Dagur - 29.01.1980, Blaðsíða 8

Dagur - 29.01.1980, Blaðsíða 8
DAGUR Akureyri, þriðjudagur 29. janúar 1980 RAFGEYMÁR í BÍUNN, BÁTINN, VINNUVÉUNA VEUIÐ RÉTT MERKI NÝ FERÐASKRIFSTOFA Á AKUR- EYRI LEYSIR TVÆR AF HÓLMI Þcssir tóku þátt i stofnfundinum: F. v. Þorsteinn Thorlacius, Sigurður Aðal- steinsson, Gunnar Sólnes, Einar Helgason, Jón Egilsson, Steinn Lár- usson, Gísii Jónsson, Grétar Br. Kristjánsson og Sveinn Sæmundsson. Mynd: á.þ. Á FÖSTUDAG var stofnað á Akureyri nýtt fyrirtæki til þess að annast ferðaskrifstofurekst- ur og aila almenna fyrirgreiðslu við ferðamenn. Fyrir tækið hlaut nafnið Ferðaskrifstofa Ak- ureyrar h.f. Stofnendur eru fimm, Jón Egilsson og Gísli Jónsson (Ferðaskrifstofu Akur- eyrar), Flugleiðir h.f., Flugfélag Norðurlands h.f. og Ferðaskrif- stofan Úrval. Á stofnfundi sem haldinn var á Akureyri voru samþykktir félagsins staðfestar og stjórn kosin. Ferða- skrifstofa Akureyrar h.f. mun stunda allan almennan ferðaskrif- stofurekstur ásmt farseðlasölu og mun taka við því hlutverki sem söluskrifstofa Flugleiða á Akureyri og Ferðaskrifstofa Akureyrar hafa gegnt undanfarna ártugi. Þá mun skrifstofan annast móttöku ferða- manna, innlendra sem erlendra, annast skipulagningu og fram- kvæmd ferða hér á landi og hafa á hendi farmiðasölu í langferðabif- reiðir. Ennfremur farseðlasölu fyrir Flugfélag Norðurlands. Þá mun Ferðaskrifstofa Akureyrar h.f. annast alla fyrirgreiðslu við þá sem ferðast til útlanda, hvort heldur er í hópferðum eða á eigin vegum, þar með taldar allar ferðir sem Ferða- skrifstofan Úrval skipuleggur. Á stofnfundi Ferðaskrifstofu Akureyrar h.f. var kosin þriggja manna stjórn og tveir í varastjórn. Stjórnin er þannig skipuð: Stjórnarformaður Einar Helgason, Jón Egilsson og Steinn Lárusson. Til vara Sigurður Aðalsteinsson og Kolbeinn Sigurbjörnsson. Endur- skoðendur: Grétar Br, Kristjánsson og Gunnar Kárason. Með stofnun Ferðaskrifstofu Akureyrar h.f. sameinast starfsemi tveggja rótgróinna þjónustuaðila, þ.e. Ferðaskrifstofu Akureyrar sem Jón Egilsson stofnaði 1947 og sölu- skrifstofu Flugleiða, en segja má að sú starfsemi nái allt til þess er Flugfélag Akureyrar hóf flug árið 1938. Ferðaskrifstofa Akureyrar h.f. mun nú annast þá starfsemi sem báðar fyrrnefndar skrifstofur önnuðust áður og ætti núverandi fyrirkomulag að verða til mikils hagræðis fyrir ferðafólk. Sem dæmi má nefna að bókanir I ferðir ganga nú hraðar og að á sama stað eru veittar upplýsingar og seldir far- seðlar í ferðir með flugvélum og ferðir á landi. Ferðaskrifstofa Akureyrar h.f. er í Ráðhústorgi 3, Akureyri. Fram- kvæmdastjóri er Gísli Jónsson og skrifstofustjóri Kolbeinn Sigur- björnsson. Land og synir: Vel heppnuð kvikmynd KVIKMYNDIN „Land og syn- ir“ var sýnd í fyrsta sinn í Borgarbíói á Akureyri á sunnu- Oku fiski fyrir 9 milljónir HÖFNIN á Grenivík er langt frá því að vera fullnægjandi fyrir báta heimamanna, en Grenvík- ingar hafa sífellt keypt stærri og stærri báta á liðnum árum. Vöruflutningaskip geta ekki at- hafnað sig í höfninni og því verða Grenivíkingar að aka framleiðslu frystihússins Kald- baks til Akureyrar. Sé miðað við aflamagn síðasta árs, en frysti- húsið tók á móti 3.400 tonnum, kostaði það alls 9 milljónir að aka fiskinum til Akureyrar. Bátar eru ótryggðir í Greni- víkurhöfn, nema 2 menn séu um borð. Þetta veldur því að sjómennirnir eru mjög bundnir við báta sína í vondum veðrum. „Nú er unnið í að fá fé til hafnarframkvæmda, en til stendur að lengja hafnargarð- inn og reka niður 60—70 metra langt stálþil,“ sagði Pétur Axelsson, fréttaritari Dags á Grenivik. „Eins og málin standa nú geta útgerðarmenn ekki verið með öllu stærri báta og útilokað að skuttogari geti lagst að bryggju til að landa.