Dagur - 08.11.1979, Síða 1
DAGUR
LXII. árg. Akureyri, fimmtudagur 8. nóvember 1979 75. tölublað
Hús á hóflegu verði
NÚ ER unnið að smíði tveggja íbúðarhúsa á Stóru-Tjörnum í
Ljósavatnsskarði. Vonast er til að þau verði bæði fokheld á þessu
ári. Að sögn Bjama Péturssonar, fréttaritara Dags, eru húsin byggð
sem leigu- og söluíbúðir. Búið er að selja annað húsið.
Bjarni sagði að byggingar- húsanna samkvæmt byggingarvísi-
kostnaður húsanna væri mjög hóf-
legur, en áætlað er að hver íbúð
kosti um 22,5 milljónir fullfrá-
gengin. Að vísu ber að hafa það í
huga að eftir er að endurskoða verð
tölu og hækka þau eflaust við það
Kennarar eru að byggja bílskúra
á Stóru-Tjörnum og er mannlíf sagt
þar með ágætum.
Fallbyssuskot
FYRIR frumsýningu á leikritinu
Fyrsta öngstræti til hægri i síð-
ustu viku var hleypt af þremur
fallbyssuskotum. Þarna voru að
verki Jón Amþórsson fram-
kvæmdastjóri og Steindór Stein-
dórsson jámsmiður og voru þeir
að endurvekja gamlan og góðan
sið, en fallbyssan var m.a. notuð
til að boða bæjarbúa tii sýninga á
Skugga-Sveini fyrir röskum 100
árum.
Fallbyssan var eign
Höepfnersverslunar og var skotið
af henni er fagnað var skipakom-
um og einnig í kveðjuskyni við
brottför. Til er og frásögn um það
að byssan hafi verið notuð til að
gefa til kynna að síld hafi veiðst á
Pollinum og komu þá bændur úr
nágrannasveitunum til síldar-
kaupa.
Ekkert er vitað um hver urðu
örlög þessarar byssu, en fyrir
nokkrum árum fannst í rusli hjá
Vélsmiðju Steindórs hlaup lítillar
fallbyssu og kom útlitið vel him
og saman við lýsingar manna f
byssu Höepfnersverslunar. Stein-
dór hafði veg og vanda af endur-
nýjun byssunnar, en Jón hafði
mikinn áhuga á að endurvekja
þann sið að boða til leiksýninga
með fallbyssuskoti.
Jón og Steindór ern hér að gera fallbyssuna klára fyrir næsta skot. í hleðsluna
voru notuð málgögn fhaldsins og eins og að likum lætur voru skotin máttlaus.
Mynd: á.þ.
TALSVERT bar á þvf í haust,
að byggingarefni hyrfi af bygg-
ingarstöðum í bænum og skipti
tjón það, sem kært var til lög-
reglunnar hundruðum þúsunda
á einstökum stöðum þar sem
mest var ef ekki milljónum.
Nú, um hálfs mánaðar skeið,
hafa þjófnaðir af þessu tagi ekki
verið kærðir, enda lögreglan
búin að upplýsa nokkra
þjófnaðina og hafa hendur í
hári þeirra manna, er þar áttu
hlut að máli. Ekki er ástæða til
að ætla, að um samtök séu að
ræða.
Þegar þjófnaðarmál eru á
döfinni myndast hinar marg-
víslegustu sögusagnir og jafnvel
bent á menn, sem hvergi hafa
nærri komið. Við þessum leiða
Margir plánkar eins og þessi hafa horfið
í sumar og haust. Mynd: á.þ.
fylgikviila þjófnaðarmála virð-
ist fátt til varnaðar, á meðan
nöfn hinna seku eru ekki birt
opinberlega.
(Uppl. frá rannsóknarlögreglu).
Dilka- og hrossa
kjöt til Noregs
Flutt hafa verið til
Noregs frá Kaupfélagi
Húnvetninga og Sölufé-
lagi A-Húnvetninga 197
tonn af dilkakjöti. Von-
ast er eftir sölu á hrossa-
kjöti til Noregs og verið
er að vinna að sölu á
folaldakjöti til útlanda
líka. Allt folaldakjöt frá
síðasta ári er nú selt.
Tekist hefur að selja
töluvert magn af naut-
gripakjöti innanlands.
*
Slátrun lauk
viku fyrr
en áætlað var
Sauðfjárslátrun á
Blönduósi lauk 26. okt-
óber. Slátrað var 68.566
kindum. Þar af 61.654
dilkum. Meðalþungi
dilka er 12,78 kg sem er
1,9 kg minni en ’78.
