Dagur - 05.12.1978, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXI. árg.
Akureyri, þriðjudagur 5. desember 1978
76. tölublað
msm
m
Tómas kemur
áfundá
Akureyri
Almennur félagsfundur
í Framsóknarfélagi Ak-
ureyrar verður að Hótel
KEA fimmtudaginn 7.
desember kl. 20.30.
Fundarefni: Tómas
Árnason, fjármálaráð-
herra, ræðir um efna-
hagsaðgerðir ríkisstjórn-
arinnar. Allt áhugafólk
velkomið.
■
*
Útimarkaður
á Akureyri
Fyrir skömmu sótti fyr-
irtækið Fell h.f. um
heimild til að starfrækja
útimarkað á Ráðhús-
torgi eða í hugsanlegri
göngugötu í Hafnar-
stræti. Eflaust hafa for-
ráðamenn fyrirtækisins
haft hinn nýja reykvíska
útimarkað í huga er þeir
sóttu um heimildina sem
bæjarráð hafnaði að
gefa að svo komnu máli.
ggju
■
■|
Eyfirskir
bændur
Athygli eyfirskra bænda
skal vakin á því að al-
mennur bændafundur
verður haldinn að Hótel
KEA á morgun og hefst
hann kl. 21.00. Fram-
sögumaður er Gunnar
Guðbjartsson, formaður .
Stéttasambands bænda,
en fundarefnið er fram-
leiðslu- og sölumál
mjólkurafurða.
Stalín á Akur-
eyri í janúar
Æfingar eru nú hafnar
hjá Leikfélagi Akureyr-
ar, á leikritinu Stalín er
ekki hér, eftir Véstein
Lúðvíksson. Leikstjóri er
Sigmundur Öm Arn-
grímsson. Að sögn Odds
Björnssonar, leikhúss-
stjóra verður leikritið
væntanlega frumsýnt
um miðjan janúar.
Heita vatnið
á Blönduósi
að þverra
Vatnið í borholunum á
Reykjum minnkar dag frá degi
Vatnið í borholunum á Reykjum
við Reykjabraut hefur minnkað
að miklum mun að undanförnu.
Sem dæmi má nefna að í sept-
ember í fyrra, þegar fyrstu húsin
á Blönduósi voru tengd, fengust
38 sekúndulítrar af 70 stiga
heitu vatni frá Reykjum. Vatns-
magnið var aftur mælt í ágúst
s. 1. sumar og kom þá í ljós að
það var 28 sekundulitrar og
þegar það var mælt fyrir nokkr-
um dögum var magnið aðeins 22
sekúndulítrar.
Til þess að fullnægja vatnsþörf
íbúa Blönduóss þarf hins vegar 28
lítra. Gerðar hafa verið ráðstafanir
til þess að fá bor að Reykjum í
þessum mánuði, en það verður vart
fyrr en í febrúar, sem hægt verður
að tengja meira vatn inn á hita-
veituna. Fram að þeim tíma verður
að kynda stærstu húsin í bænum
með olíu — á kostnað hitaveitunn-
ar.
„Nú bíðum við eftir bornum og
okkur hefur verið tjáð að við fáum
annan borinn sem er í Eyja-
firði. Við höfum leitað til Hitaveitu
Akureyrar um að fá Narfa og
væntanlega verður fundur á Akur-
eyri um málið í næstu viku“, sagði
Hilmar Kristjánsson, oddvili á
Blönduósi, er Dagur ræddi við
hann s. 1. föstudag. „Það má segja
að hér ríki hálfgert neyðarástand,
því þegar kalt er úti næst ekki eðli-
legur hiti í húsunum vegna vatns-
skorts“.
Á Reykjum eru fjórar borholur,
en hitaveitan á Blönduósi nýtir
tvær þeirra. Ætlunin er að bora
fimmtu holuna, einnig að Reykj-
um, og sagði Hilmar að búið væri
að höggbora niður á 40 metra dýpi.
Vegalengdin frá Reykjum til
Blönduóss er 14 km og er vatnið á
borstað um 70 stig, en 60 stig á
Blönduósi.
Hilmar sagði að forráðamenn
Hitaveitu Akureyrar hefðu tekið
vel í málaleytan Blöndósinga um
að fá borinn Narfa og einnig hefur
iðnaðarráðherra látið í ljós þá
skoðun að flýta beri framkvæmd-
um á Reykjum svo hitaveitan
Blönduósi fái nægilegt vatn. En
það er ljóst að þetta vandræða-
ástand helst fram á nýja árið þar
sem það tekur tíma að bora og
tengja — ef einhver árangur fæst af
frekari borunum.
UPPSETNING HEFST
í ÞESSARIVIKU
Efni í skíðalyftuna á Ólafsfirði
er nú komið til bæjarins og gert
er ráð fyrir að uppsetning á
möstrum geti hafist í þessari
viku. Lyftan er tæpir 500 metrar
á lengd og getur hún flutt 350
manns á hverri klukkustund.
