Dagur - 08.01.1980, Qupperneq 7
Þriðjudagur 8. jan.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Múmín-álfarnir Þriðji þáttur.
Þýðandi Hallveig Thorlacius.
Sögumaður Ragnheiður Stein-
dórsdóttir.
20.40 Þjóðskörungar tuttugustu
aldar. Gamal Abdel Nasser var
óþekktur ofursti þegar hann tók
þátt í að steypa af stóli Farúk,
konungi Egyptalands. Hann
varð skömmu síðar forseti
Egyptalands og ókrýndur leið-
togi Araba, en sú hugsjón hans
að sameina Arabaríkin og kné-
setja (srael rættist ekki. Þýðandi
Ingi Karl Jóhannesson. Þulur
Friðbjörn Gunnlaugsson.
21.05 Dýrlingurinn Köld eru
kvennaráð. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
21.55 Spekingar spjalla Hring-
borðsumræður Nóbelsverð-
launahafa í raunvísindum árið
1979. Umræðunum stýrir Bengt
Feldreich og þátttakendur eru
Sheldon Glashow, Steven
Wheinberg og Abdus Salam,
verðlaunahafar í eðlisfræði,
Herbert Brown, sem hlaut verð-
launin í efnafræði, og Allan
Cormack og Godfrey Hounsfie-
Id sem skiptu með sér verð-
laununum í læknisfræði. Þýð-
andi Jón O. Edwald. (Nordvisi-
on — Sænska sjónvarpið).
23.25 Dagskrárlok.
Miðvikudagur 9. jan.
18.00 Barbapapa. Endursýndur
þáttur úr Stundinni okkar frá
síðastliðnum sunnudegi.
18.05 Höfuðpaurinn. Teiknimynd.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir.
18.30 Indíánar Norður-Ameríku.
Franskar myndir um indíána og
skipti þeirra við evrópska land-
nema. Þýðandi Friðrik Páll
Jónsson. Þulur Katrín Árna-
dóttir.
18.55 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Aualvsinaar oa daaskrá.
20.30 Stykkilsberja-Finnur.
(Huckleberru Finn) Bandarísk
bíómynd frá árinu 1939, byggð
á hinni sígildu sögu eftir Mark
Twain um drenginn Finn og
ævintýri hans á bökkum Missis-
sippi-fljóts. Aðalhlutverk
Mickey Ronney, Walter Conn-
olly og William Frawley. Þýð-
andi Jón O. Edwald.
22.00 Vaka. Fjallað er um barna-
bókmenntir. Umsjónarmaður
Elfa Björk Gunnarsdóttir. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
22.45 Dagskrárlok.
Föstudagur 11. jan.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Skonrok(k). Þorgeir Ást-
valdsson kynnir ný dægurlög.
21.10 Kastljós. Þáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður Guð-
jón Einarsson fréttamaður.
22.10 Santee. Bandarískur „vestri"
frá árinu 1973. Aðalhlutverk
Glenn Ford, Michael Burns og
Dana Wynter. Santee hefur at-
vinnu af því að elta uppi eftirlýsta
afbrotamenn og afhenda þá
réttvísinni. lífs eða liðna. Ung-
lingspiltur verður vitni að því er
Santee fellir föður hans, ill-
ræmdan bófa, og heitir þvi að
koma fram hefndum. Þýðandi
Jón Thor Haraldsson.
23.40 Dagskrárlok.
Laugardagur 12. jan.
16.30 iþróttir. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
18.30 Villiblóm. Ellefti þáttur. Efni
tíunda þáttar: Gestapó hefur
handtekið þá Bournelle og
Flórentín, en til allrar hamingju
rekst Páll á Brúnó, fornvin sinn.
Hann fylgir Páli til Beaujolais en
þar frétta þeir að móðir Páls sé
farin til sonar síns í Alsír. Þeir
ákveða að leita hennar þar og
taka sér far með flutningaskipi.
Þýðandi Soffía Kjaran.
