Dagur - 29.01.1980, Blaðsíða 4

Dagur - 29.01.1980, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaðamaður: ASKELL ÞÖRISSON Augl og afgr: JÖHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf Sambúðarvandi flokkanna Aðalástæðan til þess, að ekki hefur verið hægt að mynda vinstri stjórn er augljós viljaskortur í Alþýðubandalaginu og Alþýðu- flokknum til þess að taka þátt í slíku stjórnarsamstarfi. Ef viljinn væri fyrir hendi, væri hægt að mynda stjórn á tiltölulega stuttum tíma. Þannig kemst Ingvar Gíslason, alþingismaður, að orði í grein í Degi. Ingvar segir ennfremur í greininni: „Eina vonin er sú, að Steingrími Hermannssyni takist að bræða flokkana saman á síðara stigi, en eftir síendurteknar yfirlýsingar Svavars Gestssonar um að vinstri stjórn sé „úr sögunni“, er sú von harla veik, ef satt skal segja.“ Þá segir Ingvar í grein sinni, að það sýnist fjarlægt að gera ráð fyrir samstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðubandalags, þótt í báðum flokkum séu öfl, sem gætu hugs- að sér slíkt. Þá segir Ingvar: „Eins er vafamál að áhugi sé á samstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, einkum vegna þess að slfk stjórn hefði ekki að öllu starfhæfan meirihluta. Stjórn þessara þriggja síðast nefndu flokka kemur heldur ekki til greina, ef að líkum lætur. Samstarf við Sjálfstæðisflokk- inn einan á ekki hljómgrunn meðal framsóknarmanna og er ekki til umræðu hjá okkur sem æskileg lausn stjórnarkreppunn- ar, þótt hún sé „fræðilegur“ möguleiki eins og stundum er sagt. Sama má segja um sam- stjórn Sjálfstæðisflokks, Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks. Slíkt stjórnarsamstarf er „fræðilega" mögulegt og „sterkt“ á yfirborð- inu, — en heldur ekki meira. Ef ekki tekst að mynda vinstri stjórn, hygg ég að flestir framsóknar- menn teldu viðunandi kost, að Framsóknarflokkur, Alþýðu- bandalag og Sjálfstæðisflokkur mynduðu ríkisstjórn saman. Slík stjórn gæti orðið sterk, ef vel tæk- ist til. En segja verður eins og satt er, að allir þessir „fræðilegu“, „æskilegu“ eða „viðunandi“ möguleikar til myndunar meiri- hlutastjórnar eru býsna fjarlægir í raun. Sambúðarvandi fiokkanna er á því stigi að hann er ekki auð- leystur, e.t.v. óleysanlegur eins og sakir standa. Því má enn búast við langri stjórnarkreppu, ef mark- miðið er að hætta ekki fyrr en búið er að mynda þingræðislega meiri- hlutastjórn. Á því kann ekki ein- asta að verða bið, heldur er eins víst að það takist ekki.“ „Bflslys í Samkomuhúsinu“ Puntila bóndi og Matti vinnumaður frumsýndur á Akureyri sl. föstudag Puntila bóndi og Matti linnumaður. Höfundur: Bertold Brecht. Tónlist: Paul Dessau. Leikstjóri: Hallmar Sig- urðsson. Leikmynd: Hallmar Sig- urðsson. Búningar: Freygerður Magnúsdóttir. Leikmyndasmiður: Hall- mundur Kristinsson o.fl. Lýsing: Ingvar Björnsson. Þótt ótrúlegt láti í eyrum, þá varð „bílslys“ á fjölum Sam- komuhússins sl. föstudag, þegar skammt var liðið á frumsýningu Leikfélags Akureyrar á leikriti Brechts; Puntila bóndi og Matti vinnumaður. Það er erfitt að meta þau áhrif sem þetta óvænta slys hafði á sýninguna, en trúlega hafa þau verið þó nokkur. I leikskrá er verkið kallað „al- þýðu gamanleikur“, hvað sem sú nafngift þýðir í raun. í blaðavið- tali er það haft eftir