Dagur - 08.11.1979, Blaðsíða 6
AlllUUIj)
Kvenfélagið Baldursbrá heldur
köku- og munabasar að
Laxárgötu 5, sunnudaginn
11. nóvember kl. 3. Stjórnin.
Basar. Kvenfélagið Voröld
verður með köku- og muna-
basar að Freyvangi sunnu-
daginn 18. nóvember kl. 3
e.h. Margt góðra muna til
jólagjafa. Kaffisala. Nefnd-
in.
Félag frímcrkjasafnara á Akur-
eyri vill vekja athygli
áhugafólks um frímerkja-
söfnun á sýningu sem haldin
er í Amtbókasafninu í tilefni
„Dags frímerkisins“ sem er
6. þ.m. Sýningin verður opin
næstu daga.
Minjasafnið á Akureyri er opið
á sunnudögum frá kl.
13.30-15,30. Samkomulag
getur verið um aðra tíma ef
óskað er. Sími safnsins er
24162 og safnvarðar 24272.
Sálarrannsóknarfélag Akureyr-
ar. Skrifstofa félagsins er
opin í Amarohúsinu alla
þriðjudaga frá kl. 17-19.
Gjörið svo vel og lítið inn.
Stjórnin.
Kristniboðshúsið Zíon. Sam-
komur á hverju kvöldi dag-
ana 4.-11. nóv. Ræðumenn
Gunnar Sigurjónsson cand
theol. Benedikt Arnkelsson
cand theol og Ólafur
Jóhannsson stud. theol. Auk
þess taka heimamenn þátt í
samkomunum í tali og tón-
um. Stúlkur úr Reykjavík
syngja tvísöng. Mikill al-
mennur söngur. Litskugga-
myndir og frásöguþættir.
Allar samkomurnar hefjast
kl. 8.30. Allir velkomnir.
Hálsprestakall. Æskulýðsfund-
ur n.k. laugardag kl. 13.30 á
Hálsi. Rætt um Stórutjarn-
armótið. Sóknarprestur.
Minjasafnið á Akureyri er opið
á sunnudögum frá kl. 1.30-
3.30 e.h. Samkomulag getur
verið um aðra tíma ef óskað
er. Sími safnsins er 24162.
Sími safnvarðar er 24272.
/OJffiOflgSÍNS
ISÍMI^U®§®
' “ " " ■■
Innilegar þakkir til œttingja og vina fyrir heim-
sóknir, gjafir blóm og heillaóskaskeyti á áttatíu ára
afmœli mínu 2. nóv. sl. Sérstakar þakkir til barna
minna, tengdabarna og barnabarna fyrir þeirra
stóra þátt í að gera mér daginn ógleymanlegan. Ég
biðykkur öllum blessunar guðs. Lifið heil.
LAUFEY SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
Norðurgötu 31, Akureyri.
Fréttir frá
Skákfélagi
Akureyrar
Startmót Skákfélags Akureyrar var
haldið 14. október síðastliðinn.
Keppendur voru 25 í eldri flokki og
þar sigraði Jakob Krístinsson, ann-
ar varð Gunnlaugur Guðmundsson
og þriðji Þór Valtýsson.
í unglingaflokki voru keppendur
11. Þar sigraði Uggi Jónsson, annar
varð Jón Krístjánsson og þriðji
Magnús Sigurólason.
Haustmót félagsins hófst 17.
október, og eru keppendur alls 20.
Átta eru í A flokki, átta í B flokki og
4 í unglingaflokki, en þar er tefld
tvöföld umferð.
Að loknum 4 umferðum eru
efstir og jafnir í A flokki þeir Áskell
Örn Kárason og Kári Elísson með 3
vinninga, en þess ber að geta að
Áskell hefur aðeins teflt 3 skákir. í
B flokki hefur Guðmundur Svav-
arsson forystu með 4 vinninga og í
unglingaflokki er efstur Jón Garð-
ar Viðarsson með 4 vinninga.
15 mínútna mót var haldið 29.
október. Keppendur voru 15. urslit
urðu þau að Kári Elísson bar sigur
úr bítum með 6 vinninga, annar
varð Jónas Þorbjörnsson með 5,5
vinninga og þriðji varð Þór Valtýs-
son með 5 vinninga. Tefldar voru 7
umferðir.
Nýlega er lokið unglingameist-
aramóti Islands í skák. Fulltrúar
Akureyrar voru þeir Pálmi Péturs-
son sem fékk 4 vinninga og Jakob
Kristjánsson sem fékk 3 vinninga.
Umferðir voru alls 7.
