Dagur - 10.11.1976, Síða 4

Dagur - 10.11.1976, Síða 4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. ORKUFREKUR IÐNAÐUR Á kjördæmisþinginu á Húsavík komst Stefán Valgeirsson alþingis- maður m. a. svo að orði í ávarpi sínu, er þingið fjallaði um orkufrekan iðnað: Ég tel að umræða um atvinnuupp. byggingu í landinu eigi að fara fram með öðrum hætti en verið hefur. Hvers konar þjóðfélag viljum við byggja upp í landi okkar, handa okkur sjálfum og niðjum okkar, og hvers konar rekstur og hve stórar einingar henta okkur, miðað við okkar fámenni og það, að þjóðin byggi landið allt? Svör við þessum spurningum eigum við að leitast við að fá, áður en til álita kemur að fjalla um, t. d. álver hér á Norður- landi, ekki síst af þeirri stærð, sem nú er talað um. Það vantar heildar- stefnu í þessum málum. Hana þarf að móta. Við þurfum að byggja upp atvinnulífið og koma undir það fleiri stoðum. Um það geta ekki ver- ið skiptar skoðanir. En við þurfum að læra að velja og hafna. Hafna því, sem líklegt er að hafi skaðleg áhrif í för með sér, til dæmis á umhverfið eða þann atvinnurekstur sem fyrir er. í þessu efni, eins og í mörgum öðrum, þarf að miða stakkinn við stærð og eðlilegan vaxtarmöguleika. Það þarf að fara fram úttekt á því, hver þörfin er og hve líklegt er að hún verði á tilteknu árabili á hverj- um stað eða svæði og við þá niður- stöðu á að rniða þegar ákvarðanir eru teknar um atvinnuuppbyggingu hvers staðar. Fullvinnsla úr innlendum hrá- efnum á að ganga fyrir öðru. Iðnað- ur samvinnumanna á Akureyri er lofsvert framtak, sem ber að þakka. Umræða um þýðingu lians fyrir Akureyri og ekki síður fyrir land- búnaðinn, er brýn nauðsyn. Og ekki síður um möguleikana á, að færa þennan iðnað sem víðast út um kjör- dæmið. Það þarf að gera sér grein fyrir, hvað þarf til að koma, svo það geti orðið að veruleika í meira mæli en verið hefur. Við þurfum að færa iðnaðinn til fplksins, eftir því sem mögulegt er, en ekki hið gagnstæða. Þessi verkefni eiga að sitja fyrir öðrum. En í sambandi við álverksmiðju vil ég, úr því sem koinið er, að fram fari athugun á öllum þáttum þess máls. Ekki aðeins umhverfiskönnun, en einnig hvaða félagsleg og atvinnu leg áhrif hún myndi hafa ef byggð yrði. Niðurstaða á slíkri alhiiða könnun ætti að auka skilning allra á því, hvernig að atvinnuuppbyggingu (Framhald á blaðsíðu 2) Hvers venna Að undanförnu hafa menn um fátt meira rætt hér um slóðir en hvort reisa skuli álver við Eyjafjörð. Þessi umræða hefir víða farið, auk heldur bæði á Alþingi og í sjónvarpið. Þrátt fyrir allan þennan orðaflaum er mér — og líklega fleirum — ekki enn ljóst hversu langt þessu máli er komið. í sjón- varpsþætti hér á dögunum var tekið fram að einungis væri verið að rannsaka hvort slík stofnun kæmi til greina og því aðeins að niðurstaðan yrði já- kvæð yrði borin upp spurningin „eigum við eða eigum við ekki?