Dagur - 05.12.1978, Side 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): ERLINGUR DAVlÐSSON
Blaóamaóur: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Verðlag og
verðskyn
f síðasta mánuði birtist hér í blað-
inu verðsamanburður 22. vöru-
flokka fimm verslana á Akureyri.
Kom þar fram verulegur verðmun-
ur og reyndist Kaupfélag Eyfirð-
inga bjóða hagstæðast verð.
Könnun þessa gerðu tveir kenn-
arar frá Bifröst. Nú í síðustu viku
birti Vísir verðsamanburð um allt
land, samkvæmt könnun sömu
manna og voru verslanirnar 70,
sem könnunin náði til og í henni
var 71 vörutegund. Niðurstaðan
varð í stórum dráttum sú, að ódýr-
ara er að versla í samvinnuversl-
unum en einkaverslunum. í
skýrslu, sem Vísir birtir úr verð-
könnun þessari, kemur í Ijós að
Kjörmarkaður KEA á Akureyri
býður lægsta vöruverðið á landi
hér, 87,2 (vísit.) en Kjörbúð
Bjarna á Akureyri seldi vörurnar
dýrast 110,0 (vísit.).
Á þetta er minnt vegna verulegs
umtals um áður birta könnun í
Degi, sem aðeins náði til nokkurra
verslana á Akureyri. Á þetta er
einnig minnt vegna þess lævísa
áróðurs, sem hver etur eftir öðr-
um, að verðlag sé nánast hið
sama í öilum verslunum. En sá
áróður fær hljómgrunn vegna
þess hve verðskyn almennings er
orðið sijótt vegna sífeidra breyt-
inga á vöruverði og verðgildi pen-
inga. Og hið litla verðskyn, sem
eftir er, getur ekki verið sá hvati
hagkvæmrar samkeppnisverslun-
ar, sem „hið frjáisa framtak" vili
vera láta.
Verslunin er ákaflega þýðingar-
mikil atvinnugrein, ekkert síður nú
en fyrir nær einni öld, þegar fyrsta
kaupfélag landsins velti verslun-
aroki af þjóðinni. Síðan hefur
samvinnuverslunin í landinu og
önnur starfsemi hinna ýmsu sam-
vinnufélaga um land alit verið einn
áhrifaríkasti þátturinn í sókn
fólksins til bættra lífskjara. Og
það er ekki aðeins sanngjarnt
vöruverð, sem vert er að athuga,
heldur hin almenna samhjálp í því
að styðja einstaklingana til að efla
eigið framtak og njóta þess. Þótt
verðsamanburður almennings í
verslunum sé að nokkru liðin tíð
vegna verðbólgunnar, ætti hann
að vera í meiri metum til áhrifa á
hagkvæma verslunarhætti al-
mennt. Og niðurstaða verðkann-
ana, sem hér er minnst á og virðist
hafa komið ýmsum á óvart, ætti að
vera hvatning tii samvinnuhreyf-
ingarinnar um aukna fræðslu og
kynningu samvinnuhugsjónarinn-
ar í framkvæmd.
Á því eru töluverðar
líkur segir form. B.f.L.
Árið 1970 var stofnað Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra og
hefur sambandið haldið aðalfundi annaðhvert ár, nú síðast á
Akureyri i síðasta mánuði. Þingið sátu 20 fulltrúar, víðsvegar að
af landinu. öll stærstu bQstjórafélög landsins eru innan vébanda
landssambandsins og á síðustu fjórum árum hafa mörg félög bæst
við. T.d. slóust bflstjórar á Akureyri í hópinn árið 1976 og á |>essu
þingi fékk félagið á Sauðárkróki, ísafirði og Bifreiðastjórafélag
Egilsstaða inngöngu. Auk þess gengu í landssambandið bflstjórar
á ýmsum smærri stöðum, en víða hafa þeir ekki myndað sérstök
félög. Samtals eru ellefu bifreiðastjórafélög i bandalaginu með
u.þ.b. 1200 manns.
í lögum félagsins er ákvæði þess efnis að aðalfundinn skuli
halda í Reykjavík, en heimild er fyrir því að hafa hann annars
staðar og það var gert núna einkum i þeim tilgangi að fá fleiri
fulltrúa en þegar þingað er i Reykjavík. Þingið fjallaði um ýmis
mál, sem raunar snerta landsmenn alla, og til þess að gera al-
menningi grein fyrir störfum þess, samþykktum og ályktunum,
ræddi Dagur við formann landssambandsins, Úlf Markússon.
