Dagur - 12.10.1977, Side 6
MM
Messað í Akureyrarkirkju
á sunnudag kl. 2 e. h. Sálm-
ar nr.: 404, 391, 384, 392,
425. — P. S.
Laugalandsprestakall. Mess-
að verður að Grund sunnu-
daginn 16. október kl. 13.30.
Prestar: Séra Sigurður
Guðmundsson prófastur að
Grenjaðarstað. Kór Ein-
arsstaðarkirkju syngur
undir stjórn Friðrik Jóns-
sonar frá Halldórsstöðum.
Lögmannshliðarkirkja. Mess-
að verður n. k. sunnudag
kl. 2 e. h. Sálmar: 196, 320,
136, 678. Bílferð verður úr
Glerárhverfi kl. 13.0. B.S.
Kirkjan: Sunnudagaskólinn
er kl. 11 bæði uppi í kirkj-
unni og niðri í kapellu. —
Hvert bam er beðið að
koma með 100 krónur fyr-
ir Sunnudagspóstinum. Öll
böm velkomin. Bekkjar-
stjórar, munið að mæta kl.
10.30 f. h. Sóknarprestar.
AAMRUMUK
Sjónarhæð. Almenn sam-
koma n. k. sunnudag kl. 17.
Biblíulestur á fimmtudag
kl. 20.30. Sunnudagaskóli
í Glerárskóla á sunnudag
kl. 13.15. Verið velkomin.
Fjölskyldusamkoma. Sunnu-
daginn 16. okt.
kl. 16.30. Fjöl-
vbreytt dagskrá, —
mikill söngur. For-
eldrar, komið og takið
börnin ykkar með. Allir
velkomnir. Munið sunnu-
dagaskólann kl. 13.30. Sjá
augl. inn Flóamarkað á
smáauglýsingasíðu blaðs-
ins.
Kristniboðshúsið Zíon. —
Sunnudaginn 16. okt.:
Sunnudagaskóli kl. 11. Öll
börn velkomin. Samkoma
kl. 20.30. Ræðum. Skúli
Svavarsson. Tekið á móti
gjöfum til kristniboðsins.
Allir velkomnir. Biblíu-
lestur hvern fimmtudag
kl. 20.30. Allir velkomnir.
Sjálfsbjargarfélagar. —
Þriggja kvölda fé-
lagsvist í Alþýðu-
húsinu hefst
sunnudaginn 16.
þ. m. kl. 20.30. —
Félagar fjölmenn-
ið og takið með ykkur
gesti. Stundvísi. Nefndin.
□ RÚN 597710127 — 2
I.O.O.F.Rb 2=12710128% =
I.O.O.F. 2 15910148% Atk.
Lionsklúbbur Akureyrar. —
#Félagar. Fundur
fimmtudaginn 13.
okt. í Sjálfstæðis-
húsinu kl. 12.00.
Stjórnin.
R. K. 1. Akureyrardeild. Frá
Þóru Birgisdóttur og Krist-
veigu Atladóttur kr. 2.500.
Með þakkl. Guðm. Blöndal.
Krabbameinsfélagi Akureyr-
ar hefur borist gjöf frá
starfsfólki fataverksmiðj-
unnar HEKLU og vinum
Sínu Ingimundardóttur til
minningar um hana. Hjart-
ans þakkir. F. h. Krabba-
meinsfélags Akureyrar, —
Jónas Thordarson.
Borgarbía sýnir um þessar
mundir „Enn heiti ég No-
body“, sem er þriðja og
nýjasta „Nobody“ myndin.
Myndir þessar hafa hlotið
mjög góð aðsókn víðast
hvar, enda eru þær stór-
skemmtilegar og vel gerð-
ar. Aðalhlutverkið, Joe
Thanks, leikur Terence
Hill af stakri prýði, en
Joe þessi stundar þá sér-
kennilegu iðju að fara
hingað og þangað um
„illta vestrið“ í leit að
tækifærum til að ganga á
hólm við menn, ekki sér-
staklega til að ganga frá
þeim dauðum, heldur til
að sýna skotfimi sína og
ganga síðan um með hatt
sinn, eða fórnardýranna,
og safna í hann „skot“silfri
handa sér og vinum sín-
um. Myndin er gerð af
ítalska gamanmyndasnill-
ingnum Sergio Leone, en
leikstjóri er Dimiano Dam-
iani.
Borgarbíó tekur til sýningar
á næstunni víðfræga mynd
gerða af einum frægasta
leikstjóra vorr atíma, Rom
an Polanski. Polanski
samdi sjálfur handritið að
myndinni ásamt Gerard
Brach, samkvæmt sögu
eftir Roland Topor. Þá
leikur Polanski einnig að-
alhlutverk myndarinnar,
leigjandann Trelovsky. —
Trelovsky þessi tekur á
leigu íbúð, sem ung kona
hafði leigt á undan hon-
um, en framið sjálfsmorð
með því að stökkva út um
glugga á íbúðinni. Atvikin
haga því þannig, að Trel-
kovsky sannfærist um að
allir sitji um líf hans og
tekst Polanski ótrúlega vel
að túlka sálarkvalir leigj-
andans. Að endingu fer
svo að Trelkovsky fer
sömu leið og unga konan,
sem hafði íbúðina á und-
an honum, út um glugg-
ann. Einnig verður sýnd á
næstunni mynd um
kvennabósann Tom Jones,
og bráðlega kemur mynd-
in „Undir urðar mána“,
með Gregory Peek í aðal-
hlutverki. Kl. 3 á sunnu-
dag verður sýnd myndin
„Emil og grísinn".
Frá Markaðsversluninni Hrisalundi!