Ólafsfirðingar vonast til að
lyftan verði komin í gang um
áramót. Lyftan kostaði rúmar
20 milljónir króna og er fyrir-
tækið fjármagnað úr ýmsum
áttum. íþróttafélagið Leiftur
hafði forgöngu um að lyftan
kæmi til Ólafsfjarðar, en bæj-
arbúar hafa sýnt mikinn áhuga
á fyrirtækinu og lagt fram um-
talsverðar fjárhæðir.
Siglósíld tekur
til starfa á ný
Um áramót verður hafin fram-
leiðsla á nýjum síldarréttum
Á miðvikudag í síðustu viku hóf Siglósíld starfsemi eftir að hafa
verið lokuð í einn mánuð vegna verkefnaskorts. Nú er verið að vinna
að niðurlagningu á síldarflökum sem fara eiga á markað í Finnlandi
og í Danmörku. Gera má ráð fyrir að verkefnið endist í 2 til 3 vikur.
Ekki er líklegt að verksmiðjan stöðvist i umtalsverðan tíma eftir að
þessu verkefni lýkur; m.a. í bígerð er að hefja framleiðslu á nýjum
vörutegundum og um mánaðamótin janúar/febrúar verður hafist
handa við niðurlagningu á gaffalbitum er fara til Sovétríkjanna.
„Þegar við lokuðum fóru ýmsir í lifur, en það gafst ekki vel. 1 lok
vinnu hjá frystihúsunum. Nokkrar
stúlkur fóru til Hornafjarðar og
Þorlákshafnar í síldarsöltun og þær
eru nú að tínast til baka,“ sagði
Egill Thorarensen, framkvæmda-
stjóri. „Ég veit ekki nákvæmlega
hve margir hafa orðið atvinnulaus-
ir vegna lokunnar Siglósíldar, en
get ímyndað mér að það sé um 40
til 50 manns."
mánaðarins eða í byrjun janúar
verður hafin framleiðsla á salötum
og síld í ýmsum sósum.
Þegar framleiðsla Siglósíldar er í
fullum gangi starfa þar um 90 til
100 manns.
Nú er lokið æfingum á Skugga-Sveini, en lcikararnir munu taka aftur
upp þráðinn síðar í ntánuðinum og frumsýning verður á annan í jólum.
Sýnt verður á hverjum degi milli jóla og nýárs. Það dylst víst engum að
myndin er af honum Skugga-Sveini sem leikinn er af Theodor Júlíus-
syni. Mynd: Ljósm.st. Páls.
Ekkert lát á lægðunum
Skíðalyftan í Ólafsfirði:
Egill sagði það ekki ýkja alvar-
legt fyrir sjálft fyrirtækið þótt
rekstur þess stöðvaðist í einn mán-
uð, því nauðsynlegt væri að yfirfara
vélbúnað og gera lagfæringar. Þar
að auki telst það vart til tíðinda að
Siglósíld verði að loka um þetta
leyti og þrátt fyrir rekstrarstöðvanir
hefur „þetta blessast undanfarin
ár.“
Forráðamenn fyrirtækisins hafa
fullan hug á að auka fjölbreytni
framleiðslunnar, en á því eru ýmsir
annmarkar, svo sem samningur við
Sovétríkin um kaup á gaffalbitum.
Rætt hefur verið um vinnslu á
rækju og reynt var að sjóða niður
Grímsey 4. desember. Hér
hefur nær ekkert verið farið á
sjó í þrjá mánuði vegna ógæfta,
sem elstu menn muna ekki meiri
og samfelldari. Stöku menn
reyna að fara á sjó og dorga þá
helst upp við land i skjóli við
eyna. Fiskur er nægur en þó
fæst ekki eins stór og góður
fiskur upp við land og þegar
lengra er hægt að sækja.
Áður en þessar ógæftir hófust
var búið að afla eins mikið eða
meira en allt árið í fyrra, en síðan
hefur lítið bæst við. Það eru meiri
ósköpin sem til eru af lægðunum og
virðist ekki lát á þeim ennþá.
Mest af saltfiskinum er farið frá
okkur en ögn er eftir af fiski, sem
fara á til Portúgals
Menn eru famir að undirbúa
jólin, sumir búnir að búa til laufa-
brauðið, sem hér er til hátíða-
brigðis á öllum heimilun, eins og
ætíð hefur verið. S.S.
Tvö met á Sigluf irði
Fyrir fimm dögum fór japanskt
flutningaskip frá Siglufirði
með 4.850 tonn af loðnumjöli.
Þetta er mesta magn loðnu-
mjöls sem hefur verið skipað
út í einu á Siglufirði og jafn-
framt er japanska flutninga-
skipið það stærsta sem hefur
lagst við bryggju á Siglufirði,
en það er 4250 tonn að stærð.
Lengd skipsins er 109 metrar.
Eins og að líkum lætur tekur
langan tima að skipa út þessu
magni, en skipið var 10 daga á
Siglufirði.