Dagur - 30.01.1979, Síða 8
DAGUR
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Bannar Sveinafélagið
yfirvinnu?
Akveðið á fundi í kvöld hvort
yfirvinna verði bönnuð í sumar
í kvöld fjallar fundur í Sveinafélagi járniðnaðarmanna á Akur-
eyri um hvort æskilegt sé að banna yfirvinnu á félagssvæðinu
næsta sumar. Síðastliðið sumar beindi stjóm félagsins þeim til-
mælum til félagsmanna sinna að þeir ynnu ekki yfirvinnu í tvo
mánuði og reynslan sem fékkst af þeirri tilhögun var mjög góð.
Svo virðist sem viðhorf manna
til hins langa vinnudags, sem
lengi hefur tíðkast hér á Jandi, sé
að breytast. I því sambandi má
benda á tilmæli verkalýðsfélag-
anna um bann á yfirvinnu í
frystihúsunum sl. sumar.
Ef fundurinn í kvöld sam-
þykkir að banna yfirvinnu hjá fé-
lögum í Sveinafélaginu verður
stórt skref stigið í þá átt að koma
vinnudeginum í það horf, sem
tíðkast víðast hvar erlendis. Af-
köst manna eru talin síst minni þó
einungis séu unnar átta stundir á
dag og það hefur sýnt sig þegar
yfirvinna hefur verið bönnuð.
Lengd vinnutímans hefur verið
til umræðu um langt skeið hjá
ráðamönnum þjóðarinnar og má
minna á tillögur Framsóknar-
flokksins í þessu efni.
Akureyrardeild Neyt-
endasamtakanna
Forráðamenn Neytendasamtak-
anna vinna nú að því að stofna
deild frá samtökunum á Akur-
eyri og að sögn Reynis Ár-
mannssonar, formanns samtak-
Tæp þrjú þúsund
tonn á land
Á síðasta ári tók frystihús Kald-
baks á Grenivík á móti 2844
tonnum af fiski. Framleiðsla
frystihússins var 39 þúsund
kassar af freðfiski, 663,5 tonn af
saltfiski og 27 tonn skreið.
Fyrir nokkru fékk frystihús-
ið sina stærstu útskipun, sem var
4387 kassar í Hofsjökul. En
fiskinn þurfti að flytja til Akur-
eyrar vegna ófuilkominnar
hafnaraðstöðu hér, sem vonir
standa til að bætt verði úr á
þessu ári. P.A.
anna, verður stofnfundurinn
væntanlega í næsta mánuði. Það
er tiltölulega stutt síðan sam-
tökin hófu að stofna deildir utan
Reykjavíkursvæðisins, en þær
fyrstu gefa góðar vonir. Sem
dæmi má nefna að þegar deild
var stofnuð í Borgarnesi voru
fimm félagar í henni en eru í dag
alls 120.
Reynir sagði í samtali við Dag að
Neytendasamtökin leggðu mikla
áherslu á að styrkja stöðu sína í
strjálbýlinu, auk þess sem samtökin
hefðu á prjónunum fræðslu um
neytendamál í grunnskólunum.
„Það stendur samtökunum nokkuð
fyrir þrifum að þau verða að fara
eftir kauplögum frá 1922 og taka
þau lög miklu frekar inið af rétti
seljandans heldur en rétti neytend-
ans,“ sagði Reynir.
Akureyrardeildin mun t.a.m.
leggja áherslu á verðkannanir sem
birtar verða almenningi og taka til
umfjöllunar deilumál kaupenda og
seljanda, eftir að sáttaumleitanir
hafa verið reyndar.
„Ég er ákaflega ánægður með
það að Neytendasamtökin ætla að
stofna útibú hér á Akureyri“, sagði
Níels Halldórsson, fulltrúi Verð-
lagsstjóra á Akureyri. „Samkvæmt
upplýsingum frá Reykjavík eru fé-
lagar í Neytendasamtökunum á
Akureyri um 70 til 80 talsins, en
virkir stofnfélagar verða sjálfsagt
eitthvað færri“.
# Hlutverk
biaðanna er
margþætt
Bæjarblöðin á Akureyri, svo
og önnur vikublöð og dag-
blöð hafa miklu hlutverki að
gegna og veita ómælda
þjónustu í félagsiegum og
öðrum mannlegum sam-
skiptum. Þetta mun viður-
kennt af flestum eða öllum.
Blöðin eru opinn vettvangur
fólks til umræðna um áhuga-
málin, vettvangur til sóknar
og varnar og hugsjóna- og
framfarabaráttu.
tekjur
Blöðin á Akureyri þurfa tekjur
til útgáfunnar. Þær eru aug-
lýsingatekjur og áskriftatekj-
ur og hrökkva naumast til að
jafna útgáfukostnaðinn. Hér í
bæ hafa orðið til smáblöð,
einskonar uppvakningar,
sem nefna sig „Dagskrá“ og
„Á skjánum" og birta þau
sjónvarps- og útvarpsdag-
skrá en einnig ýmiskonar
auglýslngar, sem þau ná (og
fá greitt fyrir. Þessar auglýs-
ingar eru fengnar f sam-
keppni við bæjarblöðin og
skerða hag þeirra. Þetta mál
þarf athugunar við.