leikstjóran- um, að verkið sé fyrst og fremst gamanleikur en leitast sé við að undirstrika það jákvæða í upp- færslu hans. Leikstjórinn segir ennfremur, að undir niðri sé al- varlegur tónn, en ætlunin sé fyrst og fremst að skemmta leikhús- gestum, en ekki predika yfir þeim. Hallmar Sigurðsson er nýlega kominn heim frá námi og er þetta frumraun hans á sviði hérlendis. Sýningin ber það með sér, að Hallmar kann til verka, en sá grunur læðist að, hvort frumsýn- ingin sé ekki fullsnemma á ferð- inni. Puntila bóndi er vægast sagt ruddalegur persónuleiki. Hann hikar ekki við að henda hjúum sínum út á kaldan klakann, ef það „Ö1 er innri maður“, segir máltækið. En á það við um Punt- ila? Að vísu er hann allt annar maður þegar hann er við skál, (sem er nokkuð oft). Eða er Puntila tveir menn? er honum sjálfum til framdráttar. Hann kemst upp með ruddalega framkomu gagnvart samferða- fólki sínu, í krafti eigna sinna og stöðu. íslendingar hafa átt og eiga marga Puntila. Þessi spurning og margar fleiri vakna þegar meður sér þetta leirit Brecht. Theodór Júlíusson fer með hlutverk Puntila bónda og er þetta viðamesta hlutverk sem Theodór hefur tekist á hendur til þessa. Hann leikur þetta erfiða hlutverk af rniklum krafti og heldur vel sínum hlut í sýning- unni. Leiksigur fyrir Theodór. Þráinn Karlsson leikur Matta vinnumann, en hlutverkið er „litlu veigaminna" en hlutverk Puntila. Leikritið byggist svo mjög á samskiptum þessara höfuðpersóna. Þráni gekk ekki sem best að ná tökum á hlutverki sínu og naut sín aldrei til fulls og er ekki undirritaður grunlaus um, að „bílslysið" hafi átt sin þátt í því. Svanhildur Jóhannesdóttir leikur einkadóttur Puntila. Svan- hildi brást ekki bogalistin, hún býr til sannfærandi mynd af „eftirlætinu" hans föður síns. Gestur E. Jónasson fer á kost- um í hlutverki biðilsins, en maður fær ekki mikið álit á utanríkis- þjónustunni, ef aðrir starfsmenn eru svipaðir þeim sem Gestur túlkar. Viðar Eggertsson leikur, (eins og fleiri), fleiri en eitt hlutverk, en hlutverk prestsins er þó veiga- mest. Gerfi Viðars er gott, eins og flest önnur í sýningunni, en „sveiflurnar“ í túlkun hans eru of sterkar og á raddbeitingin ekki síst þátt í því. Bjarni Steingrímsson er enn í aukahlutverki. Þetta er þriðja hlutverkið sem þessi þrautreyndi leikari fer með hér á Akureyri, síðan hann var ráðinn til L.A. á sl. hausti. Öll hafa hlutverkin verið veigalítil og verður að telja það undarlega ráðstöfun að ráða vel menntaðan og þrælvanan leikara að leikhúsinu og nota hann síðan í aukahlutverkum eingöngu. Sólveig Halldórsdóttir og Arn- heiður Ingimundardóttir leika vinnukonur á heimili Puntila. Sólveig er reyndur leikari og menntaður sem slíkur, en Arn- heiður nýgræðingur og Jcemur það nokkuð berlega í ljós. Arn- heiður syngur „útlistunarvísur“ milli atriða og gerir það vel, nema hvað öryggi er nokkuð ábótavant stendur það vonandi til bóta. Fyrst minnst var á tónlistina í leikritinu á annað borð, þá má geta þess, að hún var sérstaklega skrifuð fyrir leikritið. Tónlistin er mjög vandmeðfarin og erfið í flutningi og fraleitt getur hún tal- ist skemmtileg. Þær Sigurveig Jónsdóttir, Sunna Borg, Þórey Aðalsteins- dóttir og Steinunn Gunnlaugs- dóttir leika konur sem Puntila býður til