“ Þeir sem helst hafa talað fyrir hugmyndinni leggja tals- verða áherslu á að hér sé aðeins um frumathuganir að ræða og ekki sé verið að slá neinu föstu. Samt sem áður læðist sá grun- ur að mér að fleira sé f pottinn búið en almenningur hefir enn séð. Hvers vegna var ekki þessi hugmynd kynnt þeim mönnum sern hlytu að eiga hlut að máli ef til þess arna kæmi? í forystugrein AM var fyrir skemmstu rætt um „þjóðarlygi“ vondra manna sem draga kjark úr stjórnvöldum. Ég vil benda á að Laxárdeilan (sem þarna var átt við) varð að hitamáli meðfram vegna þess að heima- menn fréttu á skotspónum um ýmsar hugmyndir manna á skrifstofum í Reykjavík. Sumar þeirra voru skynsamlegar en aðrar síður en svo og því fór sem fór. Þessir formælendur hug- myndar um álver segja að sam- kvæmt félagslegum frumrann- sóknum komi Eyjafjörður helst til greina af hugsanlegum stór- iðjusvæðum utan Faxaflóa. Mér er spurn: hvers konar rannsóknir eru það sem hér er átt við? í lok sjónvarpsþáttar á dög- unum kom fram sú skoðun hjá Val Arnþórssyni að ef til frek- ari stóriðju kæmi hér á landi yrði að velja milli Eyjafjarðar og Faxaflóasvæðisins. Seinni kosturinn yrði okkur norðlend- ingum óhagkvæmur og því væru ærnar ástæður til að athuga þetta mál vel. Ég verð að segja að mér þykir þetta nokkuð flumbrulega ályktað a. m. k. meðan ekki er fleira komið fram sem útilokar alla staði aðra en þessa tvo. Reyndar vil ég engum stað á íslandi svo illt að taka við ál- veri og af tvennu illu er þriðji kosturinn bestur, nefnilega sá að hafna með öllu umleitunum um að hér rísi álver eða önnur stóriðja af svipuðu tagi. Ég ætla nú ekki að eyða fleiri orðum að svonefndum undir- búningi þessa máls en færa nokkur rök fyrir því að hafna beri þessari hugmynd með öllu. í fyrsta lagi tel ég að lítill fengur sé í stóriðju af þessu tagi og gildir mig þá einu hvort það er álver, máhnbland eða annað þess kyns. Stóriðja þar sem hráefni er aðeins frum- unnið til útflutnings og frekari vinnslu erlendis er í mínum augum lítilsverð, bæði þjóðar- hag og verkamanni sem við hana starfar. Það mun viðurkennt og stutt ærnum rökum að síðasta stig framleiðslu — fullvinnsla og endanleg smíði varnings — skili jafnan mestum arði og hafi auk þess betri sálræn áhrif á verka- menn en önnur iðja. Ég vil taka til dæmis málmbræðslu annars vegar og skipasmíði hins vegar. Ég hygg að það veiti meiri ánægju að sjá smíðisgrip verða til, að lokum fullskapaðan, held ur en aðeins málmklump sem aðrir móta og mynda síðar. Þeir sem vinna við slíka frum- vinnslu þekkja aldrei verk sín þótt þau bei'i þeim fyrir augu síðar. Arðsemi ræðst allajafna af því hve mikil vinna er lögð í vinnslustigið — hún er að jafn- aði mest við lokastig fram- leiðslu. í öðru lagi vil ég halda því fram að framleiðsla úr innlend- um hráefnum sé íslendingum mikilvægari en úr innfluttum efnum, einkum þó ef sú fram- leiðsla er ætluð til útflutnings. í þessu sambandi vil ég minna á þá staðreynd að hvers kyns matvælavinnsla verður nú sí- fellt mikilvægari. Þeir sem ráða matvælaauðlindum munu brátt verða í