Dagur - 12.02.1980, Page 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaöamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf
Ósvífni eða dóm-
greindarleysi?
Þó að margt furðulegt hafi yffir dunið á
stjórnmálasviðinu síðustu mánuðina,
þá taka öllu fram hugmyndir og til-
lögugerð formanns Alþýðuflokksins,
er hann lagði fyrir aðra stjórnmála-
flokka 24. janúar s.l. varðandi stjórn-
armyndunartilraun hans.
í formála fyrir þessu plaggi segir
meðal annars, að þar sé einnig höfð
hliðsjón af hugmyndum og tillögum
annarra flokka. Þetta sé tilraun til
málamiðlunar og tilraun til þess að
koma nýrri hreyfingu á stjórnarmynd-
unarmálið. Annað kemur hins vegar í
Ijós, þegar litið er á tillögurnar, því
þær fela í sér enn meiri hægri stefnu,
heldur en leiftursókn íhaldsins, þó
svört væri. Gert er ráð fyrir að lög-
binda allt kaup, lagt til að upp verði
tekin slík aðhaldsstefna, að atvinnu-
leysi væri óumflýjanlegt, væri eftir
henni farið. Þá var gert ráð fyrir verð-
tryggingu inn- og útlána og stefnt
skyldi að jákvæðum raunvöxtum og
að Seðlabankanum yrði að öllu leyti
falin stjórn peningamála.
Samkvæmt tillögum Alþýðuflokks-
ins átti að taka til endurskoðunar allt
verðlagningarkerfi búvöru, þannig að
eðlileg skil, eins og það var orðað,
áttu að vera milli hagsmuna bænda
og vinnslustöðva. Með öðrum orðum
átti að koma í veg fyrir að framleið-
endurnir sjálfir gætu rekið vinnslu-
stöðvarnar. Þá var gert ráð fyrir því að
Byggðasjóður yrði lagður niður, há-
mark útflutningsbóta yrði þegar á
þessu ári lækkað í 9 prósent og áttu
bæturnar að miðast eingöngu við
sauðfjár- og nautgripaafurðir. Há-
marksákvæði um útflutningsbætur
skyldu eiga við um hvora afurðagrein
fyrir sig, hámark sett á útflutnings-
bætur fyrir hverja sölu, þannig að
bætur yrðu greiddar í hlutfalli við út-
flutningsverð og færu aldrei fram úr
100 prósentum af því. Hvorki átti að
greiða vaxta- og geymslukostnað
búvörubirgða, né umboðslaun til
söluaðila, af útflutningsbótum.
Lækka átti hámark útflutningsbóta í
áföngum úr 10 prósentum, eins og nú
er, í 7 prósent 1982.
Fleira mætti upp telja af göfugum
hugsjónum Alþýðuflokksins í þessu
plaggi. Formaður Alþýðuflokksins
varð undrandi á viðbrögðum fram-
sóknarmanna við þessum tillögum og
talaði um sprengingu í því sambandi,
sem hann virtist ekki skilja hvernig
stæði á. Þó ekki hafi verið nema
vegna landbúnaðarkaflans eins, var
fyllsta ástæða til að hafna algjörlega
viðræðum um tillögurnar. Ef slíkar
tillögur yrðu framkvæmdar, eins og
mál standa nú, þá myndi slík stefnu-
breyting leiða til þess, að fólkið í
sveitunum yrði hrakið þaðan og ekki
myndi það bæta hag margra þeirra,
sem í þéttbýli búa.
Ef þingflokkur Alþýðuflokksins
hefur ekki áttað sig á, að það var blátt
áfram ósvífni að sýna Framsóknar-
flokknum slíkar tillögur, sem um-
ræðugrundvöll til stjórnarmyndunar,
þá er dómgreindarleysið í þeim flokki
enn meira en menn hafa hingað til
gert sér grein fyrir.