Leikfélag
Húsavíkur:
Frumsýning Leikfélags Húsavík-
ur á þessu leikriti í gærkveldi,
laugard. 25. nóv., var áhrifamikil
og glæsileg. Margt skapaði svo
gott; listræn leikstjórn, skemmti-
legt form uppsetningar, snjöll
leikmynd og góður leikur leikar-
anna.
Með helstu hlutverk fara: Her-
dís Birgisdóttir: Lily, rúmlega
fertug húsfreyja og ellefu barna
móðir. Jón Fr. Benónýsson:
Skinner, ungur, fátækur maður.
Karl Hjartarson: Michel, ungur
maður, höfðar til Gandhis í frið-
arhugsjón sinni; Ingimundur
Jónsson: dómari, leitar réttlæt-
ingar á fyrirfram ákveðinni nið-
urstöðu dómsins. Þórunn Páls-
dóttir: dr. Dodds, amerískur fé-
lagsfræðingur. Kristján Elis Jón-
asson: fer með tvö hlutverk,
söngvara og prests.
Alls eru hlutverkin a.m.k. 17.
Leikstjórinn hefur ekki hætt verki
sínu fyrr en allir leikararnir gátu
skilað hlutverkum sínum nokkuð
vel og sumir mjög vel. Elskulega
fallegur er samleikur þeirra, Her-
dísar Birgisdóttur og Jóns Fr.
Benónýssonar.
Leikritið hefur ekki áður verið
sýnt á Islandi og eftir því, sem ég
Neyðast leigubílstjór-
ar til að stofna sitt
eigið tryggingafélag?
Það er sjaldgæft að leigubilstjórar eigi sök á skemmdum af þessu tagi, euda eru flestir
í hæsta bónusflokki.
höfum okkar eigin stofnlánasjóð,
höfum við heimild til að láta pen-
ingana renna þangað. Það hefur
verið eitt stærsta vandamál bif-
reiðastjóra, að þeir hafa aldrei haft
öruggan aðgang að neinu fjár-
magni.
Nauðsynlegt
að breyta
opnunartímum
veitingahúsa
- Eitt af þeim vandamálum sem
við stríðum við í dag er það að við
erum of margir. Ökutækin eru illa
nýtt. Við höfum oft verið látnir líða
fyrir það, að á þeim tveim kvöldum
sem t.d. í Reykjavík um 8-10 þús-
und manns fer út að skemmta sé,
eru ekki til nægjanlega margir
leigubílar. En það sem er að er
einfaldlega það að skemmtanalög-
in eru hringlandi vitlaus. Það sjá
það allir þrátt fyrir að væru 2000
leigubílar í Reykjavík væri ekki
hægt að sinna þessu af neinu viti en
í dag eru 619 bílar í borginni. Að
okkar mati er það ansi hart að pína
leigubílstjóra að hafa fleiri leigu-
bílstjóra bara til að þjóna lögum
sem eiga ekki neina stoð í veru-
leikanum. Afleiðingin yrði einfald-
lega sú að leigubílstjórar myndu
lepja dauðann úr skel alla vikuna.
- Meðan skemmtistaðirnir eru
látnir loka á einni og sömu mínút-
unni, geta ekki örfáir bílar, ekið
þeim sem aka vilja. Með því að 500
íbúar séu um hvern bíl, eins og er á
Akureryi, kemur þetta sæmilega út.
En það sem þarf að gera er það að
breyta opnunartímun veitingahús-
anna, þannig að þeim væri t.d.
frjálst að hafa opið fram eftir nóttu.
Hér á árum áður þegar ólöglegu
næturklúbbarnir störfuðu í
Reykjavík, þekktust ekki þau
vandamál sem strítt er við í dag.
Fók kom út úr húsunum, þegar það
hafði fengið nóg og að sögn lög-
reglunnar heyrði það til undan-
tekninga ef hún var kölluð í
heimahús. Drykkjulæti á götum
hurfu nær algjörlega og það kom
allt annað andrúmsloft í næturlíf
Reykjavíkur.
