Dagur - 28.03.1980, Blaðsíða 2

Dagur - 28.03.1980, Blaðsíða 2
Myndlistm biýst margefld fram Oft hefir mátt heyra í umræðu um íslenska myndlist að hún sé yngst allra listgreina í okkar landi og jafnvel að hér hafi ekki orðið til myndlist fyrr en um eða eftir síð- ustu aldamót. Það mun þó nær sanni að myndlist eða öllu heldur myndlistir hafi verið stundaðar hér á landi lengur en aðrar listir. Myndlistir segi ég því þær eru fleiri en ein þ.e.a.s. málaralist, högg- myndalist, húsagerðarlist og list- iðnaður. Menningu hverrar þjóðar eða samfélagsheildar verður að skoða í heild þó greina megi einstaka þætti heildarinnar sér og skoða af var- fæmi. Frá örófi alda hefir mynd- listin fylgt manninum og mótast af því samfélagi sem hann hefir gert sér hverju sinni. Óhætt er að segja að í hverju menningarsamfélagi hefir myndlist eða sjónlist verið einn snarasti þátturinn. Vitað er að forfeður okkar er hér námu land voru miklir dýrkendur sjónlistar, það sjáum við af því menningar- umhverfi er þeir komu úr og við þekkjum, sem og þeim minjum er varðveitst hafa hér á landi frá þeim tíma. Myndlistir voru snar þáttur heiðins átrúnaðar og hefur því vart liðið á löngu þar til landnámsmenn hófu að reisa sér hof og hefja á stall líkneskjur Goðanna er þeir hugð- ust blóta. Öndvegissúlurnar varð að skera, og skreyta þurfti skála og smíða varð margt er tilheyrði hí- býlamennt víkingaaldarinnar. Heimildir höfum við einnig úr fomum kvæðum og sögum. Af þeim brotum minja sem verðveist hafa og eins af rituðum heimildum er Ijóst að á miðöldum var hér hámenning á sviði sjónlista ekki síður en ritlistar. Kirkjan og stofn- anir henni tengdar urðu athvarf æðri lista og veraldlegir höfðingjar kepptu við hana hvað þeirgátu auk þess sem alþýðan með nytjalist sína lagði sitt af mörkum. Með siðaskiptunum má segja að kirkjulist sé dæmd og útlæg gerð. Siðaskiptamenn beittu kaþólska kirkjulist mjög hörðu svo ekki sé meira sagt. Frá Skálholti kom fyr- irskipun til lærðra sem leikra um að hreinsa þessar hneykslanlegu af- guðamyndir úr kirkjum sínum og höggva þær eða brenna. Varð hin- um nýju herrum allvel ágengt sunnanlands, en á Norðurlandi gengu hlutirnir hægar fyrir sig og er þar ef til vill að finna skýringu þess, að velflest kirkjuleg verk er varð- veitst hafa frá þessum tíma, eru þaðan. Á tímum kaþólsku kirkj- unnar var iðkun sjónlista taiin sjálfsögð og nauðsynleg í þjóðfé- laginu og gegndi bæði trúarlegu og opinberu hlutverki. Eftir siðaskipt- in hrakar sjónlistum mjög hér á landi og einkum er kom að því niðurlægingar tíma'oili í sögu þjóð- arinnar, sem margir vilja kalla „hinar myrku aldir“. En þrátt fyrir niðurlægjandi tíma í sögu þjóðar- innar hélt alþýðan áfram listiðkun, svo ekki verður annað sagt en að sjónlistir eigi sér óslitna sögu allt fram á okkar daga, rétt eins og rit- listin. Hinsvegar er það að sjón- menntir okkar bundna og svifa- seina bændasamfélags, sem stóð fram á 19du öld, fylgdi í engu þeim hræringum er áttu sér stað í Evrópu frá því á 15du öld og fram á þá 19du. Vöxtur borga og viðgangur borgarastéttar endurreisnarinnar og efnahagslegrar þróunar I 2 Engar goðamyndir úr hofum hafa varðveist hér fremur en á hinum Norð- urlöndunum. Hins vegar eigum við frábæran grip í Þjóðminjasafninu jarð- fundinn að Eyrarlandi í Eyjafirði sem gefur okkur glögga hugmynd um goðalíkneski. Það er lítil Þórsmynd steypt í brons um 6.7 sm. á hæð og mun vera frá ofanverðri lOdu öld. Líkneskið situr á baklágum stól með keilulaga hjálm og virðist styðja