Dagur - 12.02.1980, Blaðsíða 8
DAGUR
Akureyri, þriðjudagur 12. febrúar 1980
SIMI
22875
22701
Slippstöðin afhendir nýtt skip:
Smíðin tók
12 mánuði
LAUGARDAGINN 9. febrúar
var nýsmíði Slippstöðvarinnar
h.f. nr. 62 afhent eigendum, Út-
gerðarfélaginu Hilmir h.f. á Fá-
skrúðsfirði. Samningurinn um
smíði skipsins var undirritaður í
apríl 1978 en fékk ekki stað-
festingu hlutaðeigandi yfirvalda
fyrr en í lok ágúst sama ár og
tafði það nokkuð upphaf smíð-
innar. Fyrsti botnhlutinn var
lagður á garða um miðjan
febrúar 1979, skipið var sjósett
4. janúar s.l. og var þá skírt
Hilmir SU 171, og er nú smíði
þess lokið réttum 12 mánuðum
eftir „að kjölurinn var lagður.“
Hönnun skipsins og undirbún-
ingur smíðinnar var að öllu leiti í
höndum Slippstöðvarinnar h.f.
Hönnunin miðaðist í megin drátt-
um við það að skapa burðarmikið
fiskiskip við takmarkaða djúpristu
(vegna takmarkaðs dýpis fmörgum
höfnum) og viðundandi gang-
hraða.
Að loknum líkantilraunum á
mótstöðu og ganghraða var ákveð-
ið að byggja svokallað perustefni á
skipið sem eykur ganghraða þess
um 0,7 hnúta við „ballest“ djúp-
ristu og við mesta vélarafl eða
minnkar orkuþörfina við samsvar-
andi ganghraða um 23%. I reynslu-
siglingu voru niðurstöður líkantil-
raunanna staðfestar og reyndist
meðalganghraði við „ballest“
djúpristu 14,0 hnútar. Vélarafls-
þörf fyrir 12 linúta hraða og
reynslusiglingaraðstæður er 995 hö
í „ballest" og 1345 hö við fulla
hleðslu.
Hilmir er hannaður og útbúinn
sem fiskiskip til hringnóta- og flot-
vörpuveiða með 2 nótakassa, hvorn
um 100 m3, sem er nægileg stærð
fyrir stærstu hringnætur, og með
flotvörpuvindu og sérstakar
geymslutrommlur fyrir tog- eða
snurpuvíra þannig að hægt er að
skipta um veiðiaðferð fyrirvara-
laust.
Lestarrýminu, samtals 1330 m3,
er skipt niður í einangraða kælilest,
6 einangraða sjókæligeyma og
milliþilfarslest Allar lestar eru út-
búnar til flutnings á lausum fisk-
farmi svo sem loðnu.
Andveltigeymir er innbyggður á
milliþilfari framan við milliþilfars-
lestina og á hann að minnka útslátt
í veltingi um allt að 45-50% í vissum
hleðslutilvikum.
Til að auka stýris- og stjórnhæfni
skipsins einkum með tilliti til nóta-
veiða eru 2 þverskrúfur í skipinu:
að framan 350 hö skiptiskrúfa,
beint drifin um vinkilgír frá hjálp-
arvél staðsettri fremst á milliþilfari,
framan við andveltigeymi, aftari
þverskrúfan er vökvadrifin, 500 hö,
1450 mm í þvermál. Þverskrúfurn-
ar eru af gerðinni Brunvoll.
Auk þess hefur skipið svokallað
stýrisblað með „ugga“ og reyndist
snúningsþvermál skipsins vera að-
eins 120 m þegar stýri var lagt hart í
borð á fullri ferð áfram. Aðalvél er
af gerðinni WICHMANN. Hjálp-
arvélar eru 2 af gerðinni CATER-
PILLAR. Aðalvél er búin til
brennslu á svartolíu.
Til upphitunar á íbúðum,
Tæknileg aðstoð
FYRIR skömmu var stofnað
nýtt fyrirtæki á Húsavík,
Tækniþjónustan. I viðtali við
einn starfsmann fyrirtækisins
kom fram að 1967 var stofnsett
á Húsavík fyrirtæki sem nefnd-
ist Tækniþjónustan s/f. Um
nokkurra ára skeið lá starfsemi
fyrirtækisins niðri en hófst á ný
um áramótin.
