Dagur - 30.01.1979, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXII. árg.
Akureyri, þriðjudagur 30. janúar 1979
5. töiublað
Skilið hækjun-
um
Fólk, sem hefur fengið
lánaðar hækjur hjá
Endurhæfingarstöð
Sjálfsbjargar á Akureyri
og ekki hefur skilað
þeim, er vinsamlega
beðið að skila þeim sem
fyrst.
Vegna slysa og sjúk-
dóma er mikil þörf á
þessum nauðsynlegu
tækjum. Skilið vinsam-
lega hækjunum. Sjúkt og
slasað fólk bíður.
★ ★
Skákkvöld fyrir
konur og ungl-
inga
Skákfélag Akureyrar
tekur nú upp sérstök
skákkvöld fyrir konur og
unglinga og hefst þessi
starfsemi fimmtudag
febr. kl. 20 í Félagsborg.
Þar verður um að ræða
æfingar og kennslu og
e. t. v. fleira, svo sem
fjöltefli. Er sérstök áh-
erzla lögð á að fá konur
til þátttöku, en vitað er
að hér finnast ágætar
skákkonur, þó að þær
hafi ekki tekið þátt í
skákmótum.
...
.
★ ★
Skattframtalið
Dagur vill minna fram-
teljendur á að skatt-
framtal fyrir árið 1979
þarf að hafa borist
skattayfirvöldum fyrir 1.
febrúar. Atvinnurek-
endur, og þeir sem í
sveitum búa, hafa þó
skilafrest til febrúarloka.
Viðurlög: 1% á hreinar
tekjur og eign fyrir hvern
dag sem skil framtals
dragast framyfir lögboð-
inn eða umsaminn frest,
þó að hámarki 15% til
25%
Það verður séð til þess
að framteljendur geti
komið framtölum sínum
í póstkassa Skattstof-
unnar í Norðurlands-
umdæmi eystra, Hafn-
arstræti 95 (inngangur
hjá StjörnuApóteki) til
miðnættis annað kvöld.
Hólmur á strandstað. Skipið hefur lagst á
þvi. Myndina tók Ármann Þórðarson i síðustu viku.
og að sögn þeirra sem hafa farið um borð er lítið sem ekkert verðmætt f
Fara í mál ef
nauðsyn krefur
Til að losna við færeyska flutningaskipið Hólm af strandstað
Ólafsfirðingar eru nú orðnir
langþreyttir á færeyska flutn-
ingaskipinu Hólnii, sem strand-
aði í Ólafsfirði fyrir tíu mánuð-
um, og þeir vilja losna við skipið
hið fyrsta. Að sögn Péturs M.
Jónssonar, bæjarstjóra, telja
forráðamenn bæjarins ekki ann-
að fært eins og sakir standa en
að fara í mál við hlutaðeigandi
aðila, ef nauðsyn krefur.
Eins og kunnugt er keypti inn-
lendur aðili skipið og þegar kaupin
fóru fram, tók bæjarstjórn Ólafs-
fjarðar þá afstöðu að þrátt fyrir
söluna væri upprunalegi eigandi og
tryggingarfélag hans ábyrgir gagn-
vart bæjarfélaginu.
Flutningaskipið Hólmur var
með saltfarm er það strandaði fyrir
botni Ólafsfjarðar þann 29. mars á
sl. ári. Skipið skemmdist lítið sem
ekki neitt, en það þótti ekki svara
kostnaði að ná því út enda er skipið
55 ára gamalt.
Hvort Ólafsfjarðarbær neyðist til
að fara í málarekstur ætti að skýrast
innan tíðar. Heimamenn hafa full-
an hug á því að losna við skipið úr
fjörunni því lítil bæjarprýði er af
skrokknum.
Nýr framkvæmda
stjóri SH:
Strangari
kröfur um
klæðaburð
gesta
„Ég hef hugsað mér að reyna að
breyta andrúmsioftinu innan
veggja Sjálfstæðishússins og í
því sambandi má geta þess að ég
mun gera strangar kröfur um
klæðaburð gesta“, sagði Svanur
Ágústsson, sem tekur við fram-
kvæmdastjórastarfi við Sjálf-
stæðishúsið á Akureyri þann 1.
febrúar. Svanur hefur verið
framkvæmdastjóri Þjóðieik-
hússkjallarans frá 1969.