trúlofunarveislu dóttur sinnar. Sigurveig bregst ekki leikhúsgestum frekar en fyrri daginn. Þær Sunna og Þórey gera vel, en sú fyrrnefnda leikur einnig prestsmaddömuna sem hún gerir að kostulegri manneskju. Reysnluleysi Steinunnar kemur nokkuð í ljós í þessum hópi. Jón Benónýsson hefur greini- lega stigið á leikhúsfjalir áður. Ragnar Einarsson er í litlu hlut- verki, en söngur hans var ágætur. Ingvar Björnsson sér um lýs- inguna og gerir það vel. Það hefur greinilega verið lán með leihús- inu, þegar það fékk Ingvar til starfa, enda maðurinn þjálfaður í sjálfu Þjóðleikhúsi íslendinga. Freygerður Magnúsdóttir sér um búningana og eru þeir henni til mikils sóma. Leikmynd gerir Hallmar Sig- urðsson, en smíði leikmyndar var að mestu leiti í höndum Hall- mundar Kristinssonar. Leik- myndin er stílhrein og hugvits- samlega gerð í einfaldleika sín- um, en undirrituðum finnst hún heldur litlaus. Það væri kannski nær að segja að hana vanti „kontrasta" og dýpt. Já, frumsýningin á Puntila bónda og Matta vinnumanni var síður en svo hnökralaus. En það er vonandi, að hnökrarnir hverfi á komandi sýningum. Á heimsstyrjaldarárunum síð- ari, mun það hafa komið til tals, að Bertold Brecht settist að á ís- landi, þar eð hann var hundeltur af nasistum. Það væri fróðlegt að vita, hvort hann, (ef á lífi væri), hefði áhuga á að setjast að á Ak- ureyri, undir sömu kringumstæð- um og þá. Það getur varla talist trúlegt, ef hann vissi um aðstæður þær, sem leikhússtarfsmenn hér á Akureyri verða að vinna við, stöðugt fjár- svelti og vanþakklæti ráðamanna. Ragnar Lár. INGVAR GISLASON, ALÞINGISMAÐUR: ALÞINGISBREF TIL DAGS „Tíðindalítið á vest- urvígstöðvunum“ Á árum skotgrafahernaðar í heimsstyrjöldinni fyrri kom það fyrir að óvinaherir bældu sig í moldarbyrgjum beggja vegna víglínunnar og hefðust lítt að, hleyptu naumast af byssu. Var þá talað um að tíðindalítið væri á vesturvígstöðvunum. Það má víst segja svipað um ástandið á Alþingi síðustu vikur. Þar er tíðindalítið og eins og menn hafi grafið sig í jörð. Að vísu er líking af skotgrafahernaði í þessu sambandi varla nothæf, hvað þá sanngjöm. En víst er að þófið og óvissan um stjórnar- myndun setur annarlegan svip á þingstörfin. Það er ekki nýtt að stjórnarkreppur verði hér á landi. Oft hefur tekið langan tíma að mynda ríkisstjórn, svo að það má allt eins kalla reglu eins og und- antekningu að stjórnmyndunar- tilraunir taki langan tíma hér á landi. Er skemmst að minnast langrar stjórnarkreppu 1974, aft- ur 1978 og nú á áramóturn 1979 og 1980. Það hefur oft liðið lengri tími en nú frá kosningum til stjórnarmyndunarsamkomulags. Hringferð með „boltann“ Hitt er annað mál, að myndun starfhæfrar meirihlutastjórnar er ekki í sjónmáli þegar þetta er rit- að 50 dögum frá því að kosning- um til Alþingis lauk. Það gætu þess vegna liðið margir dagar enn (og hver veit hvað) þar til meiri- hlutastjórn sér dagsins ljós. Forystumenn flokkanna hafa hver á fætur öðrum fengið umboð forseta íslands til stjórnarmynd- unar. Fyrstur fékk umboðið (,,boltann“) Steingrímur Her- mannsson, formaður Framsókn- arflokksins. Hann freistaði þess að endurreisa vinstra samstarfið, þ.e. samstjórn Framsóknarflokks, Alþýðubandalags og Alþýðu- flokks. Það bar ekki árangur. Forseti fól því næst Geir