svipaðri lykilaðstöðu og olíuríkin hafa verið nú um sinn. Hér eiga íslendingar hlut að máli og hann ekki lítinn. Miklu varðar að þeir haldi vel á hlut sínum. í þriðja lagi er ég andvígur stóriðju vegna þess að í slíkum efnum er einatt of mikið sett í einn pott. í sambandi við hugs- anlegt álver Norsk Hydro hefir verið talað um 700 starfsmenn. Það þýðir að h. u. b. 2500—3000 manns hefði framfæri sitt af slíkri verksmiðju einni saman. (Reiknað er með 3—4 séu á frafnfæri hvers starfsmanns.) í þessu felst að 1% þjóðarinnar — hið fæsta — væri háð einu fyrirtæki — einni framleiðslu- tegund. Slíkt hygg ég að sé ekki heppilegt þegar um' svo ein- þætta heild er að ræða. Fyrir- tæki sem byggist á fjölbreyttri framleiðslu stendur betur að vígi t. d. gagnvart verðsveiflum á markaði. Ég ætla ekki að ræða hér hvert vandamál þetta fjölmenni kynni að vei'ða akureyringum en það er vissulega viðsjárvert atriði. - í fjórða lagi vil ég draga mjög í efa að fjárfesting útlendinga með þessum hætti yrði íslend- ingum til góðs ef til hennar kæmi. Hver sá sem kynnir sér iðnþróun og fjármálapólitík síðustu áratuga hlýtur að sjá í hendi sér að starfsemi og rekst- ur stórfyrirtækja — hringa eins og Norsk Hydro — lýtur til- teknum reglum. Slíkir hringar sækjast jafnan eftir starfsað- stöðu þar sem minnstu þarf til að kosta, hvort heldur sem er - Þjómistustofiianir eru mikilvægt... (Frimhald af blaðsíðu 8) aðila til að setjast að á stöðun- um. Þetta ætti að vera sérstak- lega girnilegt fyrir það fólk utan af landi, sem leitað hefur sérfræðimenntunar og hingað til hefur ekki fengið starfsskil- yrði í heimabyggð. Ef þjónustu- stofnanir væru fyrir hendi mundi ske sú þróun, sem nú á sér stað í læknamálum dreif- býlisins með tilkomu heilsu- gæslustöðvanna. Sérmenntaða fólkið mundi leita til verkefna út um landið. Þá er í senn stefnt að þjónustujafnvægi og spornað við atgervisflóttanum. Blaðið þakkar framkvæmda- stjóranum svörin. □ ILSUVERNDARSH vegna vinnuafls eða annarrar orku. Ég trúi því laust að Norsk Hydro, Elkem eða aðrir slíkir vilji t. d. gera verðtryggðan kaupsamning við íslendinga um raforku. Við höfum reyndar fyrir okkur sorglegt dæmi hins gagnstæða. Það ætti að vera okkur víti til varnaðar en sýnir líka eðli þessara viðskipta eins og þau hafa verið stunduð. Allt tal um að norðmenn séu að bollaleggja þessar framkvæmd- ir fyrir sakir frændsemi og vin- áttu er hlægilega einfeldnings- legt. Ég mun nú láta staðar numið í bili þótt margt sé enn ótalið sem mælir gegn áðurnefndum stóriðjuhugmyndum. Má þar nefna til dæmis mengunar- hættu og ýmis vandkvæði af félagslegum orsökum. Aðrir en ég hafa stutt andstöðu sína rökum sem varða þessa þætti. Hér hefi ég nefnt fjögur grundvallaratriði sem ráða af- stöðu minni og ég vil að lokum ítreka að iðnaður sem byggist frekar á smáum einingum en stórum, e. t. v. samþættum; full vinnsla íslenskra hráefna á að vera keppikefli okkar. Ég efast ekki um að slíkt yrði mun far- sælla en