Myndin er tekin vorið 1904. Á henni eru skólameistari Jón
Hjaitalfn, kennararnir Magnús Einarsson, Halldór Briem
og Stefán Stefánsson ásamt nemendum f efri bekk skólaár
1903-1904. Eftirtaldir nemendur hafa verið nafngreindir: í
fremstu röð fyrir miðju situr Vilhelmina Sigurðardóttir,
Ragnheiður og Lára Blöndal sitja sitthvorumegin við hana,
en óvíst hvor er hvor. í 3ju röð er fyrsti maður frá vinstri
Gunnlaúgur Tryggvi Jónsson, 3ji maður Kristinn Briem, 6ti
maður Konráð Vilhjálmsson, og 8di maður er talinn vcra
Sigdór Vilhjálmsson. í fjórðu og öftustu röð er 3ji maður frá
vinstri Grfmur Grfmsson. Aðrir nemendur f efri bekk þetta
skólaár voru: Björn H. Guðmundsson, Gfsli Þorgrfmsson,
Guðmundur Ólafsson, Hannes Jónsson, Hjálmar Vil-
hjálmsson, Jón Danfelsson, Jón Kr. Jónsson, Jón Sigurös-
son, Magnús Matthfasson, Methúsalem Stcfánsson,
Rögnvaldur Snorrason, Sigurður Guðmundsson og Þór-
hallur Gunnlaugsson. Þeir sem geta nafngreint þá sem eru á
myndinni, eru beðnir að koma upplýsingum til Tómasar
Inga Olrich, konrektors Menntaskólans á Akureyri (sfmi:
22422) eða á rítstjóm Dags, Tryggvabraut 12, Akureyri.
Ufgerðartæknar:
SERMENNTUN
í ÚTGERÐ
FISKISKIPA
ÞAÐ hefur verið fremur hljótt um
útgerðardeild Tækniskóla ís-
lands, en fyrstu útgerðartækn-
arnir útskrifuðust vorið 1977 og
nú hafa um 50 slíkir hafið störf í
landinu. Þeir hafa fyrstir fslend-
inga hlotið sérmenntun í útgerð
fiskiskipa og allir hafa þeir orðið
að vinna í ákveðinn tíma til sjós
og lands áður en þeir hófu námið
í Tækniskólanum. í skóianum fá
nemendur bóklega og verklega
fræðslu um viðskiptahlið þessara
mála, ýmirkonar fræðslu um skip,
tækjabúnað, veiðarfæri, fisk-
vinnslu, stjórnun og bókhald.
Lengd námstímans fer eftir und-
irbúningsmenntun viðkomandi
og tekur 3 annir eða VA náms-
vetur. Fyrir nokkru komu nem-
endur í umræddri deild til Akur-
eyrar til að kynna sér starf ýmissa
fyrirtækja hér í bæ — reymdar
ætluðu þeir líka út á Dalvík, en
vegna þess hve dagskráin var
strembin sáu þeir sér það ekki
fært. Dagur hitti tvo nemendur að
máli — annar er reyndar fyrrum
sjómaður á fertugsaldri — og
þeir urðu fúslega við þeirri bón
blaðsins að fræða lesendur um
námið, en í upphafi þótti rétt að
spyrja um hvaðan af landinu þeir
kæmu.
m
I
Pétur.
Heimir.
Starfið gott
veganesti
Pétur Olgeirsson er 34 ára, frá
Húsavík, og hefur stundað sjó-
mennsku í ein 20 ár. Hann gekk í
stýrimannaskólann í Reykjavík,
en hafði í hyggju að fara í land og
komst þá að raun um að nú til
dags verða menn að geta veifað
prófblöðum ef þeir vilja fá vinnu
við sitt hæfi. Heimir Hávarðsson
kemur hins vegar frá Súganda-
firði og er 25 ára að aldri. Heimir
hafði verið 3 vetur í Menntaskól-
anum á tsafirði og stundaði síðast
sjómennsku á skuttogaranum
Guðbjörgu.