Hall- gfímssyni, formanni Sjálfstæðis- flokksins stjórnarmyndun. Hann mun hafa kannað ýmsa mögu- leika, m.a. hvort hugsanlegt væri að fá Alþýðubandalagið til sam- starfs við Sjálfstæðisflokkinn. En í mestri alvöru mun hann hafa fjallað um þjóðstjórnarhugmynd sína, þ.e. stjórn allra þingflokka til stutts tíma. Ekki báru tilraunir Geirs neinn árangur. Því næst Svavar Gestsson frá Alþýðu- bandalaginu að koma á vinstri stjórn, en ekki gekk saman með flokkunum að heldur. Síðar kom Benedikt Gröndal eins og til þess að loka hringferðinni með „bolt- ann“. Óvissa um vinstri stjórn Ég tel yfirleitt að horfur í stjórnarmyndunarmálum séu slæmar. Og færa má mörg rök fyrir því áliti. Þ.á.m. er vinstri stjórn fjarlæg og sést aðeins í hillingum á himni bjartsýnis- manna. En aðalástæðan til þess að ekki er auðvelt (e.t.v. ómögulegt) að mynda vinstri stjórn er augljós viljaskortur í Alþýðubandalaginu og Alþýðuflokknum til þess að taka þátt í slíku stjórnarsamstarfi. Ef viljinn væri fyrir hendi, væri hægt að mynda stjórn á tiltölu- lega stuttum tíma. Milli Alþýðu- flokksins og Alþýðubandalagsins ríkir mikil óvild og er erfitt — að ekki sé meira sagt — að vinna þessa flokka til samkomulags um ríkisstjórn, einkum ríkisstjórn undir forsæti manna úr öðrum hvorum þessara flokka. Eina vonin er sú að Steingrími Her- mannssyni takist að bræða flokk- ana saman á síðara stigi, en eftir síendurteknar yfirlýsingar Svav- ars Gestssonar um að vinstri stjórn sé „úr sögunni“ er sú von harla veik, ef satt skal segja. Hvaða möguleikar koma til greina? Svo vikið sé að öðrum mögu- leikum til stjórnarmyndunar, þá sýnist fjarlægt að gera ráð fyrir samstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðubandalags, þótt í báðum flokkum séu öfl sem gætu hugsað sé slíkt. Eins er vafamál að áhugi sé á samstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks, einkum vegna þess að slík stjórn hefði ekki að öllu starfhæfan meirihluta (vant- ar eitt atkvæði í efri deild: til að hafa þar meirihluta). Stjórri þess- ara þriggja síðast nefndu flokka kemur heldur ekki til greina, ef að líkum lætur. Samstarf við Sjálfstæðisflokk- inn einan á ekki hljómgrunn meðal framsóknarmanna og er ekki til umræðu hjá okkur sem æskileg lausn stjórnarkreppunn- ar, þótt hún sé „fræðilegur" möguleiki eins og stundum er sagt. Sama má segja um sam- stjórn Sjálfstæðisflokks, Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks. Slíkt stjórnarsamstarf er „fræði- lega“ mögulegt og „sterkt" á yf- irborðinu, — en heldur ekki meira. Ef ekki tekst að mynda vinstri stjórn, hygg ég að flestir framsóknarmenn teldu viðun- andi kost, að Framsóknarflokkur, Alþýðubandalag og Sjálfstæðis- flokkur mynduðu ríkisstjórn saman. Slík stjórn gæti orðið sterk, ef vel tækist til. En segja verður eins og satt er, að allir þessir „fræðilegu", „æskilegu" eða „viðunandi" möguleikar til myndunar meiri- hlutastjórnar eru fjarlægir í raun. Sambúðarvandi flokkanna er á því stigi að hann er ekki auð- leystur, e.t.v. óleysanlegur eins og sakir standa. Því má enn búast við langri stjórnarkreppu, ef mark- miðið er að hætta ekki fyrr en búið er að mynda þingræðislega meirihlutastjórn. Á því kann ekki einasta að verða bið, heldur er eins víst að þaþjakist ekki. En hvað