Dagur


Dagur - 02.12.1977, Qupperneq 7

Dagur - 02.12.1977, Qupperneq 7
Raunhæf byggðastefna í ályktunum landsþings Félags íslenskra bifreiðaeigenda 1977, er meðal annars að finna þá upplýsingu, að víðsvegar um landið séu 830 km þjóðvega til- búnir fyrir lagningu olíumalar. Benti landsþingið á, að tekjur ríkisins af bifreiðum séu 15.77 milljarðar króna, en til vega- gerðar verði aðeins varið 5.65 milljörðum króna. Taldi lands- þingið, að með núverandi skatt- heimtu á bifreiðaeigendur væri unnt að leggja olíumöl á 2300 km vegakerfisins á 10—15 ár- um. Er það hringvegurinn að viðbættum vegum til Húsavík- víkur, Dalvíkur, Sauðárkróks, ísafjarðar og Snæfellsness. Landsþingið taldi, að endur- bygging vegakerfisins væri raunhæfasta byggðastefnan nú, þannig að atvinnulíf og þjón- ustustarfsemi geti þróast á hag kvæman hátt fyrir þjóðarheild- ina. — GM (? TVÖ BLÖD A VIKU Dagur kemur út tvisvar íviku, á mið- vikudögum og föstudögum. Dagur er því eina blaðið utan Reykjavíkur sem kemur reglulega út oftar en vikulega. Jafnframt er Dagur út- breiddasta fréttablað á Norður- landi, og eru þá öll dagblöðin með- talin. Fylgist með atburðum á Norður- landi - lesið útbreiddasta frétta- blað Norðurlands. BAÐHERBERGIÐ Baömottuselt Sturtuplast Sturtumottur Freyðibað Baðkersmottur 6DdÍlí?CcÐ Röng áfengismálastefna í athyglisverðu erindi Páls V. Daníelssonar er hann flutti í rík isútvarp mánudaginn 14. nóv. sl. í þættinum „um daginn og veginn“ ræddi hann áfengis- vandamálið. Hann sagði þar meðal annars: Sé ætlunin að breyta áfengis- siðum með nýrri tegund áfeng- is, til dæmis með öli í ákveðnu landi eða héraði, verður neysla hennar ætíð viðbót við þá sem fyrir er. Dæmi um slíkt má finna í Hollandi og á ítalíu, en gleggstu dæmin eru frá Svíþjóð og Finnlandi, þar sem ölneysla átti að draga úr neyslu sterkra drykkja. En slíkt gerðist þó ekki, heldur hitt, að neyslan jókst og færðist til æ yngri ald- urshópa. Hafa Svíar nú fengið sig fullsadda af þeirri tilrauna- starfsemi, að leitast við að láta öl breyta áfengisvenjum þjóð- arinnar og bönnuðu síðastliðið sumar framleiðslu og sölu milli- öls, þ. e. sterka bjórsins. Hvað fjölda dreifingarstaða áfengis varðar, útsölur, vínveit- ingarhús o. s. frv._ má' vitna í nýlegar rannsóknir dr. Tómas- ar Helgasonar prófessors, Jó- hannesar Bergsveinssonar yfir- læknis og Gylfa Ásmundssonar sálfræðings, sem gerðar hafa verið hér á landi. Dr. Tómas segir: Þeir sem bjuggu í þétt- býli, þar sem hægara var að nálgast áfengið en í dreifbýlinu, höfðu 13% líkur til að verða drykkjusjúkir og nærri 20% lík ur til að verða ofdrykkju að bráð. En aðeins 4% karla, sem búsettir voru í dreifbýli þegar þeir voru 14 ára, áttu á hættu að verða drykkjusjúkir. Það er staðreynd, að allar til- slakanir í íslenskri áfengislög- gjöf, frá bannárunum 1915— 1917 hafa verið gerðar undir því yfirskyni, að kenna þjóð- inni að umgangast áfengi sér að skaðlausu, kenna það, sem for- mælendur áfengra drykkju kalla áfengismenningu. Þegar Spánarvín voru lög- leidd, skyldi þjóðinni kennt að drekka hóflega. Þegar leyfð var sala á sterkum drykkjum, átti að kenna fólki að stjórna drykkju sinni sjálft. Þegar leyfð var starfræksla vínveitingahúsa skyldi áfengismenningin halda innreið sína á íslandi. Hver er svo árangurinn? Vaxandi of- drykkja, vaxandi áfengisböl, sem nær til æ vngri aldurshópa. Rekin hefur verið röng áfengis- stefna í meira en hálfa öld. Er ekki mál að linni? Er ekki mál að Ijá eyra rödd sannleikans í þessu efni? Er ekki réttara að mynda áfengismálastefnu á grundvelli óyggjandi sanninda, sem vísindarannsóknir hafa leitt í ljós_ heldur en að fara eftir því sem menn halda að sé rétt eða finnst, að eigi að gera? Eigum við e. t. v. að gera til- raun eins og gerð var í Kanada, en þar var áfengiskaupaaldur- inn lækkaður í nokkrum fylkj- um úr 21 árs aldri í 18 ára ald- ur og auðvitað á þeim grund- velli, að betra væH að fólík drykki löglega en ólöglega? En afleiðingin var hörmuleg. Á flestum sviðum jókst tjónið, sem áfengisneyslan olli, meðal 18—20 ára ungmenna. Til dæm- is fjölgaði þeim ungmennum, sem létu lífið í umferðaslysum um 174%. Þá jókst og drykkja ungmenna innan 18 ára til mik- illa muna. Þótt áfengisvandamálið sé stórt hiá okkur, er það þó miklu minna en hjá grannþióðum okk ar. Við þurfum ekki að búa við það, að fá 10—12 ára börn ölvuð í skólann, eða að þau verði ölvuð í skólanum, eins og gerist sumstaðar í norðanverðri Evr- ópu, og við höfum tækifæri til að koma í veg fyrir slíkt, ef við höldum vöku okkar og hlustum á þá fræðslu, sem vísindarann- sóknir hafa í té látið. Allar þær rannsóknir benda á eina og að- eins eina leið til að draga úr áfengisbölinu. En hún er sú að draga úr áfengisneyslunni. Og til þess að draga úr áfengis- neyslu er einnig aðeins ein leið, sem haldbær hefur reynst, en það eru nokkrar hömlur, hafa hátt verð á áfengi_ takmarka sölu og sölustaði og gera fólki á einn og annan hátt erfitt fyrir með að ná í áfengi. DAGUR•7

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.