$ Skörin færist
upp í bekkinn
Bæjarblöðin hafa aðstöðu til
að gegna margvfslegum
þjónustustörfum ffyrlr al-
menning og nota þá aðstöðu,
hvert eftir sinni getu. Þau
birta fréttir, tflkynningar,
ályktanir o. s. fry., en „upp-
vakningarnir" birta aðeins
auglýsingarnar, hafa ekki
áhuga á öðru en þvi sem gef-
ur tekjur. Þegar fyrirtækí Ak-
ureyrarkaupstaðar eru farin
að birta auglýsingar í „upp-
vakningunum" en viija svo
láta hin hefðbundnu vikublöð
birta fyrir sig fréttatilkynning-
arnar, er skörin farin að fær-
ast upp í bekkinn.
§ Auglýsingar
og almenn
þjónusta
Til þess verður að ætiast af
blöðum, að þau veiti þá þjön-
ustu er þau mega. Blöðin
ætlast hins vegar til þess að
þau njóti auglýsingatekna til
þess að geta lifað og starfað.
Þetta þarf bæjarstjórn og
bæjarstofnanir að hafa í
huga. Þetta eiga félög og
einstaklingar einnig að hafa f
huga, f sambandi við auglýs-
ingar og almenna fréttaþjón-
ustu.
# Akureyrar-
deild Neyt-
endasamtak-
anna
Nu stendur til að Neytenda-
samtökín stofni deild á Akur-
eyri. Ef vel gengur hér og
annarsstaðar má gera ráð
fyrir að ráðamenn þjóðarinn-
ar aðstóði samtökín enn
frekar í þeirri viðleitnl að rétta
hlut neytendans enda full
þjörf á. Oft á tíðum getur
neytandinn átt erfltt með að
ná sínum rétti óstuddur og
hér skal sagt frá örlitlu dæmi.
Hjón í Húnavatnssýslu festu
kaup á prjónavél í verslun í
Reykjavík. Engar leiðbein-
ingar fylgdu vélinni og fóru_
hjónin tvisvar til Reykjavíkur
en fengu ekki úrlausn. Það
var ekki fyrr en Neytenda-
samtökin tóku málið i sínar
hendur að seljandinn lét
þýða leiðbeiningabækling,
en það hafði hann ætlað að
spara sér, þrátt fyrir að bækl-
ingsins væri getið í auglýs-
ingu um vélina.
Sjúkrahúsi Húsavíkur gefið
fullkomið tæki til magaskoðunar
Ólafsfjörður:
Ófremdarástand
í læknamálum
„Ekki hefur enn fundist varanleg lausn á læknavandamáli Ólafs-
firðinga. Nú starfar hér Hilmir Jóhannsson læknir og verður hann
á Ólafsfirði fram í febrúar, en hvað gerist þá er með öllu óvíst,“
sagði Pétur Már Jónsson, bæjarstjóri í Ólafsfirði í samtali við Dag.
„Það þarf ekki að orðlengja það frekar að brýnt er að úrlausn fáist.“
Læknar frá Akureyri önnuðust betri þegar byggingu heilsugæslu-
heilbrigðismál Ólafsfirðinga fram- stöðvarinnar er lokið, en gert er ráð
an af vetri, og sagði Pétur að akur- fyrir að elliheimilið og heilsu-
eyrsku læknamir ættu miklar gæslustöðin verði tilbúin undir tré-
þakkir skildar. Aðstaða fyrir lækna verk í sumar.
er ágæt á Ólafsfirði, og verður enn
Krabbameinsfélag Suður-Þing-
eyinga afhenti sjúkrahúsinu ný-
lega að gjöf, mjög fullkomið
tæki til magaskoðunar,
(Gastrointestinal Fiberskop),
sem er að verðmæti kr. 3,2 mill-
jónir án innflutningsgjalda og
söluskatts, en fjármálaráðu-
neytið gaf þessi gjöld eftir.
Krabbameinsfélagið stóð fyrir
söfnun innan héraðsins til þessara
kaupa. öll kvenfélög á svæðinu
styrktu Krabbameinsfélagið til
kaupanna svo og Lionskl. Húsa-
víkur og Sig. Lúther, Kiwaniskl.
Herðubreið og Skjálfandi, Rot-
arikl. Húsavíkur, Kaupfélag Þing-
eyinga og Búnaðarsamband
S-Þingeyinga.
Krabbameinsfélag S-Þingeyinga
var stofnað að Breiðumýri í
Reykjadal 29. ágúst 1968.
Formaður félagsins frá upphafi
hefur verið Kolbrún Bjarnadóttir,
Yztafelli.
Sjúkrahúsið þakkar af alhug
þessa höfðinglegu gjöf. Krabba-
meinsfélag Suður-Þingeyinga hef-
ur á undanförnum árum fært
sjúkrahúsinu margar stórgjafir.
Á myndinni eru (f.v.): Þormóöur Jónsson, formaöur sjúkrahússtjórnar, Guómundur
Óskarsson, læknir, Ólafur Erlendsson, framkv.stj., Ingimar Hjálmarsson, læknir,
Gfsli G. Auðunsson, læknir, Jón Aðalsteinsson, yfiriæknir. f stjórn Krabbameinsfél.
Suöur-Þingeyinga: Sigrfður Brna Ólafsdóttir, Kolbrún Bjamadóttir og Marfa K.
Helgadóttir.