er |)á til ráða? Svari hver fyrir sig. Af hverju stafa stjórnarkreppur? Ég ætla ekki að ræða nánar hinar margvíslegu ástæður fyrir sambúðarvanda stjórnmála- flokkanna. Ég læt mér nægja að benda á staðreyndir sem hver maður hlýtur að sjá. Út frá þeim getur hver og einn dregið sínar ályktanir um stjórnmálaástandið og horfur í náinni framtíð. Hins vegar vil ég gjarnan benda öllu skynsömu fólki á að stjórnar- kreppur af því tagi sem við verð- um að þola ár eftir ár eru ekki endilega einstökum mönnum eða flokkum að kenna. Þær geta átt rót að rekja til annars en skamm- sýni og vonsku ráðandi manna á hverri tíð. Mér sýnist að stjórnar- kreppur megi allt eins skrifa b'eint á reikning þess stjórnskipulags, sem Islendingar búa við. Ef sú skoðun mín er rétt, þá verður að vinna að því að bæta úr slíkum ágöllum. Fyrir mína parta hlakka ég til þess þegar stjórnmálaumræðan fer aftur að snúast um annað og fleira en ófrjótt stagl um efna- hagsmál og eiginhagsmunatog- streitu. Lokaorð Nú læt ég þessu alþingisbréfi til Dags lokið. Ég sendi lesendum blaðsins innilegustu óskir um farsæld á þessu nýbyrjaða ári og þakka þeim mörgu, sem látið hafa í ljós við mig ánægju með þessar bréfaskriftir mínar, þótt ófullkomnar séu. Starfsmönnum Dags þakka ég ágætt samstarf og sendi fráfarandi ritstjóra Dags, Erlingi Davíðssyni, sérstaka kveðju og árnaðaróskir um leið og ég býð nýja ritstjórann, Her- mann Sveinbjörnsson lögfræð- ing, velkominn til starfa. Ingvar Gíslason. Þór vann sætan sigur: Varnir liðanna oft í upplausn Á LAUGARDAGINN léku Þór Akureyri og Þór Vest- mannaeyjum. Leikur þessi var nokkuð jafn og skemmti- legur, en þó voru heimamenn sterkari aðilinn. Einu sinni komust Vestmannaeyingar yfir í leiknum en þá komust þeir í 9 mörk gegn 8 á 22. mín. fyrri hálfleiks. 1 hálfleik var staðan 15 gegn 14 fyrir Akureyrar-Þór. I síðari hálfleik náðu heima- menn fljotlega öruggum undir- tökum í leiknum og komust í þriggja og fjögurra marka mun, sem var Þórsurum erfiður. Síð- ustu mín. leiksins voru nánast skotkeppnir milli liðanna og var þá hvert markið skorað á fætur öðru, og varnir liðanna í upp- lausn. Þórsarar tóku það ráð að setja mann á Pálma Pálmason eftir að hann hafði sallað á þá mörkunum í byrjun leiksins, en þá tóku Arnar og Sigtryggur við að stjórna spilinu og gekk það vel. Vestmannaeyingar voru mun sprækari í þessum leik en daginn áður gegn KA, en verma samt botn deildarinnar án þess að hafa fengið nokkuð stig. Akureyrar-Þór hefur hlotið fjögur stig, en verða samt að passa sig ef þeir ætla ekki að lenda í botnbaráttu. í báðum þessum liðum voru tveir fyrrverandi leiðmenn hjá Fram, og voru þeir burðarásar liðanna. Ekki má þó gleyma þætti Árna Stefánssonar hjá Akureyrar-Þór, en hann stóð sig afburðavel í þessum leik og er nú orðinn einn besti hand- ÞÓR(A):31 ÞOR(V):26 boltamaður bæjarins og vex með hverjum leik. Ef svo heldur áfram sem horfir getur Jóhann Ingi eflaust notað hann á línuna í sínu unga landsliði. Flest mörk Þórsara gerði Sigtryggur 7, Árni og Pálmi 6 hvor, Baddi 4 og aðrir færri. Þeir Gústaf og Ragnar voru markhæstir hjá Eyjamönnum, og þar á eftir kom Albert sem áður fyrr lék með Dalvíkingum, KA o.fl. Dómarar voru Guðmundur Lárusson og Ólafur Haraldsson og voru ekki allir sáttir