TILBOÐ VIKUNNAR:
TILBOÐS- HÁMARKS
VERÐ VERÐ
NIÐURSOÐNAR PERUR 1/1 ds. - 396 440
NIÐURSOÐNIR BL. ÁVEXTIR 1/1 ds. - 408 453
NIÐURSOÐNAR FERSKJUR 1/1 ds. Kr. 315 350
Matvörudeild
ÞRiÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 1977
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Aug:ýsingar og dagskrá.
20.30 LandkönnuSir. Leikinn, breskur
heimildamyndaflokkur í 10 þáttum um
ýmsa kunna landkönnuði. 2. þáttur.
Charies Doughty (1843—1926).
21.20 Á vogarskálum (L). í þessum
þætti verður m. a. fjallað um líkamsrækt
og lýsir dr. Ingimar Jónsson gildi henn-
ar.
21.50 Morðið é auglýsingastofunni (L).
Nýr, breskur sakamálamyndaflokkur í
fjórum þáttum um ævintýri Wimseys lá-
varðar, byggður á skáldsögu eftir Dor-
othy L. Sayers.
22.40 Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 1977
18.00 Símon og krítarmyndirnar. Breskur
myndaflokkur.
18,10 Kínverskir fjöllistamenn. Síðari
myndin frá fjölleikahúsi I Kína, þar sem
börn og fullorðnir leika listir sínar.
18.30 Konungsgersemar. Bresk fræðslu-
mynd um sögu hestsins.
19.00 On We Go. Enskukennsla. 2.
þáttur frumsýndur.
HLÉ.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Aug’ýsingar og dagskrá.
20.30 Nýjasta tækni og vísindi.
20.55 Húsbændur og hjú (L). Breskur
myndaflokkur. TíTindl af vígstöðvunum.
21.45 Trlo Per-Olaf Johanson. Bertil
Melander, Ingvar Jónasson og Per-Olaf
Johanson leika trfó fyrir flautu, lágfiðlu
og gltar eftir Francesco Molino.
22.00 Til fjarlægra staða. Sovésk fræðslu
mynd.
22.30 Undir sama þaki íslenskur fram-
haldsmyndaflokkur í léttum dúr. Endur-
sýndur annar þáttur, Dagdraumar.
22.55 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 1977
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Kengúran. Ðresk fræðslumynd.
21.20 Kastljós (Lj. Þáttur um innlend
málefni. Umsjónarm.: Guðjón Einarson.
22.20 Bleiki kafbáturinn. (Operation Petti
coat). Bandarísk gamanmynd frá árinu
1959.
00.15 Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1977
16.30 fþróttlr.
18.15 On We Go. Enskukennsla. Annar
þáttur endurflutttur.
18.30 Rokkveita ríkislns Hljómsveititn
Celslus. Áður á dagskrá 2. febr. 1977.
19.00 Enska knattspyrnan.
HLÉ.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Aug'ýsingar og dagskrá.
20.30 Undir sama þaki. 3. þáttur. HJarta-
gosinn. Þátturinn verður endursýndur
miðvikudaginn 19. október.
20.55 GySJa holdi klædd. Áströlsk heim-
ildamynd um sérstæða gyðjudýrkun I
Nepal I Himalajafjöllum.
21.45 Gamla IJónið. (The Lion in Wint-
er). Bandarísk bíómynd frá árinu 1968.
23.50 Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 1977
18.00 Stundin okkar Valið efni frá fyrri
árum.
HLÉ.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Aug'ýsingar og daaskrá.
20.30 Norrænir unglingakórar syngja
neprasálma (L). í aprílmánuði síðast-
liðnum var keppni í Danmörku, þar sem
valinn var ,,Besti unglingakór Norður-
landa 1977".
21.15 Gæfa eða aJörvPeiki. Bandarlsk-
ur framhaldsmyndaflokkur, byggður á
söau eftir Irwin Shaw. 3. þáttur.
22.05 Uppreisnln f Attlca-fanaelsinu (L).
Haustið 1971 varð upprelsn í Attica-
fangelsi í Bandaríkjunum. Fanqarnir
mótmæltu aðbúnaðinum og tóku fanga-
verði í gíslingu.
22.55 Að kvöldi da*»s. Séra Stefán Lár-
usson, prestur í Odda á Rangárvöllum,
flytur hugvekju.
23.05 Dagskrárlok.
Innilegar þakkir öllum þeim sem glöddu mig d 70
úra ajmælinu 28. sept. sl., með blómum, skeytum og
ýmsum góðum gjöfum. Sérstaklega þakka ég hjart-
anlega Borghildi bróðurdóttur minni fyrir ánœgju-
legan dag.
Guð blessi ykkur öll.
St. Reykjavík 28/9 1977,
JÓN GUÐNI KARLSSON,
Skarðshlíð 16 a, Akureyri.
it
Eiginmaður minn,
BÚI GUÐMUNDSSON,
BústöSum,
lést aðfaranótt mánudagsins 10. október.
Árdís Ármannsdóttir.
Öllum þeim sem á einn eða annan hátt vottuðu mér samúð sina
og voru mér til hugarhægðar og aðstoðar við fráfall og jarðar-
för konu mlnnar,
MARGRÉTAR ÞÓRARINSDÓTTUR,
sendi ég mínar innilegustu þakkir.
Egill Jóhhannsson, Eyrarlandsvegi 12, Akureyri.
Hjartkæri maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN ANDRES KJARTANSSON,
Hafnarstræti 64, Akureyri,
sem lést 4. október sl. verður jarðsunginn frá Akureyarkirkju
laugardaginn 15. október kl. 13,30.
Jóna Waage,
Marinó Jónsson, Hrönn Hámundardóttir,
Lydía Jónsdóttir, Helgi Kristinsson,
Sigriður Jónsdóttir og barnabörn.
DAGUR