Dagur - 10.03.1977, Qupperneq 2
Smáauqlvsinöar
Húsnæöi Ymisleöt
Iðnaðarhúsnæði óskast undir
skósmíði. — Sími 22597.
Halldór Árnason skósmiður.
Sala
Aðvörun!
Sá sem tók áburðardreifara
í Blikksmiðjuportinu hjá Vél-
smiðjunni Odda, skili honum
aftur eða hann verður sóttur
á hans kostnað.
Bakkahey til sölu og
vélbundin taða.
Ingólfur Lárusson, Gröf.
ifðl/p
Vil kaupa kló einskera 16"
Sími 19928.
Haukur, Fífilgerði.
Hlutafélagið Tölvangur
Þann 5. janúar sl. var stofnað á
Akureyri hlutafélagið Tölvang-
ur hf. Að fyrirtækinu standa
einstaklingar, sem gert hafa sér
ljósa kosti tölvunotkunar á nær
öllum sviðum viðskiptalífsins.
Tilgangur félagsins er fyrst og
fremst að veita fyrirtækjum al-
menna bókhaldsþjónustu með
aðstoð tölvu.
Boðin verður til að byrja með
eftirtalin vinnsla:
Fjárhagsbókhald, viðskipta-
mannabókhald og launabókhald.
Síðar meir verður í boði
birgðabókhald og ennfremur
sérhæfðari þjónusta.
Við val á tölvubúnaði voru
eftirfarandi atriði sérstaklega
höfð í huga:
1. Rekstraröryggi tölvunnar
og viðhaldsþjónusta.
Breytingar á Hótel K.E.A.
Hótel KEA var fullbyggt og
tekið í notkun á árinu 1944.
Tala gistiherbergja var 28 með
54 rúmum. Var hótelið talið ný-
tískulegt og fullkomið, miðað
við það sem þá tíðkaðist hér á
landi. þau 32 ár, sem síðan eru
liðin, hefur gistirými hótelsins
haldist óbreytt, þrátt fyrir gíf-
urlega aukinn ferðamanna-
straum til bæjarins og þar af
leiðandi þörf fyrir meira gisti-
rými.
Forráðamönnum félagsins
hefur í mörg ár verið ljóst, að
brýn nauðsyn var á gagngerð-
um breytingum, endurbótum og
stækkun á hótelinu, sérstaklega
þá með tilliti til aukins gisti-
rýmis, þar eð nýting þess hefir
vaxið jafnt og þétt undanfarin
ár.
Vegna ýmissa annarra frjár-
frekra framkvæmda hjá félag-
inu, hefur hótehð orðið að sitja
á hakanum, en nú er orðið
óhjákvæmilegt að hrinda breyt-
ingum af stað. Leitað hefir ver-
ið til lánasjóða um fyrirgreiðslu
og hafa forráðamenn þeirra
sýnt góðan skilning á málinu,
en engin ákveðin lánaloforð
hggja fyrir.
Framkvæmd breytinga
verður í áföngum.
Til þess að gera fjármögnun
viðráðanlegri, svo og til þess
að verkið valdi sem minnstri
röskun á rekstri hótelsins, hef-
ur verið gerð áætlun um fyrir-
hugaða framkvæmd í 4 áföng-
um. Þegar uppúr áramótum
var hafist handa með fyrsta
áfanga, en það er stækkun Mat-
stofunnar (Caféteriu). Er gert
ráð fyrir að eftir stækkunina
rúmi hún 150—160 manns í sæti.
Vonast er til, að þessum áfanga
verði lokið í maí n. k. í sam-
bandi við þennan áfanga er lok-
ið við að brjóta niður skilrúm í
kjallara hótelsins og unnið er
að því þessa dagana að fjar-
lægja skilrúm o. fl. í húsnæði
því, sem Stjömu-Apótek starf-
aði í. En allt þetta húsnæði
verður tekið undir starfsemi
hótelsins nú eða í síðari áföng-
um.
Síðari áfangar.
Ekki hefur verið gerð nem
áætlun um framkvæmdahraða,
en hann ræðst að sjálfsögðu af
því hvernig til tekst með öflun
fjármagns. Annar til fjórði á-
fangi eru í stórum dráttum
hugsaðir þannig:
2. áfangi. Stækkun Hafnar-
strætis 89 til vesturs. Stækkun
þessi felur í sér lengingu vestur-
álmu hússins um 15 metra á 2.,
3. og 4. hæð og auk þess bygg-
ingu 5. hæðar austur yfir nú-
verandi 4. hæð að turni. — í
stækkun þessari mun verða
vörumóttaka, starfsmannainn-
gangur, starfsmannaaðstaða,
nýtt eldhús og geymslur og 28
gistiherbergi.
