttast í gerð Leiruvegar, en hann kemur til með að stytta leiðina milli Svalbarðsstrandar og Akureyrar um meira en þriðjung. Þá mun eiga að leggja hér sjálfvirkan síma um sveit- Búnaðarfélag fslands hefur nú í 26. sinn gefið út Handbók bænda. Handbókin er vinsæl- asta búfræðirit, sem gefið er út hér á landi. Fastir áskrifendur eru 3.700, auk þess er lausasala um 300 eintök. Ritstjóraskipti urðu við Handbókina nú. Agnar Guðnason, sem hefur verið rit- stjóri undanfarin 15 ár, lét af þvf starfi, en við tók Jónas Jóns son, ritstjóri Freys. Fyrsti rit- stjóri Handbókarinnar var Olaf ur Jónsson, fyrrv. ráðunautur á Akureyri. Handbókin hefur breytt verulega um svip fx'á því, sem hún var síðastliðin ár. í formála stendur þetta m. a.: „. .. . Það var meining mín, að Handbókin breyttist nokkuð iria, sem hefur raunar staðið til í mörg ár. Hér eru nú um eða yfir 20 notendur um sömu lín- una og þætti víst flestum full- mikið. Litlar framkvæmdir voru á vegum hreppsins á liðnu ári. Þó . var í haust byrjað á byggingu tveggja leiguíbúða og a. m. k. aðrar tvær munu fyriihugaðar. Færri fá en vilja. Hús þessi verða í nýja hverfinu á Sval- bai'ðseyri, er Smái'atún nefnist. Mjög hefur færst í vöxt að unga fólkið byggi og vilji byggja í landi feði-a sinna, þótt ekki stundi það kannski bú- ■ skap. Þannig eru risin tvö til INNBROTAFARALD- UR í BÆNUM Á Akureyri er óhugnanlegur innbrotafaraldur. Lögreglan sagði blaðinu í gær frá 9 inn- brotum um síðustu helgi. Verða nú margir að leggjast á eitt og uppræta þennan háskalega kvilla. Um hádegi í gær fótbrotnaði maðui', er hann datt af léttu bif- hjóli eftir árekstur við bifreið á mótum Gránufélagsgötu og Hjalteyrargötu. □ Listaskáldin vondu í Sjálfstæðishúsinu 7. febrúar klukkan 2 Hópur skálda, sem nefnir sig Listaskáldin vondu, koma fram í Sjálfstæðishúsinu næsta laug- ardag klukkan tvö. Skáldin komu fram sautjánda janúar í Háskólabíói og mættu tæplega fjórtán hundruð manns til leiks. Ekki er ofmælt að góður rómur hafi verið gerður að flutningi skáldanna, en þau eru: Birgir Svan, Guðbergur Bergsson, Hrafn Gunnlaugsson, Megas, Pétur Gunnarsson, Sigurður Pólsson og Steinunn Sigurðar- dóttir. Aðgöngumiðasala verður í húsinu sjálfu frá klukkan eitt þann sjöunda og verðið er krónur 350. — Skáldin munu flytja nokkurn veginn sama efni og í Háskólabíói. Ohætt er að fullyrða, að mörg ljóð verði á veginum í Sjálfstæðishúsið á laugardaginn, enda kominn tími til að hressa sig upp í skamm- deginu. (Fréttatilkynning) frá því, sem hún hefur verið að undanförnu og yrði líkari því, sem hún var framan af árum. Þar yrði meira um beinar hand bókarupplýsingar og upptaln- ingar staðreynda og þess, sem best er vitað um hvert og eitt atriði, sem líklegt er, að bændur og annað landbúnaðarfólk kunni að vilja fletta upp á.“ Efni Handbókarinnar er mjög aðgengilegt. Hún er prentuð á vandaðan pappír og ný letur- gerð notuð. Samtals eru 65 greinar í bókinni. Þar af 42 fag- greinar um flesta þætti land- búnaðarins. Að þessu sinni hafa 24 höfundar lagt til efni í bók- ina, sem er 376 bls. □ F. S. A. berast gjafir hér í sveit og þar af þrjú komin í notkun. Slíkur gripafjöldi þýð- ir fimm-sexfalt verðlagsgrund- - þrjú hús á nokkrum býlum hér. vallarbú. Til mikillar hrellingar • Hér starfar í vetur útibú frá fyrir umsjónarmenn sveitar- Tónlistarskólanum á Akureyri sjóðs, sem ekki vilja að hann og meðal ixemenda í orgelleik verði jafn léttur og blásinn eru f jórar bændakonur. kálfsmagi í rjáfri, virðast búin - Sv. Lax. ekki sýna arð í samræmi við —:---------------;---:--------- HANDBÖK BÆNDA1976 Slefán Tryggvason SKRIFSTOFUSTJÓRI Sl. laugardag var gerð útför Stefáns Tryggvasonar, skrif- stofustjói'a, Byggðavegi 101 hér í bæ, en hann andaðist þ. 21. janúar. Með Stefáni er genginn gegn og góður borgai'i sem margir munu sakna. Hann var fæddur 14. nóv. 1917 að Ytra- Hvarfi í Svarfaðardal, sonur hjónanna Soffíu Stefánsdóttur og Tryggva Jóhannssonar bónda þar. Hann ólst upp við hin ýmsu bústörf á myndarlegu sveitaheimili, en fór síðan til náms í Samvinnuskólann og lauk þaðan brottfararprófi árið 1940. Næstu árin vann hann hin ýmsu störf er til fellu. Hann var fjölhæfur og verklaginn og gat glímt við hin ólíkustu vei-kefni með fullum sóma, ekki síst