- Þetta mál var rætt á þinginu, en
við höfum gert nokkuð í því áður,
t.d. ræddi stjórn félagsins á sínum
tíma við fulltrúa frá lögreglustjóra-
embættinu og dómsmálaráðuneyt-
inu. Báðir þessir aðilar voru reiðu-
búnir til að íhuga málið og stjórn
félags Gisti- og veitingahúsaeig-
enda er okkur samþykk. Þetta er
okkur mikið kappsmál og ég er
sannfærður um að lögin verða
endurskoðuð innan tíðar. Ef opn-
unartímanum verður breytt, fylgir
ýmislegt í kjölfarið, sem dæmi get
ég sagt þér að þegar næturklúbb-
arnir störfuðu var það viðburður ef
sást drukkinn maður úti á götu. Af
þessari ástæðu og ótal fleirum
verður að breyta lögunum sem
fyrst. á.þ.
SHfQÍðll 1*3* eftir Brian Friei. Þýðandi: Jakob S. Jónsson.
kAWioror Leikstjóri: María Kristjánsdóttir. Leikmynd
DOlflðloI 0g búningar: Messína Tómasdóttir.
Leigubifreiða-
stjórar eiga
aðild að fáum
umferðarslysum
Við gerum m.a. ályktanir um
skattamál, og þá staðreynd að
leigubílar greiða ennþá hærri gjöld
en aðrir bílar sem notaðir eru sem
atvinnutæki. Þá var deilt mjög á
þungaskatt, sem er óeðlilega hár á
diselbílum, miðað við það sem
gerist á Norðurlöndunum. I sam-
bandi við vegamál lýstum við yfir
þeim vilja okkar að þeir peningar
sem fara nú til greiðslu á þunga-
skatti gangi beint til vegabóta.
Tryggingarfélögin voru til um-
ræðu. A þinginu höfðum við nýjar
upplýsingar um tryggingarfélag
sem er verið að stofna í Svíþjóð og
gefur eigendum leigubíla kost á
mun hagkvæmari tryggingum en
þar hafa tíðkast. Einnig voru lagðar
fram skýrslur frá Umferðarráði.
Þær sanna að leigubílstjórar eiga
aðild að mjög fáum tjónum og
skýrslunum ber ekki saman við þau
plögg sem sum tryggingarfefögin
hafa látið frá sér fara. Einu trygg-
ingarfélögin hér á landi sem hafa
eitthvað látið frá sér fara eru Sam-
vinnutryggingar og Sjóvá og upp-
lýsingar þeirra og skýrslur Um-
ferðarráðs sýna Ijóslega að þeim
tjónum sem leigubílstjórar' eiga
einhvern þátt í fer stöðugt fækk-
andi. Þessi tvö félög hafa líka
ákveðið að veita okkur 15% afslátt
af iðgjöldum, bæði kaskótryggingu
og sjálfsábyrgð. Við höfum mun
hærri iðgjöld en einkabílar, en
þessu höfum við mótmælt þar sem
tölur sýna að leigubílstjórar eru svo
gott sem tjónlausir. Sem dæmi má
nefna að yfir 90% leigubílstjóra á
Akureyri eru í hæsta bónusflokki.
Á bifreiðastöð Bæjarleiða í Reikja-
vík hefur komið í ljós að yfir 80% af
bílum eru í hæsta bónusflokki.
Vilja stofna
eigið trygg-
ingarfélag
- Það er í athugun að við stofnum
okkar eigið tryggingarfélag. Slíkt
fyrirt&ki er þegar orðið að veru-
leika í Danmörku og eins og ég
sagði áðan er verið að vinna að
undirbúningi félags í Svíþjóð. Að
sjálfsögðu gerum við okkur ljósa þá
erfiðleika sem eru því samfara að
stofna fyrirtæki af þessu tagi hér á
landi. Fyrst viljum við láta reyna á
félögin sem eru starfandi. Við
gerðum ályktun sem send var
tryggingarmálaráðherra, þar sem
skorað var á hann að láta félögin
ekki ákveða gjöld okkar heldur
verði okkur gert að greiða sömu
gjöld og hinn almenni bíleigandi.