18.55 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Spítalalíf. Bandarískur gam-
anmyndaflokkur. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
20.55 Kaipo-hamar. Kaipo-hamar-
inn rís upp úr brimlöðrinu suður
af Nýja-Sjálandi, 1400 metra
hár og torsóttur öðrum en fugl-
inum fljúgandi. Þennan tind
hugðist Sir Edmund Hillary klífa
ásamt görpum sínum, og til
þess urðu þeir að berjast gegn
ofsabyljum, róa niður hættuleg-
ar flúðir og sækja upp snar-
bratta hamraveggi. Þýðandi og
þulur Gylfi Pálsson.
21.25 Rómeo og Júlía. s/h Banda-
rísk bíómynd frá árinu 1937,
byggð á leikriti Shaekesperes.
Leikstjóri George Cukor. Aðal-
hlutverk Norma Shearer og
Leslie Howard. Þýðandi Óskar
Ingimarsson.
23.25 Dagskrárlok.
Sunnudagur 13. jan.
16.00 Sunnudagshugvekja. Torfi
Ólafsson, formaður Félags
kaþólskra leikmanna, flytur
hugvekjuna.
16.10 Húsið á sléttunni. Ellefti
þáttur. Talvélin. Efni tíunda
þáttar: Karólína Ingalls fær sár á
fótinn. Það virðist meinlaust, en
fóturinn bólgnar upp þegar frá
líður. Hún verður eftir heima
þegar maður hennar og dætur
fara í ferðalag en ætlar að hitta
þau seinna. Bólgan heldur á-
fram og sýnilegt að blóðeitrun er
komin í sárið. Þótt Karólína sé
fárveik og missi meðvitund
hvað eftir annað, tekur hún það
eina ráð sem verður henni til
bjargar: að skera í sárið. Baker
læknir finnur enga skýringu á
þvítiltæki hennar, en presturinn
er sannfærður um að þar hafi
æöri máttur verið að verki. Þýð-
andi Óskar Ingimarsson.
17.00 Framvinda þekkingarinnar.
Fimmti þáttur. Lukkuhjóiið.
Þýðandi Bogi Arnar Finnboga-
son.
18.00 Stundin okkar. Meðal efnis í
þættinum: Jóhanna Möller les
annan hluta sögu við myndir
eftir Búa Kristjánsson, atriði úr
jólaskemmtunum í barnaskól-
um og flutt verður myndasaga
eftir Kjartan Arnórsson. Banka-
stjóri Brandarabankans, Barba-
papa og systir Lísu verða á sín-
um stað. Umsjónarmaður Bryn-
dís Schram. Stjórn upptöku Eg-
ill Eðvarðsson.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 (slenskt mál. Skýrð verða
myndhverf orðtök í íslenskri
tungu. Textahöfundur og þulur
Helgi J. Halldórsson. Mynd-
stjórn Guðbjartur Gunnarsson.
20.45 Andstreymi. Þrettandi og
síðasti þáttur. Efni tólfta þáttar: (
tvö ár græða Jonathan og Will
vel á því að brugga og selja
viskí, en þeir eiga yfir höfði sér
þunga refsingu ef upp kemst
um athæfi þeirra. Rommklíkan
steypir Bligh landsstjóra af stóli
og nú virðist Greville ætla að ná
undirtökunum í viðureigninni
við Jonathan og Will. Þýðandi
Jón O. Edwald.
21.35 Nýárskonsert í Vínarborg.
Fílharmoníusveit Vínarborgar
leikur forleik eftir Offenbach og
dansa eftir Strauss-feöga.
Stjórnandi Lorin Maazel. Þýð-
andi Ingi Karl Jóhannesson.
(Eróvision — Austurríska sjón-
varpið)
22.50 Dagskrárlok.
Sunnudagur 13. jan.
Póstur og sími Akureyri
óskar að ráða matráðskonu til afleysingastarfa.
Upplýsingar veittar í síma 25610
Óskum eftir að ráða
gjaldkera
frá n.k. mánaðarmótum. Þ.e. Janúar-febrúar 1980
Samvinnuskóla eða verslunarskólamenntun æski-
leg. Starfsreynsla án framangreindra skilyrða gæti
einnig nægt.
