Dagur - 16.03.1977, Síða 1

Dagur - 16.03.1977, Síða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI DAGUR LX. ARG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGINN 16. MARS 1977 12. TÖLUBLAÐ Veöskuldir eins manns 51,7 milljónir króna I Lögbirtingablaðinu og víðar hefur verið sagt frá veðskuldum manns eins syðra, við Utvegsbankann, að upphæð 51,7 milljónir króna. Var af þessu tilefni auglýst nauðungaruppboð á níu fasteignum mannsins. Ef rétt er munað sór einn meiriháttar bankastjóri í útvarpi og sárt við lagði, að viðskiptabankarnir stund- uðu ekki veðlán. Eitthvað hefur þvf bankastjórinn hrasað á vegi sannleikans eða bankinn hrökklast út af vegi yfirlýstrar reglu. fél- Skemmtiferðir Framsóknar- fólks til útlanda Kjördæmisstjórn fram- sóknarmanna í þessu kjör- dæmi hefur ákveðið að efna til kynningar- og skemmtiferða, bæði til Nor- egs og Grikklands í júní í sumar. Verða þær hvor um sig hálfsmánaðar ferðir. Væntanlega verður Jóna Hansen fararstjóri í Nor- egsferðinni. Nákvæm ferða- áætlun mun bráðlega til- búin og verður þá frá henni sagt, en fólk getur á meðan hugleitt þessar fyrirætlan- ir, ef því hentar. □ ma Smyslov kemur og teflir Á laugardaginn mun Valeri Smyslov, fyrrv. heimsmeist- ari f skák, heimsækja Akur- eyri og tefla fjöltefli við heimamenn. Teflt verður í Félags- borg, starfsmannasal Sam- bandsverksmiðjanna og hefst keppnin klukkan 13. Þeir, sem taka vilja þátt í skákinni, eu minntir á að taka með sér töfl og mæta stundvíslega. □ Mikil loönuveiöi á vertíÖinni Loðnuaflinn á þessari ver- tíð er orðinn um 500 þús- und tonn og slær öll fyrri met. Útflutningsverðmæti aflans er þá komið á tíunda milljarð ísl. króna. Þá er þess að geta þótl minna sé rætt, að í mörg- um verstöðvum er þorsk aflinn, það sem af er ver- tíðinni, miklu meiri en á sama tíma fyrra, jafnvel mörgum sinnum meiri, svo sem suðvestanlands. Allar sjávarvörur eru nú f allháu verði erlendis. □ m ■■'bf ’-W < *> Aðveitustöðin á RangárvöIIum við Akureyri er mikið mannvirki. — Þar hefur Byggðalínan verið tengd, þar eru hinar stóru dísilvélar Laxárvirkjunar og þar verður fyrir lok þessarar viku lokið tengingu raflínunnar frá Kröflu. (Ljósm. E. D.) Nýtt íþróttahús risið í Glerárhverfi Síðdegis á laugardaginn var nýtt skóla-íþróttahús formlega tekið í notkun við Glerárskóla á Ak- ureyri og fór þar fram hátíðleg athöfn. Til máls tóku við það tækifæri: Tryggvi Pálsson, fyrir hönd Smára, sem byggði húsið, Haukur Haraldsson, sem þarna mætti fyrir hönd húsa- meistara Akureyrar, Ágústs Berg. Sigurður Óli Brynjólfs- son, formaður fræðslunefndar Akureyrar tók einnig til máls svo og Helgi M. Bergs bæjar- stjóri, og loks skólastjórinn við Glerárhverfisskóla, Vilberg Al- exandersson. Húslykillinn gekk frá manni til manns við atöfn þess að hefðbundnum sið, en hefur að síðustu væntanlega lent í höndum húsvarðar, Sam- úels Jóhannssonar. Drengir og telpur úr skólum bæjarins sýndu fimleika undir stjórn Þrastar Guðjónssonar íþróttakennara, og æfingaleik- ur í blaki fór fram. Eftir athöfn þessa var gest- um boðið til kaffidrykkju í Glerárskóla. Nýja íþróttahúsið í Glerár- hverfi er 7300 rúmmetrar. — Skiptist það í tvo hluta, íþrótta- sal sem er 630 fermetrar og búningsherbergi sem eru 457 fermetrar. íþróttasalurinn, sem er 18x33 m er hár undir loft og má skipta honum í tvennt með tjaldvegg, og gólfið er sérstakt íþróttahúsgólf, smíðað úr efni sem kallað er Spoknoleloor, og eru í því festingar fyrir ýmis íþróttatæki. Búningsherbergi eru fjögur, snyrtingar, áhaldageymslur, kennaraherbergi, húsvarðarher- bergi o. fl. Á stafni hússins eiga að koma listskreytingar eftir Snorra Svein Friðriksson. Verktaki hússins var Smári hf. eins og áður var sagt, en hönnuðir voru margir. □ Rauðmagi til Japans Á Húsavík hefur það heyrst, eins og víðar, að undanfarið hafi þar mjög stór þorskur bor- ist á land. Af því tilefni ræddi blaðið við Tryggva Finnsson, forstj. Fiskiðjusamlagsins á Húsavík og sagði hann þá meðal annars eftirfarandi: Já, það er rétt, að á línuna veiddist mjög vænn fiskur í febrúarmánuði, vænni en við Grímseyingar Grímsey 15. mars. Við höfum aldrei fengið eins stóran og góðan fisk. Til