Dagur - 02.12.1977, Blaðsíða 8
DAGUR
Akureyri, föstudaginn 2. desember 1977
RAFGEYMÁR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA
VELJIÐ RÉTT
MERKI
Hótel Saga,
Hagkvæmar helgarferðir
Flugleiðir buðu blaðamönnum
á Akureyri í ferð til Reykja-
víkur til að kynna þeim helgar-
ferðir félagsins, sem á boðstól-
um eru í vetur, eins og undan-
farna vetur. En með þeim eiga
landsmenn þess kost, að ferðast
um helgar á milh landshluta
með Fokkervélum Flugleiða og
njóta gistingar á góðum hótel-
um gegn vægu verði.
Til dæmis kostar helgarferð
Norðlendings til Reykjavíkur
og gisting á hóteli þar tvær
nætur frá kr. 13.500—14.500 og
mun láta nærri, að það sé þriðj-
ungs afsláttur. Þessar ferðir eru
að verða fastur liður einstakl-
inga og stofnana og eru þær
mjög oft tengdar leikhúsum
höfuðborgarinnar eða sýning-
um af öðru tagi og má þar nefna
sýninguna „Heimilið 77“.
Blaðamenn á Akureyri, undir
fararstjórn Sveins Kristinsson-
ar umdæmisstjóra og Kolbeins
Sigurbjörnssonar sölustjóra,
skruppu í helgarferð 18. nóvem
ber og kynntust í þeirri för gisti
stöðum höfuðborgarinnar, að-
stöðu á þeim og þjónustu, en
gistu á hinu kunna Loftleiða-
hóteli. Var förin þann veg und-
irbúin, að hótelin tóku vel á
móti fréttamönnum og þeim
gafst kostur á að kynnast starf-
semi þeirra og allri aðstöðu.
Auðséð var á öllu, að innlent
ferðafólk er farið að nota hótel-
in í Reykjavík meira en áður,
í stað þess að gista hjá ættingj-
um og vinum, enda ekki alltaf
fjárhagslegur sparnaður að því
vegna kostnaðar við leigu-
bifreiðar.
Segja mátti, að öll Reykja-
víkurhótelin væru yfirfull og á
sumum stöðum var verið að
vísa ferðafólki frá vegna
þrengsla.
Leiðir þetta hugann að því,
að hér á Akureyri telia ýmsir,
að fjölga þyrfti hótelherbergj-
um um 100 og auk þess þyrfti
nauðsynlega að koma upp góð-
um ráðstefnusal. Gildir hið
sama um hótel og vegina, en
sagt hefur verið, að vegir skapi
vegfarendur.
Helgarferðirnar eru orðnar
einkar vinsælar. Munu á annað
þúsund farþegar hafa notið
þessara ferða héðan frá Akur-
eyri í fyrravetur. Sýnir það
áhuga á helgarferðunum og
vinsældir þeirra.
í Reykjavík tóku á móti okk-
ur Sverrir Jónsson stöðvar-
stjóri, ennfremur Þorsteinn
Thorlacius og Andri V. Hrólfs-
son, sem báðir eru fulltrúar
Einars Helgasonar hjá innan-
landsfluginu og urðu menn af
viðræðum við þá margs vísari.
Voru móttökur allar framúr-
skarandi, svo og fararstjórn.
Þá má sérstaklega geta þess,
að þegar þjóðleikhússtjórinri,
Sveinn Einarsson, frétti af
komu okkar, bað hann fyrir
kærar kveðjur til Norðlending-
anna og sendi okkur leikhús-
miða. Leiddi það af sjálfu sér,
að við fórum í leikhús og sáum
sjónleikinn Týndu teskeiðina
eftir Kjartan Ragnarsson, sem
er kaldrifjaður gamanleikur.
Móttökustjórar á hótelunum
voru: Á Loftleiðum Kristín
Norðman, á Hótel Esju Stein-
dór Ólafsson, á Hótel Sögu Vil-
helm Vestmann, á Hótel Holt
var viðdvöl stutt, og Steinunn
frá Rauðasandi sýndi okkur
Hótel Borg.
Að öllu samanlögðu virðist
mega hvetja fólk til þess að
notfæra sér afslátt þessara
helgarferða, ef það á annað
borð þarf eða vill eyða pening-
um sínum í ferðalög, sér til
gagns eða skemmtunar.
Námskeið fyrir konur
Kvennasamband Akureyrar
gekkst fyrir félagsmálanám-
.skeiði 18.—20. nóvember sl.
Leiðbeinandi var Sigríður
Thorlacius formaður Kven-
félagasambands íslands. Þátt-
takendum voru í upphafi kynnt
ar almennar fundarreglur, mis-
munandi kosningaaðferðir o. fl.
viðvíkjandi félagsmálum og
fundarstörfum og gildi þess að
vinna saman að úrvinnslu verk
efna.. Síðasta kvöldið fluttu 3
þátttakendur framsöguerindi.
Fjallaði það fyrsta um skóla-
mál, annað um hver áhrif hin
mikla eftirvinna hefur á fjöl-
skyldu og félagslíf og hið þriðja
um jafnrétti. Voru fluttar snjall
ar framsöguræður og síðan
skipt í starfshópa. Kom þar
ýmislegt fróðlegt fram.
Að endingu kvað leiðbein-
andi upp þann úrskurð að ræðu
menn námskeiðsins væru mjög
vel máli farnir og fyllilega fær-
ir um að taka þátt í umræðum
á hvaða vettvangi sem væri.
Var það einróma álit þátttak-
enda að heillavænlegt væri
fyrir þjóðina að fjölga konum
í ábyrgðarstöðum.
• Reglugerð og
gjaldskrá Hita-
veitu Akureyrar
I Stjórnartíðinduin, B-38 nr.
