Dagur - 20.03.1980, Síða 6
Laugalandsprestakall. Messað í
Saurbæ sunnudaginn 23.
marskl. 13.30. Prófastur séra
Stefán Snævar predikar og
vísiterar kirkjuna. Sóknar-
prestur.
Aðalfundur íþróttafélags fa-
tlaðra á Akureyri, verður
haldinn að Bjargi fimmtu-
dginn 27. mars n.k. kl. 20.30.
Dagskrá. Venjuleg aðal-
fundarstörf. Stjórnin.
Aðalfundur Sjálfs-
bjargar, félags fatlaðra
á Akureyri og ná-
grenni, verður haldinn
í Bjargi, Hvannavöllum
10, laugardaginn 29. mars kl. 14.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar-
störf. Stjórnin.
Kökubasar verður í Laxagötu 5,
laugardaginn 22. þ.m. kl. 3
e.h. Komið og gerið góð
_ kaup fyrir hátíðirnar. Harp-
aii.
í sambandi við frétt um vestur-
ferðir kom rangt símanúm-
er. Rétt númer er 23852.
Árni Bjarnarson.
Borgarbíó sýnir í kvöld kl. 11
myndina Grimmur leikur er
sýnd var í síðustu viku við
mikla aðsókn. kl. 9 sýnir
bíóið stórmyndina Skipa-
kóngurinn með Anthony
Quinn og Jacqueline Bisset í
aðalhlutverkum. Myndin
þykir sýna líf Jacline Kenn-
edy og Onassis.
Nýjabíó sýnir kl. 9 í kvöld og
næstu kvöld myndina
„Breaker, Breaker“ eða
Trukkastríðið eins og hún
nefnist á íslensku. Aðalhlut-
verk leikur Karatemeistar-
inn Chuck Norris. Það sem
gerir þessa mynd skemmti-
legri en Convoy eru hin
hressilegu slagsmál er Norris
tekur þátt í Kl. 11 sýnir bíóið
myndina „Sprengja um boð
í Brittanic“ með Omar
Shariff og Richrad Harris í
aðalhlutverkum. Á bama-
sýningu á sunnudag ki. 3
verður sýnd myndin Ótemj-
an eftir Walt Disney.
AUGLÝSIÐ í DEGi
Eiginmaóur minn og faðir okkar
TRYGGYI AÐALSTEINSSON
Byggðaveg 113,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 18. mars.
Snjólaug Þorleifsdóttir og börnin.
AUGLYSIR
Rýmingarsala
verður á barna og kvenfatnaði fimmtudag Einnig mikið úrval af samfestingum og flau-
20. og föstudag 21. frá kl. 8-5 báða dagana elsbuxum, kjólum og pilsum á hagstæðu
og laugardag 22. frá kl. 1-5 e.h. verði.
Komið og gerið góð kaup.
Fatagerðin Príma
Ásveg 5, Dalvík sími 61153
VÖRU
FLUG
BFIM I II.
AKUREYRAR
frá Evrópu, 15. apríl n.k.
Kaupmannahöfn, London, Glasgow, Rotterdam.
Farmflytjendur hafió samband við
íscargo
MYNDAGÁTA DagS -
Tryggvabraut 12, pósthólf 58, 602 Akureyri
útsýn: Gullna ströndin
ÁÆTLUN Útsýnar um hópferðir
sumarið 1980 er nýkomin út —
fjölbreytt og glæsileg og býður
ferðir í 3 heimsálfum.
Fjölsóttasti áfangastaður ís-
lendinga í sumarleyfum er enn
Costa del sol. Útsýn sendir þang-
að um 200 manns um páskana og
er ferðin uppseld með leiguflug-
vélinni, en sumir farþeganna fara
í áætlunarflugi þótt dýrara sé.
Vorferðirnar 13. apríl og 8. mai
eru þær ódýrustu. Þá geta far-
þegar dvalist í 26 daga í Torre-
molinos fyrir sama verð og í 2ja
vikna ferð í sumar og er verðið frá
269.600 krónum og 3ja vikna ferð
8. maí fæst á sama verði.
En Ítalíuferðirnar fylgja fast á
eftir að vinsældum, enda ber
Lignano — Gullna ströndin —
langt af öðrum baðströndum við
Adriahaf hvað fegurð fjölbreytni
og aðstöðu farþeganna snertir.
Við ströndina eru nýtísku gisi-
staðir og ótal skemmtilegir ferða-
möguleikar eru um nágrennið.
Það er til aukins hagræðis fyrir
farþega Útsýnar til Ítalíu og Júg-
óslavíu að nú verður lent á flug-
vellinum við Trieste, sem styttir
mjög leiðina á gististað — aðeins
tekur 40 mínútur að komast til
Lignano og klukkustund til Port-
oroz, í stað 3-4 klst. ferðar frá
Feneyjum. Dagflug verður í öllu
leiguflugi Útsýnar í sumar.
Almenn farseðlasala og þjón-
usta við einstaklinga er einnig sí-
vaxandi grein í starfsemi Útsýnar,
enda hefur verið lögð áhersla á að
hafa á að skipa færasta starfsfólki
í þessari vandasömu þjónustu-
grein. Hins vegar hefur þessi
þáttur starfseminnar e.t.v. ekki
farið hátt, en Útsýn selur alla
farseðla í áætlunarferðir flugfé-
laga um allan heim á lægsta fá-
anlega verði.
Lausnin þarf að berast blaðinu í síðasta lagi hálfum mánuði eftir að gátan
'birtist ef þú vilt eiga möguleika á aukaverðlaunum. Til að eiga möguleika1
á ferðavinníngnum verður þú að taka þátt í öllum gátunum
Nafn
Heimili
simi
Staður
Lausn
LAUSNIN VERÐUR AÐ VERA SKRIFUÐ Á ÞETTA
EYÐUBLAÐ.
-a
6.DAGUR