Eflaust munu þessir tveir og
flestir sem taka próf sem útgerð-
artæknar — hafa síðar með
höndum útgerð fiskiskipa. Er það
vel að nemendur hafa allir
stundað sjómennsku og unnið í
frystihúsum í landi því það mun
ugglaust verða þeim gott vega-
nesti.
Náminu í útgerðartækni má í
grófum dráttum skipta í tvo þætti,
annars vegar í rekstrar- og við-
skiptafræði og hinsvegar hrein
útgerðarfræði. Rekstrarkennslan
spannar yfir mjög vítt svið og er
reynt að veita nemendum innsýn
í sem flestar greinar. Helstu
kennslugreinar rekstrarhlutans
eru: 0 Bókfærsla og skrifstofu-
störf. Nemendum er gert að
kunna skil á almennri bókfærslu,
uppgjöri reikinga og þekkja til
skrifstofustarfa yfirleitt. 0 Þrjár
Myndir úr sögu Mennta-
skólans á Akureyri
greinar hagfræði. Þjóðhagfræði
sem fjallar um helstu hagfræði-
kenningar, hag þjóðfélagsins og
uppgjör þjóðarreikninga. Fiski-
hagfræði. Hennar svið er auðæfi
hafsins þ.e. fiskurinn og skyn-
samleg nýting hans. 0 Rekstrar-
hagfræði. Rekstur framleiðslunn-
ar og hagræn stjórnun hennar £
Reksturstækni. Hún tekur yfir
vítt svið og fjallar t.d. um at-
vinnurannsóknir, afkastaaukandi
kaupgreiðslukerfi, verksmiðju-
skipulagningu, framkvæmda-
áætlanir og fl. 0 Fjármál. I þeim
er tekið fyrir innkaup birgða,
birgðahald, framleiðslulotur,
fjárfestingareikningar og
greiðsluáætlanir. Auk þess er
fjallað um lögfræði, trygginga-
mál, ensk viðskiptabréf og skatt-
skil.
Þá er komið að þeim greinum
sem snúa beint að útgerð og fisk-
vinnslu % Veiðarfæri. Þar eru
kynnt algengustu veiðarfæri og
veiðiaðferðir, viðhald og þjón-
usta könnuð og verðsamanburð-
ur gerður. £ Fiskvinnsia Fjallað
á mjög raunhæfan hátt um fisk-
verkun og fiskmat. Menn úr
greinum fiskvinslunnar koma og
miðla af þekkingu sinni. og nem-
endur komast í beina snertingu
við fiskinn í frystihúsi fisk-
vinnsluskólans í Hafnarfirði. 0
Veiðiaðferðir. Sú grein tekur fyrir
stjórnun veiða og útgerðar svo og
samskipti við lánastofnanir £
Skipið, vélin og rafeindatækni,
eru þrjár greinar er fjalla um
skipið tæknilega. Þá má að lokum
nefna % fiskifræði og gerlafræði.
Finna leiðir til
úrbóta
Námið er að stórum hluta
byggt upp á heimsóknum og
skoðunarferðum í fyrirtæki og
stofnanir sjávarútvegsins og
menn úr greinum hans koma í
hverri viku og miðla af reynslu
sinni. Þá eru farnar ferðir eins og
sú sem nemendurnir fóru í til
Akureyrar. Hins vegar telja
margir nemendumir að mikil-
vægasti þáttur námsins sé hið svo
kallaða lokaverkefni, en þá velja
nemendur sér, einn eða fleiri,
fyrirtæki sem starfrækir bæði út-
gerð og fiskvinnslu. Eiga þeir að
fara yfir bókhald fyrirtækisins,
reikna út fjárhagsstöðu þess,
finna framlegð hinna ýmsu veiða
og vinnslugreina, athuga stjórn-
unarþætti, vinnslurásir, nýtingu á
vinnslu aflans og reyna að benda
á leiðir til úrbóta á ýmsum svið-
um, ef hægt er að gera betur.