hökunni fram á hamar sinn. i myndinni gætir mik- illar samanþjöppunar líkamsformanna sem bendir til þess að þar sem trjá- bolurinn takmarkar umfangið. Yfir myndinni er afar þungbúinn og sterkur blær. Smáar guðamyndir sem þessi virðast hafa verið algengar í heiðnum sið. Menn báru þær á sér og blótuðu til er þeir voru fjarri hofunum eða á laun eftir að kristinn siður komst á hér á landi. t Vatnsdælasögu segir um Hallfreð vandræðaskáld: „Hann mun enn hafa vanða sinn, at blóta á laun, ok hefir hann líkneski Þórs í pungi sínum af tönn gört,...“. r---------------------------------n Aóalfundur Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu, föstudaginn 2. maí 1980, kl. 13.30. DAGSKRÁ: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 13. grein samþykkta félagsins. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins samkvæmt 15. grein sam- þykktanna. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, 25. til 30. apríl. Stjórnin EIMSKIP Evrópu gætir ekki hér, né heldur að við vitum af barrok og rókókó; nema hvað slíkra áhrifa gætir í verkum örfárra menntamanna er numið höfðu erlendis. Auk þeirrar örlagaríku staðreyndar, að ísland varð nýlenda og herraþjóðin rændi okkur þeim fjármunum, er höfðu verið undirstaða menningarlegs frumkvæðis hér á landi. Með 18du öldinni færðist yfir myrkasti tíminn í sögu íslenskra sjónlista. Alþýðulistin færist í æ venjubundnara mót, í söðulklæð- um og á rúmábreiðum vex upp sami blaðstöngullinn, rómanski teinungurinn á rúmfjölunum og sama áttblaðarósin á asklokunum. En þrátt fyrir staðnaða þjóðfélags- hætti og menningarlega deyðu bærist listþörfin með þjóðinni, sem svo leiðir af sér blómann jafnskjótt og losnar um. Á þessum tíma var myndlistin ekki dauð úr öllum æð- um. Alþýðulistamenn máluðu af hjartans list altaristöflur í kirkjur er byggðar voru af ágætum hand- verksmönnum. En smám saman, eftir 300 ára niðurlægingu brýst myndlistar- hneigð Islendinga margefld fram á ný í kjölfar hinnar rómantísku náttúrudýrkunar skáldanna. Og í framhaldi af sjálfstæðisbaráttu ís- lendinga hefst það gróskumikla tímabil íslenskrar listasögu er flest- um mun allvel kunnugt og ekki verður rakið hér. Heildarsaga íslenskrar sjónlistar hefur ekki enn verið rituð, enda óhægt um vik þar sem mörg verk- anna eru dreifð um aila norðurálfu, oft á torfundnum stöðum og upp- runi þeirra hreinlega gleymdur. Þó hefir allmikið verið ritað um ein- »-j.________g._________1_______________ca Bíddu andartak meðan ég mála þetta; staka þætti og tímabil sögunnar og það oft myndarlega. Ég mun síðar á þessum vettvangi fjalla ítarlega um myndlistir að fomu og nýju. ÞOSÍ OG SIMAMALASTOFNUN . Skilagrein yfir greitt orlofsfé 'ív/,-•/- 3Sri- Á Launa- greiðendur Kynnið yður skipan á greiðslu orlofsfjár Samkvæmt reglugerð nr. 161/1973 ber launagreiðendum að gera skil á orlofsfé fyrir 10. hvers mánaðar, vegna launa næsta mánaðar á undan. Greiðslunni skal fylgja skilagrein á þar til gerðu eyðublaði sem Póstur og sími gefur út. Gætið þess sérstaklega að nafnnúmer séu rétt. Launþegar fá reikningsyfirlit á 3ja mánaða fresti frá Pósti og síma. Það sýnir hve mikið orlofsfé hefur verið móttekið þeirra vegna. Geyma þarf launaseðlana til að geta séð hvort rétt upphæð hefur verið greidd inn á orlofsreikninginn. Við lok orlofsárs fær launþegi senda ávísun á orlofsfé sitt. Eyðublöð fást á póststöðum og eru þar veittar nánari upplýs- ingar. PÓSTGÍRÓSTOFAN Ármúla 6,105 Reykjavík. Sími 86777.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.