Slátrað var um 98% af
áætlaðri tölu. Dilka-
kjötsmagn minnkaði um
7% eða 58 tonn, þrátt
fyrir 7% fjölgun inn-
lagðra dilka. Heildar-
kjötmagn varð 920 tonn
á móti 946 tonnum í
fyrra.
Slátrun gekk mjög vel
og lauk nær viku fyrr en
áætlað var.
Stjórnmáia-
fundir
Fyrirhugaðir eru sex
sameiginlegir fundir
stjórnmálaflokkanna í
Norðurlandskjördæmi
eystra fyrir komandi Al-
þingiskosningar. Fund-
irnir verða á eftirtöldum
stöðum:
Raufarhöfn sunnudaginn 11. nóv. kl.
15.00
Þórshöfn mánudaginn 12. nóv. kl.
21.00
Húsavík föstudaginn 23. nóv. kl. 21.00
Ólafsfirði laugardaginn 24. nóv. kl.
15.00
Dalvík sunnudaginn 25. nóv. kl. 15.00
Akureyri fimmtudaginn 29. nóv. kl.
21.00
Fluttar verða fram-
söguræður og hefur hver
flokkur til umráða 35
mín., sem skiptist í þrjár
umferðir. Milli 1. og 2.
umferðar er fundargest-
um heimilt að bera fram
skriflegar fyrirspurnir til
ræðumanna. Skal af-
henda þær fundarstjóra
sem les þær upp fyrir
fundinn.
„Við verðum að vinna mikið starf til að ná 3ja sætinu aftur“. — Viðtal við Guðmund Bjarnason í opnu
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
Náttúruverndarnefnd
UMGENGNI VfDA AFAR
SLÆM
„Steypustöðvarnar kaun á landslaginu“
Sýningarsalur
í heimahúsi
ÖRN INGI listmálari er að
taka upp þá nýbreytni að
opna sýningaraðstöðu að
heimili sínu Klettagerði 6, á
Akureyri og er þetta í sam-
bandi við vinnustofu hans. Er
þessi aðstaða opin alla virka
daga frá kl. 16-18.00, en í til-
efni opnunarinnar mun örn
Ingi hafa opið um næstu helgi
á laugardag og sunnudag frá
kl. 15-22.00.
Hugmyndin er að þarna verði
stöðug hreyfing á því sem er til
sýningar.
Aðgangur er ókeypis, en þeir
sem vildu leita nánari upplýs-
inga geta haft samband við örn
Inga í síma 22644.
„STEYPUSTÖÐVARNAR eru
kaun á landslaginu við Glerá.
Einkum er umgengnin við Malar
& steypustöðina með þeim end-
emum að skilyrðislaust ætti að
loka stöðinni verði ekki gert þar
stórátak. Pokahrúgur og
steypuafgangar eru í gilbakkan-
um og umhverfi stöðvanna að
öðru leyti hið ömurlegasta“.
Þetta kemur fram í bókun Nátt-
úruvemdamefndar, en nefndar-
menn fóru í skoðunarferð um bæ-
inn í lok síðasta mánaðar.
í bókuninni segir ennfremur að
umgengni í bæjarlandinu sé víða
afarslæm. „Sumt er þar ævagamalt
og hefur staðið óbreytt eða sigið á
ógæfuhliðina á undangengnum ár-
um.“ Sem dæmi um góða um-
gengni nefna nefndarmenn að vel
sé sléttað yfir gamla losunarstaði á
sorphaugunum og sáning þar virð-
ist ætla að takast vel.
Hvatt er til varúðar í malarnám-
um bæjarins á Glerárdal og bent á
að það þurfi að setja einhver mörk
um hve langt inn eftir dalnum má
fara. Sama gildi um landið norðan
Glerár. Ekki er nefndin hrifin af
bílakirkjugarði við Lónsbrú eða af
ruslinu á Krossanesklöppum.
Einnig er bent á að vestan við Lund
er ört vaxandi ruslahaugur.
„Mannvirki gömlu rafstöðvar-
innar í Glerárgili eru í hinni mestu
niðurníðslu og aðstandendum sín-
um til skammar. Þar verður annað
hvort að lagfæra eða fjarlægja en
þá verður að gæta mikillar varúðar
svo hlutunum sé ekki rutt í gilið.
Gilið og barmar þess gætu á þess-
um stað orðið æskilegt útivistar-
svæði inni í miðjum bæ,“ segir í
bókun nefndarmanna.
Mörg mál hafa
verið upplýst