Nemendur úr deildinni hafa
gert slíka úttekt á Útgerðarfélagi
Akureyringa og nú ætlar Pétur
ásamt öðrum nemenda. að gera
slíka úttekt á Fiskiðjunni á Húsa-
vík.
DAGUR: Svo virðist vera að
fólk rugli oft saman Fiskvinnslu-
skólanum í Hafnarfirði og út-
gerðardeildinni í Tækniskólan-
um.
PÉTUR: Þetta kemur efalaust
af því að deildin við Tækniskól-
ann hefur lítið sem ekkert verið
kynnt almenningi. Náminu í
okkar deild hefur þegar verið lýst
hér að framan, en Fiskvinnslu-
skólinn í Hafnarfirði er m.a.
ólíkur því okkar deild að því leyti
að þeir fást við meðhöndlun
matvælanna, en við um rekstur-
inn. Annars er námið skylt á
sumum sviðum en munurinn þó
greinilegur.
Þeir félagar sögðu að það væri
athyglisvert hve mikil hiigarfars-
breyting ætti sér stað meðal nem-
enda meðan á náminu. stendur.
Nemendum er veitt innsýn í
vandamál, sem upp koma hjá
fiskifræðingum svo dæmi sé nefnt
og hvaða vandamál kunna að
koma upp hjá frystihúsum. „Það
er merkilegt að of lítið ec gert af
UUUUUJB
4.DAGUR
Trollið tekið inn um borð f Bjarna Herjúifssyni.
Saltfiskverkun.
því að stjórna fyrirtækjum I
gegnum bókhaldið,“ sagði Pétur.
„Það er frekar að stjórnendurnir
hugsi aðeins um líðandi stund. Ef
þetta eitt breyttist væri stóru tak-
marki náð í sambandi við nýtingu
á hráefni."
DAGUR: „Þið viljið sem sagt
halda því fram að útgerðartæknir
eigi auðvelt með að gera rekstur
margra frystihúsa hagkvæmari?"
Heimir: „Það teljum við alveg
tvímælalaust. Námið miðar allt
að því og námsefnið er gott. í
náminu er sífellt verið að reyna
að svara þeim spurningum
hvemig hægt er að bæta rekstur-
inn tæknilega og bókhaldslega.
Söngtæknir?
Nú er starfandi nefnd innan
Tækniskólans sem vinnur að því
að fá nafnið „tæknir" löggilt
þannig að enginn megi titla sig
„tæknir“ án þess að hafa lokið
prófi við Tækniskólann. M. ö. o. á
að koma í veg fyrir að Guðrún Á
Símonar geti nefnt sig „söng-
tækni." Þá eru uppi um það
raddir í Tækniskólanum að það
sé ekki réttlátt að nemendur
Fiskvinnsluskólans útskrifist með
ákveðin réttindi, en útgerðar-
tæknar fá í sjálfu sér engin starfs-
réttindi að námi loknu. Hinsvegar
útskrifast nemendur Fiskvinnslu-
skólans með ákveðin réttindi. —
t.d. matsréttindi.
En hvaðaréttindi fá útgerðar-
tæknar í aðra skóla? Pétur og
Heimir sögðu að þess væru dæmi
að menn færu til Tromsö í Noregi
í 4ra ára nám í útgerðartækni.
Eini gallinn við það nám er sá, að
um nokkra endurtekningu er að
ræða fyrsta árið. Einnig geta
nemendur farið í viðskiptafræði-
deild Háskóla fslands. Nokkrir
útgerðartæknar eru í þeirri deild
og sagði Heimir að þeim gengi
yfirleitt ágætlega.
