Dagur - 16.03.1977, Síða 8
DAGUR
Akureyri, Miðvikudaginn 16. mars 1977
VATNSHOSUR - PAKKNINGAEFNI
(KORKUR OG SKINN)
Aðstoðum þroskahefta
Kynningarfundur í M.A.
Á laugardaginn var haldinn
fundur í húsakynnum Mennta-
skólans á Akureyri á vegum ný-
stofnaðs landssambands, er
Þroskahjálp nefnist. Var hann
vel sóttur af áhugafólki. Jó-
hannes Óli Sæmundsson var
fundarstjóri og kynnti ræðu-
menn í fundarbyrjun, Helgu
Finnsdóttur og Hólmfríði Guð-
mundsdóttur, sem til Akureyrar
voru komnar á þennan fræðslu-
og kynningarfund.
Helga Finnsdóttir kynnti í
upphafi ræðu sinnar, landssam-
tökin Þroskahjálp, sem stofnuð
Helga Finnsdóttir.
voru 1. október 1976, í þeim til-
gangi að samræma og styrkja
baráttuna í þágu þroskaheftra
og til a ðvera málsvari þeirra á
opinberum vettvangi. Síðan
rakti hún nánar tilgang samtak-
anna og þörfina fyrir þá aðstoð
við þennan hóp þjóðfélagsþegn-
anna, sem eru svo ógæfusamir
að vera vanþroska að einhverju
leyti, andlega eða líkamlega. —
Hún rakti einnig hina opinberu
afstöðu, hversu mál stæðu nú í
landinu og hvar væri helst úr-
bóta þörf. Hún taldi samfélags-
lega aðstoð við þroskaheft fólk
Hólmfríður Guðmundsdóttir.
hér á landi, langt á eftir því
sem í nálægum löndum og
Bandaríkjunum tíðkaðist.
Þegar það er í huga haft, að
um tvö af hundraði fæddra
barna eru þroskaheft, er ljóst
hve stór hópur af þessum þjóð-
félagsþegnum þarf á aðstoð að
halda, og einnig hve langt er í
land að viðunandi geti talist.
Mörg óleyst verkefni blasa því
við áhugafólki, jafnt sem
sveitastjórnum og ríkisvaldi.
Hólmfríður Guðmundsdóttir
ræddi um kennslu þroskaheftra,
erfiðleika starfsins, en einnig
möguleika og skyldur, og að-
stöðu til að koma þroskaheftum
til hjálpar. Þetta fólk þarf meiri
hjálp en aðrir, en ræðumaður
benti á, að aðrir þyrftu á góðri
kennslu og uppeldi að halda,
þótt þeir væru fljótari að til-
einka sér hana.
Hólmfríður ræddi um aðstöð-
una hér á Akureyri til hjálpar
þroskaheftum, og aðstöðu hinna
ýmsu hópa innan þess ramma,
sem þroskaheftir eru kallaðir,
og var ræðan hin fróðlegasta
sem hin fyrri á þessum fundi.
Þegar um mál þroskaheftra
er að ræða, ber að viðurkenna,
að á allra síðustu árum hefur
mikið áunnist í bættri aðstöðu
fyrir þá hópa fólks, sem einu
nafni eru nefndir þroskaheftir,
og einnig í kunnáttu innlends
fólks við kennslu og uppeldi,
og margt fólk er nú erlendis við
nám og störf á þessu sviði. □
Bústólpi reisti fyrsta húsið
á hafnarsvæðinu
Á laugardaginn buðu forráða-
menn Bústólpa til fundar með
fréttamönnum og fleiri, í tilefni
af nýbyggðu húsi og tækjum
þeim, sem fyrirtækið hefur kom
ið upp. En húsnæðið, sem er
nýtt, er fyrsta húsið, sem byggt
er og tekið í notkun á nýja
Þökkum
Vinarhöndin er styrktarsjóður
við Vistheimilið Sólborg. Sjóð-
urinn aflar sér tekna með gjöf-
um og áheitum. Stærst þeirra
gjafa, sem sjóðnum hafa borist
var kr. 250 þús. frá Kvenfélag-
inu Baldursbrá, fámennu félagi
en fórnfúsu.
Þá hafa sjóðnum tvívegis bor-
ist stórar peningaupphæðir frá
Menningarsjóði KEA, og ein-
staklingar hafa styrkt hann
rausnarlega.