Upplýsingar gefnar í Hótel K.E.A. milli kl. 1-5 á
daginn.Sími 22200. ^
Hótelstjórinn
Óskum að ráða eftirtalið
starfslið:
1. Stúlku til skrifstofustarfa. Um er að ræöa hálfs
dags starf. Enskukunnátta nauðsynleg.
2. Afgreiöslustarf íverslun. Vaktavinna.
3. Konur til ræstinga.
Skriflegar umsóknir sendist í pósthólf 86, Akureyri
fyrir 12. janúar n.k.
Atvinna óskast
Þrítugur reglusamur maður óskar eftir atvinnu nú
þegar. Hefur starfað erlendis undanfarin sex ár.
Er meö próf frá Hótel- og veitingaskóla íslands,
einnig þjálfaður sjúkraliði. Er vanur verslunarstörf-
um. Hef góða enskukunnáttu.
Upplýsingar í síma 23544 eða 21079.
fbúðir til sölu
Erum að hefja sölu á 14 íbúðum við Melasíðu í
Glerárhverfi. (búðirnar eru 2ja herbergja 79, 60 m2,
og 3ja herbergja- 103, 60 m2 og 4ra herbergja-
113,10 m2 og seljast tilbúnar undir tréverk.
Beðið veróur eftir 2/3 hl. láns Húsnæðismála-
stofnunar rík.
(búðirnar verða afhentar um mitt ár 1981.
Teikningar og allar upplýsingar veittar á skrifstof-
unni milli kl. 9,00 f.h. til kl. 17.00 s.d.
I5MARI HFI
BYGGINGAVERKTAKAR
Kaupangi
v/Mýraveg, sími 21234.
AKUREYRARBÆR
Komast Nanna, Haukur og Karl á Ólympíuleika?
MIKIL LEYND hvílir á því
hjá Skíðasambandinu hverjir
keppa á Ólympíuleikunum
sem verða haldnir í vetur.
Skíðasambandið hefur ekki
ennþá tilkynnt hverjir skipa
landslið íslands á þeim leikj-
um.
Þau sem frekast koma til
greina frá Akureyri eru Nanna
Leifsdóttir, Haukur Jóhannsson
og Karl Frímannsson.
Nanna og Haukur eru nú rétt
farin til Frakklands en þau
munu á næstunni keppa á átta
stórmótum í Evrópu ásamt öðru
besta skíðafólki íslands. Þar á
meðal er Húsvíkingurinn Björn
Olgeirsson. Karl Frímannsson
hefur verið í Bandaríkjunum
hjá Magnúsi Guðmundssyni frá
því nokkru fyrir jól.
Sem sagt, ekki er ennþá vitað
hvort eitthvert þeirra keppir
fyrir íslands hönd á Vetrar-
ólympíuleikjunum en vonandi
verða þau þar öll. Þetta er dýrt
ævintýri að taka þátt í þessu, en
þau Nanna og Haukur verða að
greiða allan kostnað sjálf af
þeirri keppnisferð sem þau eru
að fara í núna, ásamt þeim
ferðum sem farnar hafa verið í
vetur. Þá skal þess einnig getið
að Karl er á eigin vegum í
Bandaríkjunum. Ef þessu fólki
veitist sá heiður að verða meðal
keppenda á Ólympíuleikjunum
ætti bæjarstjórn Akureyrar,
einstaklingar og fyrirtæki í
bænum að hlaupa undir bagga
með þeim og styrkja þau til far-
arinnar.
Auglýsing um lausar íbúar-
húsalóöir
Upplýsingar um nýjar íbúðarhúsalóðir í 3. áfanga
Síðuhverfis og lausar lóðir í 2. áfanga Síðuhverfis
fyrir einbýlishús, raðhús og fjölbýlishús eru veittar
á skrifstofu byggingafulltrúa í viötalstíma kl.
10.30-12.00 f.h.
Þeir sem óska eftir lóðarveitingu fyrir 1. febrúar n.k.
athugi að umsóknir þurfa að hafa borist til skrif-
stofu byggingarfulltrúa eigi síðar en 16. janúar n.k.
Nauðsynlegt er að endúrnýja eldri umsóknir.
Akureyri, 3. janúar, 1980.
Byggingarfulltrúi Akureyrar
DAGUR.7