einhæf stóriðja sem yrði auk heldur að verulegu leyti háð útlendum auðhringum og þjónaði fyrst og síðast hags- munum þeirra. Akureyri, síðasta sumardag, Valdimar Gunnarsson frá Bringu. Frá óg með 1. nóvember 1976 verða hjúkrunarfræðingar ung- og smábarnaeftirlitsins til við- tals í húsnæði stöðvarinnar að Hafnarstræti 104 á Akureyri daglega frá kl. 13.30—14.30 alla virka daga nema laugardaga. Símaviðtalstími verður sömu daga kl. 13—13.30. Sími gegnum læknamiðstöð nr. 22311. Til þeirra geta foreldrar barna á forskólaaldri leitað, annað hvort gegnum síma eða komið til viðtals, þarfnist þeir ráða um meðferð barna sinna. Að sjálfsögðu mun áfram verða fylgst með yngstu borgurum Akureyrar í heimahúsi fram að 3ja mán. aldri, en læknisskoð- anir og ónæmisaðgerðir fara eins og áður hefur verið fram á miðvikudagsmorgnum kl. 9— 12, nema annað verði sérstak- lega auglýst. Heilsuverndarstöðin á Akur- eyri hefur nú tekið að sér eftir- lit með og ónæmisaðgerðir á börnum úr sveitum sýslunnar, en því miður er ennþá ekki hægt að koma við heimsóknum hjúkrunarfræðings til yngstu barnanna. Hins vegar eru for- eldrar þeirra hvattir til þess að notfæra sér daglega viðtalstíma hjúkrunarfræðinga og koma með börn sín til skoðunar a. m. k. einu sinni í mánuði þar til læknisskoðanir taka við. Þar sem að um verulegar vega- lengdir er víða að ræða geta foreldrar ungbarna úr Árskógs hreppi snúið sér , þessu skyni til Ásu Marinósdóttur í Kálfs- skinni og foreldrar ungbarna í Svarfaðardal til Elínar á Dal- vík, en að sjálfsögðu eiga þessi börn fullan rétt á því að not- færa sér þjónustu stöðvarinnar Eftirtaldar ónæmisaðgerðir eru nú framkvæmdar á vegum Hei'lsuverndarstöðvarijinar e"ða verða teknar upp á næstunni: Barnaveiki, kikhósti, stíf- krampi við 3ja mán., 4 mán. 5 mán. og 18 mán. aldur. Mænu veiki við 4 mán., 5 mán., 18 mán., 2i/2 árs, 7 og 12 ára. Tvær þær síðustu fara fram í grunn- skólanum. Kúabólusetning er ennþá skylda að framkvæma. Hvort hægt verður að fella þessa bólusetningu niður eða ekki er á valdi heilbrigðisyfir- valda og löggjafans, en starfs- fólk stöðvarinnar getur ekki nema í sérstökum undantekn- ingartilfellum fellt hnaa niður. f vetur verður tekin upp bólu setning gegn rauðum hundum. Bólusettar verða stúlkur í 6. bekk grunnskólans, en aðeins þær stúlkur, sem ekki hafa fengið rauða hunda, og hægt er að sýna fram á með blóðprufu, verða bólusettar, og bóluefni gegn rauðum hundum verður ekki til fyrir stúlkur í öðrum aldursflokkum. Þá verður á næsta ári tekin upp bólusetn- ing 1 árs barna gegn mislingum. Rétt þykir, að sú bólusetning fari fram á fyrri hluta annars árs. Allar þær ónæmisaðgerðir, sem hér hafa verið nefndar eru gerðar á kostnað Heilsuverndar stöðvarinnar. Hægt verður að útvega bóluefni gegn misling- um fyrir börn tveggja ára og eldri óski foreldrar þess, að þau verði bólusett, en munu þá þurfa að greiða bóluefnið a.m.k. að einhverju leyti. A Aðrar bólusetningar, sem sér stök ástæða