Styrkveiting úr sjóðnum
hófst fyrir tveimur árum, styrk-
ur árið 1975 nam kr. 136.391 og
1976 300 þús., eða alls bæði árin
436.391 krónur.
Búast má við, að reikningar
sjóðsins verði isendir folöðum
bæjarins eftir aðalfund Styrkt-
arfélags vangefinna á Norður-
landi síðar á þessum vetri.
Fyrir tæpu ári voru pöntuð
minningarspjöld á vegum sjóðs-
hafnarsvæðinu. — Eftirfarandi
fréttatilkynning frá Bústólpa
fer hér á eftir:
Fyrirtækið Bústólpi hf. var
stofnað haustið 1968 af nokkr-
um bændum í og við Eyjafjörð.
Aðaltilgangur félagsins er og
velvild
ins. Um sl. áramót nam sala
þeirra rúmlega 50 þús. krónum.
Eina auglýsingin á þeim var sú
vinsemd Dags að birta mynd af
spjaldinu ásamt umsögn.
Velunnurum Sólborgar er
bent á, að þessi spjöld, sem eru
táknræn fyrir Sólborg, fást
keypt á eftirtöldum stöðum:
Versl. Asbyrgi, Bókvali, Huld,
Jóh. Óla Sæmundssyni, Sólborg
og hjá Júdít Jónbjörnsdóttur.
Tilmæli hafa borist um, að fá
spjöldin afgreidd með símtali og
yrðu þau þá árituð og póstlögð
frá sölustað, en greiðsla gerð
síðar, eftir samkomulagi. Þessi
þjónusta verður veitt hjá Bóka-
búðinni Huld og Júdít Jón-
björnsdóttur, sími 23865.
Með þökk allra velunnara
Vinarhandar,
Helga Gunnarsdóttir, form.
kvennadeildar SVN,
Júdít Jónbjömsdóttir.
hefur verið innflutningur og sala
á kjamfóðri. Var strax í upp-
hafi náð samningum við Korn-
og Foderstof Companiet í Dan-
mörku í gegnum umboð þeirra
á íslandi, Guðbjörn Guðjónsson
í Reykjavík. K. F. K. er stærsta
fyrirtæki sinnar tegundar í
Danmörku og hafa öll viðskipti
við það og umboðsmenn þess á
íslandi verið eins góð og frek-
ast er á kosið. Sérstakar þakkir
viljum við færa Bent Clausen,
eins af forstjórum K. F. K., fyrir
áhuga hans á starfsemi Bú-
stólpa og einstaka lipurð í við-
skiptum okkar. Fljótlega fór
Bústólpi að brydda upp á ýms-
um nýjungum í samsetningu á
fóðurblöndun í samráði við
ráðunauta og fóðurfræðinga. —
Má þar til nefna fitubætta
blöndu, sem að Bústólpi kom
(Framhald á bls. 4).
Margt
Rifkelsstöðum 14. mars. Hér í
Öngulsstaðahreppi starfaði fyr-
ir nokkrum árum leikfélag með
miklum blóma, en hvernig sem
á þvf stendur, hefur verið hljótt
um það á síðustu árum. Nú hef-
ur Ungmennafélagið Árroðinn
brotið ísinn og sýnir sjónleik-
inn, Margt býr í þokunni, sem
er þýddur leikur og Aðalsteinn
Bergdal leikstýrir. Sýningar
• Stórþorskurinn
Víða berast fréttir af góð-
um afla fyrir Norðurlandi og
sérstaklega vænum þorski
sem og stórþorski og menn
spyrja hver annan: Hvaðan
kemur þessi þorskur? Er
þorskurinn að breyta um
hrygningarstöðvar, eða er
þetta árangur af því, að er-
lendi fiskveiðiflotinn er að
mestu horfinn af miðunum?
Þessar spumingar brenna á
vörum sjómanna, en skýr-
ing fiskifræðinga á þessum
óvenjulega stóra þorski við
Norðurland, sem undanfarið
hefur veiðst, hefur ekki kom-
ið fram.
bæjarins fari fram, og hefur
þar sennilega stuðning bæj-
arbúa að stómm meirihluta,
vaknar sú spuming, hver út-
gefandinn eigi að vera. Vill
útgáfufyrirtæki í bænum
taka að sér útgáfu bókar, eða
bókanna, e. t. v. með aðstoð
bæjarsjóðs eða án? Hálf
þriðja milljón króna til verks
eins og söguritunar Akur-
eyrar, er fyrst og fremst
viljayfirlýsing, fyrsta sporið.