HEIMIR: Það sem okkur
vantar tilfinnanlega hér á landi er
t.d. 2ja ára viðbótamám fyrir út-
gerðartækna. Ég held að skólayf-
irvöld séu að hugsa um þennan
möguleika, en hvenær hann
verður að veruleika er ekki gott
að segja. Þetta viðbótarnám ætti
ekki að vera hugsað eingöngu
fyrir útgerðartækna, fisktæknar
ættu líka að geta farið í þessa
deild.
DAGUR: Hvað ætlið þið svo
að gera eftir útskrift í vor?
PÉTUR: Ég lauk Stýrimanna-
skólanum á sínum tíma og komst
að því að sú menntun nýtist ekki
nógu vel í landi. Ég fór fyrst og
fremst í þetta nám til að öðlast
meiri þekkingu sem gæti komið
sér vel í landí.
HEIMIR: Þarna var mér gef-
inn kostur á stuttu námi. Ég hafði
hætt í skóla og stofnað heimili og
gat ekki auðveldlega farið í langt
nám. Ég hef mikinn áhuga á
sjávarútvegi og öllu sem honum
viðkemur, en í land get ég ekki
farið fyrr en búið er að greiða
skuldimar sem hafa safnast sam-
an. Ef til væri t.d. 2ja ára deild,
sem væri beint framhald af nú-
verandi námi, gæti ég vel hugsað
mér að fara í það nám.
DAGUR þakkar þeim Heimi og Pétri
fyrir samtalið og vonar að þær upp-
lýsingar sem þeir félagar veittu blað-
inu, geti vakið áhuga einhverra fyrir
námi í útgerðartækni við Tækniskóla
Islands.
(slandsmótið í
körfubolta 1 deild:
Þór sigraði
Borgarnes
í spennandi leik
Á FÖSTUDAGKVÖLDIÐ
léku Þór og Borgarnes í
fyrstu deild í kröfubolta.
Borgnesingar fengu til liðs
við sig blökkumanninn Dak-
asta Webster, eða „Spóann“
eins og hann er gjarnan
nefndur og var því búist við
spennandi leik.
Þórsarar eru hins vegar í
mikilli sókn í körfuboltanum og
veittu því Borgnesingum verð-
uga keppni. Þeir höfðu yfirleitt
yfirhöndina, en einstöku sinn-
um tókst Borgnesingum að
jafna, en Þórsarar náðu alltaf
yfirhöndinni strax aftur.
Það var að venju Bandaríkja-
maðurinn Gary sem var at-
kvæðamestur í liði Þórs, en
hann stóð sig mjög vel. I hálfleik
var staðan 34-32 Þór í vil. Þór
náði fljótlega 8-10 stiga mun í
byrjun síðari hálfleiks, og hélt
yfirhöndinni allan leikinn.
Rétt fyrir lok leiksins lögðu
Borgnesingar allt í sölurnar til
að komast yfir, og gerðu síðustu
körfurnar, en Þór sigraði með
78 stigum gegn 76.
Gary var bestur hjá Þór og
jafnframt stigahæstur með 42
stig, Eiríkur var með 16, Alfreð
10 og aðrir færri. „Spóinn“ var
lang stigahæstur hjá Borgnes-
ingum með 44 stig.
3. deild handbolti:
Dalvík
sigrar
Selfoss
UM HELGINA léku Dalvík-
ingar og Selfyssingar í þriðju
deild í handbolta, og var leikur-
inn á Dalvík. Dalvíkingar sigr-
uðu í leiknum, gerðu 26 gegn 23.
Atkvæðamestur hjá Dalvfking-
um var Vignir Hallgrfmsson en
hann gerði 13 mörk. Þetta er
annar sigur Dalvíkinga í deild-
inni, en Selfyssingar eru á botn-
inum.
Aðalfundur KA
SUNNUDAGINN
17. þ.m. kl. 13.30
verður aðalfundur KA
og verður hann hald-
inn að Hótel Varð-
borg. Á fundinum
verða venjuleg aðal-
fundarstörf, og eru
KA félagar hvattir til
að fjölmenna.
