Dagur - 12.10.1977, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LX. ÁRG. AKUREYRI, MIÐVIKUDAGUR 12. OKT. 1977 43. TÖLUBLAÐ
Iðnkynningarári
er lokið
Iðnkynningarári lauk með
mikilli iðnkynningu í höf-
uðborginni í haust, þar
sem 54 þús. manns komu,
en áður hafði iðnaðurinn
verið kynntur víða um
land, og fyrst á Akureyri í
fyrrahaust, sem mönnum
er í fersku minni.
Ekki leikur það á tveim
tungum, að iðnkynning
þessi hefur haft mikil áhrif
í þá átt að kynna lands-
mönnum íslenskan iðnað
og reynslan þykir sýna það
ótvírætt, að innanlandssala
íslenskrar iðnvöru hefur
aukist verulega.
Eigi má torvelda
sjúkraflutninga
né slökkvistörf
Vegna hitaveitufram-
kvæmda á Akureyri eru
göutr grafnar sundur og
ekki alls staðar auðveld
umferð. Blaðinu hefur ver.
ið bent á, að lögregla og al-
mannavarnir þurfi að hafa
betri merkingar og sjá til
þess, að leiðir sjúkrabíla og
slökkviliðs séu sem greið-
astar og breytingar til-
kynntar jafnóðum, svo að
ekki gerist alvarleg tíðindi
vegna tafa í þessum þjón-
ustugreinum. Sé nú mikil
hætta á, að þær tafir geti
orðið og með ófyrirsjáan-
legum afleiðingum. Kemur
blaðið þessum ábendingum
til réttra aðila.
Otflutningur
iönvarnings
Þá ber útflutningur ís-
lenskra iðnvara því Ijóst
vitni, að sú framleiðsla er
í sókn. Hefur útflutningur
iðnvarnings aukist um 42%
á fyrra helmingi þessa árs.
Samkvæmt frásögn Útflutn
ingsmiðstöðvar iðnaðarins
nam heildarverðmæti út-
flutningsins 14,4 milljörð-
um króna þessa sex mán-
uði, og var um verulega
magnaukningu að ræða,
auk hærra vöruverðs. Mest
varð aukningin á unnum
prjónavörum.
Samningamálin
í atkvæðagreiðslu á þriðju-
dagsnótt höfnuðu starfs-
menn Reykjavíkur samn-
ingum sáttanefnda með
litlum atkvæðamun. Seint
á mánudagskvöld ná'ðu
samninganefndir Akureyr-
arbæjar og starfsmanna
samkomulagi. Fundur til
að skýra samningana átti
að hefjast kl. 5 síðdegis í
gær, en ljúka þurfti við
blaðið áður, svo fréttir af
honum og væntanlegri at-
kvæðagreiðslu verður að
bíða betri tíma.
Varnargarður og vegagerð
Jarðhitinn í Bjarnarflagi hefur enn aukist verulega
Úr Mývatnssveit — Ljósm- E. D.
Mývatnssveit 8. október. Land-
ris er á Kröflusvæðinu, eins og
búið var að spá. En í Bjamar-
flagi hefur yfirborðshiti enn
aukist og hafa húsakynni Létt-
steypunnar stundum verið
nefnd í því sambandi sem
dæmi. En þar mun vera um
suðumark undir húsinu öllu eða
mestöllu.
Leirhverir hafa myndast við
gufurafstöðina og þar sýður
jörðin bókstaflega, og kraumar
í smá vatnaaugum og leirhver-
ir hafa einnig myndast.
Á mesta gufusvæðinu við bor-
holurnar hefur oft verið erfitt
að fara um vegna gufu. Hefur
verið lagt til að búa þar til tvær
akreinar og er það í athugun
hjá Vegagerðinni, og ég vona,
að eitthvað verði fljótlega í því
máli gert.
Yfir standa framkvæmdir við
veginn frá Reykjahlíð að Geit-
Hljómflutn-
ingstæki
í leikhúsið
Á bæjarráðsfundi 29. september
var samþykkt, að tilmælum
Leikfélags Akureyrar, að heim.
ila kaup á hljómflutningstækj-
um fyrir leikhúsið, eða Sam-
komuhús bæjarins, en áætlaður
kostnaður er 800—900 þúsund
krónur. Er þetta meðal annars
gert vegna mikils tónflutnings
í því leikhúsverki_ sem verið er
að æfa um þessar mundir og
verður frumsýnt fyrir eða um
næstu mánaðamót.
Á næsta fundi samþykkti svo
bæjarráð, samkvæmt erindi frá
Leikfélagi Akureyrar um 4
milljón króna framlag til leik-
starfseminnar, að bæjarsjóður
veiti 2 millj. kr. aukafjárveit-
ingu til leikhússins.
eyjarströnd, sem er rúmir fimm
kílómetrar. Hófust framkvæmd-
ir snemma í síðustu viku. Veg-
inn á að hækka mjög mikið og
breikka. Mest af efninu er að-
flutt.
Þá eru einnig hafnar fram-
kvæmdir við varnargarð við
Kísiliðjuna, til vamar hugsan-
legu hraunrennsli. Hann teng-
ist þrónum norðan við Kísiliðj-
una og liggur fyrst til austurs
frá þeim og síðan til suðurs,
austan við hús Kísiliðjunnar og
Hrísey 10. október. Hér var að-
eins föl í morgun og minnir það
mann á árstímann, en annars
er gott veður. Snæfellið landaði
65 tonnum á laugardaginn og er
verið að vinna við þann fisk.
