Dagur - 21.09.1977, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ARG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPT. 1977 40. TÖLUBLAÐ
Fyrir ungt fólk
Samband ungra framsókn-
armanna heldur á föstu-
daginn kynningarfundi víða
í þessu kjördæmi. Eru þeir
fyrst og fremst ætlaðir
ungu fólki, en eru öllum
opnir. Þar verður fjallað
um stjómmálin almennt og
spurningar til meðferðar,
svo sem á öðrum stað er
sagt frá.
Áhugi ungs fólks á stjórn
málum er mjög takmarkað-
ur, og nokkurar tortryggni
gætir í garð alþingismanna
og stjórnkerfisins yfirleitt.
En þátttaka í stjórnmálun-
um er engu að síður nauð-
syn, og raunar skyldug í
lýðræðisþjóðfélagi, 'svo
framarlega að frelsi og lýð-
ræði sé í heiðri haft.
Framsóknarfélag
Eyjafjarðar
Aðalfundur Framsóknarfé-
lags Eyfirðinga verður hald
inn á morgun, fimmtudag,
og hefst hann kl. 9 e. h. —
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa mætir framboðs-
nefnd Eyfirðinga á fund-
inum. Sjá nánar í auglýs-
ingu. ______
Sesselíubúð
Fyrir tíu árum reisti Slysa-
vamarfélagið skýli það á
Oxnadalsheiði, sem hlaut
nafnið Sesseljubúð, og var
það vígt af sóknarprestun-
um á Akureyri. Um síðustu
helgi var Sesseljubúð tekin
af grunni sínum og færð á
nýjan nokkur hundruð
metrum vestar á heiðina.
Nýr vegur hafði verið lagð-
ur og varð þá afstaða skýl-
is til vegarins óhagstæð, en
er það ekki lengur. Vega-
gerðarmenn og Jón Sigur-
jónsson smiður önnuðust
flutning skýlisins. Kvenna-
deild slysavarnafélagsins á
Akureyri sér um rekstur-
inn. Vonandi þjónar Sess-
eljubúð vel sínu hlutverki,
svo sem verið hefur.
Dauðaslys
Síðdegis 17. september varð
það hörmulega slys við
Malar- og steypustöðina á
Akureyri, að Jón Melstað
Stefánsson, Tjarnarlundi
6B, varð undir steypubíl og
lést samstundis. Hann var
26 ára og lætur eftir sig
konu og þrjú börn.
Sama kvöldið lenti þrett-
án ára piltur fyrir bíl á
mótum Stekkjargerðis og
Akurgerðis. Hann var á
hjóli, slasaðist allmikið og
er í sjúkrahúsi. Þrír öku-
menn voru um helgina
teknir fyrir meinta ölvun,
og bíll lenti út af vegi við
Fagraskóg á sunnudags-
nóttina. Farþegi var flutt-
ur í sjúkrahús.
(Frá lögreglunni).
Grenivík við Eyjafjörð. (Ljósm. B. I.)
Grunnskóli rís á Grenivík
Fyrsta skóflustungan tekin
mánudaginn 12. september
Árdegis mánudaginn 12. sept-
ember var fyrsta skóflustungan
tekin að grunnskólahúsi á
Grenivík, sem taka á sjö neðri
bekkina og í tengslum við hús
þetta á að byggja í framtíð-
inni bæði íþróttahús og félags-
heimili undir sama þaki. Fyrstu
skóflustunguna tók Pétur Ax-
elsson, formaður bygginga- og
skólanefndar, að viðstöddum
hreppsnefndarmönnum, bygg-
ingarnefnd og nokkrum öðrum.
Húsið er teiknað á teikni-
stofu Hauks Haraldssonar á
Akureyri, en arkitegt er Ágúst
Berg. Byggingameistari verður
Þorgils Jóhannesson á Sval-
biarðseyri. Hugmyndin er að
byggja í haust undirstöður og
kjallaraveggi ef tíð leyfir.
Yfir standa á Grenivík vatns-
veituframkvæmdir. Vatnið er
tekið í Grenivíkurfjalli, innan
við einn kílómetra frá þorpinu.
Búið er að byggja 100 tonna
vatnsgeymi á miðri leið. Vatns-
æðin að geymi er 4 þumlungar,
en þaðan er lagt út í 3 þuml-
unga leiðslum. Væntanlega
verða fyrstu húsin tengd mjög
bráðlega. Vatnið er mjög gott.