þar sem vandvirkni og samvisku- semi voru honum í blóð borin. Hann vann við múrverk í Breta vinnu 1941, afgreiðslumaður hjá versl. O. Ellingsen 1942, af- greiðslu og skrifstofustörf hjá heilverslun Jóh. Ólafssonar & Co. 1943. Síðan vann hann um hrí'ð hjá Húsameistara ríkisins við húsaviðgerðir og múrverk. Þá var hann sölumaður hjá heilsversl. Jóns Jóhannessonar & Co. til haustsins 1945 er hann fluttist hingað til Akureyrar. Fyrstu þi'jú árin hér í baö var hann bókhaldari og gjaldkeri hjá Vélsm. Odda h.f. og Mars h.f. Frá 1949 til 1971 var hann skrifstofustjóri og gjaldkeri hjá BSA-verkstæðinu, og nú síð- ustu árin skrifstofustjóri hjá Búvélaverkstæði Eyfirðinga. Hinn 23. maí 1942 kvæntist Stefán Þóru S. Aðalsteinsdóttur og var það hið mesta gæfuspor í lífi hans, því Þóra reyndist honum ætíð hið besta og bjó hún honum hið vistlegasta og hlýlegasta heimili. Hin síðari árin er Stefán átti við heilsu- leysi að stríða kom æ betur í Hve margir? Fimmtudaginn 29. janúar sl. lauk Fimm Daga Áætlun á Akureyri. Á námskeiðið inn- rituðust 45 manns, 8 bættust við, en 38 luku námskeiðinu. Af þeim voru 36 alveg hættir að reykja Vitað er um ýmsa, sem hættu heima hjá sér vegna áhrifa frá námskeiðinu. Það varpar e. t. v. ljósi á þessa þátt- töku, að þetta er fjórða nám- skeiðið, sem haldið er á Akur- eyri — þrjú almenn og eitt sér- staklega fyrir táninga. . . . En, betur má, ef duga skal, því ég hygg, að enn séu allmargir um- fram 50 hér á Akureyi-i, sem reykja. . . . Endurfundur er ákveðinn miðvikudagskvöldið 4. febrúar, í Gagnfi'æðaskólan- um, kl. 20.30. J. Hj. Jónsson. ljós hve miklum mannkostum Þóra er búin. Þeim varð ekki barna auðið, en þau tóku kjöi'- son Hallgrím, sem nú er 18 ára. Stefán var glöggur bókhp.ld- ari og skrifaði ágæta rithönd. Auk ofangreindra skrifstofu- starfa var Stefán hjálparhella margra fyrirtækja og einstakl- inga varðandi ársskýrslur og skattaframtöl oft fyrir lítil eða engin laun, því hjálpsemi var í'íkur þáttur í skaphöfn hans. Stefán tók mikinn þátt í störfum félagsins Öruggur akst- ur, var um hríð í stjórn félags- ins Og sat nokkur landsþing fyrir hönd þess. Honum fannst öll störf og stuðningur á sviði hjálpar- og öryggismála vera sjálfsagður hlutur og skylda hvers samborgara, að hlúa þar að. Strax á bernskuárum komst Stefán í kynni við tónlistina, því á heimili hans var bæði fiðla og orgel. Þótt hann færi ekki í tónlistarnám svo sem bræður hans, Jakob og Jóhann, hafði hann ætíð mikla unun af góðri tónlist og sjálfur lék hann vel á hljóðfæri. Hann stuðlaði jafnframt ötullega að því að aðrir gætu notið góðrar tónlist- ar, því hann var einn traustasti félagsmaður Tónlistarfélags Ak ureyrar og gjaldkeri þess í mörg ár. Hann átti verulegan þátt í því að koma á mörgum þeim tónleikum sem undanfarin ár hafa yljað bæjarbúum um hjartarætur. Hann gekk ma*na mest fram í því að hér myndað- ist strengjasveit og honum auðnaðist að sjá þann draum rætast. Stefán var fróður maður og lesinn, ræðinn og skemmtileg- ur. Hégómadýrð mannlífsins freistaði hans ekki og hann sóttist ekki eftir vegtyllum. Hið Iilýja hjarta og hreina lund voru hans einkenni. Nú er þessi drengskapar- maður hverfur okkur sjóixum fylgja honum, og eftirlifandi ástvinum, blessunarorð og þakkir. F. li. Tónlistarfélags Akurcyrar, Haraldur Sigurðsson. Utigangur hesta Á aðalfundi Sambands dýra- verndunax-félaga íslands, sem haldinn var fyrir skömmu var samþykkt að skora á fóður- skoðunarmenn og lögregluyfir- völd um land allt að fylgjast vel með að hestar og sauðfé sé ekki látið ganga úti, án nokkurs skýlis eða fóðurs. Samkvæmt íslenskum lögum er hverjum eiganda búpenings skylt að dýr hans fái nægilegt fóður og vatn og þurran, skjól- góðan og rúmgóðan geyslustað. En þessi lög eru þverbrotin um og sauðíjár ; land allt, án þess að nokkuð sé gert í málinu. Á þessum tímum velsældar og ofgnóttar í okkar þjóðfélagi er það ekki á nokkurn hátt afsakanlegt að dýr lifi við sult og kulda, því skoi-ar aðalfundur S.D.Í. einnig á dýravini um land allt að vera vel á verði með að dýr séu ekki höfð í svelti eða á útigangi, og fóður- skoðunarmönnum, viðkomandi yfirvöldum eða stjórn S.D.Í. sé gert viðvart ef um slíkt er að ræða.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.