Kaupfélag Eyfirðinga er að
byggja hér um 400 fennetra salt-
fiskverkunarhús og kemur það
til með að bæta mjög aðstöðu
fiskmóttöku og saltfiskverkun-
ar.
Búið er að ráða hingað hita-
veitustjóra, Jakob Kristinsson.
Verið er að vinna í hitaveit-
unni, einkum við að laga og
breyta heimæðum, sem margar
voru orðnar stíflaðar. En jafn-
framt er unnið að því að koma
í veg fyrir útfellinguna, sem
stíflunum veldur. Búið er að
setja upp blöndunartæki, sem
heita vatnið fer í gegn um og
binda menn vonir við, að sú
tilraun gefi góða raun.
Kálfarnir á nautastöðinni hér
i Hrísey stækka óðfluga og eru
mjög fallegir, enda ganga þeir
undir mæðrum sínum. En held-
ur gekk það treglega að koma
kálfi í þessar tuttugu kýr, sem
hér eru og því eru kálfarnir
aðeins níu talsins. Þó á sæðið
að vera framúrskarandi og eng-
inn efast um kyngæðin. Bera
kálfarnir þess merki, að ný
tengist svo þrónum að sunnan.
Varnargarðurinn verður fjór-
ir metrar að ofan og kemur í
svipaða hæð og þróarveggimir.
í athugun er að leggja í garð-
inn leiðslur fyrir hugsanlega
hraunkælingu, þar sem núver-
andi dælubúnaður vegna efnis-
töku í Mývatni yrði notaður ef
til kæmi. Ákvörðun um þetta
hefur ekki verið tekin.
Við Kröfluvirkjun hefur
mönnum fækkað mjög síðustu
dagana, en haldið er áfram að
blóðblöndun hefur átt sér stað,
því þeir sverja sig í holdanauta-
ættina.
Mikið verpti af rjúpum á
eynni í sumar og nú eru þær
að verða hvítar og eru kær-
lagfæringu á borholunum og er
borinn að vinna við holu ellefu,
þá síðustu.
Ekki er enn komið í liós, hve
mikilli orku þessar fjórar bor-
holur geta gefið, en mér hefur
skilist, að Kröfluvirkjun muni
senn geta skilað 10 megavatta
orku, þótt aðrir séu um þá hluti
fróðari.
Hauststörf í sveitinni ganga
allvel og nú í dag voru menn að
fara af stað í eftirleit á Suður-
afrétt, suður í Ódáðahrauni. f
sumar var allgóð silungsveiði í
vatninu og var netafjöldi þó
takmarkaður. Byggingafram-
kvæmdir eru miklar. Kröflu-
nefnd hefur funm íbúðarhús í
smíðum í Reykjahlíðarþorpi og
einstaklingar að auki. Eru þetta
allt bústaðir starfsmanna og er
verið að flytja í þau fyrstu, sem
byrjað var á í vor eða sumar.
Fólki fjölgar stöðugt og fer
sennilega yfir 200 manns í
Reýkjahlíðarhverfinu nú. Við
Kísiliðjuna vinna 160—170
manns á sumrin, en færra á
vetrum. Þá hefur Kröflunefnd
sett upp fjórar bráðabirgðaíbúð-
ir, búnar til úr vinnuskálum frá
Kröflu. Hver eining er úr fimm
skálum.
Sveitarfélagið hefur í sumar
látið byggja sundlaugarhús við
Krossmúla, rétt ofan við þorpið.
í húsi þessu sem er 310 ferm. og
fokhelt, verður búningsaðstaða,
böð og fleira. en útisundlaug
verður væntanlega byggð á
næsta ari. Þa er verið að byggja
við félagsheimilið í Skjól-
brekku. j j
komnir gestir okkar á lóðun-
um við húsin. Ein rjúpan
smeygði sér raunar inn í kjall-
arann hjá mér, þó ekki í fæðu-
leit, heldur á flótta undan fálka,
sem var í vígahug hér yfir. S. F,
Verkfall er hafið
Klukkan sjö á mánudagskvöld var staðfest, að slitnað
hefði upp úr samningaviðræðum milli opinberra
starfsmanna og ríkisins. Þá þegar hófst boðað verkfall
klukkan 12 á miðnætti hið sama kvöld. Er |>að fyrsta
verkfall opinberra starfsmanna hér á landi. Stundu
fyrr höfðu starfsmenn Reykjavíkurborgar og launa-
málanefnd undirritað kjarasamninga. Verkfallið leiðir
til þess, að útsendingar útvarps fellur niður, að veður-
fregnum frádregnum og sjónvarp verður ekki starf-
rækt. Póst- og símaþjónusta fellur niður, nema þar sem
um sjálfvirkan síma er að ræða, áætlunarflugferðir til
og frá landinu verða engar og innanlandsflug kann að
truflast. Vöruflutningar skipa stöðvast, skólastarf ým-
ist fellur niður eða lamast, dagheimili og gæsluvellir
verða lokaðir. Ýmis konar öryggisþjónusta verður ekki
skert, svo sem löggæsla og rekstur sjúkrahúsa. Þá er
þess að geta, að Bandalag háskólamanna hefur ekki
verkfallsrétt og fara félagar þess j>ví ekki í verkfall.
Á flótta, en ekki í fæðuleit