Dagur - 28.03.1980, Blaðsíða 1

Dagur - 28.03.1980, Blaðsíða 1
LXIII. árgangur Akureyri, föstudagur 28. mars 1980 24. tölublað Flokksræði — lýðræði ÞAÐ FER í taugamar á mörgum stjórnmálamönnum hve almenningur er tregur til þátttöku i starfi stjórnmálaflokk- anna. Sárafáir bætast við hóp flokksbundinna, og er það sér- staklega áberandi hvað ungt fólk varðar. Flokksfélögin em að eldast upp og tréna, og lifandi þjóðfélagsumræða er víðast hvar annars staðar en þar. Þetta er orðið alvarlegt vandamál allra flokka, sem forystumenn þeirra eru jafnvel farnir að viðurkenna, og er óhætt að taka undir það, að þetta er á hættubraut. Þingræðiskerfið byggir nefnilega á þeim grund- velli að flokkarnir séu handhafar valdsins. Afleiðing fyrr- nefndrar þróunar er því sú að valdið safnast á æ færri hendur og gagnrýni á valdhafa og umræða meðal samflokksmanna er æ minni, eftir því sem endurnýjun þeirra minnkar. Hverra sök er þessi þróun? Er við unga fólkið að sakast, eða stjórnmálaflokkana? Flokkarnir krefjast þess af meðlimum sínum að þeir hafi skoðanir. Sá sem ekki hefur skoðun rækir ekki lýðræðislegar skyldur sínar, eins og það er gjarnan nefnt. En við erum ekki skyldug að hafa skoðun á öllum sköpuðum hlutum. Við meg- um segja að okkur sé alveg sama. En þá kemur stjórnmála- maðurinn og segir okkur hvað það sé ábyrgðarlaust að hafa enga skoðun á málinu. Það snerti okkur svo mikið að við verðum hreinlega að taka afstöðu. Ef við ætlum aftur á móti að taka þátt í gangi mála með því að starfa í flokksfélagi, þá blasir við okkur heil flóra af „hugsjónum“: frjálshyggja, einstaklingsframtak, jöfnuður, samvinna ... og guð veit hvað. Það er bara að tileinka sér einhverja „hugsjón“ og þá er maður gjaldgengur í flokk, þó maður sé í raun fátækur af öðrum hugsjónum en þeim, að standa sig og klára afborgunina af vaxtaaukaláninu. En ég held að dæmið sé einfaldlega þannig að ekki er hægt að þrengja svo að umhugsun okkar að hún rúmist þægilega innan ákveðins hugmyndakerfis. Stjórnmálaflokkarnir hafa því hlutverki að gegna m.a. að unga út valdhöfum. Má sjálfsagt telja þá á fingrum sér sem ganga í stjórnmálaflokk með öðru hugarfari en þvi að nota flokkinn sér til framdráttar; að komast í valdaaðstöðu. (Eða er það e.t.v. flokkurinn sem notar þá?) Með þessu er ég ekki að segja að flokkarnir séu slæmir, enda er vald í sjálfu sér ekki slæmt — nema það sé misnotað. Hættan við þá þróun að of lítil endurnýjun verði innan flokkanna er sú, að þeir sem þar eftir sitja, reyni að halda i völd sfn og vilji ekki láta þau af hendi. En lýðræðið er allt of mikilvægt okkur öllum, svo að við getum látið það renna okkur úr greipum. Við megum ekki láta það gerast að það verði harðsoðinn kjarni atvinnu-stjórnmálamanna sem ráðskist með okkur. Það er ekki lýðræði, það er flokksræði. Allt er þetta erfitt viðureignar, og ég viðurkenni að auð- veldara er að benda á veilurnar en laga þær. Eg er t.d. ekki tilbúinn að segja fyrir um það hvernig þetta vandamál skal leyst. Eigum við að fylkja okkur undir merki flokkanna?, eða eiga stjómmálaflokkarnir að opna sig fyrir almenningi með nýjum hætti og leita meira til hins almenna bæjarbúa um lausn bæjarmála, eða þjóðarinnar þegar um þjóðmál er að ræða? Við verðum a.m.k. að dreifa valdinu, þannig að réttur okkar og möguleikar til áhrifa sé meiri. Þannig minnkum við hættuna á því að valdið takmarkist við hendur fámenns hóps stjórnmálamanna. Hleypt af stokkunum ÞAÐ BLAÐ sem hér fer af stað, Helgar-Dagur, hefur það að markmiði fyrst og fremst að vera fróðlegt aflestrar, jafnvel skemmtilegt. Ekki verða hér fréttir i hefðbundnum skilningi, heldur viðtöl, greinar um menningarmál og fleira sem tengist Norðurlandi á einhvern hátt. Við höfum leitað til nokkuð stórs hóps manna til að skrifa um hinar ýmsu greinar menn- ingarlifsins, og vonumst til að geta gert menningarlífi Akur- eyrar og Norðurlands nokkuð góð skil. Fyrst um sinn kemur Helgar-Dagur út mánaðarlega, en markmiðið er að gefa hann út vikulega, og er stefnt að því að smáþétta útgáfuna þangað til því marki verður náð. Guðbrandur Magnússon. Blóð og eldur BLÓÐ OG ELDUR! eru einkennisorð hersins, og maður sér fyrir sér æpandi stríðsmenn, sem æða fram með brugðna branda tilbúna að drepa og eyða öllu sem fyrir verður. En þessi her er vopnlaus, það er að segja, vopn hans eru ekki sjáanleg með berum augum. Og hermenn þessa hers eru dreifðir um 82 lönd og þeir berja ekki hver á öðrum. Skrítinn her þetta, og það sem meira er, þeir hrópa „hallelúja“ og klappa saman lófunum. — MIÐOPNAN. Vörubíll er eitthvað sem allir skilja Siá Leiklist eftir Viðar Eggertsson á bls. 7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.