Ef af því getur orðið, viljum við það
frekar en að stofna okkar eigið fé-
lag, hitt er svo aftur annað mál að
það kann að reynast nauðsynlegt
að bílstjórar stofni eigið trygging-
arfélag og við munum kanna
möguleika á því. Eðlilega yrðum
við að leita til fleiri aðila s.s. vöru-
bílstjóra.
- Ökutaxtamálin voru mjög til
umræðu á þinginu. Það hefur gerst
tvisvar, þegar verðlagsyfirvöld hafa
afgreitt beiðni okkar um hækkun
að hún hefur komið mjög seint.
Þegar við ákveðum okkar kröfur er
skjóta á þá? Margþvælt efni, sem
sjónvarp og aðrir fjölmiðlar, mata
heimsbyggðina á dag hvern, ár
eftir ár. Höfundurinn lyftir sér
ekki í þær hæðir, að alls ekki megi
skjóta fólk. Hvort orkar þá ekki
tvímælis, að höfundurinn eigi
með þessu leikriti sínu erindi til
heims, sem er honum í aðalatrið-
um hjartanlega sammála.
„Hvenær á að skjóta og hvenær á
ekki að skjóta?, Það er spurning-
in.“ Vandamálin skulu leyst með
skytteríi. Bretar eru, sem sagt, enn
að reyna að leysa með manna-
skytteríi vanda, sem þeir sjálfir
sköpuðu með sama hætti fyrir
öldum á írlandi, og enn reyna Ir-
ar að leysa sitt breta-vandamál
með manndrápum. Það er meiri
óskapa trúin, sem fólk hefur á
manndrápum.
Islendingar og Danir leystu sín
sambúðarvandamál með því að
munnhöggvast. Þægileg er sú
hugsun, að munurinn á sjálf-
stæðisbaráttu aðferðum Islend-
inga og Ira liggi í því, að íslend-
ingar og Danir séu á hærra
menningarstigi en Irar og Bretar.
Ekki ættum við þó að státa um of,
Islendingar. I blöðum gefur að
(Framhald á bls. 3).
síðustu þrjú árin, því þeir eru t.d.
krafðir um skýrslu sem sýna tekjur,
en aðeins með því móti er hægt að
fá eftirgjöf á tollum. Þetta teljum
við vera mál skattayfirvalda.
- Það er líka staðreynd að meðal-
aldur leigubílstjóra í dag er um 55
ár. Þetta eru oft menn sem eru
orðnir gamlir og slitnir, en þeir
elstu eru komnir hátt á áttræðis-
aldur Ein ástæðan fyrir þessum háa
meðalaldri er sú að við höfum ekki
enn getað komið á fót sterkum líf-
eyrissjóði, því miður var það fellt á
sínum tíma að gera það að skyldu
að hver og einn borgaði í þennan
sjóð. Þetta hefur hins 'vegar breyst
og við ætlum að nota það fjármagn
sem kemur inn í sjóðinn til að koma
á fót stofnlánasjóði. Þegar sjóður-
inn er orðinn að veruleika geta
menn fengið úr honum það fjár-
magn sem þeir þurfa til að endur-
nýja bíla sína. Lífeyrissjóðum er
gert að kaupa verðtryggð skulda-
bréf fyrir 40% af tekjum, en ef við
best veit, varð það þýtt fyrir
Leikfélag Húsavíkur. Það er ný-
legt verk; í leikskrá segir, að það
hafi verið frumsýnt í Dublin
1973. Höfundur þess er fæddur,
1929 og er talinn vera meðal
þekktustu leikritahöfunda Ira
eftir síðari heimstyrjöld. Hann er
kennari, en hætti kennslu árið
1960 til að helga sig skáldskapn-
um. Vettvangur leikritsins, Heið-
ursborgara, er Londonderry á
Norður-Irlandi og viðfangsefni
þess eru manndráp þar í landi.
Kveikjan að leikritinu eru þeir
atburðir, er urðu sunnudag
nokkurn árið 1972, að breskir
hermenn skutu á írska katolikka á
útifundi, drápu 13 manns og
særðu 17 manns mjög alvarlega
Efnið er rislágt: hvenær á að
skjóta og hvenær á ekki að skjóta?