393 og 394 þ. a. er birt gjald-
skrá og reglugerð Hitaveitu
Akureyrar staðfest af iðnað-
arráðuneytinu.
í ljós hefur komið að texti
gjaldskrár og reglugerðar er
ekki í samræmi við þann
texta, sem bæjarstjóm hefir
samþykkt og óskar því bæj-
arráð þess við iðnaðarráðu-
neytið að gjaldskrá og reglu-
gerð verði leiðréttar og birt
ar að nýju í Stjómartíðind-
um.
• Kosið í stjórn
Laxárvirkjunar
Bæjarráð leggur til, að bæj
arstjóm kjósi eftirtalda
menn sem aðalmenn og vara
menn í stjóm Laxórvirkjun-
ar til næstu 6 ára: — Aðal-
menn: - Valur Amþórsson,
formaður, Jón G. Sólnes,
varaformaður, Ingólfur Áma
son. — Varamenn: Stefán
Reykjalín, Gunnlaugur Fr.
Jóhannsson, Freyr Ófeigs
son. — Iðnaðarmálaráðherra
á eftir að tilnefna 2 aðal
menn og 2 til vara.
• . Framboðslistinn
í Reykjanes-
kjördæmi
Samþykktur var nýlega á
kjördæmisþingi Framsóknar
í Reykjaneskjördæmi, fram-
boðslistinn til næstu alþing-
iskosninga. Sæti fimm aðal-
manna skipa: Jón Skaftason,
alþingisniaður, Gunnar
Sveinsson, kaupfélagsstjóri,
Ragnheiður Sveinbjömsdótt-
ir, bæjarfulltrúi, Haukur Ní-
elsson, bóndi og Sigurður J.
Sigurðsson, skrifstofumaður.
Næst koma: Dóra Sigurðar-
dóttir, hjúkrunarkona, Ha!I-
dór Ingvason, kennari, Gylfi
Gunnlaugsson, gjaldkeri, Val
týr Guðjónsson, fyrrv. úti-
bússtj. og Hrafnkell Helga-
son, yfirlæknir.
• Prófkjör í
Vesturlands-
kjördæmi
Prófkjör, sem ekki er þó
bindandi, fór fram hjá fram-
sóknarmönnum í Vestur-
landskjördæmi og snerist
það um f jóra efstu á væntan.
legum framboðslista til al-
þingiskosninganna. Flest at-
kvæði fékk Halldór E. Sig
urðsson, landbúnaðarráð-
herra, 2139 atkvæði, næstur
varð Alexander Stefánsson,
sveitarstjóri, með 1731 at
kvæði, í þriðja sæti varð
Dagbjört Höskuldsdóttir með
1597 atkvæði, fjórði Steinþór
Þorsteinsson með 1392 atkv.,
fimmti Jón Sveinsson hlaut
1271 atkvæði og sjötti varð
Jón Einarsson með 951 at-
kvæði.
• Sex bæir fá
heitt vatn
Hitaveitustjóri lagði fram til
boð í fyrsta áfanga að lagn-
ingu dreifikerfis í Önguls-
staðahreppi sem opnuð voru
á skrifstofu hitaveitustjóra
7. nóvember s.l. Tilboðin ná
til eftirtalinna bæja og húsa:
Háagerðis, Hóls, Ytra-Lauga-
lands, Vökulands, Laugar-
holts, Syðra Laugalands,
húsmæðraskóla og sundlaug
ar.
Tilboð bárast frá eftirtöld
um aðilum sem hér segir:
Norðurverk h.f. kr. 4.995.175
Grétar og
Rúnar h.f. kr. 9.050.000
Miðfell h.f. kr. 7.383.000
Kostnaðaráætlun hönnun-
araðila er kr. 4.595.000.
Hitaveitunefnd samþykkir
að taka tilboði Norðurverks
h.f. og felur hitaveitustjóra
að ganga frá sanmingum við
Norðurverk h.f. um verkið.
• Athugasemd
sjónvarpsnotanda
Sjónvarpsnotandi óskar að
koma eftirfarandi athuga-
semd á framfæri:
t sjónvarpsþættinum Vöku
hinn 23. nóvember, sem á
ýmsan hátt var áhugaverður,
var mikið reykt. Sumir þeir
menn, sem þar vora staddir,
keðjureyktu og varð af reyk-
ský í sjónvarpssal. Þetta
finnst mér mjög óviðeigandi
og það mun fleirum finnast.
Það eru því vinsamleg til-
mæli, að athugað verði,
hvort stjórnendur eiga yfir-
leitt að leyfa reykingar í
beinni útsendingu sjónvarps-
þátta. Mér finnst það í meira
lagi ósmekklegt
Er þessari athugasemd hér
með komið á framfæri og
hún studd.
• Prófkjör Sjálf-
stæðisflokksins
Fyrir skömmu fór fram próf-
kjör sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Margt hefur um
það prófkjör verið rætt af and
stæðingunum, m. a. það, að
„stjórnarandstaðan í Sjálf-
stæðisflokknum' hafi sigrað og
er þá átt við það, að Albert
Guðmundsson, sem var með
ýmsa tilburði fyrir prófkjörið,
hafi farið með sigur af hólmi
og fengið fleiri atkvæði en for
sætisráðherrann. Næstir þess-
um tveimur kom Ragnhildur
Helgadóttir, þá og í f jórða sæti
varð Ellert B. Schram. Síðan
komu Gunnar Thoroddsen,
Friðrik Zophusson, Guðmund
ur H. Garðarsson og Pétur
Sigurðsson varð áttundi mað-
ur í röð þessa prófkjörs. Próf-
kjörið var bindandi.