“ „Fraktskip koma ekki til Grenivíkur og til að losna við afurðirnar frá frystihúsinu verður að aka þeim til Akur- eyrar. Miðað við aflamagnið á síðasta ári og verðlag í janúar kostuðu flutningarnir 9 mill- jónir króna,“ sagði Pétur Axelsson að lokum. Anægja með góða þjónustu EINS og skýrt hefur verið frá í Degi, hefur ríkisskip nú hafið viðkomu á Kópaskeri, en skipin hafa aldrei komið til Kópaskers, síðan þau voru byggð fyrir tæp- um áratug, fyrr en í desember s.l. Skipin hafa nú haft viðkomu tvisvar sinnum og verður væntan- lega áframhald á því. Að sögn Ólafs Friðrikssonar, kaupfélags- dagskvöldið. Húsfyllir var og ekki annað á bíógestum að sjá og heyra, en þeim hafi líkað myndin mjög vel. Eins og öllum mun kunnugt er myndin tekin að mestu leyti í Svarfaðardal og þaðan koma einnig flestir þeir sem leika í myndinni. Hlutur Svarfdælinga er því mjög stór og hann er einnig að sama skapi góður. 1 heild er mynd- in með því allra besta sem framleitt hefur verið hér á landi af þessu tagi. Leikurinn er hnökralaus og maður fær á tilfinninguna að þarna sé á ferðinni raunverulegt líf, en ekki leikverk. Alltof sjaldgæf sjón í ís- lenskri leiklist og á leikstjórinn vafalaust ekki minnstan þátt þar í. Þetta veldur því hins vegar, að sumt í textanum heyrist illa, þar sem hann er ekki „leikinn", heldur tala leikararnir með eðlilegri framsögn. Mest er þetta áberandi hjá hinum hraðmælta, en annars ágæta leik- ara, Sigurði Sigurjónssyni, enda er leikhlutverk hans mest í myndinni. Verkið er oft bráðfyndið, en spilar einnig á aðrar tilfinningar. Kvik- myndataka og lýsing ágæt og klipping áhrifamikil á stundum. Engum ætti að leiðast á þessari sýningu. Myndin verður sýnd í Borgarbíói í kvöld og annað kvöld kl. 6, 9 og 11, en um næstu helgi verður hún sýnd á Sauðárkróki. stjóra á Kópaskeri, breytir þetta allri aðstöðu til þungavöruflutn- inga. Hann sagði að menn væru mjög ánægðir með þetta, og þakk- aði framtakið skilningi skipstjórn- armanna og forstjóra útgerðarinn- ar. Þurft hefur til þessa að flytja alla þungavöru og aðra nauðsynjavöru með bílum, en flutningskostnaður- inn með skipum er um helmingi minni Karlakór Akureyrar 50 ára KARLAKÓR Akureyrar er 50 ára um þessar mundir. Hann var stofnaður 26. janúar 1930, en hafði þá starfað i nær þrjá mán- uði og meðal annars sungið opinberlega einu sinni, 14. des- ember 1929. í tilefni þessara merku tímamóta Karlakór Akureyrar s.l. föstudagskvöld. Mynd: Norðurmynd. í sögu kórsins var afmælisfagnaður s.l. föstudagskvöld og um næstu helgi verða almennir tónleikar I Akureyrarkirkju, auk þess sem sér- stakir styrktarfélagstónleikar verða í vor. Tónleikarnir um næstu helgi verðaklukkan 16 á laugardagog 17 á sunnudag. Auk kórsins syngja eldri félagar, bæði með kórnum og í sérstakri dagskrá. Lúðrasveit Ak- ureyrar leikur með í hluta dag- skrárinnar. Nú eru kórfélagar 45 talsins, meðalaldur þeirra er um 40 ár og sá yngsti 17 ára og aldursforsetinn er 71 árs. Kórinn hefur komið sér upp styrktarfélagakerfi, sem nú eru í á fjórða hundrað manns, og fjár- magna þeir starfið að stærstum hluta. Auk þess hafa eiginkonur (Framhald á bls. 6). Cv j ffll “X -p. r —> 'í ror “ r“? jji QJ LMJ Lru - V i Jj cJL — JJU # Islenskt kjöt kynnt í Frakklandi Nú í febrúar verður haldin sérstök íslandskynning í þremur borgum í Frakklandí á vegum íslenska sendiráðs- ins í París og með þátttöku allmargra aðila. Kynningin verður haldin í borgunum Ly- on, Strasbourg og París og stendur í hálfan mánuð. Meðal annars verður ís- lenskur matur á boðstólum í þessum borgum á meðan kynningin stendur, og þar mun Búvörudeild Sam- bandsins kynna íslenskt dllkakjöt og léttreykt hangi- kjöt. # Affjaðra- og gírkassa- festingum Sigurður Helgason á Hvammstanga hringdi vegna klausu er birtist í þessum dálki undir yfirskriftinni „Út í óvissuna". Sigurður kvað pakkann ekki hafa veriö límdan á fjaðraútbúnað bif- reiðarinnar eins og við hóld- um fram, heldur á bita sem er undir gírkassa bifreiðarinnar. Dagur þakkar leiðréttinguna, en lýsir enn og aftur undrun sinni á að pakkinn skyldi hanga undir bifreiðinni leið- ina: Reykjavík - Húsavík. Annars fá sjónvarpsnotendur að sjá bifreiðina, pakkann og gírkassabitann annað kvöld. § Góðurleikur Siðastliðið föstudagskvöld frumsýndi Leikfélag Akureyr- ar leikritið Púntila og Matti. Leikhúsgestir tóku verkinu vel, en athygli vakti hve skemmtilega Svanhildur Jó- hannesdóttir skilaðf hlutverki sfnu. Það var mikill fengur í þvf fyrir Leikfélag Akureyrar að fá Svanhildi til liðs við sig.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.