Voru aðfarir Breta óréttlætanleg-
ar, vegna þess, að þeir skutu á
óvopnað fólk, eða réttlætanlegar
vegna þess, að aðrir voru að
Mikill einhugur rfkti á fundinum og gerður var fjöldi mikilvægra samþykkta. Úlfur Markússon er f pontu. Mynd: á.þ
það gert á þann hátt að starfsmaður
Hagstofunnar gefur okkur upp
hækkun á viðkomandi liðum og við
tökum aðeins laun bifreiðastjóra
stærstu vörubíla, sem taka laun
samkvæmt taxta Verkamannasam-
bands Islands. I tvö síðustu skipti
höfum við beðið í rúma tvo mán-
uði, eftir að aðrir hafa fengið
hækkanir. Launamenn hækkuðu 1.
september s.l. og síðan hafa verið
tvær stórfelldar bensínhækkanir og
liggur sú þriðja fyrir. Leigubifreið-
arstjórar verða að þola þetta bóta-
laust og borga hækkanirnar úr eig-
in vasa. Hækkanirnar undanfarið
þýða það í raun og veru að leigu-
bifreiðastjórar hafa verið með
beina 18% launahækkun.
Við viljum að sett verði á fót
nefnd með viðkomandi til að finna
leið til hækkunar á töxtum þegar
launahækkanir verða í landinu.
Sömuleiðis ef verða stórfelldar
hækkanir t.d. á bensíni. Þetta get-
um við núna, en var ekki hægt hér
áður þegar erfitt var að breyta
mælunum. Við teljum líka betra,
bæði fyrir viðskiptavini og aðra, að
leigubílstjórar fái sjálfir oftar að
hækka taxtann og þá minna í hvert
skipti.
Taliö frá vinstrí: Jón Fr. Benónýsson — Skinner, Kari Hjartarson — Michel,
Herdis Birgisdóttir — Lily.
Meðalaldur
bílstjóra
er 55 ár
- Bifreiðastjórum hefur verið gert
erfitt fyrir að endurnýja bíla sína
NÝJAR BÆKUR
Um margt
að spjalla
Um margt að spjalla flytur 15
viðtalsþætti Valgeirs Sigurðsson-
ar blaðamanns og skiptist í þrjá
flokka. Viðmælendur hans eru:
Anna Sigurðardóttir, Auður
Eiríksdóttir, Auður Jónasdóttir,
Broddi Jóhannesson, Einar
Kristjánsson, Eysteinn Jónsson,
Guðrún Ásmundsdóttir, Hannes
Pétursson, Indriði G. Þorsteins-
son, Jakob Benediktsson, Krist-
ján frá Djúpalæk, Rósberg G.
Snædal, Sigurður Kr. Árnason ,
Stefán Jóhannsson og Þorkell
Bjarnason. Bók þessi er 190 blað-
síður. Utgefandi er Bókaforlag
Odds Björnssonar.
*
0Nr GKAlOSACU EFtlfl HöfUNO £~y • jr
fimnxfirnSSmetti SlUtíCY
Sheldon
Andlit í
speglinum
Andlit í speglinum er skáldsaga
eftir Sidney Sheldon, höfund
bókarinnar, Framyfir miðnætti.
Þýðinguna annaðist Hersteinn
Pálsson. Saga þessi fjallar um
Toby Temple, „skemmtilegasta,
auðugasta og dáðasta gamanleik-
ara sem um getur.“ Toby kynnist
ungri leikkonu og ástin blossar
upp, en leikkonan býr yfir ægi-
legu leyndarmáli. Útgefandi er
Bókaforlag Odds Björnssonar.
*
Þorraspaug og
góugleði
Þorraspaug og góugleði eru 14
skemmtiþættir eftir Einar Krist-
jánsson og heita þeir: Rekkjan,
Hrakfallasónatan, Á grænni
grein, Ég átti mér fermingar-
bróður, Ævintýri næturvarðar,
Sundkappinn, Hve glöð er vor
æska, Bréfið til Bulganin, Ástir
sjúkraliðans og háls-nef og
eyrnalæknis, Víxill, Bit, Símtal úr
höfuðborginni, Minni karla og
minni kvenna. Og Einari
Kristjánssyni bregst ekki fyndnin.
45 viötalsþættir
Ljáóu mér vaengi
Ljáðu mér
vængi
Bók með þessu nafni, eftir Ár-
mann Kr. Einarsson er hér í nýrri
útgáfu, aukinni og endurbættri og
er 11. bindi heildarútgáfunnar.