Nú er þess að vænta, að
skipulega verði að unnið, ef
ekki á svo að fara í annað
sinn, að þetta vandsama
verkefni koðni niður í hönd-
um ráðamanna.
• Söguritun
Akureyrar
Bæjarsjóður hefur lagt fram
nokkra fjárhæð til að hefja
söguritun Akureyrar. Ef rétt
er munað, var það mál á
dagskrá fyrir nokkrum ár-
um, en lítið hefur um það
heyrst síðan, þótt eitthvað
kunni að hafa verið að henni
unnið. Til er bók frá 1948,
eftir Klemens Jónsson, Saga
Akureyrar, og nær hún yfir
tímabilið frá 1787 og fram til
1905. Þar er stiklað á stóru
í 215 blaðsíðna bók, sem er
fróðleg og glögg svo langt
sem hún nær.
• Skipulag og
vinna
Væntanlega verður nú rök-
rætt um, hversu að sögu-
ritun Akureyrar skuli stað-
ið, og sú niðurstaða fengin,
að unnt sé að hefja þetta
starf og vinna það skipulega
og fá það út gefið. Sögurit-
unin hlýtur að verða margra
manna verk, ef vel á til að
vanda, og eflaust í mörgum
bindum. Yrðu þá einhverj-
um ákveðnum aðilum falið
að sjá um ritun hinna ein-
stöku þátta, svo sem atvinnu-
vegina, einn eða fleiri saman,
félags- og menningarmál,
heilbrigðismál, íþróttir,
byggðamál o. s. frv.
• Viljayfirlýsing
En þar sem bæjarstjóm
Akureyrar hefur með sam-
þykkt sinni 8 mars sl. lýst
vilja sínum til að söguritun
• Könnun á
drykkju
nemenda
Könnun hefur verið á því
gerð hve margir af hverju
hundraði menntaskólanema
drekka áfengi og neyti eitur-
lyfja og stóð Landssamband
menntaskólanema fyrir
könnuninni. Náði könnunin
til 1800 menntaskólanema í
Menntaskólanum á Akureyri,
Kópavogi, Reykjavík, Laug-
arvatni og í Fjölbrautarskól-
unum í Breiðholti og Flens-
borg.
Fram kom, að 77 af hundr-
aði menntaskólanema neyta
áfengis í einhverjum mæli,
þar af tólf af hundraði oftar
en vikulega. Það kom einnig
fram, að nemendur á höfuð-
borgarsvæðinu fá sér oftar í
staupinu en í skólum utan
þessa svæðis, en ekki munar
það mjög miklu.
• Forvitnir um
drykk og
fíkniefni
Fram kom, að fíkniefna-
neysla var ineðal 6,3 af
hundraði, en upp í 16 af
hundraði hafði prófað fíkni-
efnin, þar sem mest var. —
Einnig kom fram, að mjög
auðvelt er fyrir unglinga að
kaupa sér áfengi, en mjög
lítil drykkja væri innan
veggja skólanna. Þá kom
fram, að nemendur byrja oft-
ast að drekka vegna áhrifa
frá kunningjum. Samkvæmt
könnuninni er fíkniefna-
neysla hverfandi í skólum
utan höfuðborgarsvæðisins.
býr í þokunni
eru þegar orðnar nokkrar og
leiknum vel tekið, því áhorf-
endur hafa verið sammála um,
að leikurinn sé skemmtilegur og
Aðalleikendur eru: Gerður
Garðarsdóttir, Katrín Ragnars-
dóttir, Ása Jóhannesdóttir,
Hulda Jónsdóttir, Kristinn
Bjömsson, Kristín Theodórs-
dóttir, Vilberg Jónsson og Jó-
hannes Sigurgeirsson.
Á morgun fer leikflokkurinn
austur í Reykjadal og hefur
tvær sýningar á Breiðumýri. —
Einnig hefur komið til tals að
sýna í Tjamarborg í Ólafsfirði.
Ungmennafélagið á þakkir skild
ar fyrir framtakið.
Snjór er lítill en storka ligg-
ur yfir landinu og mun vera
hauglaust eða hagalítið fyrir bú-
fé. J. H.