þykir til að fram- kvæma svo sem. viðhald mænu- veikisónæmis, bólusetning gegn sérstökum tegunaum heila- himnubólgu (meningococcum) o. fl. munu fara fram á vegum stöðvarinnar en verða auglýst- ar sérstaklegá í bæjarblöðun- um. Á næsta ári munu verða tekn ar upp sérstakar sjónskoðanir 4 ára barna, og unnið er að því að koma á sérstakri heyrnar- skoðun barna í sama aldurs- flokki. Mikil þörf er á því, að ró og friður ríki við þessar skoðanir og því munu börnin verða kölluð sérstaklega til þeirra. Ferðamannabólusetning ar munu, eins og áður hefur verið, verða í horidum héraðs; lækna. □ NÝ BQK SIGRUN BENEDÍKTSBÓTTIR 85 ÁRA Hún er fædd á Ytra-Hóli í Kaupangssveit, dóttir hjónanna Benedikts Jónssonar og Sess- elju Jónatansdóttur, sem hófu þar búskap 1888, en fluttu að Breiðabóli á Svalbarðsströnd 1893. Þar bjuggu þau til 1925 að börn þeirra tóku við búskap þar til 1962. Sigrún aflaði sér góðrar þekkingar í æsku og jók við hana í „skóla lífsins“. Hún er kona fróð, minnug og víð- lesin, ákveðin í skoðunum og kröfuhörð við sjálfa sig og ætl- ast til reglu-, samviskusemi og heiðarleika af öðrum. Sigrún hefur unnið af dyggð og.'trúmennsku sama heimilinu larigaiT starfsdag, fyrst að búi foj-eldranna, síðan ráðskona bræðra' sinna að Breiðabóli og Hörg ' á Svalbarðseyri. Hún hefur verið sérlega vandvirk, greiðvikin og uppáhjálpssöm. Um haná má segja í einu orði, að hún sé sómakona. Til hennar berast hamingju- óskir á~þessum tímamótum, þeirra sem hana þekkja. Kunnugur. FRÁ SKÁKFÉLAGI AKUREYRAR Starfsemi vetrarins hófst 25. október að Hqtel Varðborg með .Startmótinu, sem er hraðskák- mót. Sigprvegari varð Jón .Björgvinsson með 25 vinninga, annar- Hjörleifur Halldórsson með 241/2 vinning og þriðji FYRIRSPURN TIL LEIKFÉLAGS AKUREYRAR, 4. NÓV. 1976 Hvers konar dama er það, sem þið hafið við miðasöluna? Ég vona þið verðið ekki hissa á spurningunni, þegar þið hafið lesið um samskipti okkar. Hún hringdi til mín í kvöld, og ég man ekki eftir að ég hafi nokkurn tíma orðið jafn hissa á nokkurri landssímaupphring- ingu og þessari, sem ég fékk þegar ég stóð albúin til að fara í leikhúsið á Akureyri, þá hring ir umrædd dama og segist bara ætla að segja mér, svo ég fari ekki snuðferð til Akureyrar, að ég eigi enga miða í leikhúsið, það hafi vei'ið uppselt þegar ég hafi pantað, en maðurinn sem hafi tekið á móti pöntuninni, ekki vitað það. Ég sagði henni sem satt var að svona draugasögur þyrfti hún ekki að segja mér, því upp- haflega ætlaði ég að fara í leik- húsið um síðustu helgi og þar af leiðandi hringdi ég til að panta miða, en þar sem ekki voru til laus sæti nema á aft- asta bekk uppi á svölum, pant- aði ég fimm miða um mitt hús á næstu sýningu, sem maðurinn sagði að ekki væri búið að ákveða hvort yrði á fimmtu- dags- eða föstudagskvöld, svo varla held ég að það geti staðist, að þá þegar hafi verið uppselt. Það hefði mátt segja mér að þarna hefði einhvers misskiln- ings gætt, (eins og hún sagði mér) ef svo