KA gjörsigraði Ármann
KA MENN mættu ákveðnir
til leiks þegar liðið tók Ár-
mann í kennslustund um síð-
ustu helgi. KA náði strax
forystu og lét hana aldrei af
hendi. Mestur var munurinn
10 mörk 24-14. í hálfleik var
staðan 13-8.
Strax í byrjun leiks kom það í
ljós sem skóp stórsigur þeirra.
Sterk vöm samfara stórgóðri
markvörslu Gauta, sem varði
meðal annars fjögur víti, og í
sóknarleiknum var knötturinn
látinn ganga og ekki skotið fyrr
en í öruggu færi. Að vísu var
vandséð í þessum leik hvað var
óöruggt færi hjá Alfreð Gísla-
syni, en hann átti stórleik bæði í
vöm og sókn.
I síðari hálfleik reyndu Ár-
menningar að taka Alferð úr
umferð í sókninni, enda rík
ástæða til því hann hafði skorað
átta af þrettán mörkum KA
manna. Við þetta opnaðist leið
fyrir Þorleif sem skoraði þá
fjögur mörk úr horninu. Þá var
Gunnar mjög ógnandi og skor-
aði meðal annars tvö stórglæsi-
leg mörk, annað úr horninu og
hitt nokkuð fyrir utan punkta-
línu, þar sem hann gnæfði yfir
aðra leikmenn og þrumaði
knettinum í netið.
. Mörk KA Alferð 12 (3),
Gunnar 6 (1), Þorleifur 5 og
Ármann Sverrisson 2.
Markahæstur í liði Ármenn-
inga var Smári Jósafatsson 6.
KA - Þróttur:
Jafnað á síðustu sekúndu
ÞEGAR ein mínúta var eftir
af leik KA og Þróttar í
Laugardalshöllinni skoraði
Þorleifur fyrir KA og var þá
staðan 20-22. Þróttarar voru
einum færri. Knötturinn gekk
á milli Þróttara og endaði
með skoti sem Gauti varði,
KA brunaði upp og Þorleifur
skoraði. 20 sek eftir og allt
orðið vitlaust í höllinni.
Þróttur hóf leikinn og fóru
sér rólega, en lánið var með
KA mönnum og Þróttur
missti knöttinn, KA brunar
fram og Ármann nær að
skjóta og um leið og knött-
urínn small í netinu hringdi
bjallan, leiknum lokið og KA
menn fögnuðu stiginu.
KA byrjaði leikinn af krafti
og komst í 3-1. Þróttur jafnaði
og komst yfir 4-3 og allt til síð-
(Framhald á bls. 7).
Úr leik Þórs og Borgarness. Mynd: Ketill.
Þór fékk slæmar mót-
tökur í Eyjum
ÞÓRSARAR gerðu enga
frægðarferð til Vestmann-
eyja um heigina. Þeir fóru og
léku við Eyjaliðin Þór og Tý í
annarri deild í handbolta.
Fyrst léku þeir við Tý, en það
lið var talið sterkara. Þórs-
arar höfðu yfirhöndina allan
leikinn, þangað til á síðustu
mín. Þeir höfðu þá fjögurra
marka mun, en Týrurum
tókst að jafna og komast yfir
og sigruðu með einu marki.
Daginn eftir léku Þórsarar
við Eyja-Þór, sem ekki hafði
hlotið nema tvö stig í deildinni
til þessa. Eyja-Þór vann léttan
sigur yfir nafna sínum frá Ak-
ureyri.
Staða Þórs í deildinni er mjög
slæm eftir þessi töp, en þeir hafa
áður staðið tæpt og bjargað sér,
og það munu þeir eflaust gera
nú. Viðmælandi íþróttasíðunn-
ar sagði að eftir væri að leika við
KA, en þar ættu þeir gefin tvö
stig. Hvort handboltamenn KA
sætta sig við þessi ummæli skal
látið ósagt.
DAGUR.5