Þessa dagana eru félagar úr
Skákfélagi Akureyrar að vinna að
gerð auglýsinga- og fréttablaðs sem
koma mun út fyrir jólin, og vænt-
anlega munu félög og einstaklingar
taka erindum skákfélagsmanna vel
þar sem útgáfa slíks blaðs hefur
undanfarin ár borið að verulegu
leyti uppi fjárhagslega starfsemi
þess.
I
Látum skyn-
semina m ráða!
i
i
i
Við síðustu alþingis-
kosningar var þjóðinni
sundrað með æsifréttum í
síðdegisblöðunum og fjöl-
miðlum. Hvernig gafst svo
þetta? Þessir æsingamenn
reyndust óábyrgir og leystu
engan vanda. Þeir
sprengdu vinstri stjórnina í
haust og efndu til vetrar-
kosninga. Einn gamall
þingmaður segir, að fyrr
hafi ekki verið bjánar á al-
þingi.
Einn var sá stjórnmála-
flokkur sem beitti sér sér-
staklega fyrir að leysa
vandamálin. Það var
Framsóknarflokkurinn
undir forustu hins þekkta
þjóðarleiðtoga Ólafs
Jóhannessonar og við hlið
hans stóð fast formaður
flokksins Steingrímur Her-
mannsson. En þó að olíu-
vandamálið væri slæmt var
þó upplausnarliðið í krata-
Draupnir skrifar:
flokknum verra og reið
stjórninni að fullu, áður en
reynt hafði á hvort sam-
staða næðist um lausn
mála.
Nú eru alþingiskosning-
ar fyrir dyrum. Telja má
víst að margir þeir sem
dáðust að tilraunum Ólafs
Jóhannessonar til að bjarga
þjóðinni úr margskonar
erfiðleikum muni nú kjósa
Framsóknarflokkinn, þó að
þeir hafi eigi gert það áður. B
Nú er það líklegasta leiðin I
til að leysa vandamál þjóð- I
arinnar, því að ekki munu |
úreltar samkeppniskenn- |
ingar um lögmál frum- !
skógarins leysa neinn |
vanda. I
Komið hefur í ljós við I
skoðanakönnun að Ólafur |
Jóhannesson hefur mest I
traust allra stjórnmála- ■
manna sem þjóðarleiðtogi. I
Styðjum hann í hönd far- |
tandi kosningum svo að ■
honum gefist kostur á að J
leysa hin margvíslegu ■
vandamál þjóðarinnar. Það I
er hægt að með því að ■
stuðla að því að Fram- J
sóknarflokkurinn fái fleiri |
þingmenn en han hafði á ■
síðasta þingi.
Kjósendur! Látið enga 1
æsingamenn hafa áhrif á |
ykkur en lofið skynseminni ■
að ráða. Draupnir.
6.DAGUR
Þökkum innilega fyrir samúðarkveðjur og vinarhug við andlát og
útför
ÁGÚSTAR BERG
Þórunnarstræti 83, Akureyrl.
Friðbjörg Friðbjörnsdóttir og fjölskylda.
JÓHANNA VILHJÁLMSDÓTTIR
Ránargötu 1, Akureyri,
sem lést sunnudaginn 4. nóvember verður jarðsungin frá Akur-
eyrarkirkju föstudaginn 9. nóvember kl. 13.30.
Steingrímur Eggertsson og börnin.
Olíustyrkur
Greiðsla olíustyrks fyrir mánuðina júlí-sept. 1979
hefst á bæjarskrifstofunni mánudaginn 12. nóv-
ember og lýkur föstudaginn 16. nóvember næst-
komandi.
Bæjarskrifstofan er opin frá kl. 10.00 til 15.00 dag-
lega frá mánudegi til föstudags.
Akureyri, 6. nóvember 1979
Bæjarritari.
Kristniboðs- og
æskulýðsvika
UM SÍÐUSTU helgi var
haldið unglingamót KFUM og
K að Hólavatni í Eyjafirði.
Alls sóttu 30 manns mótið,
sem stóð í 2 daga. Mótið var
upphaf kristniboðs- og æsku-
lýðsviku sem stendur til 11.
nóvember.
Samkomur verða á hverju
kvöldi í Kristniboðshúsinu Zion
kl. 20.30. Ræðumenn eru Bene-
dikt Amkelsson cand. theol og
Gunnar Sigurjónsson cand. theol.
Auk þess mun Ólafur Jóhannes-
son guðfræðinemi úr Reykjavík
tala á samkomunum. Sýndar
verða litskyggnur frá starfinu í
Eþíópíu og Kenýa og að sjálf-
sögðu verður mikið sungið.
Þátttakendumir í unglingamótinu að Hólavatni.
Kristniboðshúsiö Zion við Hólabraut. Myndir: Jón Oddgeir.