leiðinlega hefði ekki viljað til, að á sunnudags- kvöldið síðasta átti dóttir mín pantaða fimm miða á aftasta bekk uppi á svölum. Þegar hún kemur með stallsystrum sínum og ætlar að taka miðana, segir miðasöludaman, að miðarnir hafi í ógáti verið seldir öðrum, en þær geti fengið miða á fremsta bekk niðri, ef þær vilji. Með afurnaganda fóru þær og létu hola sér niður alveg inn við leiksvið, af því að þær vildu ógjarnan keyra meira en 100 km leið til einskis. En hvað skeður? Um leið og búið er að slökkva ljósin í salnum kemur miðasöludaman til þeirra, með hina réttu miða greinilega merkta dóttur minni og segir, að þetta hafi sennilega verið einhver vitleysa, því það hafi ekkert fólk komið ennþá að taka miðana, svo þær megi fara upp ef þær vilji. En sú náð að mega sitja í þeim sætum, sem þegar var búið að merkja þeim miðana í. Um svona lagað hefði hún amma mín (sem alltaf hafði viðeigandi skýringar eða orðatiltæki á reiðum höndum) sagt. „Þetta er fyrir heimsku.“ Ég segi það satt, að mér datt ekkert frekar í hug, en þetta, til að réttlæta framferði stúlk- unnar, því datt henni ekki t. d. í hug að hringja í einhvern í bænum varla hafa allir leikhús- gestir verið utanbæjarfólk? Að mínum dómi er það ekki eins mikið fyrirtæki fyrir bæjarbúa að skreppa í leikhús. Fyrir okk- ur bændafólk er það hins vegar enginn hversdagsviðburður að fara í leikrús til Akureyrar og vissulega þarf maður að vera uppá aðra kominn með fram- kvæmd þess, eins og að fá son okkar heim úr skólanum til að sinna okkar verkum. Sama er að segja um hjónin, sem ætluðu með okkur, þau voru auðvitað búin að leggja á sig aukið erfiði og tilbúin að fara í leikhúsið, þegar ég hringdi í þau og sagði þeim frétt dagsins, ekkert leik- hús. Ég held ég fjölyrði þá ekki frekar um þetta, þessari um- töluðu leiksýningu fer nú senn að ljúka á þessu kvöldi, þar sem kl. er farin að ganga 11 og ég hef engar skemmtilegar minningar um hana, aðeins tóm leikann, eftir svona leiðindi. Að lokum óska ég þess, að miðasölufólkinu ykkar ganga betur að gera greinarmun á réttu og röngu í framtíðinni. Það getur öllum orðið á, en það er ekki alltaf að allir sjái sínar yfirsjónir, nema á þær sé bent. Bakka, 4. nóv. 1976. H. Þ. Blaðið sýndi leikhússtjóran- um framanskráð bréf og sagði hann þá: Of mikil miðasala er því mið- ur allt of sjaldgæft vandamál í leikhúsi og leitt til þess að vita, að slíkt hafi valdið fólki óþæg- indum og ekkert við því að gera nema að biðjast afsökunar og vona, að leikhúsinu sjálfu tak- ist með góðri frammistöðu á leiksviðinu sjálfu, að bæta fyrir þau mistök. Jafnframt skal fram tekið, að mistök þessi voru ekki að kenna Rögnu Garðarsdóttur, heldur mér sjálfum, og svo því, sem sjaldan skeður, að allir hóparnir,. sem áttu pantaða miða, urðu stærri en ráð hafði verið fyrir gert. Hinu get ég lofað fyrir mína hönd og allra í leikhúsinu, að við reynum að leysa hvers manns vanda og að láta slík mistök ekki henda aftur. □ í ritsafni — Jóh. M. Bjarnasonar