Þessi bók er saga handa börnum
og unglingum og skiptist í átta
kafla. Teikningar eru eftir Hall-
dór Pétursson. Útgefandi er
Bókaforlag Odds Björnssonar.
*
Undir berum
himni
Undir berum himni er Ijóðabók
Hólmfríðar Jónasdóttur á Sauð-
árkróki. Bókin flytur yfir áttatíu
Ijóð og stökur og er á annað
hundrað blaðsíður. Þessi skag-
firska skáldkona er héraðskunn
virðingarkona, og einnig kunn
fyrir vísna-og Ijóðagerð, en nú
komin á efri ár. Útgefandi er
Bókaforlag Odds Björnssonar.
*
Blaðinu hafa borist tvær bækur
kunnra höfunda á Akureyri, þeirra
Ólafs Jónssonar og Guðmundar
Frímann, en Bókaútgáfan ögur
gefur þær út.
Þannig er ég,
viljirðu vita það
Svo heitir bók Guðmundar Frí-
manns og eru þetta minninga-
þættir um lifandi menn og dauða,
16 að tölu, og meðal þeirra ný
skáldsaga. Bókin er yfir 300
blaðsíður. Um hana segir m.a. á
bókarkápu:
„Það er altíða viðburður, rétt-
ara þó frá sagt stórtíðindi, þegar
eitt af skáldum okkar íslendinga
sendir frá sér nýja bók. En hér
verða einmitt sagðar fréttir frá
slíkurrt atburði. Innan þessara
spjalda er ný saga eftir Guðmund
Frímann. Um skáldskap Guð-
mundar Frímanns hefur margt
verið ritað og svo segir þar á ein-
um stað:“ Guðmundur Frímann
er mikill elskhugi íslenskrar nátt-
úru og íslenskrar tungu“, og á
öðrum stað segir: „Hann er fiðl-
arinn meðal íslenskra skálda, sem
nær hinum ótrúlegustu veðra-
brigðum í strengleik sinn eins og
títt er um þá sem skynja sorg og
gleði lífsins með meiri næmleika
Oudmundur
írímann
þannig er ég
viljirdu vita þad
en aðrir". Og síðar segir: „Þannig
er ég, er saga full af gáska og fjöri.
Þar segir frá m.a. leik og lærdómi,
frá öskutrogsbrúðkaupi og að-
skiljanlegum náðargáfum, frá
kynjakvistum og kvæðamönnum
að ógleymdum stórhöndlurum
dalsins“.
Bókin er prentuð í Prentverki
Odds Björnssonar, Akureyri. Út-
gefandi er Bókaútgáfan Ögur.
¥
Úlarur Jónsson
Stripi í Paradís
Strípl
í Paradís
Strípl í Paradís heitir bók Ólafs
Jónssonar og hefur að geyma 10
smásögur, sem heita: Hún hét
Stefanía eða .., Koppur kerling-
ar, Loðmundur, Drykkjarkann-
an, Á rangri hillu, Þegar dyrnar
lokuðust, Vinnuhjúaverðlaun,
Harðir kostir, Skíðaslóð og Strípl
í Paradís. Á bókarkápu segir út-
gefandinn m.a.:
„Það hefur lengi verið á vitorði
æði margra að Ólafur Jónsson
ætti í fórum sínum handrit af
smellnum sögum. Þetta vissu þeir
sem heyrt höfðu Ólaf lesa eina og
eina þeirra upp á mannamótum,
kannski á slægjuhátíð í sveit,
kannski á austfirðingamóti í
norðlenskum bæ. Og hver sá, sem
hlustað hafði á þessar sögur
sannfærðist um það, að náttúru-
skoðarinn, tilraunamaðurinn og
fræðagrúskarinn, Ólafur Jónsson,
átti fleira á sinni könnu en
Ódáðahraun, belgjurtir og berg-
hlaup. Úr handraða hans komu
þær sögur, sem nú hafa verið
færðar innan þessara spjalda . “
Bókin Strípl í Paradís er 175
blaðsíður, prentuð í Prentsmiðju
Björns Jónssonar, Akureyri. Út-
gefandi er Bókaútgáfan ögur.
4.DAGUR
DAGUR.5