Á sínum tíma var starfsemin
Hrísey 11. febrúar.
SNÆFELLIÐ kom með 143.6
tonn síðasta fimmtudag. Aflinn
var mest þorskur. Skipið kom
með til hafnar rúm 3000 tonn á
síðasta ári, en hingað bárust þá
tæp 4000 tonn.
Hér er næg atvinna og við erum
harðánægð með nýju stjórnina. Nú
eingöngu bundin við ráðgjöf og
hönnun á sviði byggingartækni, en
verksviðið er nú víðtækara og
tækniþjónustan veita alhliða þjón-
ustu á sviði byggingar- rafmagns-
og véltækni. Verkefni eru meðal
annars á sviði hönnunar, eftirlits-
störf, gerð útboðsgagna og öflun
tilboða, eftirlitsstörf, gerð útboðs-
gagna og öflun tilboða, svo eitthvað
sé nefnt. Til að geta veitt við-
skiptavinum sínum sem öruggasta
róa tveir bátar með net og afla þeir
sæmilega. Ein trilla, Sunnufell, rær
með Lofotlínu. Leikfélagið Krafla
æfir nú „Venjuleg fjölskylda" und-
ir leikstjórn Árna Tryggvasonar.
Hann er að æfa leikrit á Akureyri,
en skreppur hingað til að segja
okkur til. Leikfélagið stefnir að því
að frumsýna í næsta mánuði. S.F.
þjónustu og einnig til að geta sinnt
umfangsmiklum verkefnum hefur
Tækniþjónustan samvinnu við
verkfræðistofur á Akureyri og
Reykjavík.
Löngum hafa fyrirtæki og ein-
staklingar í Þingeyjarsýslu kvartað
yfir því að þjónusta sem þessi væri
ekki fáanleg í sýslunni. „Því vilja
starfsmenn Tækniþjónustunnar
bæta úr brýnni þörf og auðvelda
mönnum leit á lausn á tæknilegum
vandamálum heima í héraði,“
sagði viðmælandi blaðsins að
lokum.
Hjá Tækniþjónustunni starfa nú
þegar þrír tæknifræðingar sem hver
um sig hefur sitt sérsvið. Þeir eru:
Egill Olgeirsson rafmagnstækni-
fræðingur, Guðjón Halldórsson
véltæknifræðingur og Þorvaldur
Vestmann byggingatæknifræðing-
ur. Tækniþjónustan er að Garðars-
braut 12, Húsavík.
Snæfellið aflar vel
Ríkið veldur Skútu-
staðahrepp vandræðum
FYRRI umræða um fjárhags-
áætlun Skútustaðahrepps var í
síðustu viku. Síðari umræðan
verður vart fyrr en fjárlög ríkis-
sjóðs liggja fyrir, en frekari
dráttur á þeim getur valdið
hreppnum miklum erfiðleikum,
t.d. í sambandi við útboð á
sundlauginni.
Heildartekjur hreppsins eru
áætlaðar tæpar 200 milljónir króna.
Rekstrargjöld eru áætluð röskar
130 milljónir og til eignabreytinga
tæpar 70 milljónir. Útsvör eru
áætluð 107,5 milljónir, aðstöðu-
gjöld 10,9 milljónir, fasteignaskatt-
ur 11,1 milljón og jöfnunarsjóðs-
framlagið er 24,1 milljón. Kísiliðj-
an og fyrirtæki á vegum hennar
greiða samtals 37.250 þúsund í
gjöld til hreppsins. Af gjaldaliðum
má nefna að yfirstjórn sveitarfé-
lagsins er áætluð að kosti 25,5
milljónir, til almannatrygginga og
félagsmála fara tæpar 20 milljónir
og til fræðslumála 28 milljónir.
Styrkja Björn á vetrar-
Olympíu-
leikana
Á SÍÐASTA bæjarstjórnarfundi
á Húsavík kom fram eftirfarandi
tillaga frá Frey Bjarnasyni:
„Bæjarstjórn Húsavíkur veiti
Birni Olgeirssyni, sem valinn
hefur verið í Olympíulið Islands
á vetrarolympíuleikana nú í
febrúar, kr. 300.000,- í ferða-
styrk.“
Tillagan var samþykkt með 9
atkvæðum.