Nýkomið er fimmta bindið í ritsafni Jóh. M. Bjarnasonár. Það heitir „í RauðáTdalnum1-, 457 blaðsíður að stærð og ber öll einkenni fyrri bgka þessá frábæra höfundar. Bókin ér full af ótrúlegustu ævintýrum, lífs- fjöri og leyndardómufn. Enginn sem les, gleymir aðalsöguhetj- unni Arnóri Berg og undrá- konunni Madeleine -Varida dg falda fjársjóðnum, sem kemur svo mjög við sögu. —'Þetta var útvarpssagan sumarið;, 1975. — Útgefandinn er Bókaútgáfári Edda, Akureyri. □ Gunnlaugur Guðmundsson með 2.2V2 vnning. Keppendur voru 28. Skákstjóri var Albert Sig- urðsson! Aðalfundur Skákfélagsins ’vaf haldinn 30. október. For- •rnaður vár endurkjörinn Albert Sigurðsson. __Eyrstá': verkefni nýkjörinnar stjórnar verður Haustmótið, íem _ hefst miðvikudaginn 10. okt. kl. 20 að Hótel Varðborg. Þá tekur Skákfélagið þátt í deildarkeppni Skáksambands íslands eins og undanfarin ár. Átta lið eru í keppninni, þar á meðal Skákfélagið Mjölnir, sem sigráði í þéssari keppni síðast. Skákfréttaritari. Stefán og Haki sigruðu Lokið er fjögurra umferða tví- menningskeppni Bridgefélags Akureyrar. Spilað var í tveim 16 para riðlum. Tvímennings- meistarar félagsins 1976 urðu Haki Jóhannesson og Stefán Ragnarsson, báðir ungir spila- menn, og vel að sigrinum komn ir. — Annars er röð efstu para þessi: Stig 1. Haki Jóhannesson — Stefán Ragnarsson 964 2. Eiríkur Helgason — Stefán Jónsson 959 3. Dísa Pétursdóttir — Soffía Guðmundsdóttir 914 4. Stefán Vilhjálmsson — Guðm. V. Gunnlaugsson 904 5. Ævar Karlesson — Grettir Frímannsson 902 6. Örn Einarsson — Zarióh Hamad 900 7. Ármann Helgason — Jóhann Helgason 895 8. Hörður Steinbergsson — Friðfinnur Gíslason 886 9. Gunnlaugur Guðm.son — Magnús Aðalbjörnss. 881 10. Friðrik Steingrímsson — Steingr. Bernharðsson 879 11. Arnajd Reykdal — Gýlfi Pálsson 866 12. Þórunn Bergsdóttir — Þorbjörg Snorradóttir 856 Meðalárangur er 840 stig. — Bestum árangri í umferð náðu Hörður Hilmarsson og Trausti Haraldsson 279 stig og Stefán og Haki 274 stig í síðustu um- ferð. Keppnisstjóri er Albert Sigurðsson. Bridgefólk frá Akureyi'i fór til Húsavíkur sl. sunnudag. Alls spiluðu 9 sveitir frá hvorum aðila. Akureyringar sigruðu, hlutu 111 stig gegn 69 stigum Húsvíkinga. Næsta keppni félagsins er sveitakeppni og hefst 16. nóvem ber. Spilafólk er beðið að til- kynna þátttöku í sveitakeppn- ina til stjórnar félagsins sem fyrst, og einnig mun stjórnin aðstoða við myndun sveita. Spilað verður í Gefjunarsaln- um. £7 £7 mnníiim Pétur Breiðfjörð afhendir Gunnari Austfjörð verðlaunin. KnalíspyríMfiaífur Ak. 19J6 í hófi sem Knattspyrnuráð Akureyrar hélt að Hótel KEA sl. þriðjudagskvöld var lýst kjöri á Knattspyrnumanni Ak- ureyrar fyrir árið 1976. Gullsmiðir Sigtryggur og Pétur höfðu í fyrra gefið veg- legan verðlaunagrip sem fylgja skyldi sæmdarheitinu „Besti knattspyrnumaður Akureyrar“ ár hvert. Gripur þessi er farand gripur, en handhafar hverju sinni fá einnig góðan grip til eignar sem einnig er gefinn af