Dagur - 08.01.1980, Blaðsíða 8

Dagur - 08.01.1980, Blaðsíða 8
DAGUR Akureyri, þriðjudagur 8. janúar 1980 ÞJÓNUSTA FYRIR OLÍUSLÖNGUR og BARKA PRESSUM TENGIN Á FULLKOMIN TÆKI VÖNDUÐ VINNA Ólafsfjörður: Nýr sjúkrabíll ólafsfirði 7. janúar INNAN fárra vikna verður nýr sjúkraflutningabfll tekinn í notkun á Ólafsfirði. Bíllinn er í eigu Rauðakrossdeildarinnar, sem keypti hann á síðasta ári fyrir tæpar fimm milljónir króna. Nú er unnið við innréttingar í bílnum hjá verkstæðum á Ólafs- firði. Bíllinn er af Chervolet gerð, mjög fullkominn. í honum verður m.a. súrefnistæki. Til þessa hefur lögreglubíllinn verið notaður í sjúkraflutninga, en eins og kunnugt er var á sínum tíma ákveðið að lögreglubílar skyldu vera undanþegnir slíkum flutning- um. Því hefur lögreglan helst ekki viljað koma nálægt sjúkraflutning- um nema brýna nauðsyn hafi borið til. Það er því mikið öryggi I því fólgið að hafa sérstakan sjúkrabíl. Ár. Þ. Landbúnaðar ráðherra spurður um búvöruverð Á ALÞINGI fyrir jól spurði Stefán Valgeirsson landbúnað- arráðherra eftirfarandi spurn- inga um búvöruverð: 1. Á hvaða lagagrundvelli ákvað ríkisstjórnin að fresta gildis- töku þess búvöruverðs, er sex- mannanefndin ákvað að ætti að taka gildi 1. des. s.l.? 2. Telur ríkisstjórnin, að hún hafi haft lagalegan rétt til að heimila, að hluti af verðákvörðun sexmanna- nefndar komi til framkvæmda 12. þ.m., en synja framkvæmd hluta af verðbreytingunni? 3. Fellur ekki sá hluti, sem synjað var, undir þær verðbreytingar, sem heimilar eru samkvæmt samþykkt ríkisstjórnarinnar 17. þ.m., þar sem þær eru að mestum hluta vegna launabreytinga? 4. Hve hárri fjárhæð launa sinna tapa bændur vegna umræddrar frestunar, eða ætlar ríkisstjórnin að bæta bændum tapið og þá hvenær? Svör frá ráðherra eru væntanleg þegar þing kemur saman á ný. Enn er unnið við innréttingar áður en bíllinn verður tilbúinn. Sauðárkrókur: Gáfu útsetningar og eina milljón Sauðárkróki 7. janúar LAUGARDAGINN 5. janúar voru liðin 15 ár frá því að Eyþór Stefánsson, tónskáld, setti Tón- listarskólann á Sauðárkróki í fyrsta sinn. Af þessu tilefni boð- aði Eyþór til fundar á heimili sínu og afhenti skólanum til eignar og verðveislu tónverka- handrit. Um er að ræða útsetningar Eyþórs á 24 þekktum lögum, sem hann gerði, er hann var við tónlist- arnám í Reykjavík í febrúar og mars 1928. Þá er tónlistarútsetning sem Karl O. Runólfsson gerði af lagi Eyþórs — Mín heimabyggð — sem hann samdi í tilefni 100 ára afmælis Sauðárkróksbæjar 1971. Nú hefur Eyþór skrifað allar hljóðfæraraddir sérstaklega og fylgir þeim handrit. Þá afhentu Eyþór Stefánsson og kona hans, Sigríður Stefánsdóttir, eina milljón króna að gjöf til sjóðsstofnunar við skólann. Hlutverk skólans verður að styrkja nemendur til framhalds- náms í hljóðfæraleik eða söng eftir að þeir hafa lokið prófum við Tón- listarskólann á Sauðárkróki. í fyrri önn skólans í vetur voru 130 nemendur. Við hann starfa nú 3 fastránir kennarar og 3 aðrir í hlutastarfi. Skólastjóri er Eva Snæ- björnsdóttir. G.Ó. '— •Jl s )JL_ % Umhverfis- vernd, land- nýting og skipulag byggða Á undanförnum árum hafa átt sér stað miklar umræður á hln- um Norðurlöndunum um um- hverfisvernd og skipulag land- nýtingar. Þannlg að ekki sé um ot gengíð áland, sem vel er fallið tíl landbúnaðar og það lagt undir vegi og önnur mannvlrki. Þessar umræður hafa ennfremur beinst að því, að viðhalda byggð i af- skekktari byggðarlögum. Á veg- um Norrænu bændasamtak- anna hefur þetta efni oft verið rætt og haldnir fundir þar, sem um það hefur verið fjaflað sér- staklega. Nú fyrir skömmu var háldin ráðstefna á vegum Rá- herranefndar Norðuriandaráðs á Helsingjaeyri í Danmörku, um skipulagningu byggða og land- nýtingu. Þátttakendur t ráð- stefnunni voru náttúrufræðingar og landslagsskipuleggjendur. Frá Islandi mættu. prófessor Agnar Ingólfsson og mag. Yngvi Þorsteinsson, en sá síðamefndi flutti erindi á ráðstefnunni, sem hann nefndi „Gróðurkort sem grundvöllur að skípulagðri land- nýtingu í landbúnaði.