Dagur - 11.03.1980, Blaðsíða 8
DAGTJR
Akureyri, þriðjudagur 11. mars 1980
VARAHLUTIR ?<«■
VIÐŒRÐIB 22701
Starfsmenn við útskipun á kísilgúr:
GETA VART NOTAÐ RYKGRÍMUR
VEGNA ÓÞÆGINDA naasssaL.
„ÞVf MIÐUR er það svo að
flestir starfsmanna vilja ekki
nota rykgrímur um borð í kísil-
skipunum þegar þau eru lestuð
á Húsavík. Sama máli gegnir
um starfsmenn í vörugeymslu.
Um hættuna við þessa vinnu er
það að segja að í fyrra var gerð
rannsókn á henni og kom í ljós
að liún er 14-15 falt yfir hættu-
marki. Athugunin var gerð í
röku lofti og væntanlega er
hættan enn meiri þegar útskip-
unin fer fram í þurru veðri“,
sagði Margrét Auðunsdóttir,
heilbrigðisfulltrúi á Húsavík í
samtali við DAG.
Ástæðan fyrir því að starfs-
menn við útskipun á kísilgús vilja
ekki allir nota rykgríntur er sú að
grímurnar eru óþægilegar og
menn svitna undir þeim þegar
líður á vinnudaginn. Að jafnaði
eru 22-23 í lest hverju sinni.
Margrét sagði að til stæði að
gera rannsókn á heilsufari þeirra
sem vinna við útskipunina, en sú
hætta vofir yfir þeim sem vinna
þar, án þess að nota grímur, að
fá „steinlunga". Hér er um að
ræða sjúkdóm sem herjar gjarnan
á verkamenn í námum erlendis.
verkamenn í námum erlendis.
„Þetta er örfínt kísilryk sem sest
að í lungnáblöðrunum og leiðir
til alvarlegs sjúkdóms,“ sagði
Margrét.
Unnið við útskipun á kisilgúr.
Samningur um
hönnun brúar á
Glerá
BÆJARRÁÐ hefur heimilað
bæjarverkfræðingi að undirrita
f.h. Akureyrarkaupstaðar, verk-
samning við verkfræðingana
Einar Hafliðason og Pétur
Ingólfsson og Röngvaid Gunn-
arsson tæknifræðing um verk-
fræðivinnu við fyrirhugaða brú á
Glerá á Hlíðarbraut í samræmi
við framlagt samningsuppkast.
*
Vilja ekki greiða
fyrir heita
vatnið
HITAVEITUSTJÓRI skýrði
frá því á fundi í stjórn hitaveit-
unnar fyrir skömmu að nokkur
brögð væru að því að eigendur
fasteigna létu undir höfuð
leggjast að greiða reglulega af-
notagjöld fyrir heitt vatn. Stjórn
Hitaveitu Akureyrar fól hita-
veitustjóra að gera viðhlítandi
ráðstafanir til að innheimta
vangreidd afnotagjöld.
TONLISTARUNENDUR
HAMRAHLfDARKÓRINN
IAKUREYRARKIRKJU
NÆSTKOMANDI sunnudag
syngur Hatnrahiíðarkórinn í
Akureyrarkirkju og hefjast tón-
leikarnir kl, 20.30. Stjórnandi
kórsins frá upphafi hefur verið
Þorgerður Ingólfsdóttir og
verður efnisskrá kórsins að
venju hin fjölbreyttasta —
þjóðlög og samin kórtónlist frá
ýmsum löndum og tímum. Einn-
ig leika félagar kórsins með á
hin aðskiljanlegustu hljóðfæri.
Heimsókn kórsins til Akureyrar
er skipulögð af Tónlistarfélagi Ak-
ureyrar og Tónlistarfélagi M.A., en
kórinn syngur einnig á mánudeg-
inum 17. mars fyrir nemendur
Menntaskólans á Akureyri i sam-
bandi við listaviku þeirra, og verð-
ur aðgangur þar ókeypis, en önnur
efnisskrá.
Tónleikarnir á sunnudaginn eru
fyrstu tónleikarnir af fimm sem
Tónlistarfélagið efnir nú til í sér-
Búið að draga
í GÆR var dregið um aukaverð-
laun í fjórðu myndagátunni. N.k.
fimmtudag verður greint frá
vinningshafanum og um leið
birtist fimmta myndagátan. Það
er ekki of seint að vera með — þú
getur fengið blöðin með mynda-
gátunum sem hafa þegar birtst á
afgreiðslu DAGS. Munið að til
þess að vera með, þegar dregið er
um aukaverðlaunin, þarf lausn að
hafa borist blaðinu hálfum mán-
uði eftir að myndgátan birtist.