gullsmiðunum. Það var Gunnar Austfjörð knattspyrnumaður úr Þór, sem kemur til með að geyma stytt- una til næsta hausts. Hann fékk flest stig í atkvæðagreiðslu á vegum KRA. Gunnar er talinn vel að því kominn en hann hef- ur leikið knattspyrnu með ÍBA og Þór í yfir 10 ár og ávallt verið einn af burðarásum liðs síns. Aðrir sem stig fengu í at- kvæðagreiðslunni voru Gunnar Blöndal, Samúel Jóhannsson, Hörður Hilmarsson, Jón Lárus- son, Pétur Sigurðsson og Þor- móður Einarsson. Pétur Breiðfjörð gullsmiður afhenti Gunnari verðlaunin, og sagði hann vel að þeim kominn. . v ■.V! Þórsarar sóttu tvö stig suður yfir fjöllin um helgina, er þeir sigruðu KR glæsilega með 27 mörkum gegn 21. KR-ingar hafa sennilega talið Þórsat’ar létta andstæðinga, en sú var raunin önnur því sigur Þórs í leiknum var aldrei í hættu. Þeir byrjuðu vel, komust í 3—0 og héldu því forskoti með smá við- aukum allan leikinn. í hálfleik var staðan 15—10 fyrir Þór. KA-menn sem áttu að leika við Ármann strax á eftir hvöttu Þórsarar ákaft, því með sigri yfir KR hefðu Þórsarar fært KA feti nær sigri í deildinni ef þeim tækist að sigra Ármann á eftir. Markmenn Þórs, Ragnar og Gunnar, áttu stórleik í markinu og vörðu hvert skotið af fætur öðru og þéttu þá um leið vörn Þórsara. Drýgstir Þórsara við að skora voru Sigtryggur með 8 mörk, 3 úr víti, Þorbjöm 7 og Elías 5. Að lokum skal þess getið að KR-ingar voru með sitt sterk- asta lið og eru úrslit leiksins mjög sanngjörn eftir gangi hans. Næstu leikir Um næstu helgi leika í íþrótta- skemmunni lið Keflvíkinga við Þór og KA. Keflvíkingai' eru ekki taldir eins skeinuættir í handboltanum og þeir eru í fót- bolta. Á laugardag leika þeir við Þór en við KA á sunnudag. iar íyrir Ármanni Strax að loknum leik Þórs og KR léku KA og Ármann. KA- menn komust í 2—0, en síðan fór að halla undan fyrir þá og Ármenningar sigu framúr, gerðu hvert markið á fætur öðru og sókn KA heppnaðist ekki sem skyldi. í hálfleik var staðan 12 gegn 8 fyrir Ármann. í seinni rálfleik náðu KA-menn að minnka mun inn og skömmu fyrir leikslok var staðan orðin 16—17 fyrir Ármann og spenningur í há- marki. Ármenningum tókst hins vegar vel upp seinast í leiknum og sigruðu öruggléga með 22 mörkum gegn 20. Flest mörk KA gerðu Sigurð- ur 5, Hörður 4 og Jóhann Ein- arsson 3. Ármenningar eru nú efstir í deildinni með 7 stig eftir 4 leiki og hafa því aðeins tapað einu stigi. Næstir koma KA, KR og Þór með 5 stig hvert eftir fjóra leiki, nema Þórsarar hafa að- eins leikið þrjá. Akureyringur á Norð- urlandameistaramót Hjörtur Gíslason, hinn sterki lyftingamaður, var keppandi fyrir íslands hönd á Norður- landameistaramóti í lyftingum, sem haldið var í Noregi um síðustu helgi. Hjörtur keppir í tvíþraut en hann er íslandsmeistari í þeirri grein í sínum flokki. Þegar þetta er ritað er ekki vitað um árangur Hjartar á mótinu, en ekki er að efa að hann hefur verið íslenskri æsku til sóma. O. Á.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.