Ritgerðir í grunnskólum
Félag íslenskra iðnrekanda hef-
ur, í samráði við menntamála-
ráðuneytið, ákveðið að efna til
ritgerðasamkeppni í skólum,
svo sem að er vikið fyrir
skömmu í blaðinu. í framhaldi
af því sem þar er sagt um efni
ritgerða og verðlaun, segir svo
í fréttatilkynningu:
Miða skal við að ritgerðir séu
ekki lengri en 1200—1500 orð.
Heimilt er að vinna ritgerð-
irnar sem hópverkefni tveggja
til fjögurra nemanda í samráði
við kennara.
Skilafrestur er til 15. apríl
1977.
í tilefni af samkeppninni hef-
ur upplýsingarriti Félags ís-
lenskra iðnrekenda: „Hvert
ætlum við?“ verið dreift til við-
komandi skóla. Nemendur eru
einnig hvattir til að kynna sér
handbækur og skýrslur um ís-
lenskan iðnað og íslenskt at-
vinnulíf.
Dómnefnd skipa:
2•DAGUR
Bjarni Bjömsson, iðnrek-
andi og Bjarni Bragi Jónsson,
hagfræðingur, tilnefndir af Fé-
lagi íslenskra iðnrekanda. Stef-
án Ólafur Jónsson, deildarstjóri,
tilnefndur af Menntamálaráðu-
neyti.
Dómnefnd mun leggja áherslu
á að nemendur sýni eigið frum-
kvæði í efnisvali og gerð rit-
gerðanna og dragi ályktanir af
eigin reynslu, atvinnuháttum og
atvinnumöguleikum í þeirra
eigin byggðarlagi f samhengi
við atvinnulíf annarra lands-
manna.
Gert er ráð fyrir, að ritgerð-
um verði skipt í tvo flokka 9.
og 10. bekk grunnskólans ann-
ars vegar og framhaldsskóla
hins vegar.
í hvorum flokki verði veitt
fyrstu verðlaun að upphæð kr.
100.000 og 10 viðurkenningar
að upphæð kr. 10.000 hver, og
verða þau veitt við skólaslit
hjá verðlaunahöfum.
3. áfangi. Breyting á núver-
andi Gildaskála og Brauðgerð í
samkomusal fyrir 350 gesti,
ásamt tilheyrandi búnaði og sér-
inngangi frá Hafnarstræti.
4. áfangi. Breyting á núver-
andi 3. hæð Hafnarstrætis 87 og
89 (samkomusalir o. fl.) í 23
gistiherbergi.
Áætlaður heildarkostnaður
við allar þessar breytingar er
um 275 milljónir króna, miðað
við núgildandi verðlag. Eftir
breytingar og stækkun verður
Hótel KEA með 150—160 sæta
Matstofu, 350 sæta samkomusal
og 80 gistiherbergi, öll með for-
dyri og baði.
2. Möguleikar á að bæta við
tækjakosti til að fylgja eftir
auknum umsvifum Tölvangs hf.
Slík stækkun má ekki hafa í
för með sér rekstrartafir.
3. Urval og gæði forrita, sem
í boði eru.
4. Verð tölvu og forrita.
Að vel athuguðu máli varð
fyrir valinu tölva frá Wang
Laboratories, Inc. í Bandaríkj-
unum, en Heimilistæki sf.,
Reykjavík, eru umboðsmenn
þess fyrirtækis á íslandi.
Nú eru 10 tölvur af Wang-
gerð í notkun á fslandi við ým-
iskonar verkefni. Meðal eig-
enda má nefna Bæjarsjóð Siglu-
fjarðar, Bæjarsjóð Neskaup-
staðar og Krabbameinsfélags ís-
lands. Tölvur af Wang-gerð má
tengja saman gegnum símalínu
og er nú þegar í notkun slíkt
samband milli Egilsstaða og
Reykjavíkur.
Kaupverð tölvunnar er 5,5
milljónir og stofnkostnaður all-
ur um 6,3 milljónir. Hlutafé var
ákveðið 4 milljónir króna.
Reiknað er með, að starfsemi
Tölvangs hf. geti hafist í þessari
viku. Með tölvunni kemur am-
erískur sérfræðingur sem mun
aðstoða við rekstur, kennslu og
þjálfun í meðferð tölvunnar og
notkun forritanna, eitthvað til
að byrja með.
Stjórn Tölvangs hf. skipa:
Aðalgeir Finnsson, formaður,
Mikael Jónsson, ritari, og Hólm-
steinn T, Hólmsteinsson, með-
stjórnandi. Framkvæmdastjóri
hefir verið ráðinn Guðmundur
Jóhannsson. Fyrirtækið verður
til húsa að Glerárgötu 36.
