Dagur - 21.06.1978, Page 6
| Akureyringar - Nærsveitar-
menn. Landsmót Hvíta-
sunnumanna, verður haldið á
Akureyri dagana 27. júní til 2.
júlí 1978 að báðum dögum
meðtöldum. Opinberar sam-
komur verða á hverju kvöldi
kl. 20.30 í stóru upphituðu
tjaldi, sefn reist verður við
Þórunnarstræti gegnt lög-
reglustöð bæjarins. Margir
ræðumenn, bæði innlendir og
erlendir. Mikill og fjölbreyttur
söngur. Góð tónlist. Allir
hjartanlega velkomnir.
! Vottar Jehóva. Samkoma verður
haldin sunnudaginn 25. júní
kl. 16 að Þingvallastræti 14.
Ræðuefni: Ert þú vís eða fávís
um nærveru Krists?
Fíladelfía Lundargötu 12. Al-
menn samkoma sunnudaginn
25. júní kl. 20.30. Gestir taka
þátt í samkomunni með söng
og tali. Allir hjartanlega vel-
komnir. Fíladelfía
Brúðkaup. Þann 17. júní voru
gefin saman í hjónaband í
Minjasafnskirkju brúðhjónin
ungfrú Sigrún Geirsdóttir og
Sigurður Ómar Jakobsson
verkamaður. Heimili þeirra er
Brekkugata 12, Akureyri. —
Þann 17. júní voru gefin sam-
an í hjónaband í Minjasafns-
kirkju brúðhjónin ungfrú
Þóra Ragnheiður Þórðardóttir
og Bergur Steingrímsson
verkfræðingur. Heimili þeirra
erað Beykilundi 16, Akureyri.
St. Georgsgildið Landsþingið j
verður sett við Hvammstanga |
laugardaginn 1. júlí kl. 5 e.h.
Þátttaka tilkynnist í símum
24225 og 22738 fyrir 25. júní.
Tökum bömin með. Stiómin.
□ RÚN 59786247 - Frl. H & V
Messað í Akureyrarkirkju
n.k.sunnudag kl. 11 f.h. Sálm-
ar: 36, 369, 182, 54, 32. - P.S.
Kristinboðshúsið Zíon: Bæjar-
búar takið sftir, laugardaginn
24. júní kl. 20,30 verður
kveðjusamkoma fyrir kristin-
'boðana Skúla Svavarsson og
fjölskyldu, sem er á förum til
Kenya. Komið nú og látið
blessunaróskir ykkar fylgja
þeim til hins erfiða starfs.
Tekið á móti gjöfum til krist-
inboðsins. Allir hjartanlega
velkomnir.
Ferðafélag Akureyrar. Um holt |
og heiðar. Stöng-Engidal-
ur-Svartarkot. Grænavatn^ á
laugardag 24. júní brottför kl.
18. Gönguferð um Hvanna-
dali og Héðinsfjörð 23.-25.
júní.
Kvenfélagskonur Baldursbrá.
Munið skemmtiferðina n.k.
laugardag 24. júní. Farið
verður kl. 1 e.h. frá veganesti
Glerárhverfi. Látið skrá ykkur
sem fyrst í símum 24488 og
22773 fyrir föstudag. Stjómin.
AUGLYSIÐ í DEGI
Skapti Áskelsson -
sjötugur
Skapti Áskelsson er sjötugur í
dag - þriðjudag. Hann stofnaði
ásamt fleirum Slippstöðina h/f
og var framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins um árabiL Skapti rek-
ur nú byggingarvöruverslun,
sem ber nafn hans. Blaðið
árnar Skapta heilla á þessum
tímamótum.
'ORÐDjÍQSm
'SlNII
Börnin og umhverfið
Sameinuðu þjóðirnar
helga hvert ár einhverju
sérstöku málefni og er
þess skemmst að minn-
ast að árið 1976 var
kvennaár. Árið 1978
verður helgað málefnum
barna og í því tilefni
hefur Kvenfélagasam-
band íslands sett upp
sýningu er ber nafnið
„Börnin og umhverfið.“
Sýning þessi verður í
anddyri Iðnskólans dag-
ana 22. og 23. júní kl. 14
til 22 báða dagana.