við dómgæslu þeirra, allavega ekki maður. Tryggvi markvörður hjá Þórs- urum, en honum var vikið af leikvelli fyrir að mótmæla dómurum, og fékk hann ekki að koma inná aftur. Lyftingaráð: Blémlegt starf Auðveldur KA-sigur Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ léku í íþróttaskemmunni KA og Þór úr Vestmannaeyjum í annarri deild í handbolta. Þórsarar höfðu ekkert stig hlotið í deildinni þegar að þess- um leik kom, en í fyrra var þetta lið í toppbaráttu með þá Hannes Leifsson og Andrés Bridde í fararbroddi. Þórsarar sóttu ekki gull í greipar KA manna sem unnu auðveldan sigur í leiknum 27 mörk gegn 18, og hefði sá sigur getað orðið stærri. KA komst í þrjú mörk gegn engu í byrjun leiksins og um miðjan fyrri hálfleikinn í 8 gegn 3. f hálfleik var staðan 14 gegn 9 KA í vil. Þá hafði Alfreð Gíslason ver- ið í miklum ham og skorað mikið af mörkum. I síðari hálf- leik settu þeir mann til höfuðs honum, en hann sleit sig lausan hvað eftir annað og skoraði. Á 10. mín. síðari hálfleiks var staðan orðin 21 gegn 12 fyrir KA, og því eftirleikurinn auð- veldur. Lokatölur urðu eins og áður segir 27 gegn 18, og svö stig í höfn fyrir KA, en Þórsarar á botninum stigalausir. Bestir hjá KA voru Alfreð, Gunnar, Þorleifur og Jói, en þeir eru burðarásar liðsins í sókn og vörn. Hjá Þórsurum voru f.v. Framararnir, þeir Gústaf og Ragnar bestir. Alfreð gerði flest mörk KA eða 12, Þoræeifur gerði 7, Jói 4 og aðrir færri. Gústaf gerði 9 mörk fyrir Þór, Ragnar 4 og aðrir færri. Dóm- arar voru Gunnar Jóhannsson og Guðmundur Skarphéðins- son. ÍÞRÓTTASÍÐUNNI barst fyrir skömmu ársskýrsla lyft- ingarráðs Akureyrar fyrir ár- ið 1979. Þar kemur fram að starf LRA var mjög blómlegt á s.I. ári, og þátttaka og ár- angur í mótum mun betri en nokkru sinni fyrr. Æfingar fóru fram í Trölla- dyngju en það kalla lyftingar- menn æfingarhúsnæði sitt í Lundarskóla. Á árinu féll eng- inn dagur úr við æfingar. Skráðar voru rúmlega 5300 æf- ingar og er það um 30% aukning frá árinu áður, og má því segja að húsnæðið sé nýtt til hins ýtrasta. Þeim sem æfa í Trölladyngju má skipta í þrjá hópa. 1. Keppnismenn í lyftingum og kraftlyftingum. 2. Annað íþróttafólk sem leggur stund á þrekþjálfun og alhliða líkamsbyggingu. 3. „Skjaldarvíkurdeildin“ eða sá hópur fullorðinna sem stundar lyftingar sér til ánægju og heilsubótar. Auk þess hafa félagar úr íþróttafélagi fatlaðra notfært sér aðstöðuna. Tækjaskortur hefur nokkuð háð starfseminni, en úr því bættist þó nýlega þar er LRA var fengið til varðveislu ný lyftingartæki sem keypt hafa verið í nýja íþróttahúsið sem er í smíðum. Eins og hjá öðrum íþrótta- mönnum voru ferðalög á árinu mjög mikil. Félagar úr LRA kepptu m.a. á fjórum mótum erlendis, í þremur þjóðlöndum ásamt fjölda innlendra móta. Þeir hlutu samtals sex íslands- meistara og fjölda annarra verðlaunahafa. Á vegum LRA var haldið dómaranámskeið og hlutu sjö félagar full dómara- réttindi. I niðurlagsorðum skýrslu LRA segir m.a.: „Við lok þessa árs lýkur fimmta starfsári Lyft- ingarráðs Akureyrar. Þegar litið er yfir farinn veg er ekki annað séð en að viðun- andi árangur hafi náðst og lyft- ingar og kraftlyftingar hafi unnið sér fast sæti í íþróttalífi Akureyringa." 4.DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.