“ Erindi Ingva vakti mikla at- hygli og hann var beðinn um að flytja erindi um sama efni við tvo háskóla á Norðuriöndum. Nið- urstaða ráðstefnunnar var sú að unnið verði að söfnun gagna á öllum Norðurlöndunum um nýt- íngu lands og hvernig má koma í veg fyrir skaðieg áhrif á umhverfið. £ Gaddavír og smábörn Lesandi kom að máli við blaðið og vakti athygli á að í nágrenni við leikvöll hér í bæ er gaddavír notaður í girð- ingu umhverfis löð. Húsráð- andi mun nota einn streng og er vírinn í þeirri hæð að ungabörn eiga hægt með að skaða sig á honum. Ekki vit- um við hvort leytilegt sé að nota gaddavír í bæjarlandinu, en a.m.k. er það óheppllegt girðingarefni ef mikið af smáfólki er í nágrenninu. 35 ára kaupstaðarafmæli Um þessar mundir eru 35 ár síðan Ólafsfjörður fékk kaupstaðarréttindi. Nú- verandi bæjarstjóri á Ólafsfirði er Pétur Már Jónsson. íbúum Ólafs- fjarðar eru færðar ham- ingjuóskir í tilefni afmæl- isins. Merkis- kona látin Gunnarsstöðum í Þistilfirði 4. janúar Hilmir er hið glæsilegasta skip. Mynd: á.þ. Slippstöðin h.f. afhendir nýtt skip ÞAÐ ER fremur gott hljóð í mönnum enda hefur tíðarfar verið gott í haust og vetur. Nú er snjór yfir öllu, en allir vegir eru færir það ég veit. í vetur hefur aldrei snjóað svo mikið að stærri bflar hafi ekki komist leiðar sinnar. Nú er látin sú aldna merkiskona Þuríður Vilhjálmsdóttir frá Sval- barði, á 91. aldursári. Þuríður var gift Þorláki Stefánssyni og áttu þau fimm sonu. Þuríður var kennari að mennt. Síðustu árin dvaldi hún í Skjald- arvík og lést á Akureyrarspítala. Jarðarförin fer fram frá Svalbarði á morgun. Ó. H. SÍÐASTLIÐINN laugardag var sjósett frá Slippstöðinni h.f. á Akureyri nýtt nótaveiðiskip og hefur það hlotið nafnið Hilmir SU 171. Eigandi skipsins er Hilmir h.f. Fáskrúðsfirði. Nýja skipið er að öllu leyti hannað af starfsmönnum tækni- deildar Slippstöðvarinnar. Lestar- lengd þess er 56,5 metrar, lengd p p 49,20 metrar og breidd 11 metrar. Dýpt að efra þilfari er 7,50 metrar Og mesta djúprista 5,80 metrar. Lestarrými er 1320 rúmmetrar og þar af eru 580 rúmmetrar í sjó- kældum tönkum. Burðargeta er 1360 tdw. I skipinu eru íbúðir fyrir 16 menn, 5 tveggja manna klefar og 6 eins manns klefar, þar með talin íbúð skipstjóra. Aðalvélin er af gerðinni Wick- mann 6AXHG, sem er útbúin fyrir brennslu á svartolíu og afkastar 2400 hestöflum við 475 snúninga á mínútu. Skipið er búið skipti- skrúfu, sem drifin er um niður- færslugír. Þvermál skrúfunnar eru um 3 metrar og snúningshraði 200 snúningar á mínútu. Hjálparvélar eru tvær, af gerðinni Caterpillar. Af öðrum búnaði má nefna tvær þverskrúfur, 350 og 500 hestöfl og þrjá þilfarskrana, uggastýri af Beckersgerð og vökvadrifinn viftu- búnað, sem framleiddur er af Rapp Heidermann A/S Noregi. Auk þess eru öll siglingar og fiskleitartæki af fullkomnustu gerð. Auk nótaveiði er skipið útbúið fyrir skuttog með flotvörpu. Næstu verkefni hjá Slippstöðinni á Akureyri eru smíði á togveiði- skipi fyrir Höfða h.f. á Húsavik, sem afhent verður í febrúar á næsta ári og togveiðiskip, sem einnig verður útbúið til rækjuveiða, vinnslu og frystingar og er það smíðað fyrir útgerðarfélag Skag- strendinga og afhendist í ágúst 1981.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.