Félagsmálastofnun Ak-
ureyrar tekur þátt í sýn-
ingunni og sýnir
þroskaleikföng Gulla-
safnsins.
Auglýslng i Degi
BORGAR SIG
Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi
JÓN GUÐMUNDSSON,
Munkaþverárstræti 27, Akureyri,
er lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 15. júní s.l. verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 23. júní kl. 13.30
Fyrir hönd vandamanna,
Þórhildur Jónsdóttir, Ásgrímur Garibaldason.
KOSNINGASKRIFSTOFA i r.\
framsóknarflokksinsaH >1
HAFNARSTRÆTI 90 SÍMI 21180. 21510 OG 21512
verður framvegis opin frá 13-19 alla
virka daga. Kjörskrá liggur frammi og
er stuðningsfólk Framsóknarflokksins
hvatt til að líta inn og ganga úr skugga
um að það sé á kjörskrá. Kosninga-
sjóður hefur verið stofnaður og er þeim
sem áhuga hafa á að styrkja hann bént
á að hafa samband við skrifstofuna.
Frambjóðendur verða til viðtals á skrif-
stofunni alla virka daga milli 17 og 19.
Stuðningsfólk Framsóknarflokksins er
hvatt til að mæta á skrifstofunni og taka
virkan þátt í kosningarstarfinu.
Sjómenn
styðja Pétur
Pétur Björnsson.
Á sunnudaginn kemur göngum
við til tvísýnna kosninga. Þá velj-
um við okkur fulltrúa til setu á
Alþingi næsta kjörtímabil. 1 þessu
sambandi er margs að gæta. Við,
sjómenn erum örugglega lang-
stærsta stétt þjóðfélagsins, sem
eigum engan fulltrúa á Alþingi,
beint úr okkar röðum. Þetta tel ég
óviðunandi ástand fyrir sjávar-
plássin hér í Norðurlandskjör-
dæmi eystra.
Þess vegna vil ég vekja sérstaka
athyggli á, að fjórði maður á
B-listanum er Pétur Bjömsson,
stýrimaður á Raufarhöfn. Haldi
Framsóknarflokkurinn þrem
þingsætum hér í kjördæminu að
kosningum loknum, verður Pétur
Bjömsson, fyrsti varamaður
þriggja þingmanna, og mun þá
sitja á Alþingi meira eða minna.
Pétur hefur, auk þess að vera
stýrimaður, nýlokið námi í út-
gerðartækni. Hann er því mjög
kunnugur sjávarútvegsmálum í
heild. Það dylst engum, að á sviði
sjávarútvegs í þessu kjördæmi,
hafa orðið gífurlegar breytingar
nú síðustu ár. Bátaflotinn hefur
algerlega verið endumýjaður í
flestum verstöðvunum, fiskiðn-
aðurinn bættur, hafnarskilyrði
hafa batnað til muna og einnig
hafa fjórtán skuttogarar bæst við
flotann á síðustu sjö árum.
Framganga þessara mála hefur
að langmestu leyti hvílt á þing-
mönnum Framsóknarflokksins.
Ég tel því, að það sé mikilvægt
fyrir þingmenn Framsóknar-
flokksins, að fá til liðs við sig,
ungan mann, beint úr röðum sjó-
manna.
Ég skora á alla sjómenn í kjör-
dæminu, að kjósa B-listann á
sunnudaguinn kemur og stuðla
þannig að áframhaldandi upp-
byggingu sjávarútvegsins.
Aðalgeir Olgeirsson
sjómaður, Húsavík.
Framsóknarmenn
Á fimmtudagskvöldið klukkan 8.30 verður
fundur fulitrúaráðs Framsóknarféiags Akur-
eyrar, varamanna og nefnda í Hafnarstræti 90.
Þingmenn mæta og óskað er eftir sem flestum
öðrum áhugamönnum til skrafs og ráðagerða
vegna alþingiskosninganna.
6.DAGUR