dæmis um þetta er það, að í gær fékk einn bát- urinn yfir tvö tonn og yfir 1500 kg af aflanum var stór þorskur. Bátarnir róa með línu. Friðun- in er hér líklega að segja til sín, enda hlýtur það að sjást, þegar erlendi togaraflotinn er farinn af miðunum. Við héldu/.n upp á 20 ára af- mæli kvenfélagsins 24. febrúar og var þá ljómandi skemmtun. Þá voru sýndir leikþættir og fleira sér til gamans gert. En það er ekki nýtt, þótt eigum að venjast á þeim árs- tíma. Nú í mars hafa gæftir verið minni, eenda langt sóttur aflinn. Svo byrjuðu netaveiðar og varð nokkur árangur hjá einum bát um tíma, en annars hefur árangur ekki orðið mikill. Héðan frá Húsavík eru nú gerðir út sjö eða átta dekkbátar og þeir eru frá 12 og upp í 500 tonn, en svo eru einir sex minni og sá guli leikið sé í Grímsey. Líklega hef ég verið sex ára þegar Skugga- Sveinn var leikinn hér, enda voru þá margir áhugamenn í leiklistinni hér í eynni og Stein- dór Sigurðsson lék Skugga- Svein. En þá var fleira fólk hér í Grímsey en nú er. S. S. DAGTJR kemur næst út á miðvikudaginn 23. mars. Auglýsendur skili handritum fyrir kl. 7 c. h. á mánudag. □ dekkbátar, sem einnig stunda sjóinn ofurlítið og byrjað er að róa á trillubátum. Auk þess eru svo sjö bátar í rækjunni og togarinn Júlíus Hafstein, sem virðist kominn í gott lag og er núna á veiðum. Menn veiða nokkuð af rauð- maga og við erum farnir að senda hann suður, ennfremur ætlum við að frysta tíu tonn af rauðmaga á Japansmarkað, til reynslu. Skeð getur að þar sé að finnast markaður fyrir þennan fisk. Síðasta ár sendum við prufu og virðist hún hafa líkað vel, fryst í öskjum. Leiklistaráhugi norðlendinga er ótrúlega mikill og hefur verið sagt frá því áður. En þó var þess ekki getið, að starfandi eru í Dynheimum, á vegum Æsku- lýðsráðs Akureyrar, leiklistar- klúbbar, bæði nú í vetur og áður. Kennarar nú eru Saga Jónsdóttir og Þórir Steingríms- son. Nemendur eru 14—17 ára og um páskana í fyrra sýndu " Kraf la„ Hríseyingar æfa sjónleikinn Orrustuna á Hálogalandi og hafa gert um skeið, undir leik- stjórn Aðalsteins Bergdals leik- ara á Akureyri. Verður frum- sýningin í samkomuhúsi eyjar- innar á laugardaginn. Leikendur eru eftirtaldir: Sigurður Finnbogason, Ásgeir Halldórsson, Sæmundur Guð- mundsson, Vilhelm Bjömsson, Snorri Grímsson, Ingveldur Gunnarsdóttir, Vera Sigurðar- dóttir, Þórdís Alfreðsdóttir, Sól- veig Jóhannsdóttir og Ebba Sig- urhjartardóttir. Áhugamenn um leiklist í Hrísey stofnuðu nýlega leik- klúbb og heitir hann Krafla. Stuðningur vib Alþýðu- leikhúsið Alþýðuleikhúsið kom í heim- sókn til Lundar 6. desember sl. og sýndi leikritið Krummagull við mjög góðar undirtektir. — Hefur það vakið athygli hér í Svíþjóð, að íslenskur leikhópur treystir sér til að kynna á þenn- an hátt íslenska mennnigu, án þess að njóta nokkurra opin- berra styrkja, en opinberir styrkir til hliðstæðra leikhúsa hafa nýlega verið hækkaðir mikið í Svíþjóð. Bæði í þakklætisskyni fyrir heimsóknina til þess að styðja hið gagnmerka framtak Alþýðu- leikhússins samþykkti aðal- fundur íslendingafélagsins í Lundi 20. febrúar sl. að kaupa tvö styrktarkort Alþýðuleik- hússins. Einnig býðst félagið til að greiða götu leikhússins eftir bestu getu, ef það á nýjan leik vill ferðast um Norðurlönd og kynna þannig íslenska leiklist. (Frétt frá ísl.fél. í Lundi) Kirkjuvikan í kvöld, miðvikudag, verður föstumessa kirkjuvikunnar á Akureyri. Séra Vigfús Þór Árnason predikar. Annað kvöld flytur Guðríður Eiríksdóttir ræðu, ennfremur Jón Björns- son, félagsmálastjóri. Á föstudaginn flytur Valdi- mar Björnsson, fyrrum fjár- málaráðherra í Minnesotafylki ræðu. Biskupinn yfir fslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, flytur guðsþjónustu á sunnudaginn, síðasta dag kirkjuvikunnar á Akureyri. □ þeir Höfum við gengið til góðs, og fjallaði um vandamál ungl- inga og þótta takast mjög vel. Nú'er eldri flokkurinn að æfa Sköllóttu söngkonuna eftir In- esco og er ó-leikur. Leikstjóri er Þórir. En yngri nemendur æfa, undir stjóm Sögu, þætti, sem verða sýndir á Andrésar Andar-mótinu í Hlíðarfjalli um næstu helgi. □ Leiklist í Dynheimum

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.