Vesturheimsferðir
stakri röð áskriftartónleika, og
kemur það í kjölfar söfnunar
áskriftarfélaga, sem hafin var í
haust og stendur enn yfir. Tilboð
félagsins er mjög hagstætt því gef-
inn verður 40% afsláttur á áskrift-
arskírteinum miðað við að kaupa
miða í lausasölu. Sjá auglýsingar
félagsins.
Að sjálfsögðu byggjast slík tilboð
á mikilli þátttöku, og það er þvi
aðeins unnt að standa við slíkt til-
boð að um 200 manns sæki þessa
tónleika.
Askriftarskírteini verða til sölu
ásamt miðum á einstaka tónleika í
Bókabúðinni Huld, í Tónlistar-
skólanum og einnig við innganginn
1 klst. fyrir tónleika.
Frá TónlistarfélagiAkureyrar.
Skemmtigarður f Gimli.
EINS og mörg undanfarin ár
hafa Þjóðræknisfélögin í
Reykjavík og á Akureyri unnið
að ferðum til Kanada í félagi við
Þjóðræknisfélögin vestan hafs
og ferðaskrifstofuna Viking
Travel á Gimli. Samvinnuferðir
skipuleggja ferðirnar, sem nú í
sumar verða tvær og stendur
hvor um sig í þrjár vikur.
Sú fyrri hefst 1. júlí og verður
farið alla leið til Vancouver og lýk-
ur 23. júlí. Seinni hefst 30. júlí og
verður farið til Winnipeg og komið
til baka úr þeirri ferð 21. ágúst. Sú
ferð er í sambandi við íslendinga-
daginn á Gimli og hátíðahöldin
þar, dagana 2., 3. og 4. ágúst.
Þeir sem hafa hug á að bregða sér
til Vesturheims í sumar þurfa að
tilkynna þátttöku, annað hvort til
Samvinnuferða á Akureyri, s.
23727, eða Þjóðræknisfélaganna á
Akureyri, s. 24334 og 23853 á
kvöldin.
(Ul — — '“iTj "7
Öj_ > JL
# Reglurnar
breyttust
meðan
fulltrúinn
för austur!
Fulltrúi skattstjóra í umdæm-
inu var fyrir skömmu að
kynna bændum við Þistil-
fjörðinn nýjar framtatsreglur.
Þegar til Þórshafnar kom
þurfti fulltrúinn, Jóhann Her-
mannsson, að hringja til
Akureyrar. Þá kom i Ijós að
reglurnar höfðu breyst með-
an hann ók frá Húsavík til
Þórshafnar. Sem betur fer er
Jóhann gamalreyndur í fag-
inu og veit nokkuð hvaö
stjórnarherrarnir hugsa sér
þegar þeir eru að hræra í
reglunum.
# Enn um
beinar línur
Það er ekki aðeins deilt um
Torfunefsbryggju. Nú hafa
250 manns, í Svalbarðs-
strandar- og Grýtubakka-
hreppi, ritað undir skjal þess
efnis að leggja beri veg þvert
yfir Leirurnar — þvert yfir
eitthvert fegursta fuglaríki
landsins — og með ófyrirsjá-
anlegum aflelðingum fyrir Iff-
rfki Pollsins f heild. Þvf má
bæta við að vegur yfir Leir-
urnar myndi stórskemma
skógarreit austan fjarðar.
Það er rétt athugað hjá þessu
ágæta fólki að nauðsynlegt
er að fá nýjan veg yfir Eyja-
fjarðará — bæði er vegurinn
gamli léiegur og brýrnar þola
ekki lengur umferðina. En
það er ekki skynsamlegt að
vilja fá veginn yfir Leirurnar
þegar hægt er að leggja hann
sunnar á svipaðan hátt og
núverandi vegarstæðí. Við
megum ekki láta skamm-
tfmasjónarmið ráða, þegar
jafn veigamiklu máli er ráðið
tll lykta. Við megum ekki ein-
blína á tímann sem tekur að
komast til og frá Akureyri —
allra síst þegar jafn mikið er í
húfi og í þessu tilfelli.
§ Vöruflutn-
ingar á landi
og sjó
Magnús Svavarsson, bif-
reiðastjóri, hafði samband
við blaðið og vildi koma á
framfæri athugasemd vegna
ummæla Helga Bergs, bæj-
arstjóra á Akureyri, i Kastljósi
nýlega, þar sem hann átti að
hafa nefnt, að erfitt væri að
flytja vörur landlelðina frá
Akureyri til annarra staða á
Norðurlandi. Magnús vildi
benda á, að hann hefði sjálfur
annast flutninga tvisvar f viku
mllli Akureyrar og Sauðár-
króks, og hefði sú starfsemi
gengið að óskum.