(Fréttatilkynning).
Full búð af nýjum
vörum
PARIÐ
Hafnarstræti 85.
Tvö ný votlendisfriðlönd
Þann 11. janúar sl. staðfesti
Menntamálaráðherra friðlýs-
ingu tveggja votlendissvæða á
Norðurlandi, sem Náttúruvemd
arráð hafði áður samþykkt að
friðlýsa eftir tillögum frá
SUNN.
Umrædd friðlönd eru við
Miklavatn í Skagafirði og við
Vestmannsvatn í Aðaldal/
Reykjadal. Á báðum stöðum er
um að ræða votlendi af ýmsum
gerðum, einkum flæðimýrar og
aðrar mýrar, tjarnir og stöðu-
Jóhannes
r
Arnason
Frá Þórisstöðum
F. 10. jan. 1888
D. 15. febr. 1977
Kvaddur er vinur, senn aldinn að árum.
Er ekki lífið sem deilir oss tárum?
Verður þá hlutverk að sitja í sárum,
en samfagna hlýju á gæfunnar bárum?
Öldung sem kvaddur er, hlýju af hjarta,
höfðings með lundina góða og bjarta.
Mannvinur þýðlunda, hvað ekki kvarta
kærleiks á veginum lifsblómin skarta.
Djarfur í tali, en dagfarsins prýði,
drjúgur að verki með hylli frá lýði.
Kemst nokkur óbrotinn kvala hjá stríði?
Kostir hans miklu í lífinu hlýði.
Það skiptast á hvarvetna gleði og gaman,
gáfuð önd dregur þá hlutina saman.
Dugnaður, hagsýni, færir oss framann,
forsjónin gefur og læknar svo amann.
Þakkað skal Guði, sem gefur svo alla
góða og blessaða öldunga snjalla.
Þessi var útnefndur kærleiks til kalla,
kveðjum hann virðugt, er dauðinn lét falla.
Svo óma kveðjur frá konu og vinum
kross yfir gröfina, styrkur frá hinum.
Þökkuð er samleið, í heims gæða hrinum,
haföldur lífsins, með kulda og skinum.
Jón Guðni Pálsson frá Garði.
vötn. Við Vestmannsvatn eru
auk þess fjölbreyttar hraun-
myndanir (Gálgahraun o. fl.),
og jökulminjar (Vatnsmelar o.
fl.), og auk þess nokkurt skóg-
lendi (Vatnshlíð). Þjóðvegurinn
um Reykjadal liggur á parti í
gegnum friðlandið, sem nær
einnig yfir tjarnimar við Hösk-
uldsstaði og Hólkot.
Miklavatnsfriðlandið nær yfir
sjálft vatnið og tangann milli
þess og Héraðsvatna, sem al-
mennt kallast Borgarskógar
(eða Skógar), þótt þar sé nú
enginn skógur heldur votlendi
mestan part. Er þar mikið fugla-
land, og hafa fundist þar 28
tegundir varpfugla (sbr. grein
eftir Ævar Petersen í Náttúru-
fræðingnum, 40. árg., 1970). —
Innan friðlandsins er einnig
mikill hluti af Sjávarborgar1 2 3-
mýrum, og mýrlendi sunnan og
austan við vatnið.
Samtök um náttúruvernd á
Norðurlandi (SUNN) hafa frá
upphafi látið sig votlendisvemd
miklu skipta, enda er verndun
votlends einnig fuglavemd og
líklegasta sú raunhæfasta. Að
tilhlutan félagsins var stofnað
votlendisfriðland í Svarfaðardal
árið 1972, hið fyrsta á landinu
af því tagi. Náðist þar fullt sam-
komulag við bændurna, sem
eiga eða nýta landið, og svo
hefur einnig verið við stofnun
þeirra friðlanda, sem að ofan
var getið, enda skerðir friðlýs-
ingin í engu rétt þeirra til að
nýta votlendið og vötnin svip-
að og verið hefur. Á hinn bóg-
inn hafa ýmsir landeigendur
verið þakklátir fyrir að fá þann-
ig tækifæri til að tryggja vernd-
un fuglalífs á jörðum sínum.
Um hvert þessara friðlanda
hafa verið settar sérstakar regl-
ur, sem eigendur og aðrir að-
ilar að friðlýsingunni sam-
þykkja að hafa í heiðri, og eftir
ofangreinda staðfestingu gilda
þær almennt.
Þeim sem vilja kyxma sér
nánar þessar reglur, svo og
mörk friðlandanna, skal bent á
Stjómartíðindi, B-3 nr. 28—33
(1977).
(Frétt frá stjóm SUNN)
fOíÐO/ÍG®1
fsiiui