Svanur sagði að hann hefði á
þessu stigi ekki ákveðið neinar
sérstakar breytingar á Sjálf-
stæðishúsinu aðrar en þær að
gera staðinn að vistlegum
skemmtistað, þar sem vel klætt
fólk gæti gert sér dagamun í
góðu andrúmslofti.
Tvö blöð
í viku
Framvegis mun Dagur koma út
tvisvar í viku. Auglýsendur eru í
því sambandi minntir á
eftirfarandi: Auglýsingar í
þriðjudagsblað þurfa að hafa
borist afgreiðslu blaðsins fyrir
kl. 19 á mánudag. Auglýsingar í
fimmtudagsblað þurfa að hafa
borist fyrir kl. 19 á miðvikudag.
Nyjar tillögur um skipan
framhaldsskólans
Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar fyrra þriðjudag voru lagðar fram
fyrstu tillögur framhaldsskóianefndar um námsleiðir á framhalds-
skólastigi, samstarf skóla og rekstur sérskóla á Akureyri. Var til-
lögunum vísað til bæjarráðs, sem leita skal umsagnar hlutaðeigandi
aðilja. Framhaldsskólanefnd Akureyrar gerir að tillögu sinfii að
tveir meginskólar verði á framhaldsskólastigi á Akureyri og
áfangakerfi verði tekið upp við skólana báða.
Á fundi 11. júlí í fyrra kaus
bæjarstjórn fimm manna nefnd að
tillögu bæjarráðs til að fjalla um
skipan náms á framhaldsskóla- og
háskólastigi á Akureyri. 1 nefndinni
eiga sæti Ingólfur Jónsson, Kristín
Á. Ólafsdóttir, Margrét Rögnvald-
sdóttir, Sigurður J. Sigurðsson og
Tryggvi Gíslason, sem er formaður
nefndarinnar.
Tillögur framhaldsskólanefndar
byggjast á námsskipan þeirri sem er
að finna í Frumvarpi til laga um
framhaldsskóla sem kemur til af-
greiðslu alþingis á næstu vikum. í
frumvarpinu er ráð fyrir því gert að
Akureyri verði miðstöð framhalds-
náms á Norðurlandi auk þess sem
nemendur af Austurlandi sæki
þangað nám sem þeir fá ekki lokið
heimafyrir.
í hinu nýja frumvarpi, sem
væntanlega verður að lögum fyrir
vorið, er öllu námi á framhalds-
skólastigi skipað á átta svið: al-
mennt bóknámssvið, búfrœðisvið,
heilbrigðissvið, hússtjórnarsvið,
listasvið, tœknisvið, eppeldissvið og
viðskiptasvið. Á hverju sviði eru
þrjár til fimm misunandi náms-
brautir, sem miðast við markmið
það sem hver og einn nemandi
stefnir að. Eru námsbrautir um 40
í fumvarpinu er ákvæði um full-
orðinsfræðslu þar sem segir að
stefnt skuli að því að framhalds-
skólunum verði gert kleift að sinna
menntun fullorðinna á þeim náms-
brautum sem reglulegt starf skól-
anna tekur til, og er þetta eitt af
nýmælum þessarar námsskipunar.
Meginmarkmið frumvarpsins er að
öllum, sem lokið hafa grunnskóla-
námi, skuli standa til boða eins til
fjögurra ára nám ogframhaldsskól-
inn skuli skipðulagður sem ein sam-
rœmd heild. Er þetta án efa mikil
framför frá því sem nú er, þegar um
tuttugu mismunandi lög gilda um
nám á framhaldsskólastigi.
1 greinargerð framhaldsskóla-
nefndar Akureyrar með tillögun-
um, sem að framan greinir, er sagt
frá námsleiðum á Akureyri nú.
Auk þess eru raktar þær leiðir sem
(Framhald á bls. 2).
I sfðustu viku kom Tómas Ámason, fjármálaráðherra, á fund
hjá Framsóknarfélagi Akureyrar og gerði ráðherra grein fyrir
stöðu efnahagsmála, auk þess sem hann ræddi stjórnarsam-
starfið. Að lokinni framsöguræðu Tómasar Árnasonar og
ávörpum þingmannanna Ingvars Gfslasonar og Stefáns Val-
geirssonar, hófust almennar umræður. í opnu blaðsins f dag er
viðtal við fjármálaráðherrann. Myndimar tók á.þ. af nokkrom
fundargesta.