Þá er unnið að holræsagerð,
og er búið að leggja um 300—
400 metra af þeim. Þá fékk
sveitarfélagið heimild til að
byggja fjórar leiguíbúðir og er
flutt í þrjár þeirra, en fjórða
íbúðin er tilbúin og verður flutt
í hana um helgina. í ár hafa
einstaklingar byrjað á þrem
einbýlishúsum og önnur þrjú
hús, sem byrjað var á í fyrra,
eru í smíðum. Enn vantar hús-
næði fyrir fólk, sem flytja vill
til Grenivíkur.
I Grýtubakkahreppi búa rúm.
DAGTJR
kemur næst út 28. sept.
Mikið efni bíður.
lega 400 manns, þar af 250 í
Grenivíkurþorpi.
Fjórir stærri bátamir róa nú
með línu og reyta sæmilega, eða
frá 4—6 tonnum, og trillurnar
hafa fengið dálítið á færi og
línu. Frystihúsið hefur haft
nægilegt hráefni að undanförnu.
Slátrun hefst 19. september og
verður lógað nær sjö þúsund
fjár í haust. (Samkvæmt viðtali
við Pétur Axelssort, fréttaritara
blaðsins á Grenivík).
Gullfundur
í Hamrinum
Á miðvikudagskvöldið síðasta
var byrjað að dæla 63 gráðu
heitu vatni úr 840 metra djúpri
borholu á Hamri í Svarfaðardal
vegna hitaveitunnar á Dalvík.
Fengust úr henni 34—35 lítrar
á sekúndu. Er það rúmlega
helmings aukning á heita vatn-
inu og þetta nýja vatn er einnig
heitara en það eldra, enda kom
það á meira dýpi og truflaði
ekki rennsli þess vatns hitaveit-
unnar, sem fyrir var. Er þetta
ómetanlegur árangur og nægir
heita vatnið nú til nær tvöfallt
stærri byggðar, en nú er við
Böggvisstaðasand. í þessari
viku verður heita vatnið tengt
hitaveitunni. Stofnæðin er það
rúm, að hún tekur þessa við-
bót.
Pálmi vígður
Á sunnudaginn var vígður til
Melsstaðaprestakalls, séra Pálmi
Matthíasson frá Akureyri. —
Vígslubiskupinn, séra Pétur
Sigurgeirsson vígði, en séra
Bolli Gústavsson lýsti vígslu. —
Vígsluvottar voru sera Birgir
Snæbjörnsson, séra Pétur Þór-
arinsson, séra Pétur Ingjaldsson
og séra Gísli Kolbeinsson.
Hinn nývígði prestur hefur
búsetu á Hvammstanga. Hann
er kvæntur Unni Ólafsdóttur
og eiga þau eitt barn.
Bjöm Ingólfsson, Baldur Jónsson, Pétur Axelsson og Jakob Þórðar-
son vom nærstaddir er fyrsta skóflustunga grunnskólans var tekin.
Fundir um lands-
mál fyrir ungt fólk
Magnús Ólafsson form. SUF |
Föstudaginn 23. september verða haldn-
ir á vegum Sambands ungra Fi amsóknar-
manna fimm almennir stjórnmálafundir
í Norðurlandskjördæmi eystra. — Þeir
verða á eftirtölidum stöðum: Ólafsfirði,
Dalvík, Akureyri, Húsavík og Kópaskeri
ogihefjast allir klukkan 20.30.
Á öllum fundunum verður fjallað um
sama efni, þ. e. stefnu og störf Fram-
sóknarflokksins og Sambands ungra
framsóknarmanna.
Leitað verður m. a. svara við eftirfar-
andi spurningum:
1. Á að draga úr félagslegri þjónustu?
2. Á að draga úr opinberum framkv.?
3. Hvernig verður sköttunum best varið?
4. Hvernig má gera stjórnkerfið mann-
legra?
Tveir framsögumenn verða á hverjum
fundi, allir úr röðum SUF. Þá mun rit-
ari Framsóknarflokksins, Steingrímur
Hermannsson, verða á fundinum á Ak-
ureyri.
Fundirnir eru fyrst og fremst ætlaði
ungu fólki, þótt allir séu velkomnir, og
þar sem hér er um kynningarfundi að
ræða, má óhikað hvetja til góðrar þátt-
töku.