Á laugardaginn afhenti Slippstöðin h.f. nýjum eigendum nóta- og togveiðiskipið
Hilmi SU. Siglt var um Eyjafjörð og var fjöldi gesta um borð, sem þáði veitingar
fyrirtækisins. Myndin var tekin þegar Gunnar Ragnars, forstjóri Slippstöðvarinnar,
afhenti Jóhanni Antoníussyni, útgerðarmanni og eigenda skipsins, haffærisskirtein-
in. Með þeim á myndinni eru Stefán Reykjalin, stjórnarformaður Slippstöðvarinnar,
og Sverrir Júliusson, meðeigandi i Hilmi. Dagsmynd: h.s.
neyzluvatni svo og ýmsum hiturum
1 sambandi við svartolíu- vélbún-
aðinn er nýtt hitaorka frá kælivatni
aðalvélarinnar sem annars væri
dælt fyrir borð.
Einnig tekur ferskvatnseymari
gerð Atlas með afkastagetu 1,2
t/sólarhring nauðsynlega orku frá
kælivatni.
í vélarrúmi er hljóðeinangraður
vélgæzluklefi.
(Framhald á bls. 6).
Samsýning í Háhóli
LAUGARDAGINN 16. febrúar
verður opnuð samsýning ungs
myndlistarfólks 1 Gallery Háhó,'
sem allt hefur vakið eftirtekt á
síðustu árum fyrir góða mynd-
gerð. Þeir sem sýna eru: Gunnar
Öm, örn Þorsteinsson, Gunn-
laugur Stefán Gíslason, Helgi
Vilberg, Jónína Guðnadóttir og
Guðmundur Ármann. Myndirn-
ar eru unnar í olíu, vatnslit og leir
og allar til sölu. Sýningin verður
opnuð sem fyrr segir 16. feb. kl.
15.00 og stendur til 24. febr. Opin
virka daga kl. 20.00 til 22.00 og
um helgar kl. 15.00-22.00
Skákþing 1980
SKÁKÞING Norðlendinga
1980 verður haldið að Húna-
völlum í A.-Húnavatnssýslu
21.-24. febrúar. Skákþingið er
lialdið árlega og síðast var það á
Akureyri. Þátttaka var þá góð.
Teflt verður í meistaraflokki,
unglingaflokki og kvennaflokki. í
meistaraflokki verða tefldar sjö
umferðir eftir Monrad-kerfi.
Að skákþinginu loknu sunnu-
daginn 24. febr., verður Hraðskák-
mót Norðlendinga haldið á Húna-
völlum.
Þátttökutilkynningar á skák-
þingið og hraðskákmótið þurfa að
berast fyrir 15. febrúar til Jóhanns
Guðmundssonar, Holti, sími 95-
7127 eða til Jóns Torfasonar,
Torfalæk, sími 95-4286.
0 Ábreiður
á hesta
f nýjum Eiðtaxa er sagt frá því
að Ertendur Erlendsson á
Sólbergi við Hafnarfjörð hef-
ur hafið framleiðslu á yflr-
breiðslum á hesta. Þær eru úr
ullaráklæði frá Álatossi,
vandlega faldaðar og í ýms-
um litum.
skemmst að minnast átaka
íbúa í raðhúsi nokkru á Akur-
eyri við byggingafyrirtæki.
Mál það er nú fyrir hæstarétti.
Fólk sem hefur í hyggju að
kaupa ibúðir af fyrirtækjum
ætti að athuga vel sinn gang
— t.d. að rannsaka í hljóði
hvort fyrirtækið sé ekki
stöndugt og hvort það hafi
ekki greitt opinber gjöld, sé
búið að gera hreint fyrir sín-
um dyrum gagnvart opinber-
um aðilum.
• Húsbyggj-
endur
öðru hvoru má sjá í btöðum
hrakfallasögu húsbyggjenda
— eða réttara sagt þeirra
sem kaupa íbúðir af bygg-
ingaverktökum. í því tiiefni er
% Hafbeit
Að undanförnu hefur mikið
verið rætt um hafbeit. Sér-
fræðingar telja margir að á
því sé enginn vafi að hægt sá
að útfæra hafbeit laxa með
hagnaði.